Erlent
Voru fimm daga á sporbaug Kínverjar bjuggu sig undir komu geimfarsins Shenzhou 6 í gærdag, en búist er við lendingu farsins nú í morgunsárið. Tveir geimfarar, Nie Haisheng og Fei Junlong, voru um borð í geimfarinu, sem var skotið á loft á miðvikudag. Kínverjar voru þriðja þjóðin sem hefur sent mannað geimfar út í heim, og var þetta í annað sinn sem þeir sendu geimfar út. Hinar þjóðirnar tvær eru Rússland og Bandaríkin. Erlent 23.10.2005 15:05
Hefur ekki áhuga á forsetaembætti Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að hún hefði engan áhuga á því að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna í næstu forsetakosningunum, en þegar hafa verið opnaðar að minnsta kosti tvær vefsíður þar sem Rice er hvött til að gefa kost á sér sem forsetaefni repúblikana í kosningunum 2008. Erlent 23.10.2005 15:05
Loksins komin lögleg útgáfa Enska útgáfan af Harry Potter and the Half-Blood Prince kom út í júlí og óleyfileg kínversk þýðing á bókinni komst í dreifingu tveimur vikum seinna. Erlent 23.10.2005 15:05
Eitt barn sem fannst í rústunum Stúlka fannst í dag í rústum byggingar nærri Balakot-borg sem hrundi í jarðskjálftanum sem reið yfir Kasmír um síðastliðna helgi. Fyrr í dag greindi Reuters-fréttastofan frá því að fjögur börn hefðu fundust á lífi en misskilningurinn byggðist á því að þrjú börn, sem sögð eru systkini stúlkunnar, tilkynntu hjálparstarfsmönnum um hvar hana væri að finna í rústunum. Erlent 23.10.2005 15:05
Hundruð óþekktra líka í líkhúsunum Hundruð óþekktra líka eru enn í líkhúsum í New Orleans og gengur hægt að bera kennsl á þau. Fjölmargir borgarbúar leita ástvina sinna og eru reiðir sökum þess hversu hægt gengur að fá upplýsingar um örlög þeirra. Erlent 23.10.2005 15:05
Börn finnast á lífi í rústunum Fjögur börn fundust á lífi í dag í rústum byggingar nærri Balakot-borg sem hrundi í jarðskjálftanum sem reið yfir Kasmír um síðastliðna helgi. Yngsta barnið er sagt vera aðeins nokkura mánaða gamalt og það elsta níu ára. Erlent 23.10.2005 15:05
Gjafir streyma til nýfædds prins Hundruð Dana hafa lagt leið sína til Amalíuborgar í Kaupmannahöfn til að færa hinum nýfædda syni Friðriks krónprins og Maríu Elísabetar krónprinsessu gjafir. Lög biðröð myndaðist í gær við höllina og tóku starfsmenn í höllinni við pökkunum. Þegar yfir lauk í gær höfðu hátt í 400 pakkar borist og meðal þess sem prinsinn ungi fékk var barnastóll, bækur, leikföng auk fjölmargra bangsa. Erlent 23.10.2005 15:05
Hungursneyð í Malaví Yfirvofandi hungursneyð í Malaví mun hafa áhrif á um helming þjóðarinnar, að sögn forseta landsins, Bingu wa Mutharika, sem kallaði á hjálp frá öðrum þjóðum í ríkissjónvarpi og -útvarpi landsins á laugardag. Erlent 23.10.2005 15:05
Stjórnarskráin líklega samþykkt Ánægja ríkir með kosningarnar í Írak í gær. Það þykir næsta víst að stjórnarskráin sem kosið var um hafi verið samþykkt, en þar með eru þó ekki allir erfiðleikar yfirstignir. Erlent 23.10.2005 15:05
