Erlent
Nýi Danaprinsinn kominn heim María Elísabet krónprinsessa og Friðrik krónprins Danmerkur sýndu nýfæddan son sinn í fyrsta sinn opinberlega í gær er þau fóru heim af fæðingardeildinni. Þau brostu sínu breiðasta, hún með prinsinn unga á arminum, þegar þau veifuðu til fjölmiðlafólks sem beið þeirra við innganginn að Ríkissjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn. Erlent 23.10.2005 17:50
Hjálparstarf gengur enn erfiðlega Fimmtíu og fjögur þúsund manns eru nú talin hafa farist í jarðskjálftanum sem reið yfir Kasmírhérað fyrir tíu dögum. Neyðaraðstoð hefur enn ekki borist til hálfrar milljónar manna. Fulltrúi Sameinuðu þjóðanna segir hjálparstarf í Kasmír erfiðara en eftir flóðbylgjuna miklu í Indlandshafi í fyrra, og telur ekki nógu mörg vetrartjöld til í heiminum til að veita öllum þeim sem eru heimilislausir eftir skjálftann, tímabundið húsaskjól í vetur. Erlent 23.10.2005 17:50
Þyrluloftbrú í Pakistan Loftbrú var mynduð með tugum herþyrlna til að flytja hjálpargögn til nauðstaddra í afskekktari byggðum í fjalllendinu í pakistanska hluta Kasmír í gær þar sem áætlað er að um hálf milljón manna sem lifði af jarðskjálftann mikla um þarsíðustu helgi bíði þess enn að þeim berist aðstoð. Erlent 23.10.2005 17:50
Kenneth Clarke kosinn út Kenneth Clarke, fyrrum fjármálaráðherra Bretlands, varð fyrsti frambjóðandinn til leiðtogaembættis breska Íhaldsflokksins til að falla úr leik. Þingmenn flokksins greiddu atkvæði um frambjóðendurna fjóra rétt í þessu og fékk Clarke fæst atkvæði. David Davis fékk flest atkvæði, en 62 af 198 þingmönnum greiddu honum atkvæði sitt. Erlent 23.10.2005 17:50
Evrópa ekki nógu vel undirbúin Evrópa er ekki nógu vel undirbúin fyrir fuglaflensufaraldur, en allt verður gert til að bæta úr því, segir yfirmaður heilbrigðismála hjá Evrópusambandinu. Stöðugt fjölgar þeim Evrópulöndum þar sem grunur leikur á að flensan hafi stungið sér niður. Erlent 23.10.2005 17:50
Veggur mældur á 27 kílómetra hraða Það er ekki alltaf að marka hraðamælingar lögreglunnar. Það sannreyndu blaðamenn breska dagblaðsins Daily Mail þegar þeir prófuðu radarmæla lögreglunnar. Veggur, sem eðli málsins samkvæmt var kyrrstæður, mældist á tuttugu og sjö kílómetra hraða og kyrrstæður bíll á bílastæði mældist á fjórtán kílómetra hraða. Erlent 23.10.2005 17:50
Litli prinsinn farinn heim María krónprinsessa Dana og Friðrik ríkisarfi fóru heim af sjúkrahúsinu í dag með son sinn sem fæddist á laugardaginn. Fjölmiðlum var um leið gefið tækifæri til að sjá nýfædda prinsinn, sem svaf sallarólegur á sínu græna eyra meðan myndavélarnar suðuðu og smelltu í gríð og erg. Móður og syni heilsast vel og sögðust foreldrarnir vera að springa úr stolti yfir frumburðinum. Erlent 23.10.2005 17:50
Stöðvar ekki fyrr en í Rússlandi Skipstjóri rússneska togarans sem er á flótta undan norskum varðskipum með tvo norska strandgæslumenn innanborðs segist ekki ætla að nema staðar fyrr en hann er kominn í rússneska landhelgi. Erlent 23.10.2005 17:50
