Fréttir
Of snemmt að segja hvort loðnustofninn sé hruninn Forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar segir of snemmt að kveða upp úr um það hvort loðnustofninn sé hruninn. Hann hefur engu að síður áhyggjur af því að engin loðna hafi fundist og segir að verulegt magn þurfi að finnast af henni til þess að hægt sé að mæla með veiðum. Innlent 10.1.2006 23:06
Nýr kjarasamningur stætóbílstjóra undirritaður Fulltrúar strætóbílstjóra í Reykjavík og Strætó undirrituðu nýjan kjarasamning í gær sem borinn verður undir atkvæði bílstjóranna á næstunni. Samningurinn er sagður á sömu nótum og borgin samdi nýverið um við Starfsmannafélag borgarinnar. Innlent 11.1.2006 07:58
Yfir 2000 kjúklingar drepast á Trínidad Yfir tvö þúsund kjúklingar hafa drepist á karabísku eyjunni Trínidad á síðustu fimm dögum. Mikil skelfing hefur gripið um sig meðal íbúa eyjunnar. Erlent 11.1.2006 07:54
Íbúinn kveikti sjálfur í Íbúi í íbúðinni sem eyðilagðist í eldi í fjölbýlishúsi í Lómasölum í Kópavogi í fyrrinótt kveikti sjálfur í. Hann gaf sig fram við lögregluna og játaði verknaðinn án skýringa. Faðir mannsins er skráður eigandi íbúðarinnar. Líklegt má telja að maðurinn verði ákærður bæði fyrir eignaspjöll og að hafa stofnað lífi nágranna í hættu. Innlent 11.1.2006 07:13
Evrópuþjóðir og Bandaríkjamenn fordæma ákvörðun Írana Ríkisstjórnir Evrópusambandsríkjanna og Bandaríkjanna hafa margar hverjar fordæmt ákvörðun Íransstjórnar um að halda áfram með kjarnorkurannsóknir sínar. Vöruðu þær Írana við að Sameinuðu þjóðirnar gætu refsað stjórnvöldum með einhverjum hætti. Erlent 11.1.2006 07:03
Mikill verðmunur á fiski Mikill verðmunur er á fiski milli verslana samkvæmt kverðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði þriðjudaginn 10. janúar síðast liðinn. Mestur er munurinn 111% á heilli hausaðri rauðsprettu sem kostaði frá 375 krónum upp í 790 krónur. Minnstur var munurinn 22% á reyktum ýsuflökum þar sem lægsta verð var 980 krónur en það hæsta var 1198 krónur. Kannað var verð á 27 ferskum fisktegundum í fiskbúðum og stórmörkuðum sem hafa fiskborð í verslunum sínum. Verðið var oftast lægst í FiskbúðinniÁrbjörgu, Hringbraut og í Fiskbúðinni okkar við Smiðjuveg en oftast dýrast í Fiskbúðinni Vör, Höfðabakka. Innlent 11.1.2006 23:45
Tæplega nítjánþúsund manns hafa mótmælt Rúmlega átjánþúsund og sjöhundruð manns hafa undirritað mótmæli gegn ritstjórnarstefnu DV í dag á Deiglunni. Um tíma komust færri að síðunni en vildu og hrundi hún vegna of mikils álags. Síðan verður opin áfram á morgun. Innlent 11.1.2006 23:22
Síðbúnar þrettándabrennur í kvöld Þrettándanum var fagnað með þremur brennum á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld, en ekki var hægt að kveikja í þeim á föstudaginn var vegna veðurs. Seltirningar kveiktu í brennu á Valhúsahæð og lögðu fjölmargir leið sína þangað þrátt fyrir nokkurn kulda. Safnast var saman við Mýrarhúsaskóla og þaðan gengið fylktu liði undir lúðrablæstri upp á hæðina. Innlent 10.1.2006 23:09
Fjórir slösuðust í sprengingu Fjórir slösuðust, þar af einn alvarlega, þegar gassprenging varð í verslunarmiðstöð í bænum Utrecht í Hollandi í dag. Sprengingin varð í mannlausri lyfjaverslun. Erlent 10.1.2006 21:19
