Fréttir
Forsetinn í Grundaskóla Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaieff forsetafrú heimsækja Grundaskóla á Akranesi á morgun í tilefni af því að Grundaskóli fékk Íslensku menntaverðlaunin í flokki skóla sem sinnt hafa nýsköpun og farsælu samhengi í fræðslustarfi. Innlent 30.1.2006 13:43
Vopnaður maður rændi HHÍ í Tjarnargötu Vopnaður ræningi rændi Happdrætti Háskóla Íslands í Tjarnargötu laust fyrir klukkan tólf. Maðurinn kom inn með byssu og sagðist vera að ræna útibúið: Hann vatt sér síðan að næsta peningakassa, tók laust fé úr honum og hvarf á braut. Honum var veitt eftirför en hefur enn ekki fundist. Innlent 30.1.2006 12:44
Myndi raska öllum skuldbindingum Forstjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, sem er móðurfélag Fríhafnarinnar, segir að það muni raska öllum skuldbindingum félagsins og uppbyggingaráformum, ef sala í komuverslun Fríhafnarinnar verður einskorðuð við áfengi og tóbak, eins og Samtök Verslunar og þjónustu knýja á um. Innlent 30.1.2006 11:57
Vopnað rán hjá Happdrætti Háskólans Hettuklæddur maður vopnaður byssu rændi Happdrætti Háskóla Íslands við Tjarnargötu laust fyrir klukkan tólf í dag. Mannsins er leitað. Enginn starfsmaður slasaðist í ráninu. Innlent 30.1.2006 12:14
Verður Hótel Saga seld? Búnaðarþing kom saman klukkan ellefu í morgun til að taka ákvörðun um það hvort kauptilboði í Hótel Sögu og Hótel Ísland verði tekið. Þingið var kallað saman til þessa aukafundar og er kauptilboðið það eina sem ráðgert er að ræða. Ekki er vitað hvenær þinginu lýkur. Innlent 30.1.2006 12:13
Íranar vilja forðast Öryggisráð SÞ Íranar hafa óskað eftir fundi með fulltrúum Breta, Frakka og Þjóðverja í dag vegna deilunnar um kjarnorkuvopnaáætlun stjórnvalda í Teheran. Stjórn Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar kemur saman síðar í vikunni og ræður ráðum sínum og gæti vísað málinu til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Íranar ætla að freista þess að koma í veg fyrir það. Erlent 30.1.2006 12:07
Friðurinn úti Friðurinn hefur verið rofinn á vinnumarkaðnum með samþykkt Launanefndar sveitarfélaganna um hækkun lægstu launa, að mati Kristjáns Gunnarssonar, formanns Starfsgreinasambands Íslands. Hann hefur boðað formenn verkalýðsfélaganna á fund í næstu viku til að ræða tillögu launanefndarinnar. Innlent 30.1.2006 12:02
Öll atkvæði utan kjörfundar innsigluð Stuðningsmenn Óskars Bergssonar, sem lenti í þriðja sæti í prófkjöri Framsóknarflokksins í Reykjavík um helgina, létu innsigla öll utankjörfundaratkvæði að talningu lokinni. Innlent 30.1.2006 12:01
Lausir úr prísundinni Sjötíu kanadískir námumenn eru nú lausir úr prísundinni eftir að hafa setið fastir í rúmlega sólarhring einn kílómetra undir yfirborði jarðar í kalsíum-námu í Kanada. Erlent 30.1.2006 11:49
Og Vodafone í Símaskrána Nýjustu upplýsingar um símanúmer og heimilisföng viðskiptavina Og Vodafone, verða hér eftir aðgengilegar á simaskra.is og í Símaskránni. Þetta er vegna samkomulags Og Vodafone og Já, sem rekur simaskra.is, 118 og gefur út Símaskrána. Innlent 30.1.2006 11:42
Réttað yfir Sigurði Frey Aðalmeðferð í máli Sigurðar Freys Kristmundssonar hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Sigurður Freyr er ákærður fyrir að hafa banað Braga Halldórssyni í ágúst síðastliðnum með því að stinga hann með hnífi. Innlent 30.1.2006 11:34
Innbrot reynt í félagsmiðstöð Tilraun var gerð til að brjótast inn í félagsmiðstöðina í Þorlákshöfn síðustu nótt. Vaktmaður öryggisgæslufyrirtækis tók eftir að einhver hafði reynt að spenna upp hurð á félagsmiðstöðinni en mistekist og er ekki að sjá að hann hafi komist inn. Ekki er vitað hvort sami einstaklingur hafi verið á ferð og braust inn í Sæunni Sæmundsdóttur ÁR aðfaranótt laugardags. Innlent 30.1.2006 11:26
Samið við þrjú félög Fulltrúar Reykjavíkurborgar gengu í gær frá samningum við þrjú stéttarfélög um breytingar og framlengingu á samningum félaganna við borgina. Félögin eru Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga, Stéttarfélag lögfræðinga og Útgarður. Innlent 30.1.2006 10:39
Eru að slökkva síðustu glæðurnar Slökkviliðsmenn eru að ljúka við að slökkva eld sem kviknaði í sumarbústað við Hafravatn. Enginn reyndist vera í bústaðnum þegar eldurinn kom upp og því engin hætta á ferðum. Sumarbústaðurinn er hins vegar illa skemmdur. Innlent 30.1.2006 10:13
Eldur í sumarbústað Slökkviliðsmenn frá öllum stöðvum á höfuðborgarsvæðinu voru sendar að Hafravatni til að slökkva eld sem kom upp í sumarbústað þar fyrir skemmstu. Innlent 30.1.2006 09:50
Spassky til Íslands Skákmeistarinn Boris Spassky, sem árið 1972, missti heimsmeistaratitilinn í hendur Bobby Fischers í Laugardalshöllinni, er væntanlegur hingað til lands í næstu viku. Að sögn Morgunblaðsins ætlar hann að taka þátt í hátíðarhöldum til heiðurs Friðriki Ólafssyni fyrsta stórmeistara Íslendinga í skák. Ekki liggur fyrir hvort hann muni hitta Fischer í heimsókninni, en sem kunnugt er er Fischer orðinn íslenskur ríkisborgari og býr í Reykjavík. Innlent 30.1.2006 08:02
Steinunn og Ólafur fengu starfslaun í þrjú ár Rithöfundarnir Steinunn Sigurðardóttir og Ólafur Gunnarsson hlutu starfslaun til lengst tíma við úthlutun listamannalauna. Hvort um sig hlýtur starfslaun til þriggja ára. 124 listamenn fengu starfslaun sem nema frá þremur mánuðum upp í þrjú ár og tíu að auki fengu fararstyrk. Innlent 30.1.2006 09:31
Þjóðverjar sniðganga Hamas Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra Ísraels og Angela Merkel, kanslari Þýskalands ætla ekki að eiga samskipti við væntanlega heimastjórn Hamassamtakanna í Palestínu. Þetta sagði Olmert eftir fund þeirra Merkel í gær. Hann sagði kosningasigur Hamas í síðustu viku hafa verið óheppilegan, því Hamas væru hryðjuverkasamtök og þau myndu ekki fá fjármagn frá evrópskum hjálparsamtökum. Þá sagði Merkel að þýsk stjórnvöld myndu aðeins eiga samskipti við Hamas ef samtökin viðurkenndu Ísraelsríki og höfnuðu ofbeldi. Erlent 30.1.2006 07:58
Í fangelsi fyrir akstur án réttinda Karlmaður var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að keyra bíl ökuréttindalaus á Akureyri. Maðurinn hefur aldrei fengið ökuréttindi og var fyrir sjö árum dæmdur til að fá aldrei ökuréttindi vegna endurtekinna umferðarlagabrota. Innlent 30.1.2006 09:20
Fuglaflensan komin til Kýpur Fuglaflensutilfelli af gerðinni H5N1 hefur greinst á tyrkneska hluta eyjunnar Kýpur. Þetta eru fyrstu veirutilfellin sem upp hafa komið á Kýpur, en engin tilfelli hafa fundist á gríska hluta eyjarinnar. Ríkisstjórnin hélt neyðarfund vegna málsins í gær en Kýpur er einungis um 75 kílómetra frá suðaustur-strönd Tyrklands þar sem fjórar manneskjur hafa dáið eftir að hafa smitast af H5N1 vírusnum. Erlent 30.1.2006 07:56
Íranar láta undan kröfu Bandaríkjamanna Írönsk stjórnvöld hafa látið undan kröfu Bandaríkjamanna um að leyfa eftirlitsmönnum Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar að skoða svæði sem tengjast Lavizan herstöðinni í Teheran í Íran. Sagði sendimaður sem þekkir vel til mála, að eftirlitsmenn hefðu skoðað staði tengda Lavizan og séð búnaðinn sem þar er. Ekki hefur enn verið ákveðið hvort Rússar munu auðga úran fyrir írana eða hvort Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna taki til skoðunar að beita Írana refsiaðgerðum vegna áætlana þeirra í kjarnorkumálum. Erlent 30.1.2006 07:51
