Fréttir

Fréttamynd

Hagyrðingar eru skrítið fólk

Hagyrðingar landsins bíða þess nú að laugardagurinn 3. september renni upp en þá halda þeir árlegt landsmót sitt. Mótið er haldið á Hótel Sögu að þessu sinni.

Innlent
Fréttamynd

Réttarhaldi frestað til 5. sept.

Karlinn og konan sem eru ákærð fyrir morðið á Gísla Þorkelssyni í Boksburg í Suður-Afríku í byrjun júlí, komu fyrir rétt í morgun. Réttarhaldi var frestað til 5. september næstkomandi en þá verður tekin fyrir beiðni karlsins um lausn gegn tryggingu.

Innlent
Fréttamynd

Hefur störf í vetur

Sigrún Stefánsdóttir, sem ráðin var dagskrárstjóri Rásar 2 og forstöðumaður svæðisstöðva Ríkisútvarpsins, tekur ekki til starfa fyrr en í fyrsta lagi 1. nóvember. Hún mun þó hefja störf fyrir áramót

Innlent
Fréttamynd

Tekist á um stjórnarskrá

Borgarastríð blasir við þvingi Sjítar og Kúrdar sína útgáfu af írakskri stjórnarskrá í gegnum þingið, þvert á vilja Súnníta.

Erlent
Fréttamynd

Fjórðungur fræðimanna óvirkur

Fjórðungur fræðimanna í fullu starfi við Háskóla Íslands eru nánast óvirkir í rannsóknum. Þetta kemur fram í úttekt um gæði rannsókna við skólann. Launakerfi fræðimanna er afkastahvetjandi og þeir hafa skyldu til að verja 43 prósentum af tíma sínum til rannsókna en engar lágmarkskröfur eru gerðar um árangur.

Innlent
Fréttamynd

Kveikti í herbergi með rakettu

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað tvisvar út í nótt vegna bruna. Í fyrra skiptið kom upp eldur í svefnherbergi í Vesturbænum þar sem maður var að fikta með skiparakettu. Svo óheppilega vildi til að hún sprakk í svefnherberginu og við það kviknaði í rúmfötum. Töluverðar skemmdir urðu á íbúðinni.

Innlent
Fréttamynd

Átök á Gasaströndinni í dag

Til nokkurra átaka kom milli landnema og ísraelskra hermanna í dag, þegar þeir síðarnefndu hófu að rýma síðustu landnemabyggðir gyðinga á Gasaströndinni og Vesturbakkanum, sem ríkisstjórn Ariels Sharons hefur ákveðið að skuli víkja. Húsin verða rifin áður en Palestínumenn fá yfirráð yfir landinu en þeir mega nýta byggingarefnið sem eftir verður.

Erlent
Fréttamynd

Fundu lík við leit að strák

Breska lögreglan, sem leitað hefur 11 ára skosks drengs síðustu daga, greindi frá því í dag að hún hefði fundið lík án þess þó að tilgreina hvort það væri af drengnum. Rory Blackhall hvarf á fimmtudagsmorgun eftir að móðir hans hafði keyrt hann í skólann og hófst í kjölfarið umfangsmikil leit á því svæði sem hann sást síðast, en hann býr í Livingstone. Ekki liggur fyrir hvort einhver liggur undir grun um að hafa numið Blackhall á brott.

Erlent
Fréttamynd

Fimmti sigurinn í röð

Hannes Hlífar Stefánsson fagnaði sínum fimmta Íslandsmeistaratitli í röð þegar hann gerði jafntefli við Jón Viktor Gunnarsson í síðustu skákinni í landsliðsflokki á Íslandsmótinu í skák. </font />

Innlent
Fréttamynd

Strætó í góðum gír

Strætó ætlar að standa við stóru orðin frá því fyrir tveimur vikum og því verður akstur á tíu mínútna fresti á álagstímum á stofnleiðunum sex alla virka daga.

Innlent
Fréttamynd

Prammar fluttir vegna mikils brims

Flytja þurfti landgönguprammana sem notaðir eru í Hollywood-kvikmyndina <em>Flags of Our Fathers</em> í var í gær vegna mikils brims við ströndina í Sandvík. Prammarnir og flotbryggja sem notuð hefur verið var komið fyrir í var við Ósa rétt við Hafnir á Reykjanesi. Prammarnir skemmdust ekki í briminu og urðu engar tafir á tökum kvikmyndarinnar þrátt fyrir þetta.

