Fréttir
Forsetakosningar í Líberíu í dag Líberíumenn ganga í dag til seinni umferðar forsetakosninga sem eru þær fyrstu síðan fjórtán ára borgarastyrjöld í landinu lauk. Valið stendur á milli tveggja frambjóðenda, fyrrverandi knattspyrnugoðsins George Weah, sem hlaut flest atkvæði fyrri umferð kosninganna, og Ellenar Johnson-Sirleaf, hagfræðings sem menntuð er í Harvard og sækist eftir að verða fyrsta konan í leiðtogaemætti í Afríkuríki. Erlent 8.11.2005 12:22
Pólskir tannlæknar til Svíþjóðar Eins og sagt var frá í fréttum Bylgjunnar í gær telst það orðið til kosta meðal verkamanna á Austurlandi að kunna pólsku. Í framtíðinni gæti pólskukunnátta þó komið sér vel víðar. Erlent 8.11.2005 12:18
Mótmæla styttingu á stúdentsprófi Kennarar við fimm menntaskóla, sem allir kenna eftir bekkjarkerfum, ætla að leggja niður störf í klukkutíma í dag til að mótmæla áformum ríkisins um að stytta nám á framhaldsskólastigi. Innlent 8.11.2005 12:15
San Antonio þurfti framlengingu í Chicago Fimm leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Meistarar San Antonio lögðu Chicago 104-95 í framlengdum leik og LA Clippers tapaði sínum fyrsta leik í vetur. Þá er Toronto enn án sigurs. Sport 8.11.2005 12:42
Telur þorskstofninn ekki vera að hrynja Framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna telur ástæðulaust að óttast að þorskstofninn sé að hrynja því hrygningastofninn hafi ekki verið stærri í tonnum talið en núna, þótt hann sé ekki eins frjósamur og á árum áður. Fram kom á ráðstefnu Hafrannsóknastofnunar og Sjávarútvegsráðuneytisins í gær að verulega verði að draga úr þorskveiðum til að byggja upp hrygningarstofninn. Innlent 8.11.2005 12:07
Ræða við ríkisstjórnina um aðgerðir Forystumenn Alþýðusambands Íslands ganga á fund helstu ráðherra ríkisstjórnarinnar klukkan þrjú í dag til að ræða hvaða aðgerða ríkið geti gripið til svo ekki þurfi að segja upp kjarasamningum. Innlent 8.11.2005 12:04
Ósamræmi á milli kvartana og meintrar góðrar afgreiðslu stjórnvalda Verulegur misbrestur er á því að ráðuneyti afgreiði erindi og bregðist við þeim á réttum tíma. Á sama tíma og ráðuneytin telja sig vinna eftir verklagsreglum sýna kvartanir almennings og fyritækja annað. Innlent 8.11.2005 12:43
Konur betri ökumenn Heilastarfsemi kvenna gerir þær að betri ökumönnum. Munurinn á heilastarfsemi kynjanna er nú talinn geta útskýrt af hverju konur valda færri slysum í umferðinni en karlar og borga tryggingaiðgjöld í samræmi við það. Innlent 8.11.2005 11:57
Veita leyfi til að koma á útgöngubanni Nokkuð dró úr uppþotum í úthverfum Parísar í gærkvöld eftir að frönsk yfirvöld tilkynntu að borgar- og sveitastjórnum yrði heimilt að setja útgöngubann til að stemma stigu við óeirðunum. Nóttin var þó ekki átakalaus því víða annars staðar í Frakklandi voru bílar brenndir og ráðist gegn lögreglu. Erlent 8.11.2005 11:09
Skútsiglingamenn í vandræðum Franskir og breskir björgunarmenn reyna nú að bjarga áhöfnum þriggja skútna sem lentu í óveðri vestur af Biscaya-flóa í nótt. Skúturnar voru að taka þátt í kappsiglingu milli Frakklands og Brasilíu þegar óveðrið skall á. Hefur tveimur þeirra þegar hvolft samkvæmt fréttavef breska ríkisútvarpsins og mastrið er brotið á því þriðja. Erlent 8.11.2005 10:55
