Fréttir
Öryggisverðir á aukaæfingum vegna atviksins á Miami-flugvelli Bandarískir öryggisverðir sem gæta öryggis í flugvélum taka nú þátt í æfingum um borð í lestum og öðrum farþegaflutningatækjum og munu æfingarnar standa yfir í þrjá daga. Gripið var til þessa ráðs eftir að öryggisverðir um borð í vél American Airlines skutu farþega til bana á flugvellinum í Miami í síðustu viku sem sagðist vera með sprengju. Erlent 15.12.2005 07:19
Bush viðurkennir að upplýsingar um gereyðingarvopn hafi verið rangar George Bush, Bandaríkjaforseti, viðurkenndi í gær að stærstur hluti upplýsinga, sem bandaríska leyniþjónustan aflaði um gereyðingarvopn í Írak hafi verið rangur. Erlent 15.12.2005 07:14
Þrír bílar skemmdust vegna grjóthruns Þrír bílar urðu fyrir skemmdum vegna grjóthruns úr Óshlíð á milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur í gær en engan sakaði. Einn bílanna hafnaði í vegrás ofan vegar en hún var full af vatni og flæddi inn í bílinn. Undirvagn á öðrum skemmdist og gat kom á bensíngeymi og hjólbarði eyðilagðist á þriðja bílnum. Innlent 15.12.2005 07:12
Áfram skrölti hann þó Ölvaður ökumaður, sem leið átti um Öxnadalinn í nótt, missti stjórn á bíl sínum sem fór út af veginum, valt heila veltu og kom niður á hjólinn aftur. Við það hvell sprakk á öðru framhjólinu, en með þrjú hjól undir bílnum, skrölti hann áfram- þó. Innlent 15.12.2005 07:12
Sendi ríkislögreglustjóra bréf varðandi fyrrum forstjóra Byggðastofnunar Magnús Þór Guðmundsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, sendi ríkislögreglustjóra bréf þar sem hann bendir á ummæli Kristinn H. Gunnarssonar, þingmanns Framsóknarflokks, varðandi afglöp fyrrum forstjóra Byggðastofnunar í starfi. Magnús Þór telur að afglöpin varði við lög, eigi fullyrðingar Kristins við staðreynd að styðjast, og furðar sig á því að málið hafi ekki verið rannsakað af lögreglu á sínum tíma. Innlent 14.12.2005 23:37
Þolinmæði leikskólakennara á þrotum Þolinmæði leikskólakennara í Reykjavík er þrotum. Þeir saka borgaryfirvöld um að sýna menntun sinni lítilsvirðingu og hroka og krefjast leiðréttingar á kjörum sýnum hið fyrsta. Launanefnd sveitarfélaga hyggst á næstunni funda með forystumönnum Félags leikskólakennara vegna málsins. Innlent 14.12.2005 23:16
Hefja aftur skipulagða leit á miðnætti Björgunarsveitarmenn hafa hætt leit í bili í Fossvoginum að Einari Haraldssyni, átján ára gömlum pilt, sem saknað er síðan eftir miðnætti. Björgunarsveitarmenn hefja aftur skipulagða leit í kringum miðnætti og ganga þá fjörur í Fossvoginum. Innlent 14.12.2005 21:50
Mæðrastyrksnefnd afhent jólatré Mæðrastyrksnefnd fékk jólatré afhent frá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar. Sú venja hefur skapast að gefa Mæðrastyrksnefnd jólatré eftir grisjun furulunda í útmörk Reykjavíkur. Ragnhildur G. Guðmundsdóttir formaður Mæðrastyrksnefndar, segir jólatrén koma sér vel og þegin af heilum hug. Innlent 14.12.2005 21:49
Leitað að 18 ára gömlum pilt Leit stendur yfir að Einari Haraldssyni, átján ára gömlum dreng , en ekkert hefur spurst til hans síðan hann rétt eftir miðnætti. Lögreglan í Reykjavík óskar eftir upplýsingum um ferðir Einars. Innlent 14.12.2005 21:13
Byrjuð á nýrri glæpasögu Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur og verkfræðingur er byrjuð á nýrri glæpasögu. Söguna skrifar hún á kvöldin hátt uppi á fjöllum í vinnubúðum við Kárahnjúka. Innlent 14.12.2005 21:11
