Fréttir
Tóku öflugan jarðbor í gagnið Öflugur jarðbor var tekinn í notkun við Miðfellsvatn í dag, en tryllitækið getur borað 150 metra á klukkustund í gegnum urð og grjót án þess að raska yfirborðinu. Innlent 13.10.2005 19:43
Kominn af gjörgæsludeild Strætisvagnabílstjórinn sem slasaðist alvarlega í umferðarslysi á mótum Laugavegar og Kringlumýrarbrautar á föstudag er kominn af gjörgæsludeild en liggur áfram á Landspítalanum í Fossvogi. Hann hefur beðið fréttastofuna að koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem aðstoðuðu á slysstað, lögreglumanna, sjúkraflutningamanna og vegfarenda, auk þeirra sem hafa annast hann á sjúkrahúsinu. Innlent 13.10.2005 19:43
Ástarvikan hafin í Bolungarvík Ástarvikan hófst í Bolungarvík í dag. Megintilgangurinn er að fjölga Bolvíkingum og það er að mörgu að huga. Bolvíkingar hvetja nú hvern annan til að borða egg og sjávarfang, náttúruleg frjósemislyf. Innlent 13.10.2005 19:43
Discovery loks til Flórída Geimferjan Discovery er nú loks komin aftur til Flórída þaðan sem hún lagði af stað síðla júlímánaðar áleiðis til alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Eins og kunnugt er lenti ferjan í allnokkrum vandræðum við flugtak á Canarveral-höfða á Flórída þegar gat kom á einangrun hennar og var jafnvel óttast að hún myndi farast þegar hún kæmi aftur til jarðar. Erlent 13.10.2005 19:43
Fjórum sleppt eftir yfirheyrslur Þremur piltum og stúlku sem urðu vitni að morðinu á Hverfisgötu í gærkvöldi var sleppt í gærkvöldi eftir yfirheyrslur. Fjórði maðurinn var handtekinn í gærkvöldi þar sem talið var að hann gæti varpað frekari ljósi á atburðinn og verður hann yfirheyrður í dag. Hinn grunaði var í gær dæmdur í tíu daga gæsluvarðhald. Ekki fengust upplýsingar um það hjá lögreglunni hvort hinn grunaði hafi játað verknaðinn. Innlent 13.10.2005 19:43
Þyrla hafi ekki verið skotin niður Rannsókn á tildrögum þess að þyrla með sautján spænska friðargæsluliða innanborðs hrapaði í Afganistan á þriðjudaginn hefur leitt í ljós að útilokað er að hún hafi verið skotin niður. Allir sem um borð voru létust og var útför þeirra gerð í Madríd í gær. Háttsettur talibanaleiðtogi hafði áður lýst því yfir að skæruliðar talibana hefðu grandað þyrlunni en gat ekkert sýnt því til sönnunar. Erlent 13.10.2005 19:43
Portúgal leitar til ESB vegna elda Portúgalar hafa beðið Evrópusambandið um aðstoð vegna skógarelda sem eyðilagt hafa á annað hundrað þúsund hektara landsvæðis á síðustu vikum. Yfirvöld í Portúgal glíma nú við mestu þurrka sem um getur í landinu frá því að skráningar hófust og hafa þeir gert slökkviliðsmönnum mjög erfitt fyrir. Erlent 13.10.2005 19:43
Óvissa meðal foreldra í Landakoti "Það hafa verið að fara kennarar sem foreldrar hafa ekki viljað missa," segir Sigurður Leósson framkvæmdastjóri um ástandið í Landakotsskóla. Sigurður er eiginmaður kennara við skólann sem sótti um skólastjórastöðuna og hann fullyrðir að ellefu af kennurum síðasta árs komi ekki til starfa nú. Innlent 13.10.2005 19:44
Auglýst eftir framkvæmdastjóra KEA Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga hefur auglýst starf framkvæmdastjóra laust til umsóknar og rennur umsóknarfresturinn út 27. ágúst. Andri Teitsson lét af störfum í byrjun ágúst og var sagt að stjórn KEA hefði lagst gegn því að hann tæki sér fæðingarorlof. Síðar kom á daginn að í rauninni var um uppsögn að ræða vegna óánægju með störf Andra. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:44
Íbúar í Júrafjöllum grunaðir Unspunnenstein, sögulegu áttatíu kílóa tákni um einingu svissnesku þjóðarinnar hefur verið stolið. Lögregla telur hóp frönskumælandi íbúa Júrafjalla vera að verki. Erlent 13.10.2005 19:43
