Fréttir

Fréttamynd

Aflabrestur á kolmunna

Kolmunnaveiðin er hrunin og búið að leggja nokkrum öflugustu fiskiskipum flotans við bryggjur þar sem þau hafa ekki önnur verkefni. Áfallið snertir afkomu margra sjómanna, útvegsmanna og og fiksimjölsverksmiðja.

Innlent
Fréttamynd

Dagur íslenskrar tungu í dag

Dagur íslenskrar tungu er í dag, 16. nóvember, en það er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar þjóðskálds. Dagsins verður minnst með margvíslegu móti, bæði í skólum, stofnunum og fyrirtækjum.

Innlent
Fréttamynd

Þekkingarnet á Austurlandi

Háskólanemum á Austurlandi fjölgar um 100 % á næstu fimm árum nái áætlun starfshóps á vegum menntamálaráðuneytis fram að ganga. Starfshópurinn leggur til að stofnuð verði sjálfseignarstofnun, Þekkingarnet Austurlands, sem verði miðstöð háskólanáms, símenntunar og rannsókna í þágu atvinnulífs á svæðinu. Þekkingarnetið kæmi til með að byggja á Fræðsluneti Austurlands, auk þess að samþætta og efla það háskóla- og rannsóknarnám sem fyrir er á svæðinu. Þá yrði einnig mikil aukning í símenntun og 100 % fjölgun nema í meistara- og doktorsnámi.

Innlent
Fréttamynd

Bensínverð lækkar

Olíufélögin lækkuðu verð á bensíni og gasolíu í gær og er það 16 lækkunin á sex vikum og rúmlega sjötugasta verðbreytingin á árinu. Algengt verð á bensínlítra á sjálfsafgreiðslustöðvum er nú komið niður í u.þ.b 105 krónur.

Innlent
Fréttamynd

Íslensku farmennirnir verða eftir

Slagorð Avion Group um íslenska sókn um allan heim á ekki við um íslenska farmenn í dag, segir starfsmaður farmanna- og varðskipasviðs Félags skipstjórnarmanna og finnst auglýsingar félagsins ekki lýsa raunveruleikanum sem blasir við íslenskum farmönnum.

Innlent
Fréttamynd

Erdogan strunsaði út af fundi með Rasmussen

Blaðamannafundur Anders Fogh Rasmussens, forsætisráðherra Danmerkur, og starfsbróður hans frá Tyrklandi, Tayyips Erdogans, í Kaupmannahöfn í gær var heldur endasleppur. Sá tyrkneski rauk á dyr þegar í ljós kom að fulltrúi kúrdískrar sjónvarpsstöðvar, sem starfar í Danmörku, var á staðnum.

Erlent
Fréttamynd

Úrvalsvísitalan heldur áfram að hækka

Úrvalsvísitalan hélt áfram að hækka í gær og fór yfir 4,800 stig, sem er enn eitt metið. Hækkun varð á flestum fyrirtækjum, en þau sem lækkuðu, lækkuðu mjög lítið.

Innlent
Fréttamynd

Tóku við nýju frystiskipi

Eimskip tóku við nýju frystiskipi í Álasundi í Noregi í gær. Skipið er 80 metra langt og sextán metrar á breidd. Það nær mest sextán sjómílna hraða á klukkustund og getur borið 2.500 tonn á 1.800 brettum og í tæplega þrjátíu 40 feta gámum á þilfari.

Innlent
Fréttamynd

Miðstjórn Samiðnar ósátt

Miðstjórn Samiðnar, samband iðnfélaga, er ósátt við tillögur ríkisstjórnar og samkomulag hennar við aðila vinnumarkaðrins. Samiðn vildi frekar segja upp samningum og komast í beint samband við viðsemjendur sína.

Innlent
Fréttamynd

Ísraelskur hermaður sýknaður af morðákæru

Ísraelskur hermaður, sem ákærður var fyrir að hafa myrt 13 ára stúlku á Gasasvæðinu í Palestínu á síðasta ári, var í gær sýknaður af ísraelskum herdómstóli. Í niðurstöðum herréttarins kom fram að stúlkan hafi þegar verið látin þegar hermaðurinn skaut hana.

Erlent
Fréttamynd

Afgreiðslutími kráa gefinn frjáls í Bretlandi í næstu viku

Ný lög um frjálsan afgreiðslutíma kráa í Bretlandi taka gildi í næstu viku eftir tilraun íhaldsmanna til að seinka gildistíma laganna var hrundið á breska þinginu í gær. Andstæðingar laganna óttast hið versta en stuðningsmenn þess segja það bæta drykkjumenningu Breta.

Erlent
Fréttamynd

Lítið meidd eftir bílveltu

Kona slapp lítið meidd þegar bíll hennar valt nokkrar veltur út af veginum í Skriðdal í gærkvöldi. Hún var ein í bílnum og notaði bílbelti, þannig að hún var allann tímann skorðuð í ökumannssætið. Fljúgandi hálka var þegar slysið varð og missti konan stjórn á bílnum þótt hann hafi verið vel búinn til vetraraksturs.

