Innlent
Víða ófært Óveður er á Hellisheiði og á Kjalarnesi en sjólaust. Svipaða sögu er að segja af Vesturlandi en á Vestfjörðum er ófært um Klettsháls, Eyrarfjall og Steingrímsfjarðarheiði. Stórhríð er á Norðvesturlandi og ekkert ferðaveður, ófært á milli Blönduóss og Skagastrandar, á þverárfjalli og á milli Hofsóss og Siglufjarðar. Hálka er víða á Austurlandi , þæfingsfærð á Vopnafjarðarheiði og ófært um Öxi. Innlent 16.2.2006 09:15
Fundu ólöglega stera, E-töflur og fleira Hundrað pillur af ólöglegum sterum, tuttugu og tvær E- pillur og eitthvað af Marijúana fannst við húsleit í Keflavík í gærkvöldi. Lögreglan stöðvaði eigandann í umferðinni, vegna gruns um fíkniefnamisferli, en ekkert fannst í bílnum. Var þá gerð húsleit á heimili hans með fyrrnefndum árangri. Innlent 16.2.2006 07:28
Féll fyrir utan veitingahús Lögreglan í Keflavík kom manni til hjálpar, sem hafði fallið fyrir utan veitingahús og skorist í andliti þannig að það foss blæddi úr honum. Ekki var fyrr búið að gera að sárum hans á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja , en að hann var sendur í ofboði með sjúkrabíl á Slysadeild Landsspítalans í nótt,til að láta dæla upp úr honum, vegna gruns um að hann hefði gleypt einhverja ólyfjan. Þar er hann enn og er hrakförum hans að líkindum lokið. Innlent 16.2.2006 07:14
Lögreglan aðvarar ökumenn Lögreglumenn í Reykjavík límdu viðvörunarmiða á yfir eitt hundrað bíla í nótt, sem ekki hafa verið færðir til skoðunar eða eru með útrunnar tryggingar. Þar með er búið að líma miða á að minnstakosti 200 bíla á tveimur nóttum og verða lögreglumenn á ferðinni í sömu erindum alveg fram að helgi. Innlent 16.2.2006 07:22
Enn haldið sofandi eftir alvarlegt umferðarslys Stúlkunni, sem varð fyrir bíl í Garðarbæ síðegis í gær, er enn haldið sofandi í öndunarvél og er líðan hennar óbreytt að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild Landspítalans í morgun. Ekið var á stúlkuna þegar hún var á leið yfir gangbraut á Bæjarbrautinni. Innlent 16.2.2006 07:25
Tímabært að endurskoða lög um sóknargjöld til trú- og lífsskoðunarfélaga Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður allsherjanefndar og þingamður Samfylkingarinnar segir tímabært að endurskoða lög um sóknargjöld til trúfélaga og jafnframt lífsskoðunarfélaga. Innlent 15.2.2006 23:26
Samningur við Eykt samþykktur í bæjarstjórn Hveragerðis Meirihluti bæjarstjórnar Hveragerðis samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi umdeildan samning bæjarins við verktakafyrirtækið Eykt um að það fái að byggja allt að 900 íbúðir á 80 hektara landssvæði bæjarins, án útboðs. Innlent 16.2.2006 07:18
Horfið frá því að sameina leikskóla? Ekki er víst að leikskólar Vestmannaeyjabæjar verði sameinaðir eins og til stóð. Ákveðið var í skólamálaráði bæjarins í gær að leggja það til við bæjarrstjórn að frestað verði að sameina yfirstjórnir leikskóla Vestmanneyjabæjar. Innlent 15.2.2006 22:36
Frumvarp um RÚV samræmist enn ekki reglum EES Frumvarp menntamálaráðherra um Ríkisútvarpið samræmist enn ekki reglum EES. Þessu halda Samtök atvinnulífsins fram. Innlent 15.2.2006 22:22