Stunginn tvisvar í bakið í bænum Maður um tvítugt var stunginn tveimur stungum með hnífi í bakið í nótt og var hann fluttur á slysadeild þar sem hann gekkst undir aðgerð. Maðurinn er ekki talinn í lífshættu en talið er að önnur hnífsstungan hafi lent á lunganu sem féll saman. Árásarmaðurinn var handtekinn stuttu síðar og fannst hann með hjálp vitna og eftirlitsmyndavéla í miðbænum. Innlent 13.10.2005 19:43
Seljum landið ekki bröskurum "Félagið á fjörutíu ára afmæli og við ætlum okkur helst ekki að halda upp á það með því að selja það einhverjum bröskurum úti í bæ," segir Bjarnleifur Bjarnleifsson varaformaður Hestamannafélagsins Gustar. Innlent 13.10.2005 19:43
Kveikti í herbergi með rakettu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað tvisvar út í nótt vegna bruna. Í fyrra skiptið kom upp eldur í svefnherbergi í Vesturbænum þar sem maður var að fikta með skiparakettu. Svo óheppilega vildi til að hún sprakk í svefnherberginu og við það kviknaði í rúmfötum. Töluverðar skemmdir urðu á íbúðinni. Innlent 13.10.2005 19:43
Átök á Gasaströndinni í dag Til nokkurra átaka kom milli landnema og ísraelskra hermanna í dag, þegar þeir síðarnefndu hófu að rýma síðustu landnemabyggðir gyðinga á Gasaströndinni og Vesturbakkanum, sem ríkisstjórn Ariels Sharons hefur ákveðið að skuli víkja. Húsin verða rifin áður en Palestínumenn fá yfirráð yfir landinu en þeir mega nýta byggingarefnið sem eftir verður. Erlent 13.10.2005 19:43
Fundu lík við leit að strák Breska lögreglan, sem leitað hefur 11 ára skosks drengs síðustu daga, greindi frá því í dag að hún hefði fundið lík án þess þó að tilgreina hvort það væri af drengnum. Rory Blackhall hvarf á fimmtudagsmorgun eftir að móðir hans hafði keyrt hann í skólann og hófst í kjölfarið umfangsmikil leit á því svæði sem hann sást síðast, en hann býr í Livingstone. Ekki liggur fyrir hvort einhver liggur undir grun um að hafa numið Blackhall á brott. Erlent 13.10.2005 19:43
Fimmti sigurinn í röð Hannes Hlífar Stefánsson fagnaði sínum fimmta Íslandsmeistaratitli í röð þegar hann gerði jafntefli við Jón Viktor Gunnarsson í síðustu skákinni í landsliðsflokki á Íslandsmótinu í skák. </font /> Innlent 13.10.2005 19:43
Strætó í góðum gír Strætó ætlar að standa við stóru orðin frá því fyrir tveimur vikum og því verður akstur á tíu mínútna fresti á álagstímum á stofnleiðunum sex alla virka daga. Innlent 13.10.2005 19:43
Prammar fluttir vegna mikils brims Flytja þurfti landgönguprammana sem notaðir eru í Hollywood-kvikmyndina <em>Flags of Our Fathers</em> í var í gær vegna mikils brims við ströndina í Sandvík. Prammarnir og flotbryggja sem notuð hefur verið var komið fyrir í var við Ósa rétt við Hafnir á Reykjanesi. Prammarnir skemmdust ekki í briminu og urðu engar tafir á tökum kvikmyndarinnar þrátt fyrir þetta. Innlent 13.10.2005 19:43
Þrír slösuðust á Reykjanesbraut Þrennt var flutt á slysadeild eftir umferðarslys á Reykjanesbraut við Straum á fimmta tímanum í nótt en fólkið er ekki alvarlega slasað. Bílarnir komur hvor úr sinni áttinni og rákust saman og eru þeir gjörónýtir. Ökumaður annarrar bifreiðarinnar er grunaður um ölvun við akstur. Innlent 13.10.2005 19:43
Ungt fólk fái tækifæri í kosningum Samband ungra framsóknarmanna hvetur flokksmenn um allt land að leggja áherslu á sem öflugasta aðkomu ungra að framboðum á vegum flokksins í sveitarstjórnarkosningum á næsta ári. Í tilkynningu frá SUF segir að ungt fólk í Framsóknarflokknum sé tilbúið að taka að sér ábyrgðarmikið starf við að byggja upp flokkinn til framtíðar og standa að hugsjónum flokksmanna. Innlent 13.10.2005 19:43
