Fréttir
Bók sem allir verða að lesa "To kill a Mockingbird" eftir Harper Lee var valin, á Degi bókarinnar í Bretlandi, sú bók sem allir ættu að lesa áður en þeir deyja. Bókin sló við ekki ómerkari bókum en Biblíunni, sem lenti í öðru sæti og Hringadróttinssögu sem hafnaði í því þriðja. Bókin gerist á fjórða áratugnum í Suðurríkjum Bandaríkjanna og fjallar um svartan mann sem er ranglega sakaður um að hafa nauðgað hvítri stúlku og hlaut höfundurinn Pulitzer Prize verðlaunin fyrir hana á sínum tíma Erlent 2.3.2006 07:42
Biðja Skandinava að yfirgefa Vesturbakkann Sameinuðu þjóðirnar hafa beðið alla skandinavíska starfsmenn sína að yfirgefa Vesturbakkann vegna alvarlegra hótana um að nema á brott eða drepa skandinavíska erindreka á svæðinu. Erlent 2.3.2006 07:52
Gorbatsjev 75 ára í dag Míkhaíl Gorbatsjev, fyrrverandi forseti Sovétríkjanna, er 75 ára í dag. Gorbatsjev er enn í fullu fjöri og beitir nú kröftum sínum aðallega í þágu umhverfisverndar og góðgerðamála. Erlent 2.3.2006 07:42
Réttarhöld yfir Gary Glitter hafin Réttarhöldin yfir rokkstjörnunni Gary Glitter hófust í morgun. Hann er ákærður fyrir að hafa misnotað tvær stúlkur, tíu og ellefu ára gamlar, á heimili sínu í suðurhluta Víetnams. Erlent 2.3.2006 07:38
Guðrún Ágústa efst hjá VG Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, kennari og forvarnarfulltrúi í Flensborgarskóla, leiðir lista Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs við bæjarstjórnarkosningar í vor. Annað sæti listans skipar Jón Páll Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Regnbogabarna. Innlent 2.3.2006 07:19
Öryrkjar skora á heilbrigðisráðherra Framkvæmdastjórn Öryrkjabandalags Íslands vill að heilbrigðisráðherra hefji þegar í stað endurskoðun laga og reglna um notendagjöld í heilbrigðiskerfinu. Innlent 2.3.2006 09:28
Segir Icelandic Group selja ólöglega veiddan þorsk Breska blaðið The Guardian segir að íslenska fyrirtækið Icelandic Grop, sem áður hét SH, selji ólöglega veiddan þorsk úr Barentshafi, sem veiddur sé utan kvóta og fari á svartan markað. Innlent 2.3.2006 07:49
Misstu allt sitt í eldsvoða í Sælingsdal Fjögurra manna fjölskylda missti heimili sitt í eldsvoða, þegar íbúðarhúsið í Sælingsdal í Dalasýslu eyðilagðist í eldi í gær. Íbúarnir voru ekki heima þegar vegfarandi sá reyk leggja frá húsinu og gerði slökkviliði viðvart. Innlent 2.3.2006 07:31
Þyrlur ekki enn komnar í gagnið aftur Landhelgisgæslan hefur ekki enn á að skipa nothæfri þyrlu þar sem viðgerðin á minni þyrlunni, TF SIF, hefur dregist á langinn vegna skorts á varahlutum. Hún átti að komast í gangið í fyrradag en er enn í viðgerð. Innlent 2.3.2006 07:33
Rætt um heimild til að nota tálbeitur Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, spyr Björn Bjarnason dómsmálaráðherra út í heimildir lögreglu til að leita uppi barnaníðinga í utandagskrárumræðu á Alþingi í dag. Innlent 2.3.2006 08:59
Jarðgöng undir Vaðlaheiði vegna álvers? Hugmyndir um jarðgöng undri Vaðlaheiði við Akureyri hafa nú fengið byr undri báða vængi eftir undirritun viljayfirlýsingar um byggingu álvers við Húsavík í gær. Innlent 2.3.2006 07:28
Tveir til viðbótar segja upp við MÍ Tveir stjórnendur til viðbótar hafa sagt upp störfum við Menntaskólann á Ísafirði en Ólína Þorvarðardóttir skólameistari sagði upp störfum fyrr í vikunni. Munu það vera aðstoðarskólameistari og áfangastjóri sem hafa sagt upp og miðast uppsögn þeirra við lok skólaárs, í endaðan júlí. Haft er eftir Guðmundi Þór Kristjánssyni, áfangastjóra, á ruv.is að ástæða uppsagnar hans sé að hann sé búinn að fá nóg eftir áralangar deilur innan menntaskólans. Innlent 2.3.2006 07:22
Vissi að Katrín kynni að brjóta niður flóðvarnir George Bush Bandaríkjaforseti vissi að fellibylurinn Katrín kynni að brjóta niður flóðvarnir New Orleans degi áður en fellibylurinn skall á borginni. Erlent 2.3.2006 07:17
Rannsaka fjármögnun kaupa á stofnfé Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra rannsakar hvort fimm félög hafi fjármagnað kaupin á stofnfjárhlutum í Sparisjóði Hafnarfjarðar að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag. Innlent 2.3.2006 07:17
Jóna Fanney segir upp Jóna Fanney Friðriksdóttir bæjarstjóri á Blönduósi hefur sagt upp störfum. Uppsagnarbréf hennar sem var tekið fyrir á fundi bæjarráðs í gær er stílað 27. febrúar og samkvæmt því lætur Jóna Fanney af störfum 1. júní næstkomandi, fáeinum dögum eftir bæjarstjórnarkosningar. Innlent 2.3.2006 06:14