Misskildi sitt eigið frumvarp Iðnaðarráðherra segist hafa misskilið sitt eigið frumvarp um breytingu á lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu. Það sé ekki rétt að handhafar rannsóknarleyfa á auðlindum í jörðu eigi að hafa forgang að virkjunarleyfi. Þingmaður Samfylkingarinnar segir að flokkurinn hefði stutt frumvarpið ef ákvæði um vilyrði ráðherra fyrir nýtingarleyfi hefði verið fellt brott. Innlent 14.12.2005 20:54
Kveikt í dagblöðum í fjölbýlishúsi Eldur kom upp í stigagangi í Grýtubakka tvö um fimm-leytið í dag. Töluverður reykur var í stigaganginum þegar lögregla kom að, en eldurinn logaði ekki lengur. Svo virðist sem einhverjir óprúttnir náungar hafi kveikt í bunka af dagblöðum, en lögregla veit ekki en hver eða hverjir voru að verki. Innlent 14.12.2005 20:50
Félag um lýðheilsu mótmælir lokun Heilsuverndarstöðvar Aðalfundur Félags um lýðheilsu lýsir áhyggjum sínum yfir að Heilsuverndarstöðin sem akkeri og minnismerki í heilsuvernd á Íslandi hverfi úr því hlutverki. Ráðamenn eru hvattir til að tryggja áframhaldandi stöðu Heilsuverndarstöðvarinnar og starfsemi hennar í í lýðheilsu Íslendinga. Innlent 14.12.2005 20:03
Barnadauði á Íslandi er sá lægsti í heiminum Atli Dagbjartsson, yfirlæknir á vökudeild segir ástæður fyrir lágri tíðni ungbarnadauða á Íslandi vera meðal annars góð mæðravernd, meðferð og lækningar við fæðingu og virkt ungbarnaeftirlit, sem farið er eftir. Innlent 14.12.2005 19:57
Viðurkennir að upplýsingarnar hafi verið rangar George Bush bandaríkjaforseti viðurkenndi í dag að upplýsingar um gereyðingarvopn Íraka hefðu að mestu leyti verið rangar. Það breytti því ekki að Bandaríkjamenn mættu ekki draga herlið sitt burt fyrr en stöðugleiki kæmist á í landinu. Erlent 14.12.2005 19:01
Samtök ferðaþjónustunnar mótmæla háu matvöruverði Samtök ferðaþjónustunnar taka undir með Samkeppniseftirlitinu að óásættanlegt sé að íslenskir neytendur og veitingahúsin í landinu, greiði 42% hærra verð fyrir matvæli en aðrar þjóðir í ESB löndunum. Innlent 14.12.2005 18:12
Óskað eftir upplýsingum um piltinn Lögreglan í Reykjavík óskar eftir upplýsingum um ferðir Einars Haraldssonar. Hann er 18 ára og fór frá Laugarásbíói um kl 00:30 og hefur ekki sést síðan. Grunur leikur á að Einar hafi farið í átt að Öskjuhlíð. Innlent 14.12.2005 18:54
Jónas ekki sáttur Jónas Garðarson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, hefur ýmislegt að athuga við rannsókn sjóslyssins á Viðeyjarsundi. Það hvarflar ekki að honum að segja af sér formennsku vegna málsins. Innlent 14.12.2005 18:17
Ekki enn fundinn Lögregla hefur ekki enn fundið 18 ára gamlan dreng sem hefur verið leitað síðan síðdegis í dag. Ekki hefur spurst til hans síðan um miðnættið í gær, en þá sást til hans við Öskjuhlíð. Fjölmennt leitarlið er nú í Öskjuhliðinni. Innlent 14.12.2005 18:37
400 þúsund hermenn á götum úti Nærri fjögur hundruð þúsund manna lið lögreglu og hers verður til taks í Írak á morgun, þegar kosið verður til þings í landinu í fyrsta sinn síðan Saddam Hússein var steypt af stóli. Landamæralögreglan í Írak lagði í gær hald á fimm þúsund falsaða kosningaseðla sem reynt var að flytja til landsins í vöruflutningabíl frá Íran. Erlent 14.12.2005 18:34
Stúlkan fundin Lögreglan hefur fundið tíu ára gamla þroskahefta stúlku sem leitað var að í Hlíðunum í dag. Hún var hjá vinkonu sinni og kom í leitirnar þar. Innlent 14.12.2005 17:37
Starfshópur skipaður um aðgerðaráætlunina "Einfaldara Ísland" Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur skipað starfshóp með fulltrúum stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins til að undirbúa aðgerðaráætlunina „ Einfaldara Ísland." Meginmarkmið áætlunarinnar, sem kynnt var í stefnuræðu forsætisráðherra nú í haust, verður einföldun laga og reglna, ekki síst til þess að auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Innlent 14.12.2005 17:23
