Fréttir
Borgarstjórn fellir tillögu Ólafs Borgarstjórn Reykjavíkur felldi á fundi sínum í dag tillögu Ólafs F. Magnússonar, borgarfulltrúa F-lista, um að horfið yrði frá brottflutningi Reykjavíkurflugvallar úr Vatnsmýrinni með 14 atkvæðum allra borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og R-lista, gegn atvæði Ólafs. Innlent 25.4.2006 19:05
Hæstiréttur staðfestir dóm fyrir fíkniefnasmygl Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann á sextugsaldri, Romanas Strabeika, í þriggja ára fangelsi fyrir smygl á tæpum fjórum kílóum af metaamfetamíni. Maðurinn smyglaði fíkniefnunum ásamt félaga sínum í bíl með Norrænu en þeir komu til landsins í júní á síðasta ári. Efnið höfðu þeir falið í sér útbúnu geymsluhólfi í járnbita í undirvagni bílsins en talið er að það hafi verið ætlað til söludreyfingar hér á landi. Innlent 25.4.2006 18:04
Tíu handteknir Tíu hafa verið handteknir vegna hryðjuverkanna í Egyptalandi í gær. Tuttugu og fjórir féllu og sextíu særðust þegar vinsæll ferðamannastaður breyttist um stund í vígvöll. Íslensk hjón, sem eru í Sharm el Sheik, segja heimamenn algjörlega miður sín. Erlent 25.4.2006 18:00
Gríðarlega stórar sprungur við ketilinn Sprungurnar við sigketilinn, sem orsakaði Skaftárhlaupið sem hófst helgina, eru það stórar að það eru fá hús á Íslandi sem ekki kæmust fyrir í þeim. Þetta kom í ljós í könnunarflugi yfir jökul- og flóðasvæðunum í dag. Innlent 25.4.2006 17:58
Lýsa yfir stuðningi sínum Starfsmenn Heilbrigðisstofnunar á Siglufirði lýsa yfir eindregnum stuðningi við aðgerðir starfsmanna á öldrunarstofnunum á höfuðborgarsvæðinu. Í ályktun frá starfsmönnunum segir að laun starfsmanna við umönnun, ræstingu og í eldhúsum, hafi degist aftur úr launum við sambærileg störf t.d. hjá sveitarfélögunum. Þessi störf, sem í flestum tilfellum eru unnin af konum, eru mjög mikilvæg en hafa verið vanmetin. Innlent 25.4.2006 17:33
Íranir láta andstöðu alþjóðasamfélagsins ekki á sig fá Allt bendir til þess að Íranar ætli að halda áfram auðgun úrans þrátt fyrir kröfur alþjóðasamfélagsins um að því verði hætt. Stjórnvöld í Teheran segjast ætla að hætta allri samvinnu við Alþjóða kjarnorkumálastofnunina verði gripið til refsiaðgerða og hafa boðið nágrannaríkjum sínum aðgang að kjarnorkutækni sinni. Erlent 25.4.2006 17:13
Ekið á gangandi vegfaranda Ekið var á ungan mann á tvítugsaldri við gatnamót Lyngháls og Stuðlaháls á fimmta tímanum í dag. Maðurinn var fluttur á slysadeild Landspítalans-háskólasjúkrahúss og er hann nú í rannsóknum og myndatöku. Ekki er talið að maðurinn sé með alvarlega áverka og mun hann líklega fá að fara heim að skoðunni lokinni nú síðdegis. Innlent 25.4.2006 16:53
Eldri borgarar harma að samningar hafi ekki náðst Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni harmar að það að ekki skuli hafa tekist samningar við ófaglært fólk á hjúkrunar- og dvalarheimilum. Félagið hefur sent frá sér ályktun sem samþykkt var á fundi stjórnar félagsins í dag. Innlent 25.4.2006 16:36
Fjölmiðlafrumvarp beinist aðeins gegn 365 Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar, segir nýtt fjölmiðlafrumvarp aðeins beinast gegn 365 miðlum og segir enga þörf á lögunum. Verði það að lögum leiði það til lakari fjölmiðla hér á landi. Innlent 25.4.2006 16:22