Innlent
Fréttamynd

Þrír slösuðust á Reykjanesbraut

Þrennt var flutt á slysadeild eftir umferðarslys á Reykjanesbraut við Straum á fimmta tímanum í nótt en fólkið er ekki alvarlega slasað. Bílarnir komur hvor úr sinni áttinni og rákust saman og eru þeir gjörónýtir. Ökumaður annarrar bifreiðarinnar er grunaður um ölvun við akstur.

Innlent
Fréttamynd

Ungt fólk fái tækifæri í kosningum

Samband ungra framsóknarmanna hvetur flokksmenn um allt land að leggja áherslu á sem öflugasta aðkomu ungra að framboðum á vegum flokksins í sveitarstjórnarkosningum á næsta ári. Í tilkynningu frá SUF segir að ungt fólk í Framsóknarflokknum sé tilbúið að taka að sér ábyrgðarmikið starf við að byggja upp flokkinn til framtíðar og standa að hugsjónum flokksmanna.

Innlent
Fréttamynd

Fjórða manninum sleppt úr haldi

Maður sem handtekinn var síðdegis í fyrradag, vegna rannsóknar á tildrögum þess að tvítugur maður var stunginn til bana á Hverfisgötu 58 á laugardagsmorgun, var látinn laus síðdegis í gær.

Innlent
Fréttamynd

Ástandið slæmt eftir Menningarnótt

Piltur á tvítugsaldri liggur alvarlega slasaður á gjörgæsludeild Landspítala - háskólasjúkrahúss eftir að hafa verið stunginn með hnífi í bakið í nótt. Árásarmaðurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Yfirlögregluþjónn í Reykjavík segir ástandið í miðborginni hafa verið mjög slæmt eftir að skipulagðri dagskrá Menningarnætur lauk.

Innlent
Fréttamynd

Stunginn í bakið á róstusamri nótt

Piltur um tvítugt var stunginn í bakið í miðbæ Reykjavíkur í fyrrinótt, skömmu eftir að dagskrá Menningarnætur lauk. Árásarmaðurinn, sem er á svipuðum aldri, var handtekinn skammt frá. Fórnarlambið særðist alvarlega og var þegar færður á sjúkrahús og gekkst undir aðgerð. Hann var kominn úr öndunarvél síðdegis í gær og ástand hans er stöðugt.

Innlent
Fréttamynd

Landhelgisgæslan skömmuð

"Þeir voru víst alveg foxillir yfir þessu í Warnes Bros," segir Jón Páll Ásgeirsson stýrimaður á Óðni en hann tók myndir af Óðni og Tý á tökustað myndarinnar Flags of our fathers við Stór-Sandvík á Reykjanesi. Morgunblaðið birti myndirnar á forsíðu sinni 13. ágúst síðastliðinn og voru aðstandendur myndarinnar afar ósáttir við það.

Innlent
Fréttamynd

Segist hafa heimild til gjaldtöku

Lögreglan á Seyðisfirði segir einhliða fréttir hafa borist af máli tengdu gjaldtöku lögreglustjórans á Seyðisfirði af dansleik í tengslum við LungA, Listahátíð ungs fólks á Austurlandi. Í tilkynningu á <em>Lögregluvefnum</em> kemur fram að DV og fréttastofa RUV hafi fjallað um málið þar sem haft hafi verið eftir bæjarstjóra Seyðisfjarðarkaupstaðar og látið að því liggja að engin heimild hafi verið til slíkrar gjaldtöku m.a. vegna þess að ekki hafi verið um útihátið að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Tugþúsundir í bænum allan daginn

Talið er að um 90 þúsund manns hafi fylgst með flugeldasýningunni í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi. Menningarhátíðin yfir daginn gekk mjög vel og voru tugþúsundir manna í miðborginni frá morgni til kvölds.

Innlent
Fréttamynd

Úr öndunarvél eftir hnífsstungu

Piltur um tvítug sem var stunginn tvívegis í bakið í Hafnarstræti í miðborginni í nótt er enn á gjörgæsludeild en þó ekki lengur í öndunarvél. Við stungurnar féll annað lungað í honum saman og var hann um tíma í lífshættu en það varð honum til lífs hversu fljótt honum var komið undir læknishendur.

