Fréttir
Verða að yfirvinna óttann Neyðin veldur því að fiskimenn á Srí Lanka yfirvinna óttann við hafið sem þeir finna fyrir í kjölfar flóðbylgjunnar annan dag jóla. Enn eru víða rústir og drulla og hjálpin berst hægt. Erlent 13.10.2005 18:49
Ekki á flokksþingi Framsóknar Guðmundur Daðason, elsti framsóknarmaður í heimi, er ekki á flokksþingi Framsóknarflokksins sem hófst á Nordica hótelinu í gær og lýkur á morgun. Hann fylgdist þó með útsendingum frá þinginu á Sýn í gær. Innlent 13.10.2005 18:49
Kunni ekki við afskipti Bush Vladímir Pútin Rússlandsforseti segist ánægður með fund sinn með George Bush Bandaríkjaforseta, þótt hann kunni ekki við afskiptin af þróun lýðræðis í Rússlandi. </font /> Erlent 13.10.2005 18:49
Ekki alsæll með nýja nafnið Guðjón Ármann Eyjólfsson, sem var skólastjóri Stýrimannaskólans og Vélskólans í rúm tuttugu ár, er ekki nema rétt mátulega ánægður með hið nýja nafn skólanna, sem er Fjöltækniskóli Íslands. Innlent 13.10.2005 18:49
Átta friðargæsluliðar drepnir Að minnsta kosti átta friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna voru drepnir í Afríkuríkinu Kongó í morgun þegar skæruliðar veittu þeim fyrirsát. Árásin átti sér stað í austurhluta landsins þar sem tæplega fimm þúsund friðargæsluliðar eru að störfum. Erlent 13.10.2005 18:49
Verðbólgan má ekki vera nein Til að rauðu strikin í kjarasamningum verði ekki virk næsta haust þyrfti verðbólga að vera engin fram að þeim tíma. Verðbólgan er nú tveimur prósentum yfir rauðu strikunum og spáð er að fasteignaverð á Reykjavíkursvæðinu hækki um fimmtung á næsta ári. Innlent 13.10.2005 18:50
Á annan tug borgara fallið Á annan tug óbreyttra borgara hefur fallið í árásum uppreisnarmanna í Írak í dag. Yfir hundrað uppreisnarmenn hafa verið handsamaðir í herferð Bandaríkjahers í Anbar-héraði í Írak undanfarna daga. Erlent 13.10.2005 18:49
Ekki aðildarviðræður við ESB Aðildarviðræður við Evrópusambandið eru hvorki tímabærar né skynsamlegar á þessu kjörtímabili. Þetta sagði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra á flokksþingi Framsóknarflokksins, sem hófst í dag. Innlent 13.10.2005 18:49
Varar við nýju vopnakapphlaupi Tilraunir til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu kjarnorkuvopna hafa ekki borið árangur sagði Hans Blix, fyrrverandi yfirmaður vopnaeftirlits Sameinuðu þjóðanna. Hann varaði við því að ný vopnakapphlaup kynni að vera í uppsiglingu. Erlent 13.10.2005 18:49
Mælt með samgöngumiðstöð Mælt er með að ráðist verði í byggingu samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýrinni í sameiginlegri niðurstöðu vinnuhóps samgönguráðuneytis og Reykjavíkurborgar. Niðurstaðan verður kynnt á ríkisstjórnarfundi eftir helgi. Innlent 13.10.2005 18:49
Keyrði á hús og ljósastaur <font face="Helv"></font> Bílstjóri og þrír farþegar sluppu ómeiddir eftir að bílstjórinn keyrði á hús og ljósastaur á Ísafirði á þriðja tímanum í gærdag. Að sögn lögreglunnar á Ísafirði var bílnum ekið í vestur eftir Fjarðarstræti þegar bílstjórinn, sem er á átjánda aldursári, missti stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann keyrði fyrst á íbúðarhús og lenti svo á ljósastaur. Innlent 13.10.2005 18:50
Tala látinna komin yfir 600 Tala látinna í jarðskjálftanum í Íran fyrr í vikunni er komin yfir sex hundruð en auk þess eru um þúsund manns slasaðir. Skjálftinn mældist 6,4 á Richter og voru upptök hans skammt frá Zarand-borg í Kerman-héraði, ekki langt frá borginni Bam sem jarðskjálfti lagði nánast í rúst fyrir aðeins rúmu ári. Erlent 13.10.2005 18:49
Tímamót í farþegaflugi Kaup Flugleiða á tveimur nýjum Boeing 787 Dreamliner-þotum marka tímamót í farþegaflugi hér á landi og gera flugfélaginu kleift að fljúga beint til nánast allrar heimsbyggðarinnar. Heildarverðmæti vélanna tveggja nemur um fimmtán milljörðum króna Innlent 13.10.2005 18:49
Endurunnið fyrir 720 milljónir Íslendingar eru flestum þjóðum duglegri að skila drykkjarumbúðum í endurvinnslu. 80 milljón einingar bárust Endurvinnslunni á síðasta ári. Fyrir stykkið fást níu krónur. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:49
Ók á hús og ljósastaur Ökumaður fólksbíls missti stjórn á honum þegar hann ók eftir Fjarðarstræti á Ísafirði eftir hádegið, með þeim afleiðingum að hann ók fyrst á íbúðarhús og síðan á ljósastaur þar sem hann nam staðar. Svo vel vildi til að enginn gangandi vegfarandi var þarna á ferð í sömu andrá. Innlent 13.10.2005 18:49