Enn í haldi Rússa Norskum strandgæslumönnum er enn haldið nauðugum um borð í rússneska togaranum Electron sem stefnir á Múrmansk í Rússlandi eftir að norskt varðskip skipaði því að stöðva á Barentshafi vegna ólöglegra veiða. Skipið er nú komið inn í rússneska landhelgi. Erlent 23.10.2005 17:50
Norskum strandgæslumönnum rænt Tveir eftirlitsmenn frá norsku strandgæslunni sem rússneskur togari rændi á sunnudagskvöld, eru enn um borð í togaranum. Rússnesk stjórnvöld hafa sent herskip á móti honum og er því ætlað að ná í Norðmennina. Rússarnir halda því fram að skotið hafi verið að þeim, en því neita norsk stjórnvöld. Erlent 23.10.2005 17:50
Gruna tengdabróður Assad um morð Tengdabróðir Bashar al-Assad Sýrlandsforseta er meðal þeirra sem liggja undir grun um morðið á Rafik al-Hariri, fyrrum forsætisráðherra Líbanons. Þetta kemur fram í skýrslu þeirra sem hafa rannsakað morðið fyrir Sameinuðu þjóðirnar að sögn þýska blaðsins Stern. Erlent 23.10.2005 17:50
Ken Clarke heltist úr lestinni Ken Clarke heltist úr lestinni í fyrstu umferð leiðtogakjörs breska Íhaldsflokksins í gær. David Davis varð hins vegar hlutskarpastur fjórmenninganna sem berjast um embættið. Erlent 23.10.2005 17:57
Kyrkislanga í klósettinu Þriggja metra löng kyrkislanga, sem Manchesterbúar gáfu nafnið Keith, er nú loks hætt að skríða milli klósetta í íbúðarblokk í borginni, en það hafði hún gert í þrjá mánuði, íbúunum til mikillar hrellingar. Erlent 23.10.2005 17:50
Ung stúlka finnst á lífi Sex ára stúlku var bjargað úr rústum húss í fjallaþorpi austur af Balakot í Pakistan í dag en níu dagar eru síðan jarðskjálfti af stærðinni 7,6 á Richter reið yfir norðurhluta landsins. Erlent 23.10.2005 17:50
Stíma inn í rússneska lögsögu Skipstjóri rússneska togarans "Elektron", sem lagði á flótta undan norskum varðskipum í Barentshafi með tvo norska veiðieftirlitsmenn innanborðs, sagðist í gær ekki ætla að nema staðar fyrr en hann væri kominn í rússneska landhelgi. Erlent 23.10.2005 17:50
Ný ríkisstjórn í Noregi Ríkisstjórn vinstri og miðflokka tók við völdum í Noregi í dag. Þetta er í fyrsta skipti í 20 ár, sem norska stjórnin hefur meirihluta á þingi en í stjórninni eiga sæti 19 ráðherrar, 10 karlar og 9 konur. Erlent 23.10.2005 17:34
Lenín undir græna torfu? Héraðsstjóri Pétursborgar, sem er talinn náinn pólitískur samherji Vladimírs Pútín Rússlandsforseta, hvatti í gær opinberlega til þess að lík Vladimírs Lenín, sem enn stendur uppi í grafhýsi á Rauða torginu í Moskvu, verði fjarlægt þaðan og grafið. Erlent 23.10.2005 17:50
Vilja að prinsinn fái feðraorlof Meirihluti Dana segist hlynntur því að Friðrik krónprins taki sér fæðingarorlof vegna fæðingar frumburðarins. Erlent 23.10.2005 17:34
Fuglaflensan komin til Grikklands Grísk yfirvöld greindu frá því í gær að fuglaflensu hefði orðið vart í landinu í fyrsta sinn. Sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar WHO búast við að pestin haldi áfram að breiðast út. Erlent 23.10.2005 17:57
Óttast rangar áherslur Forsvarsmenn Alþjóða heilbrigðissstofnunarinnar óttast að fuglaflensutilfelli sem hafa greinst í Evrópu verði til þess að Evrópuríki hætti að veita fé til að berjast gegn sjúkdómnum í Suð-Austur Asíu, þess í stað einbeiti ríkin sér að því að koma í veg fyrir fuglaflensu í Evrópu. Erlent 23.10.2005 17:34