Íslenskt skip staðið að ólöglegum veiðum Lögregla stendur nú vakt við íslenskt fiskiskip sem kom til Sandgerðis undir morgun eftir að hafa verið staðið að ólöglegum línuveiðum suðvestur af landinu í gær. Innlent 2.3.2006 07:14
Indverjar og Bandaríkjamenn handsala kjarnorkusamning Indverjar og Bandaríkjamenn hafa skrifað undir samkomulag um þróun kjarnorku. Þetta kom fram á sjónvarpsstöð í Indlandi fyrr í morgun. George Bush Bandaríkjaforseti er á Indlandi og fundaði með forseta Indlands í morgun. Ekki liggur enn fyrir hvað felst í samkomulaginu sem var handsalað í morgun. Erlent 2.3.2006 07:24
Árás við ræðismannsskrifstofu BNA í Pakistan Tveir létust og átján slösuðust í sprengjuárás fyrir utan bandarísku ræðismanns skirfstofuna í Karachi í Pakistan í morgun. Tvær sprengjur sprungu með skömmu millibili á bílastæði Marriot-lúxushótelsins sem er við hliðina á ræðismannsskrifstofunni. Erlent 2.3.2006 07:11
Álver eykur ekki þenslu Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, telur að álversframkvæmdir á Bakka við Húsavík rúmist vel innan efnahagskerfisins. Hann segir nauðsynlegt að horfa til framtíðar en það sé gert með þessum framkvæmdum. Innlent 1.3.2006 23:19
Hagnaður Exista Íslandsmet Fjárfestingarfélagið Exista skilaði rúmlega 50 milljarða króna hagnaði í fyrra, sem er nýtt Íslandsmet. Fyrra metið átti KB-banki, sem skilaði tæpum 50 milljörðum í hagnað í fyrra, en KB-banki er einmitt einn aðaleigandi Exista. Innlent 1.3.2006 22:20
Allt í bál og brand Allt virðist komið í bál og brand í kjaradeilu slökkviliðsmanna og sveitarfélaga. Ekkert kom út úr sáttafundi í dag, en á föstudaginn kemur í ljós hvort af verkfalli verður. Slökkviliðsmenn hafa mótmælt víða um land í dag, en fréttastofa hitti um tvö hundruð þeirra á baráttufundi í Reykjavík og þeim var heitt í hamsi. Innlent 1.3.2006 19:30
Landsvirkjun hefur tilraunaboranir í sumar Landsvirkjun mun þegar í sumar hefja tilraunaboranir vegna þeirra jarðvarmavirkjana sem ætlað er að sjá væntanlegu álveri fyrir raforku. Innlent 1.3.2006 19:23
Ljósmæður vitja ekki lengur sængurkvenna Ljósmæður eru hættar að vitja sængurkvenna á heimili þeirra, eftir að samningur ljósmæðra og Tryggingastofnunar rann út á miðnætti. Innlent 1.3.2006 19:09
Ríkisstjórnin ætti að fá niðurlægingarverðlaun Ríkisstjórnin ætti að fá niðurlægingarverðlaun 21. aldar fyrir að skríða á hnjánum fyrir álherrum í Ameríku. Þetta segir Steingrímur J. Sigfússon og hvetur til þess að iðnaðarráðherra veiti þeim viðtöku fyrir hönd félaga sinna. Innlent 1.3.2006 19:02
Ákvörðun Alcoa fagnað Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út á Húsavík um miðjan dag þegar tilkynnt var að bandaríska fyrirtækið Alcoa hefði valið Bakka við Húsavík fyrir byggingu hugsanlegs álvers á Norðurlandi. Áformin voru staðfest með undirritun samkomulags milli Alcoa og ríkisstjórnar Íslands um að kanna hagkvæmni þess að reisa þar 250 þúsund tonna álver. Framkvæmdir myndu hefjast í fyrsta lagi árið 2010. Innlent 1.3.2006 18:54
Íslendingur í haldi bresku lögreglunnar Íslenskur karlmaður á þrítugsaldri, sem lögreglan í Burnley á Englandi handtók í síðustu viku og sakar um rán á breskri stúlku, verður í gæsluvarðhaldi fram í byrjun apríl þegar mál hans verður tekið fyrir. Innlent 1.3.2006 18:45
Ungliðar mótmæltu álverframkvæmdum Ungliðar gegn stóriðju mótmæltu byggingu álvers á Bakka við Húsavík, á skrifstofum Alcoa á Suðurlandsbraut í dag. Lögregla fjarlægði ungliðana af skrifstofunum eftir skamma en hávaðasama viðveru þeirra þar. Innlent 1.3.2006 18:48
Félagsmálaráðherra ávarpaði fund Kvennanefndar SÞ Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, ávarpaði í dag 50. fund Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir í New York. Ráðherrann lagði áherslu á að enda þótt árangur hefði náðst á grundvelli þeirrar stefnu sem mörkuð var á Peking ráðstefnunni árið 1995 þá væri ljóst að enn væri mikið verk að vinna. Innlent 1.3.2006 17:03
Mótmælendur ruddust inn á skrifstofu Alcoa Um 20 ungir mótmælendur hafa ruðst inn á skrifstofur Alcoa við Suðurlandsbraut í Reykjavík og hafa þar í frammi mótmæli gegn byggingu álvers við Húsavík. Ungliðarnir krefjast þess að hætt verði við byggingu álversins og fallið frá stóriðjustefnu stjórnvalda. Innlent 1.3.2006 16:26
Enn er allt í hnút Enn er allt í hnút hjá samningarnefnd Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Launanefnd sveitarfélaganna. Slökkviliðsmenn hafa mótmælt víða um land í dag. Innlent 1.3.2006 16:08