Þurrkar á Amason-svæðum Fjárskortur hamlar flutningum á nauðsynjavörum til Amason-svæða Brasilíu, sem miklir þurrkar hafa hrjáð síðustu mánuði, að sögn talsmanna brasilíska hersins. Erlent 23.10.2005 15:05
Syrgjendur vilja fá líkin Hundruð svartklæddra syrgjenda söfnuðust saman í gær fyrir utan skrifstofur saksóknara í borginni Naltjik í rússneska hluta Kákasus og kröfðust þess að lík ættingja þeirra yrðu látin af hendi, svo hægt væri að grafa þau. Erlent 23.10.2005 15:05
Bretar neita aðild að árás í Íran Bretar neituðu í dag ásökunum íranskra yfirvalda um aðild að sprengjutilræðum í suðurvesturhluta Írans í gær sem kostuðu fimm manns lífið. Tvær heimatilbúnar sprengjur sprungu með nokkurra mínútna millibili í miðbæ borgarinnar Ahvaz í Khuzestan-héraði og auk þeirra fimm sem létust særðust ríflega 80 manns. Erlent 23.10.2005 15:05
Ráðherralisti tilbúinn í Noregi Jens Stoltenberg, tilvonandi forsætisráðherra Noregs, segist hafa komist að samkomulagi um hvert ráðherraembætti í nýrri ríkisstjórn en hann hyggst ekki greina frá því hverjir sitja í henni fyrr en hann hefur látið Harald konung fá lista yfir ráðherrana í fyrramálið. Erlent 23.10.2005 15:05
Fimm bandarískir hermenn falla Fimm bandarískir hermenn létust er sprengja sprakk á vegi í Írak á laugardag, þegar Írakar kusu um stjórnarskrá sína. Bandaríski herinn sagði frá þessu í gær en áður hafði herinn sagt að kosningarnar hafi farið friðsamlega fram. Erlent 23.10.2005 15:05
Ný stjórn Jens Stoltenberg, nýr forsætisráðherra Noregs, skipar í ráðherrastóla í Osló í dag, en ráðherralaust hefur verið í Noregi nú um helgina, þar sem síðasta ríkisstjórn sagði af sér á föstudag. Erlent 23.10.2005 15:05
Unglingur handtekinn vegna hótana Lögregla í Árósum handtók í gær 17 ára pilt fyrir að hóta teiknurum hjá danska blaðinu Jótlandspóstinum lífláti vegna mynda af spámanninum Múhameð sem birtust í blaðinu. Myndirnar, sem voru tólf talsins og birstust í blaðinu 30. september, vöktu mikla reiði hjá múslímum í Danmörku sem sögðu þær guðlast og gengu um 3500 þeirra um götur Kaupmannahafnar og mótmæltu þeim á föstudag. Erlent 23.10.2005 15:05
Enn slæmt veður á hamfarasvæðum Það rignir enn eldi og brennisteini á hamfarasvæðunum í Kasmír og talið víst að fjöldi fórnarlamba muni hækka vegna vosbúðar og farsótta. Erlent 23.10.2005 15:04
Jarðskjálfti skekur Tókýó Jarðskjálfti skók Tókýó og nærliggjandi byggðir í morgun en engar fregnir hafa borist af skemmdum. Japanska veðurstofan gef heldur ekki út viðvörun vegna sjávarskafls eða flóðbylgju. Skjálftinn reyndist 5,1 að styrkleika og átti upptök sín skammt norður af Tókýó. Erlent 23.10.2005 15:04
Einstök lest tekin í gagnið í Kína Hún fer hærra en nokkur hefur farið á undan henni, lestin sem Kínverjar vígðu með stolti um helgina. Eftir áratuga starf hefur loksins verið lokið við að leggja lestarteina þvert yfir Tíbet. Þar brunar lest sem á engan sinn líka. Erlent 23.10.2005 15:05