Borgarar falla í Írak Sjötíu manns liggja í valnum eftir að bandarískar hersveitir réðust gegn uppreisnarmönnum í vesturhluta Íraks. Íbúar svæðisins segja flesta hina látnu vera saklausa borgara. Erlent 23.10.2005 17:57
Merkel kynnir ráðherralið sitt Forystumenn stóru flokkanna tveggja í Þýskalandi, Kristilegra demókrata (CDU/CSU) og Jafnaðarmanna (SPD) hittust í gær til að hefja formlegar viðræður um gerð málefnasamnings samsteypustjórnar flokkanna. Og Angela Merkel, leiðtogi kristilegra, kynnti hverjir úr röðum hennar flokksmanna setjast með henni í þessa væntanlegu ríkisstjórn. Erlent 23.10.2005 17:50
44 morð framin daglega í BNA Sextán þúsund eitt hundrað þrjátíu og sjö manns voru myrtir í Bandaríkjunum í fyrra. Að meðaltali eru því framin um fjörutíu og fjögur morð á hverjum einasta degi í Bandaríkjunum. Morðum fækaði samt um nærri tvö prósent frá árinu 2003, þegar sextán þúsund og fimm hundruð manns voru myrtir. Erlent 23.10.2005 17:50
Atvinnuleysi meðal innflytjenda Ný dönsk rannsókn sýnir að 2. kynslóða innflytjendur eiga erfiðara með að fóta sig á atvinnumarkaðinum en áður var talið. Töluverðar breytingar hafa orðið á atvinnuþáttöku fólks af erlendum uppruna frá því árið 2001. Erlent 23.10.2005 17:34
Reiði vegna hofheimsóknar Þegar Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, laut í gær höfði í Yasukuni-hofinu í Tókýó, sem tileinkað er minningu Japana sem látið hafa lífið í stríði, voru viðbrögðin í öðrum Asíulöndum snör og hörð: Ráðamenn í Seoul sögðu réttast að aflýsa áformuðum leiðtogafundi og í Peking var því lýst yfir að hofheimsóknin væri ögrun. Erlent 23.10.2005 17:50
Borgarar falla í Írak Sjötíu manns liggja í valnum eftir að bandarískar hersveitir réðust gegn uppreisnarmönnum í vesturhluta Íraks. Íbúar svæðisins segja flesta hina látnu vera saklausa borgara. Erlent 23.10.2005 17:57
Vilja evrópska fuglaflensunefnd Fuglaflensa hefur greinst í Grikklandi og beðið er niðurstöðu rannsókna á sýnum úr dauðum farfuglum í Króatíu. Sérfræðingar telja núna ómögulegt að koma í veg fyrir að flensan breiðist út um Evrópu, en markmiðið er að hindra að menn smitist af henni. Erlent 23.10.2005 17:50
Úkraína fái að semja um NATO-aðild Viktor Jústsjenko, forseti Úkraínu, sagðist í gær vonast til að viðræður um aðild landsins að Atlantshafsbandalaginu gætu hafist á vori komanda. Ennfremur sagði hann að fríverslunarsamningur við Evrópusambandið gæti orðið að veruleika innan 12-15 mánaða. Hann þáði viðurkenningu úr hendi Elísabetar Englandsdrottningar í Lundúnum í gær. Erlent 23.10.2005 17:50
Forsetaljóðabók skyldulesning Forseti Túrkmenistans fyrir lífstíð, Saparmurat Niyazov, hefur gefið út nýja ljóðabók sem verður skyldulesning fyrir alla þegna landsins, að því er fram kom í ríkisfjölmiðlum landsins í gær. Erlent 23.10.2005 17:50
Selveiðar aftur hagkvæmar? Selveiðar gætu aftur orðið vænleg atvinnugrein hér á landi, ef þær fréttir frá Noregi reynast réttar að lýsi, unnið úr sel, sé tíu til tuttugu sinnum áhrifaríkara en venjuelgt þorska- og ufsalýsi. Erlent 23.10.2005 17:34