Nýr samningur hjá Strætó Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og Strætó bs. hafa skrifað undir nýjan kjarasamning fyrir starfsfólk Strætós. Fram kemur á heimasíðu Strætós að nýi samningurinn sé í öllum meginatriðum sambærilegur og áþekkur samningi Reykjavíkurborgar og starfsmannafélagsins, en aðilar hafa þó litið til sérstöðu starfseminnar og aðlagað samninginn að því. Innlent 10.1.2006 22:03
Íranir rufu innsiglin Kjarnorkuáætlun Írana er komin af stað á nýjan leik, Bandaríkjamönnum og Evrópusambandinu til mikillar gremju. Vesturlönd óttast að Íranar ætli að þróa kjarnavopn en þeir sverja og sárt við leggja að vinnslan sé í friðsamlegum tilgangi. Erlent 10.1.2006 21:16
Lífstíðarfangelsi fyrir að nauðga 12 vikna barni Fertugur karlmaður, sem nauðgaði 12 vikna barni með hjálp kærustu sinnar sem átti að gæta barnsins, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Nítján ára unnusta hans hefur verið dæmd til fimm ára fangelsisvistar. Erlent 10.1.2006 22:24
Seinheppinn bankaræningi Seinheppinn ræningi í Salt Lake City í Bandaríkjunum skipulagði rán illa og uppskar í samræmi við það. Erlent 10.1.2006 22:20
Kjarnorkuáætlun Írana af stað á ný Kjarnorkuáætlun Írana er komin af stað á nýjan leik, Bandaríkjamönnum og Evrópusambandinu til mikillar gremju. Vesturlönd óttast að Íranar ætli að þróa kjarnavopn en þeir sverja og sárt við leggja að vinnslan sé í friðsamlegum tilgangi. Erlent 10.1.2006 22:17
Kærir líklega ekki Sverri Þór Sverrissyni, eða Sveppa eins og hann er betur þekktur, þykir ólíklegt að hann kæri þann sem gaf honum glóðarauga um helgina. Árásarmaðurinn hefur beðið hann afsökunar. Innlent 10.1.2006 21:22
Fjórir slösuðust í gassprengingu í verslunarmiðstöð í Hollandi Fjórir slösuðust, þar af einn alvarlega, þegar gassprenging varð í verslunarmiðstöð í bænum Utrecht í Hollandi í dag. Erlent 10.1.2006 22:09
Ríkisstjórn Úkraínu situr áfram þrátt fyrir vantraust Úkraínska þingið samþykkti í dag vantraust á ríkisstjórn landsins. Yushchenko forseti telur aðgerðir þingsins brjóta í bága við stjórnarskrá og ætlar að freista þess að fá atkvæðagreiðsluna ógilta. Erlent 10.1.2006 21:58
Stjórnin kölluð saman Karlmaður á sextugsaldri svipti sig lífi í morgun, eftir að DV birti mynd af honum á forsíðu og bendlaði hann við kynferðislegt ofbeldi gegn ungum piltum. Ásakanirnar gegn honum hafa ekki verið sannaðar og bróðir mannsins segir að DV hafi nánast rekið hann í dauðann. Formaður Blaðamannafélagsins hyggst kalla saman stjórn félagsins af þessu tilefni. Innlent 10.1.2006 21:52
Skipan fjölmiðlanefndar í uppnámi Menntamálaráðherra getur ekki skipað fulltrúa allra þingflokka í nýja fjölmiðlanefnd, sem á að semja drög að fjölmiðlalögum. Stjórnarandstaðan á Alþingi hefur sent ráðherra bréf, þar sem þess er krafist að málefni Ríkisútvarpsins verði rædd í nefndinni, en að öðrum kosti hyggst stjórnarandstaðan ekki tilnefna fulltrúa í hana. Innlent 10.1.2006 21:13
