Fréttir

Fréttamynd

Skattur á þá efnaminni

Notendagjöld í heilbrigðiskerfinu eru aukaskattur á tekjulágt og fátækt fólk, segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Hann segir að ávinningurinn af innheimtu notendagjalda sé lítill eða enginn og þau valdi því helst að efnaminna fólk hafi ekki efni á heilbrigðisþjónustu.

Innlent
Fréttamynd

Heimaþjónusta ljósmæðra í uppnámi

Samningar um heimaþjónustu milli Ljósmæðrafélags Íslands og Tryggingastofnunar ríkisins rennur út á miðnætti. Ljósmæðrum voru kynnt drög að nýjum samningi í dag en skilaboð þeirra eru skýr, þær sætta sig ekki við samninga undir kostnaðargreiningu.

Innlent
Fréttamynd

Haft samband við hæstbjóðendur

Framkvæmdarsvið Reykjavíkurborgar hefur haft samband við þá sem áttu hæsta tilboð í byggingarétt á lóðum í Úlfarsárdal. Þeir þurfa nú að ákveða við hvaða tilboð þeir hyggjast standa. Eins og fram hefur komið í fréttum átti einn maður hæsta tilboð í byggingarétt 39 einbýlishúsalóða af þeim fjörtíu sem í boði voru í útboði borgarinnar. Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á fimmtudag tillögu borgarstjóra þess efnis að hver einstaklingur fengi aðeins að kaupa eina einbýlishúsa eða parhúsalóð.

Innlent
Fréttamynd

Viðbúnaðarstigi vegna fuglaflensunnar ekki breytt hér á landi

Viðbúnaðarstigi vegna fuglaflensunnar verður ekki breytt hér á landi í ljósi tíðindanna frá Svíþjóð, að sögn Jarle Reiersens, yfirdýralæknis alifuglasjúkdóma. Fyrr í dag var greint frá því að hættulegt afbrigði flensunnar hafi fundist í villtum andfuglum í suðurhluta Svíþjóðar.

Innlent
Fréttamynd

Köttur smitaður af fuglaflensu

Þýsk yfirvöld hafa fundið dauðan kött sem var smitaður af H5N1 stofni fuglaflensunnar. Ekki er enn vitað hvort kötturinn dó af völdum fuglaflensunnar eða af öðrum orsökum en verið er að rannsaka hræið. Kötturinn fannst á sömu slóðum og fuglarnir sem fundust í Þýskalandi fyrr í mánuðinum. Ekki er enn vitað til þess að menn geti smitast af fuglaflensunni af köttum en fundurinn vekur óneitanlega ugg hjá mönnum um að fuglaflensan geti borist í aðrar dýrategundir.

Erlent
Fréttamynd

Börn krefjast að múhameðsteiknarar verði hengdir

Fimmþúsund börn allt niður í átta ára gengu fylktu liði um götur stærstu borgar Pakistan í morgun og kröfðust þess að teiknarinn sem teiknaði skopmyndirnar af Múhammeð spámanni yrði hengdur. Hingað til hefur fullorðna fólkið að mestu séð um mótmælin vegna skopmyndanna í MiðAusturlöndum, en það breyttist heldur betur í dag.

Erlent
Fréttamynd

Viðbúnaður hugsanlega í áhættustig tvö

Hættulegt afbrigði fuglaflensunnar hefur fundist í villtum andfuglum í suðurhluta Svíþjóðar. Samkvæmt leiðbeiningum Landbúnaðarstofnunar um áhættustig þýðir þetta að viðbúnaður vegna flensunnar verði færður á stig tvö hér á landi. Veiran greindist í tveimur skúföndum við Oskarshamn.