Fjórða manninum sleppt úr haldi Maður sem handtekinn var síðdegis í fyrradag, vegna rannsóknar á tildrögum þess að tvítugur maður var stunginn til bana á Hverfisgötu 58 á laugardagsmorgun, var látinn laus síðdegis í gær. Innlent 13.10.2005 19:43
Ástandið slæmt eftir Menningarnótt Piltur á tvítugsaldri liggur alvarlega slasaður á gjörgæsludeild Landspítala - háskólasjúkrahúss eftir að hafa verið stunginn með hnífi í bakið í nótt. Árásarmaðurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Yfirlögregluþjónn í Reykjavík segir ástandið í miðborginni hafa verið mjög slæmt eftir að skipulagðri dagskrá Menningarnætur lauk. Innlent 13.10.2005 19:43
Stunginn í bakið á róstusamri nótt Piltur um tvítugt var stunginn í bakið í miðbæ Reykjavíkur í fyrrinótt, skömmu eftir að dagskrá Menningarnætur lauk. Árásarmaðurinn, sem er á svipuðum aldri, var handtekinn skammt frá. Fórnarlambið særðist alvarlega og var þegar færður á sjúkrahús og gekkst undir aðgerð. Hann var kominn úr öndunarvél síðdegis í gær og ástand hans er stöðugt. Innlent 13.10.2005 19:44
Landhelgisgæslan skömmuð "Þeir voru víst alveg foxillir yfir þessu í Warnes Bros," segir Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður á Óðni en hann tók myndir af Óðni og Tý á tökustað myndarinnar Flags of our fathers við Stór-Sandvík á Reykjanesi. Morgunblaðið birti myndirnar á forsíðu sinni 13. ágúst síðastliðinn og voru aðstandendur myndarinnar afar ósáttir við það. Innlent 13.10.2005 19:43
Segist hafa heimild til gjaldtöku Lögreglan á Seyðisfirði segir einhliða fréttir hafa borist af máli tengdu gjaldtöku lögreglustjórans á Seyðisfirði af dansleik í tengslum við LungA, Listahátíð ungs fólks á Austurlandi. Í tilkynningu á <em>Lögregluvefnum</em> kemur fram að DV og fréttastofa RUV hafi fjallað um málið þar sem haft hafi verið eftir bæjarstjóra Seyðisfjarðarkaupstaðar og látið að því liggja að engin heimild hafi verið til slíkrar gjaldtöku m.a. vegna þess að ekki hafi verið um útihátið að ræða. Innlent 13.10.2005 19:43
Tugþúsundir í bænum allan daginn Talið er að um 90 þúsund manns hafi fylgst með flugeldasýningunni í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi. Menningarhátíðin yfir daginn gekk mjög vel og voru tugþúsundir manna í miðborginni frá morgni til kvölds. Innlent 13.10.2005 19:43
Úr öndunarvél eftir hnífsstungu Piltur um tvítug sem var stunginn tvívegis í bakið í Hafnarstræti í miðborginni í nótt er enn á gjörgæsludeild en þó ekki lengur í öndunarvél. Við stungurnar féll annað lungað í honum saman og var hann um tíma í lífshættu en það varð honum til lífs hversu fljótt honum var komið undir læknishendur. Innlent 13.10.2005 19:43
Neitar að hafa vitað af sakleysi Ian Blair, lögreglustjóri Lundúna, neitar því að hafa vitað að Brasilíumaðurinn sem lögreglan skaut til bana á neðanjarðarlestarstöð fyrir mánuði, hafi verið saklaus, fyrr en sólarhring síðar. Fjölskylda hins látna krefst þess að lögreglustjórinn segi af sér, það geti hreinlega ekki verið að lögreglustjórinn hafi gefið opinberar yfirlýsingar um málið án þess að vera kunnugt um staðreyndir. Erlent 13.10.2005 19:43
Fimm í röð hjá Hannesi Hlífari <font face="Helv"> Hannes Hlífar Stefánsson fagnaði sínum fimmta Íslandsmeistaratitli í röð þegar hann gerði jafntefli við Jón Viktor Gunnarsson í síðustu skákinni. </font> Innlent 13.10.2005 19:43
Kynslóðaskipti í skipulagsmálum Hugmyndir um flugvöll á Lönguskerjum má þakka kynslóðaskiptum í skipulagsmálum borgarinnar. Þetta segir Trausti Valsson sem kynnti hugmyndir að flugvelli á þessum stað fyrir nákvæmlega 30 árum. Innlent 13.10.2005 19:43