Gagnrýnir vændisfrumvarp dómsmálaráðherra Ágúst Ólafur Ágústsson, þingamaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir dómsmálaráðherra fyrir frumvarp sem hann kynnti fyrir ríkisstjórninni í gær, þar sem hvorki kaup né sala vændis er refsiverð. Ágúst vill að kaupendum vændis verði refsað, ekki seljendum. Innlent 15.2.2006 21:56
Leitað eftir samningi vegna Heilsuverndarstöðvar Heilbrigðisráðherra hyggst leita eftir samningum um að starfsemi Heilsuverndarstöðvarinnar verði þar áfram, að minnsta kosti tímabundið, eftir að nýir eigendur taka við húsinu. Ráðherra opnaði í dag nýjan vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í húsinu. Innlent 15.2.2006 16:08
Breytingar á frumvarpinu ná til allra skólastiga Breytingar á frumvarpi um styttri framhaldsskóla ná til allra skólastiga. Þetta kom fram í máli Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra í fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Innlent 15.2.2006 16:08
Þjóðskrá frá Hagstofu til dómsmálaráðuneytis Þjóðskráin verður flutt frá Hagstofunni til dómsmálaráðuneytisins 1. maí næstkomandi ef frumvarp forsætisráðherra þar að lútandi nær fram að ganga. Ætlunin með þessu er að skilja betur milli hagskýrslugerðar og stjórnsýslustarfsemi að sögn hagstofustjóra. Innlent 15.2.2006 14:02
Gengu í hjónaband um borð í flugvél Átta hollensk pör gengu í það heilaga um borð í flugvél Icelandair á degi elskenda, Valentínusardeginum, í gær. IcelandAir stóð fyrir samkeppni í Hollandi af því tilefni að fimmtán eru liðin frá því að IcelandAir hóf að fljúga frá Amsterdam til Íslands. Innlent 15.2.2006 13:59
Alifuglar hér á landi verða lokaðir inni ef til fuglaflensu kemur Reikna má með að alifuglar hér á landi verði lokaðir inni líkt og annars staðar á Norðurlöndum þegar og ef fuglaflensa berst hingað til lands. Sóttvarnalæknir segir að ekki verði gripið til sérstakra aðgerða nú umfram það sem þegar hefur verið gert eftir að fuglaflensa hefur greinst í Þýskalandi og Austurríki. Innlent 15.2.2006 13:58
Impregilo og starfsmannaleigur sýknuð Impregilo og tvær portúgalskar starfsmannaleigur voru í morgun sýknuð af kröfu AFLs, starfsgreinafélags Austurlands, um greiðslu félagsgjalda og gjalda í sjúkra- og orlofssjóði. Innlent 15.2.2006 13:29
FL Group í ölið FL Group hefur keypt tæplega ellefu prósenta hlut í dankska drykkjarvöruframleiðandanum Royal Unibrew A/S. Markaðsvirði hlutarins er um 4,2 milljarðar króna. Viðskipti innlent 15.2.2006 13:23
Roger Waters til Íslands Roger Waters, fyrrum forsprakki Pink Floyd, heldur tónleikaí Egilshöll 12. júní næst komandi. Þar flytur hann öll helstu lög Pink Floyd, þar á meðal öll lögin af plötunni Dark Side of the Moon. Sú plata hefur selst í þrjátíu og fjórum milljónum eintaka og var rúm ellefu ár samfleytt á lista Billboard yfir 200 mest seldu plötur Bandaríkjanna. Innlent 15.2.2006 12:55
Tveir slösuðust í bílslysi Tveir menn slösuðust þegar bíll þeirra valt út af veginum við Urriðavatn, skammt frá Egilsstöðum í gærkvöldi. Þeir voru fluttir á heilsugæslustöðina á Egilsstöðum og ákváðu læknar þar að senda þá áfram með sjúkraflugi á Landspítalann í Reykjavík. Innlent 15.2.2006 12:44