Erlent
Fréttamynd

Verðbólgan áfram yfir þolmörkum

Verðbólgan mun áfram vera yfir efri þolmörkum og mælast 4,2 prósent ef verðbólguspá Íslandsbanka mun ganga eftir. Þetta verður þá 23 mánuðurinn í röð þar sem verðbólgan er umfram markmið Seðlabankans en verðbólgumarkmið hans er 2,5 prósent. Þá mun vísitala neysluverðs hækka um 0,9 prósent ef spáin gengur eftir.

Innlent
Fréttamynd

SPES byggir í Tógó

Þróunarsamvinnustofnun Íslands og SPES-barnahjálp hafa gert með sér samkomulag um að ÞSSÍ styrki byggingu nýs húsnæðis í barnaþorpi samtakanna í Lomé í Tógó. Að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá ÞSSÍ hljóðar kostnaðaráætlun við bygginguna upp á 65.000 evrur eða rúmar fimm milljónir íslenskra króna og nemur styrkur ÞSSÍ til byggingarinnar um 40 prósent af upphæðinni eða um 2 milljónir króna.

Innlent
Fréttamynd

Atkvæðagreiðsla vegna verkfalls slökkviliðsmanna hafin

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn hófu á hádegi að greiða um það atkvæði hvort boða eigi til verkfalls sem hefjast á um miðjan marsmánuð. Um 280 atvinnuslökkviliðsmenn eru á kjörskrá og er kosið í deildum þeirra víða um land.

Innlent
Fréttamynd

Áframhaldandi óöld í Írak

Gjáin milli súnnía og sjía í Írak gæti breikkað enn eftir sprengjuárás við legstein föðurs Saddams Hússein í morgun. Minnst þrjátíu og tveir hafa fallið í fimm sprengjuárásum fyrir hádegið.

Erlent
Fréttamynd

Gufumökkur yfir stóru svæði á Reykjanesbraut

Mikið umferðaröngþveiti varð á Reykjanesbraut til móts við Sprengisand og í Ártúnsbrekku á áttunda tímanum í morgun eftir að önnur aðal heitavatnsæð Orkuveitunnar frá Reykjum til borgarinnar sprakk og gufumökk lagði yfir stórt svæði.

Innlent
Fréttamynd

Ísland í 13. sæti yfir hlutfall kvenna á þjóðþingum

Íslendingar eru nokkrir eftirbátar hinna norrænu ríkjanna þegar kemur að hlutfalli kvenna á þjóðþingum. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Alþjóðaþingmannasambandinu sem birtar voru í gær. Ísland er í þrettánda sæti á listanum af 187 löndum en hér á landi eru konur akkúrat þriðjungur þingmanna.

Innlent
Fréttamynd

Ólína ósátt við Menntamálaráðuneytið

Ólína Þorvarðardóttir, skólameistari Menntaskólans á Ísafirði, segir að menntamálaráðuneytið hafi ekki stutt nægilega það sáttaferli sem ráðuneytið kom af stað í haust. Ólína var gestur fréttavaktarinna fyrir hádegi en mikill styrr hefur staðið um starf hennar sem skólameistari undanferin misseri.

Innlent
Fréttamynd

Maóistar drápu fimmtíu manns

Uppreisnarmenn úr röðum maóista drápu fimmtíu manns með fjarstýrðri sprengju í morgun. Sprengjan sprakk undir sendibifreið sem í var hópur fólks sem unnið hefur gegn maóistum. Þá slösuðust margir í sprengingunni, en ekki liggur fyrir hvort einhverjir þeirra séu í lífshættu.

Erlent
Fréttamynd

Fjórðungur karlmanna á Austurlandi útlendingar

Fjórðungur karlmanna á Austurlandi er með erlent ríkisfang samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Hlutfall erlendra ríkisborgara er hæst í þeim landshluta, eða 17,6 prósent, sem má væntanlega rekja til stóriðjuframkvæmdanna fyrir austan.