Úthluta lóðum í Krikahverfi í Mosfellsbæ Verið er að hefja úthlutun á lóðum undir 200 íbúðir í Krikahverfi í Mosfellsbæ. Gert er ráð fyrir að kostnaður við uppbyggingu hverfisins muni nema um 8 milljörðum króna og að það leiði til átta prósenta fólksfjölgunar í Mosfellsbæ. Innlent 8.11.2005 09:47
ASÍ fundar með ríkisstjórn um kjaramál Fulltrúar Alþýðusambands Íslands funda með forystumönnum ríkisstjórnarinnar í dag eða á morgun en endanleg tímasetning fundarins hefur ekki verið ákveðin. Á fundinum verður farið yfir stöðu mála á vinnumarkaði. Innlent 8.11.2005 09:37
Hermenn ákærðir fyrir misþyrmingar í Írak Fimm bandarískir hermenn í Írak hafa verið ákærðir fyrir að beita fanga harðræði nýlega. Frá þessu greinir Bandaríkjaher. Fimmmenningarnir eiga að hafa kýlt og sparkað í menn sem biðu þess að verða fluttir í fangelsi í landinu í byrjun september. Erlent 8.11.2005 07:59
Maður deyr af völdum fuglaflensu í Víetnam Yfirvöld í Víetnam hafa staðfest að banamein manns sem lést í lok október hafi verið fuglaflensa. Hann sá fyrsti sem deyr af völdum hennar eftir að hún greindist aftur í fuglum þar í landi í haust. Maðurinn, sem var 35 ár, dó eftir að hafa borðað kjúkling með fjölskyldu sinni en ættingjar hans hafa ekki kennt sér meins eftir átið. Erlent 8.11.2005 07:56
Línur farnar að skýrast í málum Pólverja Línur eru farnar að skýrast í málum Pólverjanna 17 sem störfuðu hjá verktakafyrirtækinu Suðurverki á Kárahnjúkum á vegum starfsmannaleigunnar 2B. Fimm þeirra eru farnir úr landi, þrír fengu vinnu í Vogunum, tveir í Kópavogi, tveir í Reykjavík og fimm eru á leið í starfsviðtöl hjá Bechtel á Reyðarfirði í dag. Innlent 8.11.2005 07:52
Ók á spennistöð Rjúfa varð rafmagn á Stórhöfða í Reykjavík í tuttugu mínútur í morgun eftir að ökumaður jeppa missti stjórn á bifreið sinni í mikilli hálku og lenti á háspennistöð. Ökumaðurinn slasaðist ekki en spennistöðin færðist til og þurfti að taka rafmagn af henni meðan gert var við skemmdir á spennistöðinni. Innlent 8.11.2005 09:11
Óskar eftir utandagskrárumræðu um þorskstofn Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins hefur óskað eftir utandagskrárumræðu á Alþingi um ástand þorskstofnsins. Innlent 8.11.2005 07:50
Viagra ekki bara stinningarlyf Þýskir vísindamenn hafa komist að því að Viagra er ekki eingöngu stinningarlyf, heldur virkar einnig á blóðrásarsjúkdóminn Raynauds. Sjúkdómurinn sem hrjáir aðallega ungar konur lýsir sér í hægri blóðrás til handa og fóta sem leiða til mikils handkulda, útbrota og skjálfta. Ekkert lyf hefur dugað á sjúkdóminn hingað til. En eftir nokkra vikna inngjöf Viagra sáust batamerki á flestum konunum. Erlent 8.11.2005 07:50
De Beers gefur frá sér eignarhald í námum De Beers demantafélagið, eitt áhrifamesta félagið á demantamarkaðinum, mun í dag láta 15 % af eignarhaldi sínu í suður-afrískum demantanámum í hendur svartra fjárfesta í landinu. Þetta mun vera ein mesta uppstokkun í hundrað og sautján ára sögu félagsins. Erlent 8.11.2005 08:55
Norsk lögreglukona sektuð Norsk lögreglukona hefur verið dæmd til að greiða 850.000 norskar krónur í sekt fyrir fjárdrátt. Fjárdrátturinn átti sér stað á margra ára tímabili án þess að nokkurn grunaði, en hin 39 ára gamla kona dró að sér fé við afhendingu vegabréfa til norskra ríkisborgara. Aftenposten sagði frá. Erlent 8.11.2005 08:52
