Fréttir
Útlit fyrir stórt hlaup í Skaftá Hlaup er hafið í Skaftá og er útlit fyrir að það sé frekar stórt en vitað var að báðir katlarnir í Skaftárjökli voru orðnir fullir. Hlaupið á upptök sín um fimm til tíu kílómetrum norð-vestan við Grímsvötn í eystri katli Skaftárjökuls og varð þess vart um klukkan 7 morgun. Innlent 22.4.2006 12:23
Fá gular númeraplötur Farartæki sem mega nota gjaldfrjálsa litaða olíu verða í framtíðinni með öðruvísi númeraplötum en önnur farartæki. Samkvæmt reglugerð sem er í undirbúningi í samgönguráðuneytinu verða slík farartæki með gular númeraplötur með svörtum og brúnum stöfum. Innlent 22.4.2006 09:59
Á ofsahraða með glænýtt skírteini Piltur sem hefur verið með ökuskírteini í fjórtán daga var tekin á 141 kílómetra hraða á Miklubraut í Reykjavík klukkan sex í morgun. Hann verður sviptur ökuréttindum og á von á 50 þúsund króna sekt. Innlent 22.4.2006 10:07
Al-Maliki í stað al-Jaafari Vonast er til að höggvið hafi verið á hnútinn í stjórnarmynduninni í Írak eftir að tilkynnt var um að Jawad al-Maliki, yrði forsætisráðherraefni fylkingar sjía, í stað Ibrahims al-Jaafari, núverandi forsætisráðherra. Erlent 22.4.2006 10:04
Hlaup hafið í Skaftá Hlaup er hafið í Skaftá og er útlit fyrir að það sé frekar stórt en vitað var að báðir katlarnir í Skaftárjökli voru orðnir fullir. Hlaupið á upptök sín um 5-10 kílómetrum norð-vestan við Grímsvötn í eystri katli Skaftárjökuls og varð þess vart um klukkan 7 morgun. Að sögn Oddsteins Kristjánssonar, bónda á Hvammi varð hann hljaupsins var snemma í morgun en síðan þá hefur það vaxið mikið. Innlent 22.4.2006 10:13
Skotið á mótmælendur nærri konungshöll Lögregla í Nepal skaut á mótmælendur í miðbæ Katmandú í morgun og særði að minnsta kosti átta menn. Tugþúsundir manna hundsuðu útgöngubann og gengu um götur borgarinnar í átt að konungshöllinni. Erlent 22.4.2006 10:01
Hlé eftir 38 tíma umræðu Annarri umræðu um frumvarp menntamálaráðherra um að Ríkisútvarpinu verði breytt í hlutafélag lauk um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Innlent 22.4.2006 09:57
Hyggst leggja fram frumvarp um hjónavígslu samkynhneigðra Frumvarp um bætta réttarstöðu samkynhneigðra verður væntanlega samþykkt fyrir þinglok í vor og jafnvel strax í næstu viku. Í því er ekki lagt til að trúfélög fái að gefa saman samkynhneigð pör en Guðrún Ögmundsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hyggst leggja fram sérfrumvarp þar að lútandi þar sem hún telur þverpólitískan stuðning við það. Innlent 21.4.2006 22:13
Hámarksökutaxti leigubifreiða afnuminn Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest úrskurð Samkeppniseftirlitsins um að hámarksökutaxti leigubifreiða skuli afnuminn um næstu mánaðamót. Búist er við að flestar leigubílastöðvar sæki um undanþágu til þess að hafa samræmda gjaldskrá fyrir sína bíla. Innlent 21.4.2006 21:59
Bauð ókeypis brjóstaskoðun án þess að vera læknir Lögregla á Florída handtók í gær mann á áttræðisaldri sem hafði gengið hús úr húsi í gervi læknis og boðið konum uppá ókeypis brjóstaskoðun. Upp um manninn komst þegar kona sem hann var að skoða grunaði að eitthvað misjafnt væri á ferðinni þegar maðurinn bað hana um að fara úr öllum fötunum Erlent 21.4.2006 21:01