Jólin klámvædd í gosdrykkjaauglýsingu? „Það vilja allar mömmur kyssa jólasveininn okkar." Þetta fullyrðir Ölgerðin í auglýsingu sem birst hefur í dagblöðum síðustu daga þar sem sjá má jólasvein með bera bringu, og konu krjúpandi við hlið sér. „Klámvæðing á jólunum," segja femínistar. Innlent 14.12.2005 17:20
Karlmenn um 88% viðmælenda í íþróttafréttum Karlar eru mun meira áberandi í fjölmiðlum en konur. Svipuð kynjahlutföll eru í fréttum, sjónvarpsþáttum og auglýsingum en það hallar verulega á hlut kvenna. Hlutfall karla í fjölmiðlum er á bilinu 65-80% á móti 20-35% kvenna en hlutfallið breytist lítillega eftir því hvort um er að ræða auglýsingar, fréttir, fréttatengda þætti eða sjónvarpsþætti. Innlent 14.12.2005 16:52
Lögbann á gögn áfram í gildi Fréttablaðið fær ekki afhent þau gögn sem sýslumaðurinn í Reykjavík gerði upptæk að kröfu Jónínu Benediktsdóttur í september síðastliðnum þrátt fyrir dóminn sem féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þar sem blaðið var sýknað af kröfum Jónínu. Að sögn Sigurjóns M. Egilssonar, fréttaritstjóra Fréttablaðsins, gildir lögbann sýslumanns enn þar sem málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar. Innlent 14.12.2005 17:08
Baugur Group gengur frá kaupum í Þætti eignarhaldsfélagi Baugur Group hefur gengið frá kaupum á tuttugu prósent hluti í Þætti eignarhaldsfélagi ehf. Kaupverðið verður greitt í reiðufé og hlutabréfum í Íslandsbanka. Þáttur sem áður var að fullu í eigu Milestone ehf., mun um leið taka yfir rúmlega sextán komma fjögur prósenta eignahlut Milstone í Íslandsbanka og ríflega sextíu og sex prósenta hluti í Sjóvá. Innlent 14.12.2005 17:01
Jón Oddur og Kristín Rós íþróttamenn ársins Íþróttamenn ársins í karla- og kvennaflokki hjá íþróttasambandi fatlaðra voru tilkynntir í dag. Fyrir valinu urðu þau Jón Oddur Halldórsson frjálsíþróttamaður og Kristín Rós Hákonardóttir sundkona. Sport 14.12.2005 16:45
Leitað að 10 ára stúlku og ungum manni Lögreglan í Reykjavík hefur hafið leit að tíu ára gamalli stúlku sem ekki hefur spurst til síðan á milli tvö og þrjú í dag. Síðast sást til hennar við Hamrahlíðina í Reykjavík. Þá leitar fjölmennt lið björgunarsveitarmanna og lögreglu nú að ungum manni sem ekkert hefur spurst til síðan um miðnættið í gær. Síðast spurðist til mannsins við Öskjuhlíð og því einblína leitarmenn á svæðið þar í kring. Innlent 14.12.2005 16:54
Mörgu ábótavant í mannréttindamálum hérlendis Mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins kynnti skýrslu sína til úrbóta um stöðu mannréttindamála á Íslandi. hann hefur margt við mannréttindamál hérlendis að athuga og leggur fram fjölmargar breytingartillögur. Hann vill m.a. endurskoða ráðningarferli hæstaréttardómara og bæta aðgang fanga að sálfræðiaðstoð. Innlent 14.12.2005 16:45
Ráðamenn tryggi áframhaldandi stöðu Heilsuverndarstöðvar Félag um lýðheilsu lýsir áhyggjum sínum yfir að Heilsuverndarstöðin sem akkeri og minnismerki í heilsuvernd á Íslandi hverfi úr því hlutverki, en eins og greint hefur verið frá hefur húsnæði Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg verið selt. Í ályktun frá félaginu eru ráðamenn hvattir til að tryggja áframhaldandi stöðu Heilsuverndarstöðvarinnar og starfsemi hennar í lýðheilsu Íslendinga. Innlent 14.12.2005 16:41
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent