Fréttir

Fréttamynd

Vill að íslenskir friðargæsluliðar sinni borgaralegri friðagæslu

Framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar segir að það skapi hættu fyrir hjálparstarfsmenn þegar friðargæsluliðar sinna neyðar- og þróunaraðstoð eins og íslenskir friðargæslumenn gera í Afganistan. Hann segir það skoðun sína að Íslendingar eigi fremur að leggja áherslu á borgaralega friðargæslu en vopnaða.

Innlent
Fréttamynd

Elton John staðfesti samvist sína

Tónlistarmaðurinn Elton John og kærasti hans David Furnish voru meðal 700 samkynhneygðra para sem staðfestu samvist sína með formlegum hætti í Bretlandi í dag.

Erlent
Fréttamynd

Búið að slökkva eldinn í Ísnet í Hafnarfirði

Búið er að slökkva brunann í netafyrirtækinu Ísnet við Óseyrarbraut í Hafnarfirði. Tilkynnt var um brunann um klukkan sjö í kvöld og var allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kallað út. Ekki er vitað um tjón að svo stöddu.

Innlent
Fréttamynd

KB-menn menn ársins að mati Frjálsrar verslunnar

Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson hjá KB-banka hafa verið valdir menn ársins í íslensku atvinnulífi af tímaritinu Frjálsri verslun. Í fréttatilkynningu kemur fram að þeir hafi hlotið verðlaunin fyrir framúrskarandi hæfni við rekstur bankans, stækkun hans, farsælan feril, athafnasemi og frumkvöðlastarf í útrás íslenskrar bankaþjónustu og þróun íslensks fjármagnsmarkaðar.

Innlent
Fréttamynd

Truflun á netsambandi í nótt

Búast má við truflunum á netsambandi við útlönd milli klukkan eitt í nótt til sex í fyrramálið, vegna viðhalds á Farice sæstrengnum. Verið er að auka öryggi strengsins og verður betur varinn strengur lagður á stuttum kafla í Skotlandi í nótt. Netsamband á meðan fer eftir gæðum þeirra varaleiða sem íslensku símafyrirtækin, sem verlsa við Farice, hafa að bjóða viðskiptavinum sínum.

Innlent
Fréttamynd

Finnar hyggjast taka upp lög sem banna vændiskaup

Finnar hyggjast taka upp samskonar lög gegn vændiskaupum og gilda í Svíþjóð en þar er kynlífskaup refsiverð. Finnska ríkisstjórnin lagði fram frumvarp til laga í vikunni um að vændiskaup verði bönnuð í Finnlandi.

Erlent
Fréttamynd

Ragnhildur Helgadóttir formaður ritstjórnar bókar um sögu þingræðis

Ragnhildur Helgadóttir lektor í stjórnskipunarrétti við Háskólann í Reykjavík hefur verið skipuð formaður ritstjórnar bókar um sögu þingræðis á Íslandi. Auk hennar sitja í ritstjórn þau Helgi Skúli Kjartansson prófessor í sagnfræði og dr. Þorsteinn Magnússon stjórnmálafræðingur.

Innlent
Fréttamynd

Hálka víða um land

Hálka er á Hellisheiði og í Þrengslum og hálkublettir eru víða á Suðurlandi. Sama er að segja um færð á Vesturlandi og Vestfjörðum en þar er víða hálka og hálkublettir. Á Norðurlandi eru víða hálkublettir, hálka er á Öxnadalsheiði en Lágheiði er ófær. Á Norðausturlandi er hálka, hálkublettir og éljagangur. Þá eru einnig víða hálkublettir á Austur- og Suðurlandi.

Innlent
Fréttamynd

Almenningur treystir íbúðarlánasjóði

Almenningur treystir Íbúðalánasjóði samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar IMG Gallups sem gerð var dagana 9.-15. desember. Alls telja 84,2% svarenda Íbúðarlánasjóð traustan en einungis 3,8% aðspurðra telja sjóðinn ótraustan.

Innlent
Fréttamynd

Reykjavík fær langmest fé

Reykjavík fær tvöfalt hærra framlag úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga en það sveitarfélag sem fær næst mest úr sjóðnum. Framlögin sem Reykjavík fær eru að stærstum hluta vegna greiðslu húsaleigubóta.

Innlent
Fréttamynd

SÍF selur sinn hlut í Icebrit Ltd

SÍF hf. hefur selt 40% eignarhlut sinn í sölufyrirtækinu Icebrit Ltd. í Bretlandi. Kaupandi er Páll Sveinsson og fjölskylda sem fyrir voru eigendur að 60% að félaginu. Söluverð er trúnaðarmál.