Mikil farþega aukning hjá Norrænu Útlit er fyrir mikla aukningu farþega með Norrænu til landsins í sumar. Fréttavefurinn Austurlandið.is greinir frá því að mikil aukning sé í bókunum frá Þýskalandi en ástæða þess er meðal annars talin vera vegna nýrrar söluskrifstofu Smyril Line í Þýskalandi. Sumaráætlun Norrænu byrjar 3. júní og er fram til 2. september. Innlent 25.4.2006 16:26
Grásleppuvertíðin fer rólega af stað Grásleppuvertíðin fer rólega af stað en um þriðjungsminnkun er á veiði hér við land og við Grænland. Á heimasíðu Landsambands smábátaeigenda segir að allt stefni í að heildarframboð grásleppuhrogna minnki annað árið í röð, en miklar verðslveiflur eru sagðar óæskilegar og skaða bæði framleiðendur grásleppukavíars og veiðimenn. Innlent 25.4.2006 15:59
Vildu fresta afgreiðslu RÚV-frumvarps vegna nýrra upplýsinga Stjórnarandstæðingar kröfðust þess á Alþingi í dag að afgreiðslu á bæði frumvarpi um Ríkisútvarpið og um eignarhald á fjölmiðlum yrði frestað fram á haust og þau rædd í samhengi vegna athugasemda fræðimanna við þau. Stjórnarliðar sögðu hins vegar enga ástæðu til þess enda hefði þegar verið haft mikið samráð við stjórnarandstöðu vegna beggja frumvarpa. Innlent 25.4.2006 16:12
Ný fjölmiðlasamsteypa á Akureyri Bæjarsjónvarpið á Akureyri, Samver, Traustmynd, Smit kvikmyndagerð og dagskrárblaðið Extra sameinuðust í eitt félag í dag undir nafninu N4. Nýja félaginu er ætlað að styrkja og bæta staðbundna fjölmiðlun á Akureyri. Innlent 25.4.2006 15:40
Krefst 20 milljóna króna í skaðabætur Fyrirtaka í máli Gunnars Hrafns Birgissonar sálfræðings gegn Jónasi Kristjánssyni og Mikael Torfasyni, fyrrum ritstjórum DV, og gegn 365 prentmiðlum var fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Innlent 25.4.2006 15:31
Skuldir borgarinnar lækkuðu um 1,5 milljarð króna Hreinar skuldir borgarsjóðs lækkuðu um 1,5 milljarð króna árið 2005. Borgarstjóri segir gott að geta skilað af sér góðu búi en ársreikningar Reykjavíkurborgar voru ræddir í borgarstjórn í dag. Innlent 25.4.2006 15:22
Vefurinn Austurlandið.is kominn í loftið Nýr fréttavefur, austurlandið.is, var tekinn í gagnið nýverið. Vefurinn er frétta- og upplýsingaveita fyrir Austurland og íbúa þess, sem og aðra. Þar er að finna tengla á öll sveitafélög á Austfjörðum sem og á aðra fréttamiðla á svæðinu. Innlent 25.4.2006 14:59
Forsetahjónin í opinberri heimsókn á Hornafirði Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson og kona hans Dorrit Moussaieff komu í tveggja daga opinbera heimsókn til Hornafjarðar í dag. Innlent 25.4.2006 14:47
Ný stjórn hjá SA Ný stjórn hefur verið kjörin hjá Samtökum atvinnulífsins fyrir starfsárið 2006 til 2007. Nýir koma inn í stjórnina þeir Jón Karl Ólafsson Icelandair hf., Helgi Magnússon Flügger HarpaSjöfn ehf., Bjarni Ármannsson Glitnir hf., Helgi Bjarnason Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Gunnar Karl Guðmundsson Skeljungur hf. Innlent 25.4.2006 14:39
Gíanendra segist ætla að endurreisa þing Nepal Allsherjarverkfall og fjöldamótmæli hafa verið afboðuð í Nepal eftir að Gíanendra konungur sagðist ætla að endurreisa þing landsins. Maóistar hafna hins vegar tilboði konungs alfarið. Erlent 25.4.2006 14:32
