Íþróttir

Fréttamynd

Red Bull ráða tæknilegan ráðgjafa

Nýja liðið í Formúla 1, Red Bull Racing, réði í dag Gunther Steiner sem tæknilegan ráðgjafa hjá liðinu. Steiner, sem er 39 ára gamall Ítali, kemur í stað David Pitchforth sem var rekinn á föstudaginn. Steiner var áður hjá Opel Motorsport þar sem hann var einnig tæknilegur ráðgjafi.

Sport
Fréttamynd

Randy Moss sektaður um 10,000 dali

Randy Moss, leikmaður Minnesota Vikings í NFL deildinni í ameríska fótboltanum, var í dag sektaður um 10,000 dollara af NFL deildinni fyrir að þykjast girða niðrum sig buxurnar og sýna á sér óæðri endann í átt að aðdáendum Green Bay Packers er hann fagnaði snertimarki sínu í leik liðana um síðustu helgi.

Sport
Fréttamynd

Kanadamenn fá vikufrest

Alþjóðasundsambandið hefur gefið kanadískum mótshöldurum frest til 18. janúar til þess að leggja fram viðeigandi tryggingar vegna heimsmeistaramótsins í sundi í sumar. Mótið er fyrirhugað 17.-31. júlí en mótshöldurum hefur bæði gengið illa að selja aðgöngumiða og útvega fjársterka bakhjarla.

Sport
Fréttamynd

Átta á vetrarólympíuhátíð æskunnar

Átta Íslendingar taka þátt í vetrarólympíuhátíð æskunnar sem verður í Monthey í Sviss 22.-29. janúar. Álfheiður Björgvinsdóttir, Agla Björnsdóttir, Salóme Tómasdóttir, Stefán Jón Sigurgeirsson, Þorsteinn Ingason og Jón Viðar Þorvaldsson keppa í alpagreinum og þeir Arnar Björgvinsson og Sævar Birgisson í skíðagöngu. Vetrarólympíuhátíðin er nú haldin í sjöunda sinn.

Sport
Fréttamynd

Montoya varar Raikkonen við

Ökumaðurinn Juan Pablo Montoya í Formúlu 1 kappakstrinum, hefur lofað félaga sínum hjá McLaren, Kimi Raikkonen, að hann muni veita honum harða keppni í vetur.

Sport
Fréttamynd

Tveir leikir í 1. deild kvenna

Tveir leikir eru í fyrstu deild kvenna í handknattleik í kvöld. FH tekur á móti ÍBV í Kaplakrika og Valur og Víkingur eigast við á Hlíðarenda.

Sport
Fréttamynd

Vill meiri stuðning að heiman

"Í gegnum tíðina hefur það reynst mér þrautin þyngri að verða mér úti um styrktaraðila og oftast hef ég komið að lokuðum dyrum hjá íslenskum fyrirtækjum," segir Þórey Edda Elísdóttir stangarstökkvari, en hún þarf líkt og flest annað íslenskt afreksfólk að leita dyrum og dyngjum að styrkjum og fjárframlögum.

Sport
Fréttamynd

Óvíst með Veigar

Óvíst er hvort Veigar Páll Gunnarsson, knattspyrnumaður hjá norska liðinu Stabæk, verði áfram hjá liðinu. Veigar á eftir tvö ár hjá Stabæk sem féll í aðra deild á síðasta tímabili. Hugsanlegt er að hann fari til liðs í Belgíu en það ætti að koma í ljós í lok mánaðarins.

Sport
Fréttamynd

Óvíst með vináttuleik

Ekki lítur vel út með að íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu leiki vináttuleik 9. febrúar næstkomandi. Knattspyrnusamband Íslands hefur fengið boð frá Asíu og Suður-Ameríku en það er ekki talinn fýsilegur kostur vegna fjarlægðarinnar.

Sport
Fréttamynd

Kjartan framlengir hjá Fylki

Kjartan Ágúst Breiðdal hefur framlengt samning sinn við Fylki. Kjartan skrifaði undir þriggja ára samning en hann er einn af efnilegustu leikmönnum félagsins.

Sport
Fréttamynd

Appleby varði titilinn

Ástralinn Stuart Appleby varði titil sinn á Mercedes-meistaramótinu í golfi. Þetta var fyrsta PGA-mót árins í bandarísku mótaröðinni en leikið var á Kapalua-vellinum á Hawaii. Appleby lék á 67 höggum í gærkvöldi og samtals á 21 höggi undir pari.

Sport
Fréttamynd

Rannver til Slavíu Prag

Rannver Sigurjónsson, knattspyrnumaður úr Breiðabliki, er við æfingar hjá tékkneska liðinu Slavíu Prag og verður þar næstu vikurnar. Rannver er tvítugur sóknarmaður og hefur leikið með yngri landsliðum Íslands.

Sport
Fréttamynd

Singh hefur enn forystu

Fídjieyingurinn Vijay Singh er enn efstur á fyrsta móti ársins á bandarísku mótaröðinni í golfi sem fram fer á Hawaii. Eftir þrjá hringi er Singh á 19 höggum undir pari en Jonathan Kaye og Ernie Els eru skammt undan. Kaye er á 18 undir pari en Els er á 17 undir pari.

Sport
Fréttamynd

Jets sigraði Chargers

New York Jets stal senunni á laugardag þegar fyrstu leikirnar í úrslitakeppni NFL-deildarinnar fóru fram. Jets gerði sér lítið fyrir og sigraði San Diego Chargers á útivelli, 20-17, í framlengdum leik. Doug Brien sparkaði sigurmarkið þegar fimm sekúndur voru eftir af framlengingunni.

