Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir, Anna Margrét Ásbjarnardóttir, Brynhildur Bolladóttir, Geir Finnsson, Gísli Marteinn Baldursson, Halldóra Þórsdóttir, Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir, Kjartan Sveinn Guðmundsson, Rán Flygenring, Sveinn Þórhallsson og Viktor Lorange skrifa 14. október 2026 10:02 Í fyrradag var ekið á átta ára dreng í Mosfellsbæ. Hann hlaut höfuðáverka og blóðnasir. Ökumaðurinn ók af vettvangi og skildi drenginn eftir grátandi. Fréttin birtist í gærmorgun og verður trúlega gleymd eftir nokkra daga. Eins og svo margar aðrar. Fyrir rúmum tveimur vikum var ekið á fimm ára barn á reiðhjóli í Hveragerði. Barnið slapp með minniháttar áverka og samkvæmt lögreglu verða engin eftirmál af málinu. Síðasta haust var ekið á þrjú börn á sömu gatnamótunum við Laugarnesskóla á innan við mánuði og var þar meðal annars sjálfri sólinni kennt um. Foreldrar höfðu þá um árabil kvartað undan hættulegum aðstæðum og tóku að lokum sjálfir til þess ráðs að standa vörð við gangbrautina til að tryggja öryggi barnanna sinna. Þetta eru engin einsdæmi. Við lauslega yfirferð íslenskra fréttamiðla síðustu tveggja ára má finna frásagnir af því að ekið hafi verið á að minnsta kosti 22 börn hér á landi. Tuttugu og tvö börn sem voru úti að ganga, hjóla eða einfaldlega fara ferða sinna. Og það eru aðeins þau sem rötuðu í fréttir. Hvers vegna er ekki meiri reiði yfir þessu? Hvernig stendur á því að ítrekaðar fréttir af ákeyrslum á börn virðast vart raska ró okkar? Við lesum að barn hafi sloppið með skrekkinn, öndum léttar og höldum áfram með daginn. Eins og það sé ásættanleg niðurstaða að átta ára barn hafi aðeins fengið blóðnasir þegar ekið var á það. Kannski segir þetta eitthvað um hversu undarlega skekkt viðhorf okkar til umferðaröryggis er orðið. Glóandi, brynklædd og á varðbergi Við leggjum ríka áherslu á að kenna börnum að gæta sín í umferðinni. Þau eiga að líta til beggja hliða, nota hjálm, bera endurskinsmerki og vera sífellt á varðbergi. Allt eru þetta skynsamlegar ráðstafanir. En stundum mætti halda að það væru börnin sem bæru meginábyrgð á því að verða ekki fyrir bílum. Hvar er sambærileg aukin áhersla á ábyrgð þeirra fullorðnu sem aka margra tonna ökutækjum um göturnar okkar? Hvers vegna gerum við ekki ríkari kröfur um að ökumenn hægi á sér, fylgist með umhverfinu og sýni þá aðgát sem fylgja á því að stjórna ökutæki sem getur valdið öðrum lífshættulegum áverkum á augabragði? Börn eru óútreiknanleg. Þau hlaupa, leika sér, gleyma sér og gera mistök. Það er hluti af því að vera barn. Við eigum ekki að ætlast til þess að þau hegði sér eins og fullorðnir, hvað þá að afleiðingar þess að þau geri það ekki geti verið þeim lífshættulegar. Það er okkar, hinna fullorðnu, að skapa þeim öruggt umhverfi. Þau sem minnst mega sín Og þar dugir ekki að höfða eingöngu til samvisku ökumanna. Við verðum líka að horfast í augu við hvernig við höfum skipulagt göturnar okkar. Of víðar götur, hraður akstur og gatnamót þar sem greið leið bíla virðist skipta meira máli en öryggi gangandi og hjólandi fólks. Við getum ekki kennt börnum að fara varlega og síðan sent þau út í umhverfi sem gerir ráð fyrir að allir vegfarendur bregðist alltaf rétt við. Þetta er ekki síst öfugsnúið í ljósi þess að fótgangandi og hjólreiðar eru meðal öruggustu ferðamátanna þegar horft er til þeirrar hættu sem vegfarendur skapa öðrum. Það eru hraði og þungi