Sport

Vill meiri stuðning að heiman

"Í gegnum tíðina hefur það reynst mér þrautin þyngri að verða mér úti um styrktaraðila og oftast hef ég komið að lokuðum dyrum hjá íslenskum fyrirtækjum," segir Þórey Edda Elísdóttir stangarstökkvari, en hún þarf líkt og flest annað íslenskt afreksfólk að leita dyrum og dyngjum að styrkjum og fjárframlögum til að halda áfram metnaðarfullu starfi sínu. Nýliðið ár var eitt hið besta til þessa hjá Þóreyju Eddu en hún setti meðal annars Norðurlandamet í stangarstökki og er efst Íslendinga á afrekaskrá Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins. Auk þess varð hún Íslandsmeistari með liði FH í frjálsum íþróttum og náði fimmta sæti í stangarstökkskeppninni á Ólympíuleikunum í Aþenu. Þrátt fyrir þennan góða árangur hrökkva styrkir til hennar vart til og segir Þórey að flest ár séu barátta við að halda sig við núllið. "Ég hef fengið styrk frá Íþróttasambandi Íslands og var á samningi við VISA síðastliðið ár og þeir styrkir dugðu mér til að lifa og sinna mínum æfingum með góðu móti. Nú er samningurinn við Visa runninn út en þetta ár fæ ég styrk í staðinn frá Íþróttabandalagi Hafnarfjarðar og saman eru þessir styrkir algjör grundvöllur fyrir því að ég geti stundað mína íþrótt." Alltaf er þó hægt að gera betur og segir Þórey að erfitt geti verið að horfa upp á kollega sína frá Þýskalandi eða öðrum Norðurlöndum enda sé mikill munur á þeim fjármunum sem það fólk hefur aðgang að og þeim sem Þórey getur notað. "Þó er ekki hægt að vanmeta þá styrki sem eru af öðrum toga en beinharðir peningar en það virðist frekar að fyrirtæki séu reiðubúin að styrkja afreksfólk með þeim hætti en með beinhörðum peningum og það met ég mikils." Hér heima er reglulega reynt að sækja styrki fyrir hennar hönd með litlum árangri en Þórey sjálf vill gjarnan sjá viðhorfsbreytingu hjá forráðamönnum íslenskra fyrirtækja. "Ég vil gjarnan sjá fyrirtæki heima taka alfarið að sér stuðning við einn efnilegan einstakling eins og erlend fyrirtæki gera víða. Þannig tryggir íþróttamaðurinn sér stuðning og fyrirtækið fær það til baka þegar og ef viðkomandi kemst langt í sinni íþrótt því almennt er íþróttafólk áberandi í fjölmiðlum, yfirleitt góðar fyrirmyndir og auglýsingagildið er ótvírætt."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×