Erlent
Reykingabann í Bretlandi? Ráðherrar bresku ríkisstjórnarinnar sitja nú á fundi, þar sem tekin verður ákvörðun um hvort banna eigi reykingar á öllum opinberum stöðum á Bretlandi. Erlent 24.10.2005 13:28
Kaczynski fékk 54 prósent atkvæða Endanlegar niðurstöður liggja nú fyrir í pólsku forsetakosningunum sem fram fóru um helgina. Eins og áður hafði verið greint frá fór Lech Kaczynski, borgarstjóri í Varsjá, með sigur af hólmi, en hann hlaut 54 prósent atkvæða en andstæðingur hans, Donald Tusk 46 prósent. Erlent 24.10.2005 13:30
ESB leggur fram meira fé vegna hamfara Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur ákveðið að leggja fram 80 milljónir evra, um 5,8 milljarða króna, til að aðstoða fórnalömb hamfaranna í Pakistan. Þetta var ákveðið á fundi í dag. Erlent 24.10.2005 13:20
Unglingur skotinn til bana Átján ára unglingur lést af skotsárum sínum í Birmingham í gærkvöld, en þar blossuðu upp óeirðir á milli afrískra og asískra ungmenna um helgina með þeim afleiðingum að einn var stunginn til bana á laugardagskvöld. Erlent 24.10.2005 08:44
Dúfur finnast dauðar í Ungverjalandi Átján dúfur fundust dauðar í bænum Szegend í Ungverjalandi, nærri landamærunum að Rúmeníu og Serbíu, um helgina en ekki hefur fengist staðfest hvort þær létust úr fuglaflensu. Frá þessu greinir MTI-fréttastöðin í Ungverjalandi. Erlent 24.10.2005 08:36
Þriðja tilfellið í Rússlandi Fuglaflensa hefur greinst á ný í evrópska hluta Rússlands. Yfirvöld hafa staðfest að H5N1 stofn fuglaflensunnar hafi greinst í Tambov, fjögur hundruð kílómetra suðaustur af Moskvu. Erlent 24.10.2005 08:56
Eldgos á Galapagoseyjum Eldfjallið Sierra Negra á Galapagoseyjum byrjaði í gær að gjósa með miklum látum. Eldtungurnar úr hinu fimmtán hundruð metra háa fjalli breiddust um stórt svæði, en íbúar í nágrenninu eru þó ekki taldir í hættu. Erlent 24.10.2005 08:13
Danskir múslimar ævareiðir Mótmæli danskra múslima vegna birtinga skopmynda af spámanninum Múhammeð, í Jyllandsposten, í lok september hefur nú teygt sig út fyrir dönsk landamæri. Erlent 24.10.2005 08:09
Vilja refsa Sýrlendingum fyrir morðið á Hariri Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Bretlands vilja að gripið verði til aðgerða gegn Sýrlendingum vegna morðsins á Rafik Hairiri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons. Erlent 24.10.2005 08:08
Kaczynski næsti forseti landsins Lech Kaczynski verður næsti forseti Póllands, en þegar 91 prósent atkvæða í forsetakosningum um helgina hafa verið talin hefur hann fengið 55 prósent atkvæða en andstæðingur hans, Donald Tusk, 45 prósent. Erlent 24.10.2005 08:04
Ísraelsher drepur háttsettan mann innan Íslamska jihad Ísraelskar hersveitir drápu háttsettan mann innan herskáu samtakanna Íslamska jihad í aðgerðum á Vesturbakkanum í dag. Frá þessu var greint í ísraelsku útvarpi. Erlent 24.10.2005 08:00
Loka landamærum ef fuglaflensa berst milli manna Kínverjar munu loka öllum landamærum að landinu ef upp kemur tilvik af fuglaflensu sem smitast beint á milli manna. Yfirmenn heilbrigðismála segja að björgun mannslífa muni hafa algjöran forgang, jafnvel þó að það muni verða efnahag landsins til mikils trafala. Erlent 24.10.2005 07:53
