Innlent
Gott skíðafæri um mest allt land Flest skíðasvæði á landinu er opin í dag. Opið er á skíðasvæði höfuðborgarbúa í Bláfjöllum, í Hlíðarfjalli á Akureyri, í Tungudal á Ísafirði og í Oddskarði fyrir austan svo dæmi séu tekin. Innlent 15.4.2006 10:17
Ástæðulaus ótti Ótti greip um sig meðal Dana í gær þegar opinberað var að Dani á þrítugsaldri hefði greinst með fuglaflensusmit. Í morgun var svo upplýst að maðurinn er ekki smitaður. Innlent 15.4.2006 10:13
Impregilo þarf að svara fyrir meintar mútugreiðslur Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo, sem er aðalverktaki framkvæmdanna við Kárahnjúka, tapaði á fimmtudag áfrýjun fyrir dómstólum í Afríkinu Lesótó vegna meintra mútugreiðslna fyrirtækisins til embættismanna. Innlent 15.4.2006 10:09
Fimm manna fjölskyldu bjargað Eldur kom upp í þrílyftu húsi á Eyrinni á Akureyri í morgun. Fimm manna fjölskyldu var bjargað af efstu hæð hússins en eldurinn var á miðhæðinni. Innlent 15.4.2006 10:06
Annir hjá björgunarsveitum Hjón á vélsleða fóru fram af snjóhengju rétt fyrir ofan Grenivík í gær. Hjónin reyndust ekki mikið slösuð en kalla þurfti út björgunarsveit til að aðstoða þau. Innlent 15.4.2006 09:57
Lögreglan las Passíusálmana Borðalagðir lögreglumenn fluttu Passíusálma Hallgríms Péturssonar í Grafarvogskirkju í dag og lögreglukórinn söng með. Föstudagurinn langi er af mörgum talinn einn helgasti dagur ársins. Þá minnast kristnir píslargöngu Krists á ýmsan hátt. Í Grafarvogskirkju lásu lögreglumenn Pasdsísálma Hallgríms Péturssonar fyrir kirkjugesti Innlent 14.4.2006 18:51
Baldur á leið til Stykkishólms Nýja Breiðafjarðarferjan, Baldur, er kominn til landsins, en til stóð að hann hæfi siglingar um Breiðafjörð í fyrradag. Frá því að gamla Breiðafjarðarferjan fór sína síðustu ferð um mánaðamótin hafa engar skipulegar siglingar verið til Brjánslækjar. Innlent 14.4.2006 18:53
ESB fer gegn kortafyrirtækjunum Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar að skera upp herör gegn kortafyrirtækjunum. Þau eru sögð raka inn óheilbrigðum og yfirdrifnum gróða með gjaldtöku sinni. Ragnar Önundarson, framkvæmdastjóri Kreditkorta segir gagnrýnina ekki eiga við um íslensku kortafyrirtækin. Innlent 14.4.2006 19:09
Kemst ekki lengra en til Djúpavogs á 5000 krónum Fyrir ári hefði meðalfólksbíll náð að keyra frá Reykjavík til Vopnafjarðar fyrir fimmþúsund krónur, en nú kemst hann aðeins á Djúpavog. Eins og greint hefur verið frá í fréttum hér á NFS þá hefur bensínverð hækkað mikið á undanförnum mánuðum og kostar bensínlítrinn um það bil 20 krónum meira nú en í apríl í fyrra. Innlent 14.4.2006 18:55
Gert meira rétt en rangt Fjármálaráðherra segir hagstjórn ríkisstjórnarinnar ekki án galla en telur árangur hennar engu að síður ásættanlegan. Hann segir breytingu hámarksútlána Íbúðalánasjóðs engin áhrif hafa á verðbólguna. Innlent 14.4.2006 19:17
Víða opið í dag Hægt er að versla í matinn, taka bensín á bílinn og bregða sér í sund á höfuðborgarsvæðinu í dag. En víða er opið ólíkt því sem áður þekktist á föstudeginum langa. Innlent 14.4.2006 12:29
