Samgönguslys

Fréttamynd

Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk

Veður og öldulag þann 30. júní 2025 var með þeim hætti að sjósókn lítilla báta gat verið varhugaverð út af Patreksfirði, þar sem Magnús Þór Hafsteinsson drukknaði. Samkvæmt skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa má telja líklegt að rafgeymar sem ekki gátu fætt lensidælur hafi skert sjóhæfni Ormsins langa. Auk þess hafi bátnum verið siglt í gegnum Blakksnesröstina, sem geti verið smærri bátum varhugaverð, þó að sú sigling til hafnar sé styttri.

Innlent
Fréttamynd

Lítilli flug­vél hvolfdi við lendingu

Svo virðist sem betur hafi farið en á horfði þegar lítilli tveggja sæta flugvél hlekktist á við lendingu á Norðfjarðarflugvelli í dag og hvolfdi. Einn var í flugvélinni og slapp hann án meiðsla, samkvæmt tilkynningu frá Lögreglunni á Austurlandi.

Innlent
Fréttamynd

Bílvelta á Hring­braut

Bíll valt á Hringbraut í morgun en enginn er talinn alvarlega slasaður. Ökumaðurinn komst sjálfur út úr bílnum en einhverjar tafir eru á umferð vegna slyssins.

Innlent
Fréttamynd

Drengurinn kominn af gjör­gæslu­deild

Drengurinn sem varð fyrir bíl við söluskála í Varmahlíð hefur verið útskrifaður af gjörgæslu og liggur nú á almennri sjúkradeild. Móðir drengsins hefur verið útskrifuð af sjúkrahúsi.

Innlent
Fréttamynd

Rúta valt á Kjalar­nesi

Tveir voru fluttir til skoðunar eftir að lítil rúta valt á Kjalarnesi um klukkan 14 í dag. Aðgerðum er lokið á vettvangi.

Innlent
Fréttamynd

Voru send í skólasund eftir slysið

Neyðarlínan segist ekki hafa fengið fullnægjandi upplýsingar þegar bíll gjöreyðilagðist eftir aftanákeyrslu á hópferðabíl fullum af börnum fyrir tæpum tveimur vikum. Sjúkrabíll hefði verið sendur samstundis á vettvang hefðu þær borist. 

Innlent
Fréttamynd

Ekið á mann í Þrengslunum

Ekið var á bílstjóra flutningabíls í Þrengslunum í dag. Hann hafði að sögn lögreglu lent í vandræðum í brekku vegna mikillar hálku og stóð fyrir utan bílinn þegar öðrum bíl var ekið utan í hann.

Innlent
Fréttamynd

Deila um hjartastopp endaði með tug­milljóna bótum

Tryggingafélagið Vís hefur verið dæmt til að greiða ekkju og tveimur börnum karlmanns, sem lést eftir umferðarslys árið 2022, 33 milljónir króna í bætur auk vaxta og dráttarvaxta. Maðurinn lést af völdum hjartastopps og tekist var á um hvort það hefði orsakast af slysinu eða bráðri kransæðastíflu, sem sannað þótti að maðurinn hefði þjáðst af í aðdraganda slyssins. 

Innlent
Fréttamynd

Rúta út af og Þingvallavegi lokað

Lokað hefur verið fyrir umferð um Þingvallaveg vegna umferðarslyss á Mosfellsheiði en þar hafnaði rúta fyrir utan veginn eftir að ökumaður missti stjórn á ökutækinu.

Innlent
Fréttamynd

Holta­vörðu­heiði var lokað vegna slyss

Búið er að opna Holtavörðuheiði að nýju eftir að henn ihafði verið lokað vegna umferðarslyss. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar Umferðin.is. Lokunin varði í um klukkustund en á meðan var hjáleið um Laxárdalsheiði og Bröttubrekku. 

Innlent