Enn skelfur jörð Jarðskjálfti upp á sex á Richter skók hamfarasvæðin í Suður-Asíu í gærkvöld, rúmum tveimur vikum eftir að stór skjálfti reið þar yfir með þeim afleiðingum að tugir þúsunda létu lífið. Erlent 24.10.2005 07:43
Stefnir á Flórída Meirihluti íbúa Florida Keys eyjaklasans hefur neitað að yfirgefa heimili sín, þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir yfirvalda vegna fellibylsins Wilmu, sem hefur styrkst á ný og nær þar landi upp úr hádeginu í dag. Erlent 24.10.2005 07:27
Börn dóu í sprengjuárás Háttsettur lögregluforingi í borginni Tikrit í Írak beið bana í sprengjuárás í gær ásamt tveimur ungum sonum sínum. Tvær telpur sem sátu í nálægri bifreið létust jafnframt í tilræðinu. Alls fórust tuttugu Írakar í árásum gærdagsins, þar á meðal tveir í Kirkuk þegar bifreið sem hlaðin var sprengiefni var ekið inn í bílalest bandarískra hermanna. Hermennirnir sluppu hins vegar með skrámur. Erlent 23.10.2005 21:27
Sjálfala í allt að sex vikur Litli drengurinn sem fannst hungraður og illa til reika í íbúð í Leith á dögunum með látinni móður er talinn hafa verið einn á báti í allt að sex vikur, ekki í tvær eins og fyrst var talið. Lögreglurannsókn hefur leitt í ljós að móðir drengsins, sem er þriggja ára, sást síðast á lífi 1. september og því útilokar lögregla ekki að snáðinn hafi síðan þá dregið fram lífið á kexi og safa sem var til íbúðinni. Líðan drengsins er sögð furðu góð miðað við aðstæður. Erlent 23.10.2005 18:59
Átök við flóttamannabúðir Fjórir slösuðust í átökum sem brutust út á milli líbanskra skæruliða og herskárra Palestínumanna við flóttamannabúðir nærri Sídon. Að sögn al-Jaazera sjónvarpsstöðvarinnar eru slíkir bardagar allalgengir en líbönsk yfirvöld hafa litla stjórn á búðum sem þessum. Erlent 23.10.2005 21:27
Stafirnir í stafrófinu búnir Fellibylurinn Wilma yfirgaf loks Mexíkó í gær og hélt sem leið lá í átt til Flórídaríkis. Aldrei hafa jafn margir fellibyljir geisað á þessum slóðum á einu ári. Wilma hefur gert mikinn óskunda í löndunum við Mexíkóflóa undanfarna daga. Erlent 23.10.2005 21:26
Manni banað með hnífi Maður var stunginn til bana þegar átök brutust út í Birmingham í Englandi í fyrrakvöld. Upphaf ólgunnar má rekja til fundar sem boðað hafði verið til vegna árásar á 14 ára gamla stúlku, sem sagt er að hafi verið nauðgað af asískum innflytjendum. Erlent 23.10.2005 19:02
Kominn til Flórída Fellibylurinn Wilma mjakaði sér frá Mexíkó til Flórídaríkis í Bandaríkjunum í gær. Íbúar á hættusvæðum hafa flestir haft sig á brott. "Bærinn sem við búum í er núna eins og draugabær, það eru allir farnir. Hér er samt núna 28 stiga hiti og sólskin og þægileg hafgola. Eftir nokkrar klukkustundir skellur hins vegar veðrið hérna á. Við erum að fara að forða okkur til Fort Lauderdale," sagði Ingvi Hrafn Jónsson fréttamaður sem staddur var á í Key Largo, syðst í Flórída, síðdegis í gær. Erlent 23.10.2005 21:26