Sturtaði seðlunum niður Í Þýskalandi eru ekki allir með það á hreinu hvort enn sé hægt að skipta þýska markinu í Evrur. Það var í það minnsta ekki elllilífeyrisþegi einn í Berlín sem fleygði andvirði 30.000 Evra í klósettið heima hjá sér og sturtaði niður. Erlent 21.4.2006 20:31
Maðurinn fundninn Maðurinn sem leitað var að á Vatnajökli í dag eru fundinn. Hann komu sér sjálfur til byggða og hefur því fyrirhugaðri leit verið blásin af. Björgunarsveitir Landsbjargar grennsluðust eftir jeppa á Vatnajökli þar sem ekkert hafði heyrst í ökumanni hans frá hádegi en maðurinn var á leið frá Grímsfjöllum til Jökulheima en sneri við vegna slæms veðurs sem geisar enn. Jeppinn var vel búinn Innlent 21.4.2006 19:19
Gyanendra vill sættir Ekkert útlit er fyrir að ólgunni í Nepal linni á næstunni þrátt fyrir að konungur landsins hafi heitið því í dag að koma á lýðræði þar á ný. Stærsti flokkur landsins segir sáttatilboð kóngsins ganga alltof skammt og því verði mótmælum haldið áfram. Erlent 21.4.2006 18:51
Vill fjölga nýnemum í hjúkrun um fjörutíu á ári Deildarforseti hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands segir vilja til að fjölga þeim sem hefja nám í hjúkrunarfræði um fjörutíu á ári en til þess þurfi aukna fjárveitingu. Menntamálaráðherra segir fund ráðgerðan með heilbrigðisráðherra til að finna lausn á skorti á hjúkrunarfræðingum. Innlent 21.4.2006 18:06
Hefði átt að hækka stýrivextina meira Seðlabankinn hefur hækkað stýrivexti allt of lítið undanfarið, vegna þess að bankinn hefur vanmetið ofhitnun hagkerfisins stórlega. Þetta segir hagfræðingur hjá Seðlabankanum. Hækka verði stýrivexti áfram upp í topp ef takast eigi að sigrast á verðbólgunni. Innlent 21.4.2006 18:18
Grennslast fyrir um jeppa á Vatnajökli Björgunarsveitir Landsbjargar grennslast nú eftir jeppa á Vatnajökli þar sem ekkert hefur heyrst í ökumanni hans frá hádegi. Maðurinn var á leið frá Grímsfjöllum til Jökulheima en sneri við vegna slæms veðurs sem geisar enn. Jeppinn mun vera vel búinn og því hafa björgunarsveitir ekki enn farið á vettvang þar sem vitað er að það tekur lengri tíma en ella að aka leiðina. Innlent 21.4.2006 18:17
Samningfundi lauk án sátta en tillaga þó lögð fram Samningafundi Eflingar og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu vegna kjaradeilu ófaglærðra stafsmanna á dvalarheimilum lauk nú á sjötta tímanum án þess að sættir næðust en svo virðist sem það þokist í samkomulagsátt. Að sögn Jóhanns Árnasonar, formanns SFH, var lögð fram tillaga á fundinum sem forsvarsmenn ófaglærðra ætla að skoða um helgina. Innlent 21.4.2006 18:15
Leggja fram tillögur til lagabreytinga Sameinaðar kvennahreyfingar á Íslandi hafa lagt fram tillögur til breytingar á stjórnarskrár Íslands, er snerta jafnrétti og stöðu kvenna. Meðal þess sem lagt er til, er að reyna skuli að ná sem jöfnustu hlutfalli milli kynjanna á Alþingi. Innlent 21.4.2006 16:44
Gísli biðst lausnar sem varaþingmaður Gísli S. Einarsson hefur ákveðið að biðjast lausnar undan skyldum sínum sem varaþingmaður Samfylkingarinnar. Gísli þáði á dögunum boð Sjálfstæðismanna á Akranesi um að verða bæjarstjóraefni þeirra í sveitarstjórnarkosningunum í næsta mánuði. Innlent 21.4.2006 15:58