Ekið á hross á Norðurlandsvegi Ekið var á hross um níuleytið í gærkvöldi í Húnavatnssýslum á Norðurlandsvegi við afleggjarann heim að Þingeyrarkirkju. Hrossið meiddist mikið en hvarf þó út í myrkrið. Það fannst nokkru síðar og þurfti að aflífa það. Bíllinn skemmdist eitthvað við áreksturinn en engan mann sakaði. Innlent 8.11.2005 07:25
Óttast víðtækt salmonellusmit Mikill ótti við stórt salmonellusmit hefur nú gipið um sig í Noregi. Norska heilbrigðiseftirlitið og Lýðheilsustöðin eru nú sannfærð um að sýkt kjöt frá Póllandi eigi eftir að breiðast hratt um landið og valda alvarlegum veikindum. Innlent 8.11.2005 07:13
14 þúsund til viðbótar talin af 87.350 manns fórust í jarðskjálftanum mikla í Pakistan í síðasta mánuði samkvæmt nýjum tölum sem Sameinuðu þjóðirnar hafa gefið út og byggja á áætlunum pakistanskra stjórnvalda. Þetta er fjórtán þúsund manns fleira en áður hafði verið áætlað að hefðu látist í hamförunum. Hundrað þúsund manns eru slasaðir. Innlent 8.11.2005 08:02
Ákærðir fyrir stríðsglæpi Fimm grunaðir hryðjuverkamenn, sem eru í haldi í hinu bandaríska Guantanamo fangelsi á Kúbu, hafa verið ákærðir fyrir stríðsglæpi og munu mæta fyrir herrétt. Þar með hafa níu manns, sem sitja í Guantanamo, sætt ákæru. Erlent 8.11.2005 07:22
Hlutafélagavæðing dulbúin einkavæðing Kristinn H. Gunnarsson segir að hægt sé að ná fram nauðsynlegum breytingum hjá RÚV án þess að breyta rekstrarfyrirkomulagi, eins og menntamálaráðherra hefur boðað. Hann segir hlutafélagavæðingu RÚV ekkert annað en dulbúna einkavæðingu. Innlent 8.11.2005 07:42
Áströlsk skúta í óveðri við Grænland Áströlsk skúta hreppti óveður úti af vesturströnd Grænlands í gær og komst sjór ofan í hana og í neyðarsendinn sem fór í gang við það. Í kjölfarið var kölluð út þyrla frá Halifax í Kanada og Fokker-vél Landhelgisgæslunnar, en rétt í sama mund kom í ljós að skipverjar þurftu ekki aðstoð, sem var þá afturkölluð. Innlent 8.11.2005 07:14
Sífellt fleiri sækja um fræðslustyrki Sjöundi hver félagsmaður í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur sótti um fræðslustyrk fyrstu níu mánuði ársins. Þetta eru alls 3.800 einstaklingar, sem er fimmtíu prósentum meira en á sama tíma á síðasta ári. Innlent 8.11.2005 07:12
Sveitarstjórnir fá leyfi til að koma á útgöngubanni Sveitastjórnir í Frakklandi hafa fengið leyfi til að setja á útgöngubann frá og með morgundeginum. Þetta er gert til að reyna að stemma stigu við óeirðunum sem geisað hafa síðustu tólf kvöld í úthverfum Parísar og víðar um landið. Erlent 8.11.2005 07:16
Draga verði úr loðnuveiðum til að bjarga þorski Draga verður verulega úr loðnuveiðum ef einhver árangur á að verða af því að draga stórlega úr þorskveiðum til að byggja þorskstofninn upp, eins og var niðurstaða málþings Hafrannsóknastofnunar í gær. Innlent 8.11.2005 07:10
Eyddi tölvuskeytum og var rekinn Það getur kostað Dani vinnuna að eyða tölvupóstinum úr vinnutölvunni. Slíkt fékk danskur tölvunarfræðingur sem vann hjá upplýsingarfyrirtæki að reyna í síðustu viku. Hann hafði ráðið sig hjá samkeppnisfyrirtæki og tók sig til og eyddi öllum tölvuskeytum úr tölvunni sinni, bæði persónulegum og vinnutengdum. Fyrirtækið rak hann, stöðvaði launagreiðslur og lögsótti. Hann fór þá í mál og Eystri landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að uppsögnin væri að nokkru leyti ólögmæt þar sem engin skýr lög væru um meðferð tölvuskeyta. Hann fékk launin og einnig bætur en missti þó vinnuna. Innlent 8.11.2005 07:05