Menntamálanefnd fundar vegna RÚV-frumvarps Menntamálanefnd kom saman í morgun til að ræða frumvarp um hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins. Samþykkt var á þingi í gær að vísa málinu til þriðju umræðu en að kröfu stjórnarandstöðunnar var fundað um málið þar sem spurningar vöknuðu meðal stjórnarandstæðinga um ýmislegt sem lýtur að höfundarétti og eignum RÚV. Innlent 25.4.2006 12:14
Fækkar um 128 í sveitarstjórnum Baráttan um sæti í sveitarstjórnum landsins kann að verða öllu harðari nú en í síðustu kosningum. Alla vega eru færri sæti í boði nú en áður. Innlent 25.4.2006 11:54
Samningafundur í dag ráði miklu um framhaldið Samningafundur í kjaradeilu starfsmanna á dvalar- og hjúkrunarheimilum, sem hefst klukkan eitt í dag, ræður miklu um framhaldið og hvort til setuverkfalls og jafnvel uppsagna starfsmanna kemur. Formaður Eflingar er ekki bjartsýnn eftir að deilan hljóp í hnút á fundi í gærkvöldi. Innlent 25.4.2006 12:21
Rennslið þriðjungur þess sem mest var Mjög hefur dregið úr hlaupinu í Skaftá og er rennsli hennar nú aðeins rúmlega þriðjungur þess sem það var þegar hlaupið náði hámarki. Stærsta Skaftárhlaup sem mælst hefur er nú í rénun og má gera ráð fyrir að rennsli verði komið í meðallag eftir viku eða svo. Innlent 25.4.2006 12:07
Fyrirtaka í máli Friðriks á hendur Sigurði í morgun Í morgun var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur, meiðyrðamál Friðriks Þórs Guðmundssonar á hendur Sigurði Líndal lagaprófessor vegna ummæla Sigurðar í tengslum við rannsókn flugslyssins í Skerjafirði. Innlent 25.4.2006 12:02
Tíu menn handteknir vegna hryðjuverka í Egyptalandi Egypska lögreglan hefur handtekið tíu menn vegna hryðjuverkanna í gær, sem urðu tuttugu og þremur að bana. Árásirnar voru ekki sjálfsmorðsárásir, heldur var tímasprengjum komið fyrir á jörðu niðri. Erlent 25.4.2006 12:09
Segir bjarta tíma fram undan í efnahagsmálum Bjartir tímar eru framundan í efnahagsmálum, samkvæmt nýrri skýrslu fjármálaráðuneytis um þjóðarbúskapinn. Hratt mun draga úr spennu í hagkerfinu, meðal annars vegna lækkunar krónunnar, og hraðvaxandi álútflutningur mun snúa við viðskiptahalla og leiða hagvöxtinn á næstu árum. Innlent 25.4.2006 12:06
Varnarviðræðum haldið áfram Varnarviðræðum íslenskra og bandarískra stjórnvalda verður haldið áfram á morgun. Fundir verða haldnir í Reykjavík á morgun og fimmtudag. Innlent 25.4.2006 11:41
Samþykkt að sameinast Verslunarmannafélagi Hafnarfjarðar Aðalfundur VR samþykkti í gærkvöld að sameinast Verslunarmannafélagi Hafnarfjarðar um næstu áramót að því gefnu að hið síðarnefnda samþykki einnig sameininguna. Innlent 25.4.2006 09:42
Hagnaður Tesco jókst um 17 prósent Breska verslunarkeðjan Tesco PLC skilaði 17 prósenta hagnaði á síðasta ári. Keðjan hefur í bígerð að hagræða í rekstri og spara þannig 5 milljarða punda á næstu 5 árum. Viðskipti erlent 25.4.2006 10:07
Aldrei fleiri leikskólabörn Nær sautján þúsund börn eru í leikskólum landsins og þau hafa aldrei verið fleiri. Leikskólabörnum fjölgaði um 0,65 prósent á síðasta ári og er það nokkru meiri en næstu ár á undan. Innlent 25.4.2006 09:59