vélknúinna ökutækja sem gera árekstra svo hættulega. Samt er það gangandi og hjólandi fólk, ekki síst börn, sem þurfa að óttast afleiðingarnar mest. Við höfum skapað umferðarumhverfi þar sem þeir sem skapa minnsta hættu fyrir aðra þurfa sjálfir að sýna mesta varúð. En ábyrgðin liggur ekki bara hjá þeim sem sitja undir stýri. Hún liggur líka hjá þeim sem ákveða hvernig göturnar okkar eru hannaðar og hvenær gripið er til úrbóta. Hættuleg gatnamót verða ekki fyrst hættuleg þegar ekið er á barn. Það á ekki að þurfa þrjár ákeyrslur á skólabörn og foreldra í sjálfboðavinnu við gangbraut til að knýja fram úrbætur á þekktum slysastað. Ökum blint En hvað vitum við eiginlega um umfang vandans? Ótrúlega lítið. Samkvæmt nýjustu slysaskýrslu Samgöngustofu slösuðust 55 börn á aldrinum 0 til 14 ára sem gangandi eða hjólandi vegfarendur árið 2025. En í birtum tölum er ekki hægt að sjá hversu mörg þeirra urðu fyrir bíl og hversu mörg slösuðust með öðrum hætti. Samgöngustofa viðurkennir jafnframt sjálf að slys séu vanskráð. Við höfum því ekki einu sinni aðgengilegar, áreiðanlegar heildartölur um hversu oft ekið er á börn á Íslandi. Hvers konar forgangsröðun er það? Hvernig eigum við að skilja vandann, greina hættulegustu staðina og meta árangur aðgerða ef við birtum ekki einu sinni upplýsingar sem svara þessari grundvallarspurningu? Ætlar enginn að hugsa um börnin? Það er löngu tímabært að krefjast skýrari svara og meiri ábyrgðar. Samgöngustofa þarf að geta sýnt okkur umfang vandans og beint fræðslu sinni ekki síður markvissara að ökumönnum en börnum. Lögreglan þarf að hafa raunverulegt svigrúm til öflugs eftirlits með hraðakstri og annarri hættulegri aksturshegðun. Ríki og sveitarfélög þurfa að forgangsraða fjármunum í öruggari götur, sérstaklega í nágrenni skóla og þar sem börn eru á ferð. Og umboðsmaður barna ætti að láta til sín taka þegar kemur að rétti barna til að ferðast örugg um eigið nærumhverfi. Þetta er ekki ákall um að hætta að kenna börnum umferðarreglurnar eða leggja hjálmunum. Þetta er krafa um að við hættum að láta öryggi þeirra fyrst og fremst ráðast af eigin varkárni og tillitssemi annarra. Að við hættum að líta á ákeyrslur á börn sem óheppileg en óumflýjanleg atvik og förum að meðhöndla þær sem ríkt tilefni til breytinga. Við hjá Samtökum um bíllausan lífsstíl viljum sjá alvöru vitundarvakningu um þessi mál. Ekki enn eina herferðina sem minnir börnin á að fara varlega, heldur samfélag þar sem þau geta gengið í skólann, hjólað til vina sinna og leikið sér í eigin hverfi án þess að öryggi þeirra sé háð því hvort næsti ökumaður hafi hugann við aksturinn. Það er kominn tími til að hætta að ætlast til þess að börnin lagi sig að hættulegri umferð og krefjast þess í stað að umferðin lagi sig að börnunum. Höfundar eiga sæti í stjórn Samtaka um bíllausan lífsstíl. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bílar Samgönguslys Samgöngumál Brynhildur Bolladóttir Geir Finnsson Rán Flygenring Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Að geta gert ráð fyrir góðu lífi Guðmundur Ármann Pétursson skrifar Skoðun Íslensk bókhaldsgögn eiga heima innan Evrópu Jóhann Tómas Sigurðsson skrifar Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum Gunnar M. Gunnarsson skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða skrifar Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir skrifar Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun