Fréttir
Mannfall í sprengjuárás í Suður-Afganistan Að minnsta kosti 13 létu lífið og 14 særðust þegar öflug sprengja sprakk í borginni Kandahar í Suður-Afganistan í morgun. Sprengjan sprakk fyrir utan höfuðstöðvar lögreglu í borginni. Erlent 7.2.2006 07:57
Enginn samkomulagsflötur Japönsk stjórnvöld ætla ekki að koma aftur á stjórnmálasambandi við Norður-Kóreu finnist engin lausn á kjarnorkudeilunni við þá og upplýsingar fást ekki um alla þá japönsku ríkisborgara sem Norður-Kóreumenn rændu fyrir rúmum 30 árum. Erlent 7.2.2006 07:52
12 létust í rútuslysi á Ítalíu Að minnsta kosti 12 létu lífið og 6 slösuðust alvarlega þegar rúta hafnaði utan vegar í Róm á Ítalíu gærkvöldi. Rútan féll ofan í 10 metra djúpt gil. Um það bil 30 manns voru um borð í rútunni, þar á meðal bílstjórinn sem er sagður alvarlega slasaður. Farþegarnir voru allir tyrkneskir ferðamenn úr 350 manna hópi bílasala þaðan sem voru á ferð í Róm í átta rútum. Erlent 7.2.2006 07:48
Múslimar í Bandaríkjunum mótmæla skopmyndum Leiðtogar múslima í Bandaríkjunum áttu í gær fund með sendiherra Dana þar í landi til að ræða birtingu skopmynda af spámanninum Múhameð. Eftir fundinn sagði formaður samtaka bandarískra múslima að viðræður við sendiherrann hefðu verið á jákvæðum nótum og uppbyggilegar. Erlent 7.2.2006 07:44
Eldsprengjum kastað að sendiráði Dana í Teheran Eldsprengjum og grjóthnullungum var látið rigna yfir danska sendiráðið í Teheran, höfuðborg Írans, í gærkvöld. Um það bil 400 mótmælendur höfðu safnast saman fyrir utan bygginguna til að láta í ljós óánægju með skopmyndir af Múhameð spámanni sem birtust í Jótlandspóstinum fyrir nokkrum mánuðum og hafa vakið mikla reiði meðal múslima. Erlent 7.2.2006 07:39
Þorskseiðin stækka hraðar en vonir stóðu til Þorskseiði, sem fiskeldi Brims hf. í Eyjafirði er að ala, stækka og þyngjast með meiri hraða en bjöttustu vonir stóðu til. Á heimasíðu Brims er greint frá því að seiði, sem voru 90 grömm um miðjan mars í fyrra, séu nú orðin 740 grömm og hafi þar með rúmlega sjöfaldað þyngd sína á tíu og hálfum mánuði. Innlent 7.2.2006 07:32
598 milljónir í laun og hlunnindi á síðasta ári Sextán framkvæmdastjórar sviða og dótturfyrirtækja Landsbankans skiptu með sér 598 milljónum króna í laun og hlunnindi í fyrra, sem eru rúmar þrjár milljónir á mann á mánuði, samkvæmt ársskýrslu bankans. Innlent 7.2.2006 07:30
Bæjarráð Hveragerðis nýtir heimild Launanefndar sveitafélaga Bæjarráð Hveragerðis hefur samykkt samhljóða að nýta heimild Launanefndar sveitafélaga til tímabundinnar launahækkunar. Á fréttavefnum Suðurland.is segir að laun leikskólakennara og starfsmanna félaga sem samið hafa um starfsmat við launanefndina, verði hækkuð. Þeim starfsmönnum sem fá launahækkunm verður kynnt það sérstaklega. Innlent 7.2.2006 06:57
Vestfirðir í brennidepli á vðamikilli sýningu Atvinnulíf, ferðaþjónusta og mannlíf á Vestfjörðum verður kynnt á sýningunni Perlan Vestfirðið sem verður sett upp í Perlunni 5.-7. maí næstkomandi. Fréttavefur Bæjarins besta á Ísafirði segir að markmið sýningarinnar sé að kynna það sem Vestfirðirnir hafa upp á að bjóða bæði fyrir ferðamenn og þá sem vilja kynna sér búsetumöguleika. Innlent 7.2.2006 06:43
Ætla að einbeita sér að verslunarrekstri Forstjóri Dags Group segir fyrirtækið nú ætla að einbeita sér að verslunarrekstri. En gengið hefur verið frá kaupum Dagsbrúnar á fyrirtækinu Senu. Innlent 6.2.2006 23:16
Sameiningarkosingar í austanverðum Flóa á laugardag Sameiningarkosningar fara fram í þremur sveitarfélögum í austanverðum Flóa á laugardaginn kemur. Sveitarfélögin sem um ræðir eru Gaulverjabæjarhreppur, Hraungerðishreppur og Villingaholtshreppur. Innlent 6.2.2006 22:11
Bað Ögmund að gæta orða sinna Til snarpra orðaskipta kom á milli Sólveigar Pétursdóttur, forseta Alþingis, og Ögmundar Jónassonar, þingmanns Vinstri - grænna, í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag eftir að þingforseti bað Ögmund að gæta orða sinna. Innlent 6.2.2006 22:34
170 þúsund flugsæti á mánuði Hátt í 170 þúsund flugsæti í áætlunarflugi eru í boði til og frá Íslandi í hverjum mánuði í sumar. Tvö ný flugfélög fljúga til landsins næsta sumar. Innlent 6.2.2006 22:15
Útgjöld til varnarmála stóraukin Velferðarkerfið bíður lægri flut fyrir varnarmálum í tillögu George Bush Bandaríkjaforseta að nýju fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2007. Samkvæmt því verða útgjöld til varnarmála sextán prósent af öllum útgjöldum bandaríska ríkisins. Erlent 6.2.2006 21:58
Launakostnaður í fiskvinnslu 23 sinnum hærri hér en í Kína Tuttugu og þrír kínverskir fiskvinnslustarfsmenn þiggja samanlagt jafnhá laun og einn starfsmaður í fiski á Dalvík. Launakostnaður í fiskvinnslu er með öðrum orðum orðinn tuttugu og þrisvar sinnum hærri á Íslandi en í Kína. Innlent 6.2.2006 21:12
Vegið sé að námsmönnum með því að afnema fæðingarstyrk til maka Sérfræðingur í norrænum málum telur vegið að námsmönnum í Danmörku með því að afnema rétt maka námsmanna erlendis til fæðingarstyrks frá Íslandi. Í bæði Noregi og Svíþjóð er heimavinnandi fólki greitt fæðingarorlof. Starfsfólk Tryggingastofnunar fer þvert gegn félagsmálaráðuneytinu með því að benda fólki á að brjóta lögheimilisskilyrði laganna. Innlent 6.2.2006 21:01
Segir réttarhöldin sirkus Þessi réttarhöld eru sirkus, sagði Zacarias Moussaoui við val á kviðdómi í réttarhöldum yfir honum í Virginíu í dag. Hann er eini maðurinn sem hefur verið ákærður í Bandaríkjunum vegna hryðjuverkanna ellefta september. Erlent 6.2.2006 20:58
Líkur á að íslenskum starfsmönnum Varnarliðsins fækki áfram Líkur eru á því að íslenskum starfsmönnum Varnarliðsins fækki áfram, þó svo samningar náist við Bandaríkjastjórn um varnarsamstarfið. Landhelgisgæslan hefur skoðað aðstöðu á Keflavíkurflugvelli undir starfsemi þyrlubjörgunarsveitarinnar. Innlent 6.2.2006 20:49
Vilja eftirlitsmenn burt Íranar hafa krafist þess að alþjóða kjarnorkumálastofnunin láti af öllu eftirliti í landinu innan tveggja vikna. Þetta staðfesti talsmaður stofnunarinnar í kvöld. Kjarnorkuþróun Írans var vísað fyrir öryggisráðið um helgina og viðbrögð Írana við þeirri ákvörðun eru í takt við það yfirlýsingar þarlendra stjórnvalda undanfarnar vikur. Erlent 6.2.2006 20:02
Dagsbrún skilar 700 milljóna króna hagnaði Dagsbrún, sem á 365 miðla og þar með NFS, keypti í dag allt hlutafé Senu. Ársuppgjör félagsins var einnig birt í dag en samkvæmt því skilaði Dagsbrún liðlega 700 milljóna króna hagnaði eftir skatta. Innlent 6.2.2006 20:01
Krafist verði frekari undanþágna frá Kyoto-bókuninni Forsætisráðherra segir að núverandi ríkisstjórn muni krefjast frekari undanþágna frá Kyoto-bókuninni til að greiða fyrir uppbyggingu fleiri álvera. Á hvaða ráðherra ríkisstjórnarinnar eiga menn að taka mark varðandi uppbyggingu álvera, spurði formaður Samfylkingarinnar á Alþingi í dag og benti á að menn töluðu í austur og vestur. Innlent 6.2.2006 20:28
Margmiðlunartækni í landnámsbæ Margmiðlunartækni verður notuð til hins ítrasta þegar landnámsbærinn í Hótel Reykjavík Centrum verður opnaður almenningi í maí. Meðal annars má sjá landnámsmenn ganga um og rota geirfugla sér til matar. Ekki er ólíklegt að Ingólfur Arnarson hafi verið meðal þeirra. Innlent 6.2.2006 19:36
Borgarstjóri veitir hópnum Samferða viðurkenningu Hópurinn Samferða hlaut í dag viðurkenningu fyrir gott gegni myndarinnar "Þröng sýn". Það var borgarstjórinn í Reykjavík sem veitti hópnum viðurkenninguna. Á dögunum vann kvikmyndin Þröng sýn verðlaun Framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins "Eusopian Youth awards" í flokknum "Barátta gegn kynþáttahatri og fordómum". Kvikmyndin var valin úr um tólf þúsund verkum sem bárust keppninni og veitti Guðmundur Arnar Guðmundsson, annar leikstjóri myndarinnar verðlaununum viðtöku á dögunum. Eins var myndin tilnefnd til Eddu- verðlauna á síðustu Eddu hátíð í flokki stuttmynda og hlaut fyrstu verðlaun í flokknum "Ný form" á alþjóðlegu stúdentakvikmyndahátíðinni í Karlov Vary í Tékklandi. Af þessu tilefni veitti Borgarstjórinn í Reykjavík, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, hópnum Samferða viðurkenningu í Hinu húsinu í dag en meðleikstjóri Guðmundar er Þórgnýr Thoroddsen. Innlent 6.2.2006 18:19
Tveir féllu á Gasa Tveir palestínskir uppreisnarmenn féllu í loftárás Ísraelshers á norðanverðri Gasa-ströndinni nú undir kvöld. Mennirnir tveir, sem voru báðir í herskáum armi Fatah-hreyfingarinnar, héldu til nærri Jabalya flóttamannabúðunum. Undanfarna þrjá daga hafa sjö Palestínumenn fallið í loftárásum Ísraelshers á Gasa. Erlent 6.2.2006 19:59
Rafmagns- og heitavatnslaust um tíma í Grafarvogi Rafmagns- og heitavatnslaust varð í stórum hluta Grafarvogs fyrr í kvöld. Háspennustrengur við Víkurveg var grafinn í sundur um hálfsexleytið með þeim afleiðingum að rafmagnslaust varð í syðri hluta Grafarvogs og á Höfðum. Viðgerð lauk tæpri klukkustund síðar en þá fór heita vatnið af. Innlent 6.2.2006 19:54
Fær ekki greidda tryggingu vegna fjölskyldusögu Kona á fimmtugsaldri, sem sótti um sjúkdómatryggingu hjá KB líf, fær ekki greidda tryggingu ef hún greinist með MS þar sem móðir hennar hefur strítt við sjúkdóminn. Formaður samtaka MS-sjúklinga segir þetta hneyksli. Það sé nógu sárt að glíma við ólæknandi sjúkdóm, þótt manns nánustu sé ekki refsað fyrir það. Innlent 6.2.2006 19:32
Íslenski fáninn tekinn niður í Amman Reiði múslíma í garð Dana vegna myndanna af Múhameð spámanni magnast enn. Fjórir liggja í valnum eftir mótmæli í Afganistan og Sómalíu í dag. Og í Amman, höfuðborg Jórdaníu, hefur ræðismaður Íslands tekið niður íslenska þjóðfánann af ótta við að ráðist verði á hús hans. Erlent 6.2.2006 19:23
Kaupverð um 3,6 milljarðar króna Dagsbrún hf. hefur skrifað undir samning um kaup á öllu hlutafé Senu, með fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda. Sena er hluti af Degi Group og með kaupunum fylgir tónlistarútgáfa, umboð fyrir tölvuleiki, tónlist og kvikmyndir, bíórekstur, hljóðver, tónlistarveitan tónlist.is og allur annar rekstur Dags Group sem heyrir undir afþreyingarsvið. Kaupverð er um 3,6 milljarðar króna. Viðskipti innlent 6.2.2006 18:51
Fasteignamarkaðurinn að taka við sér eftir áramót Svo virðist sem fasteignamarkaðurinn sé að taka við sér eftir áramótin því gengið var frá 180 kaupsamningumí síðustu viku. Það er töluvert meira en meðaltal síðustu fjögurra vikna samkvæmt hálffimmfréttum KB banka, en 123 kaupsamningum hefur verið þinglýst á viku síðastliðnar fjórar vikur. Innlent 6.2.2006 18:17
Samþykkja að nýta sér heimildir til launahækkana Bæjarráð Dalvíkurbyggðar og Akureyrarbær hafa samþykkt að nýta sér þær heimildir sem Launanefnd sveitarfélaga samþykkti fyrir rúmri viku til tímabundinna viðbótargreiðslna umfram gildandi kjarasamninga við stéttarfélögin Einingu-Iðju, Kjöl og Félag leikskólakennara. Þetta kemur fram á vefnum dagur.net. Innlent 6.2.2006 18:06