Sport
Fréttamynd

Settu Íslandsmet á meistaramóti

Karlasveit Sundfélagsins Ægis bætti eigið Íslandsmet i 4x50 m fjórsundi á Reykjavíkurmeistaramótinu í sundi sem fram fer um helgina í Laugardalslaug. Sveitin synti á tímanum 1:47, 94 og bætti metið um hálfa sekúndu. Sveitina skipuðu Kjartan Hrafnkelsson, Jakob Jóhann Sveinsson, Jón Símon Gíslason og Árni Már Árnason.

Sport
Fréttamynd

Singh leiðir á Hawaii

Það verður ekki auðvelt fyrir Tiger Woods að fylgja Vijay Singh eftir þrátt fyrir gott gengi hans að undanförnu en Singh leiðir nú Mercedes mótið á Hawaii á nítján undir pari en næstir honum, höggi á eftir, kemur Jonathan Kaye frá Bandaríkjunum

Sport
Fréttamynd

Singh byrjar vel á nýju ári

Vijay Singh frá Fídjieyjum, stigahæsti kylfingur heims, hefur forystu eftir fyrsta hring á fyrsta stórmóti árins á bandarísku mótaröðinni í golfi sem hófst á Hawaii í gærkvöld. Singh lék hringinn á sjö höggum undir pari. Craig Parry kemur næstur á sex höggum undir pari en jafnir á fimm höggum undir pari eru Tiger Woods, Sergio Garcia, Stewart Cink og Jonathan Kaye.

Sport
Fréttamynd

Schumacher gefur 10 milljónir dala

Formúla 1 ökuþórinn Michael Schumacher hefur ákveðið að gefa 10 milljónir dollara til fórnarlamba náttúruhamfaranna í Asíu og er þar með kominn í hóp fjölmargra íþróttamanna sem látið hafa fé af hendi rakna.

Sport
Fréttamynd

Hafnaboltaliðin gefa fé

Liðin þrjátíu í Amerísku hafnaboltadeildinni ásamt samtökum leikmanna í deildinni, ætla sameinast og gefa eina milljón dollara til fórnarlamba náttúruhamfaranna í Asíu. Að auki ætlar New York Yankees að gefa eina miljón dollara af þeirri upphæð sem liðið fær fyrir opnunarleikinn gegn Boston Red Sox þann 3. apríl.

Sport
Fréttamynd

Náði áfanga að stórmeistaratitli

Stefán Kristjánsson úr Taflfélaginu Helli náði áfanga að stórmeistaratitli þegar hann gerði jafntefli við ísraelskan stórmeistara á alþjóðlegu skákmóti í Noregi í gær. Íslenskur skákmaður hefur ekki náð slíkum áfanga síðan árið 1996 þegar Þröstur Þórhallsson varð stórmeistari.

Sport
Fréttamynd

Snókerveisla um helgina

Í morgun var dregið í riðla bikarmóts 147.is og Lánstrausts hf. Ljóst er að gífurleg spenna verður í riðlakeppninni þar sem riðlarnir þykja einstaklega jafnir.  Í riðli B, sem kalla má "dauðariðilinn" eru m.a. margfaldir Íslands -og Norðurlandameistarar á ferð ásamt eina útlendingnum í mótinu, gömlum kempum og ungum efnilegum spilara.

Sport
Fréttamynd

Sæki um undanþágu fyrir asmalyf

Íþróttamenn sem nota asmalyf þurfa að sækja um undanþágu fyrir notkun þess. Ekki dugir lengur að greina frá því þegar viðkomandi er tekinn í lyfjapróf, samkvæmt nýrri reglugerð frá Alþjóðalyfjaeftirlitsstofnuninni. Búið er að birta nýjan bannlista yfir lyf sem gildir frá og með áramótum og er hægt að nálgast hann á lyfjavef ÍSÍ.

Sport
Fréttamynd

McRae fremstur í Dakar-rallinu

Bretinn Colin McRae, fyrrverandi heimsmeistari í rallakstri, hefur einnar sekúndu forystu eftir þrjá keppnisdaga í Dakar-rallinu. Bandaríkjamaðurinn Robby Gordon er annar. Ökumennirnir aka 666 kílómetra í dag, frá Rabat til Agadir í Marokkó, en keppninni lýkur í Dakar í Senegal 16.janúar.

Sport
Fréttamynd

Gazza þungt haldinn

Knattspyrnuhetjan fyrrverandi, Paul Gascoigne, liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi með lungnabólgu. Gazza er 37 ára. Hann var lagður inn í gær og verður á sjúkrahúsi í marga daga. Umboðsmaður Gascoignes segir að hann sé ekki alvarlega veikur en enskir fjölmiðlar segja að þetta séu alvarleg veikindi.

Sport
Fréttamynd

Ekki metin að verðleikum

"Ég tel engan vafa leika á því að Kristín Rós Hákonardóttir hefur verið besta íþróttamanneskja landsins síðastliðin ár," segir Arnór Pétursson, fyrrverandi formaður Sjálfsbjargar. Arnór er afar ósáttur við kjör á íþróttamanni ársins.

Sport
Fréttamynd

Jafntefli hjá Rangers og Dundee

Rangers mistókst að vinna Dundee United á útivelli í gær í skosku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, lokatölur 1-1. Rangers fór þó á toppinn á markatölu. Þeir eru með 50 stig en Celtic getur endurheimt toppsætið í dag þegar liðið mætir Livingston á heimavelli.

Sport
Fréttamynd

Ahonen vann glæsilegan sigur

Finninn Janne Ahonen vann glæsilegan sigur í gær á heimsbikarmóti í skíðastökki í Garmisch Partenkirchen í Þýskalandi. Þetta var annar sigur Ahonens í fjórðu fjallakeppninni sem haldin er um áramótin í ölpunum og níundi sigur hans á tíu heimsbikarmótum í vetur.

Sport