Kristinn vill skýringu Kristinn H. Gunnarsson þingmaður Framsóknarflokks segir að það verði að fá skýringu á gríðarlegri þátttöku í utankjörfundaratkvæðagreiðslum í prófkjörinu í Reykjavík um helgina. Það hafi líklega aldrei gerst áður að fjórðungur greiddra atkvæða sé utan kjörfundar. Innlent 30.1.2006 07:43
Fastir í rúmar tuttugu klukkustundir Sjötíu kanadískir námamenn hafa nú setið fastir í rúmlega 20 klukkustundir um einn kílómetra undir yfirborði jarðar í kalsíum námu í Kanada. Eldur kviknaði í námunni og þurftu námamennirnir að leita skjóls í öryggisherbergi á meðan slökkviliðsmenn reyndu að ráða niðurlögum eldsins og tókst það seint í gærkvöldi. Erlent 30.1.2006 07:36
Tarja Halonen endurkjörin forseti Sauli Niinisto viðurkenndi í gærkvöldi ósigur sinn í síðari umferð forsetakosninganna í Finnlandi, sem fóru fram í gær. Fékk Tarja Halonen, forseti Finnlands, 51,8 prósent atkvæða en Niinisto 48,2 prósent. Halonen, sem er 62 ára, sagði að sigurinn væri sögulegur því hún væri fyrsti kvenforseti landsins sem nær endurkjöri en Halonen var kjörin forseti Finnlands, fyrst kvenna, árið 2000. Hún hefur alltaf notið vinsælda en hún þykir alþýðleg, syndir reglulega í Eystrasalti og æfir magadans. Erlent 30.1.2006 07:48
Þrír létust og tugir slösuðust Að minnsta kosti þrír létust og yfir fjörtíu eru slasaðir eftir að farþegalest fór út af teinunum í austurhluta Pakistans í gær en margir vagnanna féllu niður í gil samkvæmt AP fréttastofunni. Talið er að á bilinu 500 til 600 farþegar hafi verið um borð í lestinni sem var á leið frá Rawalpindi sem er nærri Islamabad til Lahore, höfuðborg Punjabhérað. Herinn hefur verið sendur á staðinn til að aðstoða við björgunarstörf sem hefur gengið brösulega vegna erfiðra aðstæðna en óttast er að tala látinna muni hækka á næstu dögum. Erlent 30.1.2006 07:33
Danahatur breiðist út Danahatur breiðist nú út í löndum múslima vegna skopmynda af Múhameð spámanni sem Jótlandspósturinn birti í haust. Hafa herskáir Múslímar á Gazasvæðinu sagt Skandinövum, sem staddir eru á Gaza, að koma sér í burtu og var kveikt í danska fánanum Dannebrog á Vesturbakkanum í gær. Erlent 30.1.2006 06:47
Palestínskir öryggissveitarmenn mótmæla sigri Hamas Hópur palestínskra öryggissveitarmanna lagði undir sig byggingu þingsins á Gasa-ströndinni í morgun. Vitni segja að þeir hafi farið inn með offorsi og hleypt af byssum sínum út í loftið. Með þessu vildu þeir láta í ljós óánægju sína með sigur Hamas-samtakanna í palestínsku þingkosningunum í síðustu viku. Erlent 30.1.2006 08:06
Segir nám til stúdentsprófs stytt til að spara fé Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir áform um að stytta námstíma til stúdentsprófs snúast um að spara fé fyrir ríkið og auka miðsstýringu. Hún telur að staldra þurfi við og athuga fremur möguleika á að stytta námstímann í grunnskólanum. Innlent 29.1.2006 18:33
ESB til varnar Danmörku Evrópusambandið kemur Danmörku til varnar og mun leita til Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO, hvetji stjórnvöld í arabaríkjum til þess að danskar vörur verði sniðgengnar. Danskar vörur hafa þegar verið fjarlægðar úr hillum í verslunum margra arabískra ríkja í mótmælaskyni við birtingu skopmynda af Múhameð spámanni í Jótlandspóstinum. Erlent 30.1.2006 07:45
Sáttmáli í stað stjórnarskrár ESB Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur lagt til að gerður verði örsáttmáli á milli Evrópusambandsríkjanna í stað stjórnarskrárinnar sem flest bendir til að ekki verði að veruleika í núverandi mynd. Erlent 30.1.2006 07:40