Innlent
Fréttamynd

Neitar að hafa vitað af sakleysi

Ian Blair, lögreglustjóri Lundúna, neitar því að hafa vitað að Brasilíumaðurinn sem lögreglan skaut til bana á neðanjarðarlestarstöð fyrir mánuði, hafi verið saklaus, fyrr en sólarhring síðar. Fjölskylda hins látna krefst þess að lögreglustjórinn segi af sér, það geti hreinlega ekki verið að lögreglustjórinn hafi gefið opinberar yfirlýsingar um málið án þess að vera kunnugt um staðreyndir.

Erlent
Fréttamynd

Fimm í röð hjá Hannesi Hlífari

<font face="Helv"> Hannes Hlífar Stefánsson fagnaði sínum fimmta Íslandsmeistaratitli í röð þegar hann gerði jafntefli við Jón Viktor Gunnarsson í síðustu skákinni. </font>

Innlent
Fréttamynd

Kynslóðaskipti í skipulagsmálum

Hugmyndir um flugvöll á Lönguskerjum má þakka kynslóðaskiptum í skipulagsmálum borgarinnar. Þetta segir Trausti Valsson sem kynnti hugmyndir að flugvelli á þessum stað fyrir nákvæmlega 30 árum.

Innlent
Fréttamynd

Leggjast gegn stjórnarskránni

Leiðtogar súnní-múslima vara við því að ný stjórnarskrá sem sjía-múslimar og Kúrdar eru að ná samkomulagi um kunni að verða til að staða mála í Írak fari enn versnandi. Þeir hafa biðlað til Bandaríkjastjórnar og Sameinuðu þjóðanna um að koma í veg fyrir að nýja stjórnarskráin verði samþykkt.

Erlent
Fréttamynd

Hafi 48 stundir til að leysa deilu

Breska flugfélagið British Airways hefur fengið frest fram á þriðjudagskvöld til að leysa deilu sína Gate Gourmet, flugeldhúsfélagið sem sér flugfélaginu fyrir mat, að öðrum kosti verður Gate Gourmet gjaldþrota. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir heimildarmanni innan flugeldhúsfélagsins í dag.

Erlent
Fréttamynd

Fjárhundarnir slógu í gegn

Landbúnaðarsýningin í Svaðastaðahöll í Skagafirði tókst frábærlega, að sögn Ingimars Ingimarssonar umsjónarmanns hennar. "Sýningagestir hafa líklega verið um 1.500 yfir helgina ef allt er talið og veðrið lék við okkur," segir hann.

Innlent
Fréttamynd

Þrýstingi beitt á Ólafsfirðinga

Hart var lagt að bæjarstjórnarmönnum á Ólafsfirði að ræða við Norðurorku á Akureyri um sölu á Hitaveitu Ólafsfjarðar frekar en önnur orkufyrirtæki, bæði af bæjarstjórnarmönnum á Akureyri og einnig þingmönnum kjördæmisins. "Þeir voru æfir yfir því að við skyldum vilja selja hitaveituna."

Innlent
Fréttamynd

Ísraelsher mætir mótstöðu

Ísraelski herinn er nú að brjóta sér leið inn í síðustu landnemabyggðirnar á Gaza-ströndinni og á Vesturbakkanum sem á að rýma. Hann hefur mætt töluverðri mótstöðu sums staðar og hefur þurft að nota jarðýtur til að ryðja frá brennandi haugum af dekkjum og heyi sem íbúar hafa hlaðið fyrir framan hliðin að byggðunum.

Erlent
Fréttamynd

Slökkviliðsstjóri kveikir í

Yfirmaður slökkviliðs á Spáni hefur verið handtekinn grunaður um að kveikja fimmtán af þeim fjölmörgu skógareldum sem geysað hafa í Galicia-héraðinu á norðvesturhluta landsins að undanförnu.

Erlent
Fréttamynd

Tvö fíkniefnamál á Akureyri

Tvö fíkniefnamál komu upp á Akureyri í nótt. Piltur um tvítugt var stöðvaður við venjubundið eftirlit á bíl sínum og fannst lítilræði af kannabisefnum í bílnum. Piltinum var sleppt eftir yfirheyrslur. Þá var ekið á ljósastaur á Akureyri í nótt og fannst lítilræði af kannabisefnum á ökumanninum. Enginn slasaðist við áreksturinn.

Innlent