Vélsleðamennirnir fundnir Vélsleðamennirnir tveir sem leitað var norðan Langjökuls eru fundnir. Þeir eru heilir að húfi en þeir fundust um sjö til átta kílómetrum frá vélsleðum sínum í Hallmundarhrauni. Mannanna hafði verið saknað frá því um kvöldmatarleytið í gær. Innlent 14.4.2006 10:14
Gott skíðafæri um mest allt land utan höfuðborgarsvæðisins Opið er í Hlíðarfjalli í dag. Veður er bjart á Akueyri núna, hiti rétt undir frostmarki og skíðafærið gott. Það sama á við um Tindastól skíðasvæði Sauðkræklinga og Skarðsdal skíðasvæði Siglfirðinga en á báðum stöðum er færið fínt. Innlent 14.4.2006 10:11
Vélsleðamanna enn leitað Fjölmennt lið björgunarsveitarmanna leitar enn tveggja manna á svæði norðan Langjökuls. Mennirnir ætluðu í stutta vélsleðaferð á Landgjökul í gærdag en skiluðu sér ekki til byggða. Þyrla Landhelgisgæslunnar fann vélsleðana yfirgefna í Hallmundarhrauni við jaðar Landgjökuls fyrr í morgun. Innlent 14.4.2006 10:07
Íslendingar netvæddastir allra Íslendingar eru netvæddasta þjóð í heimi að því er ný rannsókn Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD sýnir. Erlent 13.4.2006 19:05
Vökvinn hérlendis sagður hættulaus Bandaríska fyrirtækið, Bausch & Lomb sendi frá sér yfirlýsingu í gær í kjölfar fregna af Renu Moisture Loc-linsuvökvanum sem talinn er geta valdið blindu. Erlent 13.4.2006 19:03
Endurgreiða gjöld og veita afslátt vegna stöðugleika í rekstri Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hyggst greiða til baka hluta af gjöldum bæjarbúa til sveitarfélagsins á þessu ári og veita afslátt af dagvistargjöldum út árið. Bæjarstjóri segir þetta gert vegna stöðugleika sem náðst hafi í rekstri sveitarfélagsins. Innlent 13.4.2006 18:17
Sérstök innbrotsvakt hjá lögreglunni Innbrotsþjófar, sem hugsa sér gott til glóðarinnar nú um helgina, ættu að hugsa sinn gang. Lögreglan verður á sérstakri innbrotavakt og fylgist sérlega vel með íbúðar- og iðnaðarhverfum. Innlent 13.4.2006 17:25
Skíðamaður slasaðist í Tungudal Karlmaður slasaðist þegar hann féll á skíðum á skíðasvæðinu í Tungudal fyrr í dag. Maðurinn, sem er um sjötugt, var fluttur með sjúkraflugi á slysadeild Landspítalans-háskólasjúkrahús. Hann er ekki í lífshættu en ekki er vitað um hvers kyns meiðsli hans eru. Maðurinn er í rannsókn og verður mjög líklega lagður inn á spítalann. Innlent 13.4.2006 17:54
Umhverfisráðherra skoðaði afleiðingar sinubrunans á Mýrum Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra hefur falið Náttúrufræðistofnun Íslands að rannsaka áhrif sinubrunanna á Mýrum á lífríkið og mun stofnunin fylgist náið með framvindu gróðurs og dýrlífs á svæðinu á næstu árum. Umhverfisráðherra skoðaði í gær afleiðingar sinubrunans ásamt forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands, sérfræðingum stofnunarinnar og fulltrúum heimamanna. Innlent 13.4.2006 16:28