Miklar hækkanir á hlutabréfamarkaði Ekkert lát var á hækkun fyrirtækja í Kauphöllinni í morgun og hefur FL Group hækkað um tæp fimmtíu prósent frá áramótum, svo dæmi sé tekið. Innlent 15.2.2006 12:08
Unglingspiltar handsamaðir eftir árásir Þrír unglingspiltar réðust í gærkvöldi á konu, sem var nýbúin að taka reiðufé út úr hraðbanka við Fífuhvammsveg í Kópavogi og reyndu að hrifsa af henni veskið. Hún brást hart við, hristi þá af sér og hringdi á lögreglu. Innlent 15.2.2006 12:11
Sjúkraflugvélin fjarri þegar hennar var þörf Rúmur klukkutími leið frá því óskað var eftir sjúkraflugi fyrir fárveikt tveggja ára barn í Vestmannaeyjum þar til flugvélin sem sinna átti fluginu kom til Eyja. Flugvélin á að vera þar að staðaldri en var í viðgerð í Reykjavík þegar hennar var þörf. Innlent 15.2.2006 11:57
Suðurverk átti lægsta tilboðið Suðurverk ehf átti lægsta tilboð í gatna- og stígagerð lagningu fráveitu-, neysluvatns og veitulagna í fimmta áfanga Vallahverfis í Hafnarfirði. Tilboðið hljómaði upp á 211 milljónir króna en kostnaðaráætlun upp á rúmar 240 milljónir. Innlent 15.2.2006 07:53
Frumvarpið samræmist ekki EES-ákvæðum Samtök atvinnulífsins telja að lagafrumvarp um Ríkisútvarpið samræmist ekki ákvæðum EES-samningsins um ríkisstyrki og sé í andstöðu við markmið samkeppnislaga. Innlent 15.2.2006 11:16
Mikill áhugi á lóðum í Úlfarsfelli Um 5.500 manns hafa skoðað gögn vegna útboðs á lóðum í Úlfarársdal eða sótt sér geisladisk með gögnunum. Frestur til að skila inn kauptilboðum rennur út klukkan fjögur síðdegis á morgun og verða opnuð hálftíma síðar að þeim bjóðendum viðstöddum sem þess óska. Innlent 15.2.2006 10:38
Öll aðildarfélög styðja samkomulagið Stjórnir allra aðildarfélaga Kennarasambands Íslands styðja samkomulag sambandsins við menntamálaráðherra um samstarf í skólamálum. Samkomulagið, sem var gert eftir miklar deilur um fyrirhugaða styttingu náms til stúdentsprófs, hefur verið gagnrýnt af kennurum í mörgum skólum. Innlent 15.2.2006 10:29
Vilja flytja inn erfðaefni til kynbóta Bændur í Félagi kúabænda á Suðurlandi vilja að hafinn verði innflutningur á erfðaefni til að kynbæta kúastofninn. Tillaga þessa efnis var samþykkt með 23 atkvæðum gegn tíu á aðalfundi félagsins í gær. Innlent 15.2.2006 10:13
Vísitala framleiðsluverðs lækkar Vísitala framleiðsluverðs var 97,1 stig á síðasta ársfjórðungi síðasta árs og hafði þá lækkað um 0,3 prósentustig frá næsta ársfjórðungi á undan. Innlent 15.2.2006 09:24
Straumi hleypt á fyrstu kerin Straumi verður hleypt á fyrstu kerin í stækkun álvers Norðuráls á Grundartanga klukkan tíu í dag. Þetta er fyrsti hluti stækkunarinnar sem er tekinn í notkun en framleiðslugeta álversins eykst úr 90 þúsund tonnum í 220 þúsund tonn. Innlent 15.2.2006 09:17
Rúmlega þrjátíu prósent sveitarstórnarmanna konur Konur eru nú um þrjátíu og tvö prósent sveitarstjórnarmanna. Í sveitarstjórnarkosningunum 2002 fór hlutfall kvenna í sveitarstjórnum landsins í fyrsta skipti yfir þrjátíu prósent og í tíu prósent sveitarfélaga eru konur í meirihluta. Þetta kemur fram í stuttri greiningu á hlut kvenna í sveitarstjórnum á kosningarvef félagsmálaráðuneytisins. Innlent 15.2.2006 07:55