Innlent
Fréttamynd

Vinna harðar að auðgun úrans

Íranar vinna nú harðar en nokkru sinni að auðgun úrans, og halda áfram að hundsa fyrirspurnir kjarnorkueftirlitsmanna. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar. Aðeins tæpar tvær vikur eru síðan Íranar hófu notkun á tíu nýjum skilvindum í því augnaamiði að auðga úran. Með tilliti til þess hve lítinn samstarfsvija Íransstjórn hafi sýnt, sé alls ekki hægt að fullyrða að tilgangurinn sé með öllu friðsamlegur.

Erlent
Fréttamynd

Umferð komin í samt lag aftur

Umferð um Reykjanesbraut og Ártúnsbrekku er komin í samt lag eftir mikið öngþveiti, sem skapaðist þegar önnur aðal æð hitaveitunnar frá Reykjum í Mosfellsbæ til borgarinnar, sprakk í stokk undir Reykjanesbrautinni á móts við Sprengisand á áttunda tímanum í morgun. Við það flæddi heitt vatnið upp á vestari vegahelminginn og beljaði niður í niðurföll, en samtímis steig upp gufustrókur sem birgði ökumönnum sýn.

Innlent
Fréttamynd

Viljla álver við Eyjafjörð

L-listi, listi fólksins á Akureyri skorar á Alcoa að reisa álver á Dysnesi við Eyjafjörð. Á almennum fundi flokksins í gærkvöldi var samþykkt að senda frá sér ályktun þar sem fram kemur að flokkurinn telji Eyjafjörð besta kostinn fyrir álver Alcoa og er fyrirtækið boðið velkomið til Eyjafjarðar.

Innlent
Fréttamynd

Maður og geit í það heilaga

Maður í Súdan neyðist til að kvænast geit að því er fram kemur á bt.dk í dag. Málsatvik eru þau að maðurinn var í ástaratlotum við geitina þegar eigandi hennar kom að honum. Eigandi krafðist þess að maðurinn gengi að eiga geitina og að hann borgaði fyrir hana brúðargjald. Öldungaráð ráð bæjarins fundaði um málið og komst að þeirri niðurstöðu að maðurinn og geitin skyldu heitbindast

Erlent
Fréttamynd

Umferðartafir vegna brostinnar hitaveituæðar

Önnur aðalæð hitaveitunnar frá Reykjum í Mosfellsbæ til borgarinnar brast fyrir stundu rétt við Reykjanesbrautina þar sem æðin kemur yfir Elliðaárnar og hefur heitt vatn skapað mikla gufustróka, sem truflað hafa umferðina, sem meira og minna er í hnút í Ártúnsbrekku og á Reykjanesbrautinni í átt að Breiðholti.

Innlent
Fréttamynd

Súkkulaðiát hin hollasta iðja

Ný, bandarísk rannsókn bendir afdráttarlaust til þess að súkkúlaðiát sé hin hollasta iðja. Rannsakendur skoðuðu hóp eldri karlmanna frá Hollandi í meira en áratug og í ljós kom að blóðþrýstingur þeirra sem borðuðu súkkúlaði á hverjum degi var mun lægri en þeirra sem ekki voru fyrir súkkúlaðið, auk þess sem lífslíkur þeirra voru hreinlega meiri en hinna.

Erlent
Fréttamynd

Danskir læknar lokkaðir til Noregs

Þúsundir danskra lækna nýta frítíma sinni til að vinna í Noregi þar sem þeir fá að minnsta kosti tvöfalt hærri laun. Þetta leiðir til verri þjónustu á dönskum spítölum þar sem ekki er hægt að manna alla vaktir þar eftir því sem fram kemur í Jótlandspóstinum.

Erlent
Fréttamynd

Bensínlítrinn hækkar hjá Esso og Olís

Olíufélögin Esso og Olís hækkuðu bensínlítrann um tvær og fimmtíu í gær og er hann nú kominn í tæpar 112 krónur í sjálfsafgreiðslu og díselolían er krónu ódýrari. Þetta er nokkuð snörp hækkun eftir þrjár verðlækkanir að undanförnu.

Innlent