Fréttir
Björgólfur Thor fjárfestir ársins í Búlgaríu Björgólfur Thor Björgólfsson var í gærkvöldi útnefndur fjárfestir ársins í Búlgaríu af búlgarska ríkisútvarpinu. Fyrirtæki Björgólfs Thors, Novator, fjárfesti nýverið í búlgarska landssímanum, BTC, og námu þau viðskipti nærri 100 milljörðum íslenskra króna. Innlent 17.12.2005 16:38
Bush viðurkennir leynilegar hleranir George Bush Bandaríkjaforseti viðurkenndi í útvarpsávarpi rétt í þessu að hann hefði heimilað Þjóðaröryggisstofnuninni bandarísku að hlera símtöl Bandaríkjamanna til útlanda án þess að fá til þess dómsúrskurð. Hann sagði heimildina nauðsynlegt tæki í baráttunni gegn hryðjuverkum. Erlent 17.12.2005 15:35
Mjólkurbændur skulda um 20 milljarða króna Mjólkurbændur á Íslandi skulda um tuttugu milljarða króna og hafa skuldirnar aukist mjög mikið á undanförnum árum. Þetta sagði Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna, í viðtalsþættinum Skaftahlíð á NFS í dag. Skýringuna á þessu segir hann liggja í því að bændur hafi verið hvattir til að stækka mjólkurbúin, og mikil kappsemi hafi ráðið för. Innlent 17.12.2005 15:08
Þyrlunni snúið við Þyrlu Landhelgisgæslunnar var snúið aftur til Reykjavíkur skömmu eftir hádegi í dag en hún hafði haft viðdvöl á Ísafirði eftir að hafa verið kölluð út vegna slasaðs sjómanns. Skipið var statt um sextíu sjómílur norður af Horni þegar slysið varð en þar sem arfavitlaust veður var á svæðinu var ákveðið að bíða eftir því að veður lægði. Innlent 17.12.2005 13:52
Tugir farast í flóðum Í það minnsta 47 hafa látið lífið í flóðum og aurskriðum í Víetnam síðustu daga. Nokkurra er saknað og því viðbúið að tala látinna eigi eftir að hækka. Erlent 17.12.2005 13:51
Snjóar í tvær vikur samfellt Snjónum kyngir niður yfir Yantaiborg í Kína og ástandið er orðið svo slæmt að borgaryfirvöld hafa lýst yfir neyðarástandi. Fyrstu snjókornin féllu á Yantai fyrir tveimur vikum og síðan hefur snjóað kvölds og morgna, dags og nætur. Erlent 17.12.2005 12:24
Skattbyrði lækkar aðeins hjá þeim tekjuhæstu Skattbyrði hefur aukist hjá öllum síðustu tvö árin, nema þeim tekjuhæstu. Hjá þeim hefur skattbyrðin lækkað. Skattbyrði þeirra sem hafa hæstar tekjur hefur lækkað um 1,7 prósentustig en skattbyrði þeirra tekjulægstu hækkað um tæp þrjú prósent. Innlent 17.12.2005 12:28
Þyrlan sækir slasaðan sjómann norður af Horni Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, var kölluð út í morgun til þess að sækja slasaðan sjómann um borð í skipi sem statt var um sextíu sjómílur norður af Horni. Maðurinn féll niður í lest skipsins og að sögn Gæslunnar kvartaði hann undan bakverkjum. Innlent 17.12.2005 11:48
Fasteignaverð hækkaði um 3,1% Fasteignaverð hækkaði um 3,1% í nóvember frá fyrri mánuði, samkvæmt Fasteignamati ríkisins. Greiningardeild KB banka segir þetta töluvert umfram væntingar markaðsaðila, sem og greiningardeildarinnar. Viðskipti innlent 17.12.2005 11:02
Bílvelta við Hrófá Betur fór en á horfðist þegar maður á áttræðisaldri velti bíl sínum rétt sunnan við Hrófá á Vestfjörðum síðdegis í gær. Að sögn lögreglunnar á Hólmavík lenti bíll mannsins utan í umferðarmerki á blindhæð með þeim afleiðingum að hann snerist á veginum og fór eina veltu. Innlent 17.12.2005 10:58
Makedónía fær að sækja um aðild Leiðtogar Evrópusambandsríkja samþykktu á fundi sínum í nótt að Makedónía skyldi vera meðal umsóknarríkja um aðild að sambandinu. Þeir sögðu hins vegar að ákvörðun um aðild yrði að bíða þess að ákveðið hefði verið hvernig staðið skyldi að frekari stækkun sambandsins. Erlent 17.12.2005 09:53
Árið 2005 það heitasta á norðurhveli Það stefnir í að árið 2005 verði það heitasta á norðurhveli frá því að mælingar hófust. Þá er útlit er fyrir að það verði það næstheitasta frá upphafi mælinga ef horft er til heimsins alls. Erlent 16.12.2005 22:59
Aukin harka færist í mótmælin Aukin harka hefur færst í mótmæli vegna fundar Alþjóða viðskiptastofnunarinnar í Hong Kong. Lögregla átti í átökum við mótmælendur sem reyndu að komast að fundarstaðnum og reykur sást rísa frá svæði skammt þar frá. Erlent 17.12.2005 10:09
Landbúnaðarvörur ekki dýrar á Íslandi Spánverjar eyða mun stærri hluta af sínum tekjum í kaup á matvælum en Íslendingar. Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, segir landbúnaðarvöru ekki dýra á Íslandi. Innlent 17.12.2005 10:05