Níu afganskir hermenn drepnir Uppreisnarmenn í Afganistan drápu níu afganska hermenn seint í gærkvöldi. Uppreisnarmennirnir sátu fyrir bíl hermannanna nærri landamærum Pakistans og skutu alla sem í honum voru til bana. Þetta er mesta mannfall í stakri árás í Afganistan undanfarna mánuði. Erlent 13.10.2005 18:49
Páfi sagður á batavegi Jóhannes Páll II páfi getur andað án aðstoðar og engin merki hafa fundist um sýkingu í lungum, sagði Joaquin Navarro-Valls, talsmaður páfa, degi eftir að páfinn gekkst undir barkaskurðaðgerð. Erlent 13.10.2005 18:49
Yfirtökutilboði Baugs hafnað Stjórn bresku verslanakeðjunnar Somerfield hafnaði í gær óformlegu yfirtökutilboði Baugs. Í yfirlýsingu frá Somerfield segir að tilboðið hafi ekki verið í þágu hluthafa og því hafi verið ákveðið að hafna því. Innlent 13.10.2005 18:49
Auglýsingabann hugsanlega ólögmætt EFTA-dómstóllinn úrskurðaði í gær að algjört bann við áfengisauglýsingum kynni að vera ólögmætt. Dómurinn segir að til að réttlæta bannið þurfi að sýna fram á að ekki sé hægt að ná markmiðum þess með aðgerðum sem hafa minni áhrif á markaðsfrelsi. Erlent 13.10.2005 18:50
Samningstilboðið skref aftur á bak Sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfarar telja að tilboð samninganefndar heilbrigðis- og tryggingaráðuneytis feli í sér stórt skref aftur á bak fyrir stéttina og skjólstæðinga þeirra. Þeir telja að í tilboðinu felist ávísun á þá löngu biðlista og skertu þjónustu sem þegar einkenni heilbrigðiskerfið. Innlent 13.10.2005 18:49
Tíu leikurum sagt upp Tíu fastráðnum leikurum við Þjóðleikhúsið hefur verið sagt upp störfum. Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri segir þetta stefnuyfirlýsingu um breytt ráðningarkjör leikara við Þjóðleikhúsið. Innlent 17.10.2005 23:41
Ólöglegar uppsagnir Varnarliðsins Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna telur að Varnarliðið standi ólöglega að uppsögnum slökkviliðsmanna á Keflavíkurflugvelli með full réttindi. Félagið ætlar að leita réttar síns að sögn Vernharðs Guðnasonar, formanns félagsins. Innlent 13.10.2005 18:49
Nýju framsóknarfélögin fá aðild Landsstjórn Framsóknarflokksins ákvað í gær að veita tveimur nýstofnuðum framsóknarfélögum úr Kópavogi aðild að flokknum. Bæði Halldór Ásgrímsson formaður og Guðni Ágústsson varaformaður voru fylgjandi inntöku nýju félaganna en tillaga hafði komið upp um að fresta málinu fram yfir landsþing flokksins sem hefst í dag. Innlent 13.10.2005 18:49
Þjónusta bætt við Leifsstöð Leigubílstjórar geta frá og með fyrsta október næstkomandi ekið með farþega bæði til og frá Leifsstöð en það hefur hingað til verið óleyfilegt þar sem um tvö aksturssvæði hefur verið um að ræða. Innlent 13.10.2005 18:49
Þjóðir bregðist við hættunni Þróun fuglaflensunnar, sem herjað hefur á Asíulönd er óbreytt, að sögn formanns framkvæmdastjórnar WHO. Hann segir að þjóðir heims þurfi að gera þær ráðstafanir sem hægt sé. Mesta hætta á heimsfaraldi frá árinu 1968. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:49
Ekki ákærður þrátt fyrir myndband Bandarískur hermaður sem skaut óvopnaðan Íraka til bana í Fallujah í lok síðasta árs verður ekki ákærður. Atvikið náðist á myndband og vakti heimsathygli en eigi að síður segja yfirmenn herréttar í Bandaríkjunum að sönnunargögn séu ekki nægileg til þess að ákæra hermanninn. Erlent 13.10.2005 18:49
Mesta magn LSD sem fundist hefur "Fjögur þúsund skammtar eru ákaflega mikið magn efna og gætu verið í sölu mánuðum saman ef því er að skipta," segir Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildar hjá lögreglunni í Reykjavík. Innlent 13.10.2005 18:49
Knattspyrnumenn í meiri hættu Atvinnumenn í knattspyrnu eru í mun meiri hættu en aðrir á að fá hættulegan taugasjúkdóm sem veldur lömun og leiðir fólk til dauða. Í nýrri rannsókn þar sem heilsufar sjö þúsund ítalskra atvinnumanna var skoðað kom í ljós að taugasjúkdómurinn ALS er fimm sinnum algengari meðal þeirra en annarra. Orsök sjúkdómsins er enn ókunn en engin lækning er til við honum. Erlent 13.10.2005 18:49
Tíu stúlkubörn á leið frá Kína Tíu stúlkur á öðru aldursári eru komnar í faðm íslenskra foreldra í Kína. Hinir nýbökuðu foreldrar eru tíundi hópurinn sem ættleiðir frá Kína. Innlent 13.10.2005 18:49
Segir R-listann svíkja samkomulag R-listinn sveik samkomulag sem hann gerði við F-listann, að sögn Ólafs F. Magnússonar borgarfulltrúa. Ólafur segist hafa frestað að flytja tillögu um stofnun nýs starfshóps um deiliskipulag við Laugaveg að ósk Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra. Hún hefði á móti heitið að R-listinn myndi ekki nýta frestunina til að flytja aðrar tillögur um málið. Innlent 13.10.2005 18:49