Slasaðist á fæti í Hlíðarfjalli Slys varð í Hlíðarfjalli á Akureyri í morgun þegar spotti slitnaði í togbraut. Maður var að fara upp fjallið í diskalyftu en þegar hann hugðist fara úr lyftunni gaf spottinn sig sem tengdur er með þeim afleiðingum að maðurinn meiddist á fæti. Innlent 21.4.2006 15:47
Vill konur í stjórn A. P. Møller-Mærsk Jess Søderberg, forstjóri dönsku fyrirtækjasamteypunnar A. P. Møller-Mærsk, er sagður hafa á takteinum að fjölga konum í stjórn fyrirtækisins. Danskir karlar hafa frá upphafi verið einráðir í stjórninni og hafa konur þar aldrei átt sæti. Viðskipti erlent 21.4.2006 15:07
Minni hagnaður hjá McDonald´s Hagnaður bandarísku skyndibitakeðjunnar McDonald´s dróst saman um 14 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2006. Þetta er mesti samdráttur keðjunnar í fjögur ár. Hagnaðurinn nam 625,3 milljónum Bandaríkjadala eða 49 sentum á hlut. Á sama tíma fyrir ári nam hagnaðurinn 727,9 milljónum eða 56 sentum á hlut. Viðskipti erlent 21.4.2006 14:52
Forseta líkt við einræðisherra Forseti Alþingis var sakaður um að hafa tekið sér vald til að útnefna sig diktator við upphaf þingfundar í dag. Umræða samkvæmt dagskrá tafðist í fimmtíu mínútur vegna deilna um dagskrá fundarins. Innlent 21.4.2006 14:41
Deilt um skipan þingforseta á Ítalíu Hveitibrauðsdagar sigurvegara þingkosninganna á Ítalíu urðu töluvert færri en búist var við. Brestir eru komnir í Ólívubandalag mið- og vinstri flokka, sem staðfest var í vikunni að náð hefði naumum meirihluta í báðum deildum þings. Erlent 21.4.2006 13:52
Stjórnarandstæðingar fá að bjóða fram í Nepal Gyanendra, konungur Nepals, hefur ákveðið að leyfa stjórnarandstöðuflokkum í landinu að bjóða fram eigin forsætisráðherraefni. Hann segir þó að starfandi ríkisstjórn verði áfram við völd enn um sinn. Nepal hefur logað í óeirðum í rúman hálfan mánuð og hafa fjórtán fallið í átökum við öryggissveitir á þeim tíma. Mótmælendur hafa krafist þess að konungur afsalaði sér alræðisvaldi sem hann tók sér fyrir rétt rúmu ári. Erlent 21.4.2006 13:47
Ásþungi takmarkaður fyrir austan Vegagerðin hefur ákveðið að takmarka ásþunga á nokkrum vegum á Miðausturlandi vegna hættu á slitlagsskemdum. Takmörkunin er við sjö tonna ásþunga. Innlent 21.4.2006 12:20
Frestað vegna endurupptöku í Bretlandi Mál Jóns Ólafssonar gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Héraðsdómur frestaði málinu þar sem enn er beðið endurupptöku málsins í Bretlandi. Innlent 21.4.2006 12:13
Gengislækkun hefur áhrif á leiguverð bíla Afborganir á bílum í rekstrar- og einkaleigu hækka vegna lækkandi gengis krónunnar og aukinnar verðbólgu. Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir að einstaklingar gætu þurft að meta stöðuna upp á nýtt því ekki sé svo auðvelt að losna undan samningum. Innlent 21.4.2006 11:39
Enn langt í framkvæmdir við Sundabraut Vegamálastjóri segir ekki hægt að hefja lagningu Sundabrautar fyrr en hönnun hennar er lokið. Hönnunin getur tekið eitt og hálft ár en ekki verður hafist handa við hana fyrr en ákvörðun liggur fyrir um hvar Sundabrautin á að liggja. Innlent 21.4.2006 12:11
Deildu um bensínálögur Stjórnarandstæðingar á þingi kröfðust þess í morgun að stjórnvöld lækkuðu álögur á eldsneyti til að draga úr efnahagslegum áhrifum verðhækkana á bensíni. Stjórnarliðar gáfu hins vegar lítið fyrir slíkt. Innlent 21.4.2006 12:01