Náðu samkomulagi um fjárlög Ríki Evrópusambandsins náðu í nótt samkomulagi um langtímafjárlög fyrir árin 2007 til 2013. Samkomulagið náðist í lokin á sautján klukkustunda átakafundi í Brussel sem lauk ekki fyrr en skömmu fyrir klukkan tvö í nótt. Erlent 17.12.2005 10:05
Ófært á Fróðárheiði Óveður er á Fróðárheiði og þar er ófært en annars er hálka, snjóþekja og snjókoma víða á Vesturlandi og á sunnanverðum Vestfjörðum, sem og á Hellisheiði og í Þrengslum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Innlent 17.12.2005 09:09
Birtu myndband af árás á Abu Ghraib Al-Qaida liðar í Írak hafa sent frá sér myndband þar sem árás þeirra á Abu Ghraib fangelsið nærri Bagdad fyrr á árinu er útlistuð. Markmið árásarinnar var að sprengja sér leið inn í fangelsið og frelsa fanga ásamt því að valda Bandaríkjamönnum sem mestu tjóni. Erlent 16.12.2005 22:55
Menntaráð eykur fjárhæð til þróunarverkefna Menntaráð Reykjavíkur ætlar að verja þrjátíu milljónum í verkefni sem tengjast nýsköpun og þróun í skólamálum. Menntaráð hefur því hækkað styrkupphæð til þrónarverkefna úr fjörutíu og fimm milljónum í sjötí og fimm. Innlent 16.12.2005 22:29
Skattbyrði allra nema þeirra tekjuhæstu eykst Skattbyrði hefur aukist hjá öllum síðustu tvö árin, nema þeim tekjuhæstu. Hjá þeim hefur skattbyrðin lækkað. Skattbyrði þeirra sem hafa hæstar tekjur hefur lækkað um 1,7 prósentustig en skattbyrði þeirra tekjulægstu hækkað um tæp þrjú prósent. Innlent 16.12.2005 19:44
Sóun á verðmætum og virðingarleysi fyrir verkum annarra Arkitekt húss við Sæbraut þrettán á Seltjarnarnesi, segir það sóun á verðmætum og virðingarleysi fyrir verkum annarra að rífa húsið. Innlent 16.12.2005 20:09
Bóluefni gegn fuglaflensu Heilbrigðisráðherrar Norðurlandanna náðu í dag samkomulagi um að þau standi saman að framleiðslu bóluefnis gegn fuglaflensu. Innlent 16.12.2005 20:14
Sérsmíðaður semball í Salinn Nýr sérsmíðaður semball er kominn í Salinn í Kópavogi og mun Jory Vinikour, bandarískur semballeikari, vígja hann á morgun. Innlent 16.12.2005 19:59
Göngugarpar styrkja Sjónarhól Göngugarparnir Bjarki Birgisson, Guðbrandur Einarsson og aðstoðarmaður þeirra Tómas Birgir Magnússon, sem gengu hringinn í kringum landið í sumar undir kjörorðinu "Haltur leiðir blindan" færðu Sjónarhóli 250 þús. króna jólagjöf. Innlent 16.12.2005 20:09
Börn gáfu jólapakka Það ríkti gleði og sannkallaður jólaandi í Húsaskóla í dag þar sem börn úr fyrsta og öðrum bekk gáfu jólapakka til Mæðrastyrksnefndar. Það er mikilvægt að allir fái eitthvað fallegt um jólin sögðu börnin. Innlent 16.12.2005 20:01
VR félagar minntir á kjarasamninga og rétt til hvíldar Nú stendur yfir ein mesta vinnutörn ársins hjá verslunarmönnum. Á undanförnum árum hefur verið gert stórátak í því að hjálpa þeim að gæta réttar síns á þessum árstíma. Talsvert hefur borið á því undanfarin ár að réttur verslunarmanna til hvíldartíma hefur gleymst í nóvember og desember þegar verslanir eru oft opnar í tólf tíma á sólarhring eða meira. Innlent 16.12.2005 19:49
Baugur enn í kauphugleiðingum Danska viðskiptablaðið Börsen fullyrðir í dag að Baugur sé að kaupa stærsta einkarekna fasteignafélag Danmerkur fyrir 30 milljarða króna. Innlent 16.12.2005 20:04
Morgunblaðið kaupir í Blaðinu Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, keypti í dag helmings hlut í Ári og degi sem gefur Blaðið út. Ekkert er gefið upp um kaupverð en Sigurður G. Guðjónsson, stjórnarformaður Árs og dags, segir greitt fyrir hlutaféð hvort tveggja með greiðslum til fyrri hluthafa og eins með peningi sem lagður er í félagið. Innlent 16.12.2005 20:17
Ósáttur við að greiða tvær milljónir fyrir rafmagn Eigandi býlis í Ölfusi er ekki sáttur við að hafa þurft að greiða hátt í tvær milljónir króna til að fá rafmagn heim. Innlent 16.12.2005 20:06
Bandalag Sjíta vann líklega stórsigur í Írak Bandalag Sjíta virðist hafa unnið stórsigur í þingkosningunum í Írak í gær. Innlent 16.12.2005 19:59
Dómsmálaráðherra ætlar að skoða athugasemdir mannréttindafulltrúa Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir sjálfsagt að skoða athugasemdir mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins Innlent 16.12.2005 19:55