Innlent
Fréttamynd

Sala á Þorláksmessu til styrktar Palestínu

Líkt og í fyrra verður Félagið Ísland-Palestína með sölu á bolum, palestínskum kafía klútum, nælum og disknum Frjáls Palestína til styrktar stríðshrjáðum í Palestínu í miðbænum á Þorláksmessu.

Innlent
Fréttamynd

Refsingu frestað í skjalafalsmáli

Kona á fimmtugsaldri var fundin sek fyrir skjalafals í Héraðdsómi Reykjaness í dag. Hafði hún falsað tvo lyfseðla, breytt ávísuðu magni á báðum seðlunum og breytt öðrum úr einnota lyfseðil í fjölnota. Hún játaði brot sín skýlaust fyrir dómi og var tekið tillit til þess og einnig framlagðra sjúkraskýrslna. Refsingu var frestað haldi konan almennt skilorð í tvö ár.

Innlent
Fréttamynd

Tindafjöll sýknað

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag Tindafjöll ehf. af skaðabótakröfu. Hérðasdómur Reykjavíkur komst að því í morgun að málið væri fyrnt og sýknaði því Tindafjöll af skaðabótakröfunni.

Innlent
Fréttamynd

Algjör ringulreið

Algjör ringulreið ríkir í New York borg vegna allsherjarverkfalls starfsmanna samgöngukerfis borgarinnar. Milljónir manna þurfa líklega að ganga borgina þvera og endilanga í nístingskulda annan daginn í röð til að komast í vinnuna.

Erlent
Fréttamynd

Leysa ekki vanda með skemmtanabanni

Foreldrar, lögregla og skólayfirvöld verða að bregðast við drykkju unglinga en vandamál henni tengd verða ekki leyst með því að banna skemmtanahöld nemenda segir rektor Menntaskólans við Sund. Lögreglan í Reykjavík hefur bannað skemmtanahald nemenda skólans fram á vor vegna drykkjuláta og uppákoma á síðustu tveimur böllum skólans.

Innlent
Fréttamynd

Stúlka slasast illa á hönd

Stúlka slasaðist illa á handarbaki þegar hún festi höndina í roðvél í fiskvinnslunni í Keflavík í morgun. Að sögn lögreglunnar á staðnum er óljóst hversu illa útleikin höndin er en töluvert af handarbakinu flettist af. Stúlkan var flutt með sjúkrabíl á Landsspítalann Háskólasjúkrahús í Fossvogi og að sögn læknis lögð inn á lýtarlækningardeild.

Innlent
Fréttamynd

Síðasti dagurinn til að senda jólakortin

Íslendingar eyða um það bil þrjú hundruð og fjörtíu milljónum króna í jólakort og sendingarkostnað um þessi jól. Það jafngildir því að sérhvert mannsbarn á Íslandi eyði um það bil eitt þúsund fimmtíu og sjö krónum í þessa gömlu hefð.

Innlent
Fréttamynd

Ungir hugvitsmenn vinna til verðlauna

Fjórar íslenskar hugmyndir hlutu verðlaun í nýsköpunarsamkeppni sem InnoEd verkefnið stóð fyrir. Að verkefninu standa Íslendingar, Bretar, Finnar og Noregur og er markmið þess að koma á fót menntakerfi sem styður kennslufræðileg markmið nýsköpunar.

Innlent
Fréttamynd

Sýknað af bótakröfu starfsmanns

Hæstiréttur hefur sýknað Ístak af kröfu starfsmanns fyrirtækisins sem slasaðist þegar hann féll til jarðar þar sem hann stiklaði milli gólfbita í Smáralind þegar hún var í byggingu. Varanleg örorka mannsins er metin fimmtán prósent.

Innlent
Fréttamynd

Byggingastjóri greiði fyrir galla á húsi

Byggingastjóri parhúss í Garðabæ var í gær dæmdur til að greiða eiganda hússins eina og hálfa milljón króna í skaðabætur vegna verulegra galla sem voru á byggingu hússins.

Innlent
Fréttamynd

Verkfallið stendur enn

Milljónir manna gengu til vinnu eða notuðust við reiðhjól í nístingskulda í New York í gær. Enn hefur ekki náðst samkomulag við starfsmenn almennings samgöngukerfisins í borginni sem hófu verkfall í gær.

Erlent