Erlent

H5N1-stofninn ekki á ferðinni

Öndin sem drapst úr fuglaflensu í Svíþjóð í vikunni var ekki smituð af hinum illvíga H5N1-stofni veikinnar. Alls hefur 61 maður látist úr fuglaflensu af H5N1-stofni í Asíu en fuglaflensan hefur nú greinst í fimm Evrópulöndum: Rússlandi, Tyrklandi, Rúmeníu, Króatíu og nú síðast í Svíþjóð.

Sjúka öndin drapst í bænum Eskils­tuna, um 100 kílómetra vestur af Stokkhólmi, og var hún smituð af mildara afbrigði veirunnar, samkvæmt niðurstöðum dýralækna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×