H5N1-stofninn ekki á ferðinni Öndin sem drapst úr fuglaflensu í Svíþjóð í vikunni var ekki smituð af hinum illvíga H5N1-stofni veikinnar. Alls hefur 61 maður látist úr fuglaflensu af H5N1-stofni í Asíu en fuglaflensan hefur nú greinst í fimm Evrópulöndum: Rússlandi, Tyrklandi, Rúmeníu, Króatíu og nú síðast í Svíþjóð. Erlent 23.10.2005 21:27
Páfagaukurinn sýktur af H5N1-flensu Bretland Bresk stjórnvöld skýrðu frá því í gær að banamein páfagauks sem geymdur var í einangrunarstöð í Essex í Englandi var fuglaflensa af H5N1-stofni. Komið var með fuglinn til landsins fyrir nokkru frá Súrínam í Suður-Ameríku og var hann settur í sóttkví með 216 fuglum frá Taívan. Erlent 23.10.2005 21:27
Þrír dóu þegar brúin hrundi Steypiregn olli því að brú hrundi í Puglia-héraði á sunnanverðri Ítalíu í gær með þeim afleiðingum að þriggja manna fjölskylda sem var í þann mund að aka yfir brúna beið bana. Erlent 23.10.2005 21:27
Kaczynski var kjörinn forseti Pólverjar kusu í gær Lech Kazcynski forseta sinn ef marka má útgönguspár. Donald Tusk, keppinautur hans, lýsti sig sigraðan fljótlega eftir að spárnar voru birtar. Erlent 23.10.2005 21:27
Kvaðst vera vitorðsmaður Breska lögreglan handtók um helgina mann sem viðurkenndi í blaðaviðtali að hafa verið í vitorði með mönnunum sem myrtu 52 í sprengjuárásum í Lundúnum 7. júlí. Sunnudagsblaðið News of the World greindi frá því í gær að lögregla í Dewsbury í Vestur-Jórvíkurskíri hefði í fyrradag handtekið Imran Patel eftir ábendingu frá ritstjórn blaðsins, en Patel hafði viðurkennt í samtali við blaðamann að hafa átt að taka þátt í hryðjuverkaárásunum. Erlent 23.10.2005 20:27
117 taldir af eftir flugslys Nígería Boeing-þota í eigu nígerísks flugfélags fórst í fyrrakvöld með 117 manns skömmu eftir flugtak frá borginni Lagos. Afar misvísandi fréttir bárust af slysinu framan af gærdeginum. Þotan, sem var af tegundinni Boeing 737 og var í eigu nígeríska flugfélagsins Bellview Airlines, var á leið frá Lagos, stærstu borg landsins, til höfuðborgarinnar Abuja. Erlent 23.10.2005 21:27
Al-Kaída hvetur til mannúðar Arabíska sjónvarpsstöðin al-Jaazera birti í gær ávarp Ayman al-Zawahiri, næstráðanda al-Kaída samtakanna, þar sem hann hvatti múslima til að aðstoða fórnarlömb jarðskjálftans í Pakistan. Pakistönsk stjórnvöld hafa aðstoðað Bandaríkjamenn í stríðinu gegn hryðjuverkum og því vekur yfirlýsingin athygli. Erlent 24.10.2005 02:05
Að minnsta kosti sjö látnir Minnst sjö manns létu lífið þegar fellibylurinn Wilma gekk yfir Júkatan-skaga í Mexíkó um helgina. Bylurinn stefnir nú í átt að suðurhluta Flórída. Enn ein hitabeltislægðin hefur myndast í Karíbahafi. Erlent 23.10.2005 22:51
117 manns létust Enginn komst lífs af þegar farþegaþota með hundrað og sautján manns innanborðs fórst skömmu eftir flugtak í Lagos í Nígeríu í morgun. Vélin var á leiðinni til Abuja, höfuðborgar landsins. Erlent 23.10.2005 21:03
Einn stunginn til bana Einn maður var stunginn til bana í óeirðum sem blossuðu upp á milli afrískra og asískra ungmenna í Birmingham á Englandi í gærkvöldi. Lögreglumaður, sem reyndi að stilla til friðar, særðist alvarlega þegar skotið var á hann. Erlent 23.10.2005 23:06