Körfubolti

Sex­tán ára stjarna Vals heillar

Aron Guðmundsson skrifar
Hinn 16 ára gamli Atli Freyr Haraldsson Katrínarson hefur slegið í gegn í upphafi tímabils
Hinn 16 ára gamli Atli Freyr Haraldsson Katrínarson hefur slegið í gegn í upphafi tímabils Valur

Atli Freyr Haraldsson Katrinarson, leikmaður Bónus deildar liðs Vals hefur verið að slá í gegn í upphafi tímabils. Þessi sextán ára gamli drengur hefur heillað sérfræðinga Körfuboltakvölds upp úr skónum. 

Atli Freyr hefur átt frábæra fyrstu tvo leiki á tímabilinu í Bónus deildinni og þá var hann einnig öflugur í bikarsigri Vals gegn Þór Þorlákshöfn í kvöld í VÍS bikarnum. 

„Þegar maður sjá þetta gerast í fyrstu umferð þá hugsaði maður bara með sér að hann væri að hitta á frábæran dag. Þetta er ekkert eðlilegt en bara frábært hjá honum. Svo þegar hann er farinn að gera þetta aftur og bara bæta aðeins í, ég held að hann hafi verið með 27 framlag síðast og 28 núna. Þeir virðast bara fá stjörnuleikmann inn í liðið,“ sagði Benedikt Guðmundsson, sérfræðingur og margreyndur körfuboltaþjálfari um piltinn. 

Klippa: Sextán ára stjarna Vals

Sextán ára leikmaður sem sýnir mikinn þroska. 

„Það er líka bara svo merkilegt, eins og við töluðum um hérna yfir leiknum, að þetta er 16 ára strákur sem fær kannski athygli sem hann hefur aldrei fengið áður,“ bætti Sævar Sævarsson við. „Það er verið að taka viðtal við hann í sjónvarpi, líka á Karfan.is og Visir.is. Hann fer í menntaskólann og er ábyggilega flottasti gæinn þar. En að mæta svo, með svona þroskaða frammistöðu. Ég er bara spenntur fyrir því að horfa á næsta leik og sjá hann vaxa enn þá meira.“

Umræðuna úr Körfuboltakvöldi um Atla Frey og frammistöðu hans má sjá í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×