Innlent
Fréttamynd

Jórdanir setja lög gegn hryðjuverkum

Ný hryðjuverkalög hafa verið sett í Jórdaníu í kjölfar árásanna á Amman, höfuðborg landsins í síðustu viku sem urðu 57 mönnum að bana. Fela þau meðal í sér að almennir borgarar verði að veita upplýsingar um útlendinga ef þeir leigja þeim húsnæði. 11 yfirmenn hjá ríkinu, meðal annars yfirmaður öryggismála, sögðu upp störfum í gær vegna árásanna á landið.

Erlent
Fréttamynd

Kínversk stjórnvöld kosta bólusetningu fugla gegn fuglaflensu

Yfir 14 miljarðar fugla, verða bólusettir gegn fuglaflensu í Kína á næstu vikum. Í tilkynningu frá yfirvöldum þar í landi segir að nauðsynlegt sé að gera allt til að hefta útbreiðslu fuglaflensunnar og mun ríkisstjórnin standa straum af öllum kostnaði við bólusetninguna.

Erlent
Fréttamynd

160 íraskir fangar fundust í leynilegu fangesli í Bagdad

Forsætisráðherra Íraks segir yfir 160 íraskir fangar hafa fundist í leynilegu fangelsi innanríkisráðuneytisins í Bagdad um helgina. Fangarnir höfðu verið pyntaðir og voru allir mjög vannærðir. Ráðherrann sagði rannsókn hafna á tildrögum málsins og hafa mannréttindasamtökin Amnestry International fagnað ákvörðun ráðherrans. Þá hvöttu þau hann til að gera niðurstöðurnar opinberar.

Erlent
Fréttamynd

Ráðmenn fengu það óþvegið

Skattrannsóknarstjóri og ýmsir íslenskir ráðamenn fengu það óþvegið á blaðamannafundi þar sem Jón Ólafsson athafnamaður og Einar Kárason rithöfundur kynntu nýútkomna bók um ævi athafnamannsins og auðmannsins umdeilda frá Keflavík.

Innlent
Fréttamynd

Fagnaði afmæli með máttarstólpum Framsóknar

Elsti framsóknarmaður heims býr í Holtsbúð í Garðabæ. Guðmundur Daðason heitir hann og fagnaði hundrað og fimm ára afmæli sínu í dag með vinum, vandamönnum og máttarstólpum Framsóknarflokksins.

Innlent
Fréttamynd

Jólastemmning á Akureyri

Þótt nóvember sé ekki nema rétt hálfnaður, eru sumir Akureyringar komnir í jólaskap svo um munar. Bæjarstarfsmenn eru byrjaðir að skreyta miðbæinn og einstaka skreytingar eru komnar við íbúðarhús.

Innlent
Fréttamynd

Þór sigraði KR

Þórsarar unnu góðan sigur á KR í Iceland-Express deildinni í körfubolta karla í kvöld 62-57, en leiknum hafði áður verið frestað vegna leka í þaki íþróttahússins fyrir norðan.

Sport
Fréttamynd

Eins metra langir kjörseðlar í Danmörku

Eins metra langir kjörseðlar gerðu mörgum Dönum lífið leitt í sveitarstjórnarkosningum í dag. Vegna sameiningar sveitarfélaga þurfti að hafa seðlana svo stóra til að koma nöfnum allra frambjóðenda fyrir. Kosið var eftir nýrri skipan, sem tekur þó fyrst gildi í ársbyrjun 2007.

Erlent
Fréttamynd

Landsbankinn kaupir írskt verðbréfafyrirtæki

Landsbanki Íslands herjar nú á Írland en bankinn keypti í morgun írska verðbréfafyrirtækið Merrion fyrir fjóra milljarða króna. Sjötíu og fimm manns vinna hjá fyrirtækinu og þeir verða fljótlega hluti af 1700 manna starfsliði Landsbankans. Fyrirtækið veltir hátt í 2 milljörðum króna á ári og hefur árlega skilað hálfum milljarði í hagnað frá því það var stofnað fyrir sex árum.

Innlent
Fréttamynd

Viðbrögð vinnuveitenda og verkalýðshreyfingarinnar

Viðbrögð forkólfa vinnuveitenda og verkalýðshreyfingarinnar eru jákvæð og bjartsýni ríkir sem og léttir. Ingimundur Sigurpálsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, sagði að það mikið fagnaðarefni að aðilar hafi náð saman og að ekki hafi komið til uppsagna samninga eins og útlit var fyrir á tímabili. Hann sagði það hins vegar ljóst að þessi niðurstaða verði mörgum fyritækjum nokkuð þungbær en heildarhagsmunir sem voru í húfi réttlæti tvímælalaust þessa niðurstöðu. Hann sagði aðkomu ríkisstjórnarinnar á ögurstund hafa riðið baggamuninn.

Innlent
Fréttamynd

Bókhaldsbrella segir minnihlutinn

Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík segir of langt seilst ofan í vasa skattborgara í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar. Framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins segir bókhaldsbrellu gera það að verkum að skuldir borgarsjóðs hafa lækkað.

Innlent