Barist um hjálpargögn Neyðarhjálp berst á ný til fórnarlamba jarðskjálftans í Kasmír en eymdin og örvilnunin er umtalsverð. Eftir úrhellisrigningu undanfarna sólarhringa hefur stytt upp en á stundum er barist um hjálpargögn. Erlent 23.10.2005 15:05
Berrössuð á diskói í Lundúnum Hundruð breskra skemmtanafíkla streyma hverja helgi á næturklúbb í Lundúnum. Ástæðan er ekki endilega sú að klúbburinn er sá flottasti í borginni heldur að hann er sá eini þar sem allir skemmta sér berrassaðir. Erlent 23.10.2005 15:04
Sprengjutilræði í Suðvestur-Íran Tveir létust og 50 særðust þegar tvær sprengjur sprungu með nokkurra mínútna millibili í borginni Ahvaz í suðvesturhluta Írans fyrir stundu. Sprengjurnar sprungu við verslunarmiðstöð í miðborg Ahvaz. Enginn hefur lýst ábyrgð á árásunum en róstursamt hefur verið á svæðinu í Khuzestan-héraði, meginolíuhéraði Írans. Erlent 23.10.2005 15:04
Yfir 38 þúsund látnir í Pakistan Pakistönsk yfirvöld telja nú að yfir 38 þúsund manns hafi látist af völdum jarðskjálftans sem skók Suður-Asíu fyrir viku, en það er þrettán þúsundum fleiri en talið var í upphafi. Talsmaður Pakistanshers segir að talan hafi hækkað þar sem komið hafi í ljós að fjölmargir hefðu látist í afskekktum héruðum sem björgunarmenn komust ekki til fyrr en nokkrum dögum eftir skjálftann. Þá er tala slasaðra komin upp í 60 þúsund. Erlent 23.10.2005 15:04
Friðsæll kjördagur Fyrstu tölur yfir þjóðaratkvæðagreiðslu um drög að stjórnarskrá Íraks á laugardag bentu til þess að kjörsókn hefði verið góð. Erlent 23.10.2005 15:04
Mikil gleði í Danmörku vegna prins Mikil gleði ríkir í Danmörku vegna fæðingar litla prinsins í nótt. Krónprinsaparið Friðrik og María eignaðist 14 marka son sem var 51 sentímetri. Erlent 23.10.2005 15:04
Dóu þegar hús hrundi í Barcelona Fimm fórust þegar þriggja hæða fjölbýlishús í Barcelona á Spáni hrundi til grunna í nótt. Það voru einkum innflytjendur frá Norður-Afríku sem bjuggu í húsinu sem var byggt á átjándu öld. Ekki er vitað um ástæður þess að byggingin hrundi en björgunarsveitir eru enn á vettvangi. Erlent 23.10.2005 15:04
Mannskætt rútuslys í Bangladess Að minnsta kosti 18 létust og 25 slösuðust þegar rúta fór út af vegi og lenti í fljóti í norðurhluta Bangladess í dag. Fimmtí farþegar voru í rútunni þegar hún steyptis í ána. Ekki er ljóst hvers vegna rútan fór út af veginum. Erlent 23.10.2005 15:04
Fimmtán milljónir á kjörskrá Fimmtán milljónir Íraka hafa í dag tækifæri til að kjósa um stjórnarskrá landsins. Kosningaþátttaka er sögð góð þrátt fyrir árásir og hótanir uppreisnar- og hryðjuverkamanna. Erlent 23.10.2005 15:04
Margir búa undir berum himni Staðfest hefur verið að ekki færri en 38 þúsund týndu lífi í jarðskjálftanum í Kasmír fyrir viku. Talið er að allt að tvær og hálf milljón hafi misst heimili sín og hafist við undir berum himni í nýstingskulda. Erlent 23.10.2005 15:04
Meginvörnin dugar skammt Flensulyfið Tamiflú, meginvörnin gegn fuglaflensu, virðist ekki duga nema að litlu leyti. Mannskæð fuglaflensa hefur nú greinst í Rúmeníu og í gær var staðfest að hún hefði greinst í Tyrklandi. Erlent 23.10.2005 15:04