D-listinn klofnaði í afstöðu sinni D-listi Sjálfstæðisflokksins í Árborg klofnaði í afstöðu sinni til samnings um Miðjuna á Selfossi, á fundi bæjarstjórnar Árborgar í gær. Bæjarstjórn samþykkti samning við Miðjuna ehf. um kaup á landi og sölu á byggingarrétti í miðbæ Selfoss, með 8 atkvæðum gegn 1. Annar tveggja bæjarfulltrúa D-listans samþykkti samninginn, en hinn greiddi atkvæði á móti. Innlent 13.4.2006 17:27
Sótti slasaðan sjómann af spænskum togara TF-Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar, sótti í dag slasaðan sjómann af spænskum togara sem staddur var 210 sjómílur suðvestur af Reykjanesi á karfaveiðum. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni er maðurinn með alvarlega brjóstholsáverka. Innlent 13.4.2006 16:42
Ekki alvarlega slasaður Bifhjólamaðurinn, sem fluttur var á slysadeild eftir að hann kastaðist af hjóli sínu á vélhjólamóti við Vesturlandsveg, er ekki talinn alvarlega slasaður. Innlent 13.4.2006 14:51
Bifhjólamaður fluttur á slysadeild Bifhjólamaður slasaðist á öðrum tímanum í dag á keppnismóti sem er nú í gangi við Vesturlandsveg. Sjúkrabíll er nú á leið með manninn á slysadeild Landspítla-háskólasjúkrahús en ekki er vitað um hvers kyns meiðsl hans eru. Maðurinn slasaðist þegar hann tók heljarstökk á hjóli sínu og lenti á bakinu. Innlent 13.4.2006 14:00
Þriggja bíl árekstur á Kárahnjúkum Þriggja bíla árekstur varð á Kárahnjúkum um klukkan ellefu í morgun þegar pallbíll lenti aftan á öðrum pallbíl og því næst keyrði stór flutningabíll aftan á pallbílana. Slæmt skyggni og hálka var þar sem áreksturinn átti sér stað. Innlent 13.4.2006 13:32
Björguðu fjölskyldu í bíl á Hellisheiði eystri Björgunarsveitir á Vopnafirði og Jökuldal komu í morgun þriggja manna fjölskyldu til bjargar sem fest hafði bíl sinn á Hellisheiði milli Vopnafjarðar og Héraðs. Innlent 13.4.2006 12:01
Fjársöfnun hafin fyrir dómsmál gegn ríkinu Áhugahópur um verndun Þjórsárvera hefur hafið fjársöfnun vegna dómsmáls sem hópurinn rekur gegn Landsvirkjun og stjórnvöldum. Gjafsókn fæst ekki, en lagaákvæði um gjafsókn var breytt á meðan umsókn frá hópnum lá fyrir hjá gjafsóknarnefnd. Innlent 13.4.2006 12:05
Seðlabankinn ekki einn á verðbólguvaktinni Einar Oddur Kristjánsson, varaformaður Fjárlaganefndar, neitar því að Seðlabankinn hafi staðið einn á verðbólguvaktinni, eins og ASÍ heldur fram. Hann segir gagnrýnina einungis réttmæta hvað varði launakostnað hins opinbera. Innlent 13.4.2006 11:56
55 teknir fyrir of hraðan akstur nærri Blönduósi Lögreglan á Blönduósi hafði í nógu að snúast við umferðareftirlit í gær ef marka má fjölda þeirra sem teknir voru fyrir of hraðan akstur. Alls voru 55 stöðvaðir frá hádegi í gær og fram yfir miðnætti en sá sem hraðast ók var á um 140 kílómetra hraða á klukkustund. Innlent 13.4.2006 10:03
Umferðarslys á Ólafsfjarðarvegi í gær Einn var fluttur á sjúkrahús eftir árekstur tveggja bifreiða á Ólafsfjarðarvegi gærkvöld. Bílarnir komu úr gangstæðri átt og valt annar þeirra þegar þeir rákust saman. Innlent 13.4.2006 10:05