Ók á ljósastaur Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni og ók á ljósastaur á Hafnavegi, nálægt aðalhliðinu hjá Varnarliðinu á Miðnesheiði snemma kvölds. Lítil sem engin meiðsl urðu á fólki. Innlent 10.1.2006 21:44
Kveikt í þrettándabrennum í kvöld Þrettándanum var fagnað með þremur brennum á höfuðborgarsvæðinu í kvöld, en ekki var hægt að kveikja í þeim á föstudaginn var vegna veðurs. Innlent 10.1.2006 21:24
Smygluðu milljónum sígarettna Þrír norskir skipstjórar og einn íslenskur hafa játað smygl á nærri tveimur milljónum sígarettna og fleiri þúsundum lítra af áfengi til Noregs. Smyglvarninginn keyptu skipstjórarnir, sem starfa á tveimur norskum fragtskipum, í Hollandi og Þýskalandi. Innlent 10.1.2006 21:21
Ríkissaksóknari fær málið á morgun Mál Jónasar Garðarssonar, formanns Sjómannafélags Reykjavíkur, vegna sjóslyssins á Viðeyjarsundi, verður sent til Ríkissaksóknara á morgun. Þar verður tekin ákvörðun um hvort ákært verði í málinu. Innlent 10.1.2006 21:14
Fékk heillaskeyti frá forsætisráðherra 300 þúsundasti landsmaðurinn kom í heiminn í gær en það var drengur sem á ættir sínar að rekja til Reykjanesbæjar. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Hallgrímur Snorrason hagstofustjóri heimsóttu foreldrana og drenginn á fæðingardeild Landsspítalans klukkan eitt í dag og afhentu þeim heillaóskaskeyti í beinni útsendingu á NFS. Innlent 10.1.2006 20:22
Úthlutað fyrir lok umsóknarfrests Umhverfisráðherra hefur úthlutað Náttúrufræðistofnun 6,6 milljónum króna úr veiðikortasjóði þrátt fyrir að umsóknafrestur um styrki úr sjóðnum sé ekki runninn út. Innlent 10.1.2006 20:14
300 milljóna borhola skilar engu Tvær borholur Reykjanesvirkjunar virðast ekki ætla að skila neinni orku en sú dýrari kostaði yfir þrjúhundruð milljónir króna. Engu að síður stefnir í að virkjunin verði gangsett á fullu afli þann 1. maí næstkomandi. Innlent 10.1.2006 20:03
Svik og prettir vísindamannsins Svik og prettir er einkunnin sem verk Hwangs Woos-suks, eins virtasta fræðimanns heims á sviði stofnfrumurannsókna fékk í dag. Þetta er áfall fyrir rannsóknir í lífvísindum, segir íslenskur sérfræðingur á þessu sviði. Erlent 10.1.2006 19:17
Álagningarprósentan lækkar Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti í dag að lækka álagningarprósentu fasteignaskatts á íbúðahúsnæði um 20 prósent, eða úr 0,335 prósentum í 0,27 prósent. Lóðarleiga og vatnsgjald lækka einnig. Þetta verður þó ekki til að álögur lækka heldur hækka þær ekki meira en sem nemur verðlagsþróun. Innlent 10.1.2006 19:26
Starfslokasamningur stöðvaði kjarasamning Starfslokasamningur forstjóra FL-group varð til þess að Félag íslenskra atvinnuflugmanna sleit samningaviðræðum við Icelandair um að lækka áhafnakostnað vegna leiguflugs. Flugmönnum þótti í ljósi kringumstæðna ekki við hæfi að halda áfram viðræðum. Innlent 10.1.2006 19:12
Nýr framkvæmdastjóri ráðinn áður en sá fyrri var rekinn Framkvæmdastjórn Öryrkjabandalagsins gekk frá ráðningu nýs framkvæmdastjóra í síðustu viku - áður en Arnþóri Helgasyni var sagt upp störfum í gær. Arnþór var varaður við að tjá sig um málið við fjölmiðla og hótað með því að slíkt hefði neikvæð áhrif á starfslokasamning hans. Innlent 10.1.2006 18:54