24 ára Ólympíufari fannst látin Nýsjálenska hjólreiðakonan Olivia Podmore er látin en hún fannst á heimili sínu í gær. Örlög hennar eru mikið áfall fyrir alla í íþróttaheiminum á Nýja Sjálandi og víðar. Sport 11. ágúst 2021 09:01
Valin best á Ólympíuleikunum en hefur lagt skóna á hilluna Anna Vyakhireva, ein skærasta stjarna rússneska landsliðsins í handbolta, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Það kemur á óvart þar sem Anna er aðeins 26 ára gömul og var valin besti leikmaðurinn á Ólympíuleikunum þar sem Rússland tapaði fyrir Frakklandi í úrslitum. Handbolti 10. ágúst 2021 16:30
Þrjár fengu Ólympíugull í afmælisgjöf á þessum leikum Þrjár íþróttakonur náðu því að vinna Ólympíugull á afmælisdeginum í sínum á Ólympíuleikunum í Tókýó sem lauk um helgina. Enginn íþróttakarl náði því aftur á móti. Sport 10. ágúst 2021 15:00
Segir Tímanovskaju hafa flúið vegna erlendra áhrifa Forseti Hvíta-Rússlands heldur því fram að hvítrússneskur spretthlaupari og Ólympíufari hafi flúið til Póllands eftir að hafa orðið fyrir áhrifum erlendra afla. Að hans sögn hefði hann aldrei flúið annars. Erlent 9. ágúst 2021 14:41
Yfir fjögur hundruð smituðust í tengslum við Ólympíuleikana í Tókyó Alls komu upp 430 kórónuveirusmit í tengslum við Ólympíuleikana í Tókýó en þeim lauk nú um liðna helgi. Sóttvarnir í Ólympíuþorpinu virðast þó hafa skilað tilætluðum árangri þar sem aðeins 26 keppendur greindust með veiruna. Sport 9. ágúst 2021 12:01
Sakaður um óíþróttamannslega framkomu á Ólympíuleikunum Henti öllum vatnsflöskunum í jörðina og tók síðustu flöskuna sjálfur. Óheppni? Ekki að mati netverja sem hafa látið einn Ólympíufara heyra það. Sport 9. ágúst 2021 10:00
Bandaríkin hlutu flest verðlaun á Ólympíuleikunum Ólympíuleikunum í Tókýó lauk í dag. Bandaríkin hlutu flest gullverðlaun á leikunum auk þess að fá flest verðlaun í heild. Sport 8. ágúst 2021 13:30
Hlaut gull aðra leikana í röð Kenýumaðurinn Eliud Kipchoge fagnaði sigri í maraþoni karla á Ólympíuleikunum í Tókýó í nótt. Hann hlaut gull í greininni aðra leikana í röð. Sport 8. ágúst 2021 12:30
Sjöundi titill Bandaríkjanna í röð Bandaríkin urðu Ólympíumeistari kvenna í körfubolta í nótt eftir 90-75 sigur á heimakonum frá Japan í úrslitum. Bandaríkin hafa unnið keppni í körfubolta kvenna sjö leika í röð. Körfubolti 8. ágúst 2021 11:01
Frakkland Ólympíumeistari í fyrsta sinn Kvennalandslið Frakklands í handbolta varð í nótt Ólympíumeistari í fyrsta sinn eftir sigur á Rússlandi í úrslitum í Tókýó í Japan. Frakkland vann tvöfalt í handboltanum á leikunum. Handbolti 8. ágúst 2021 10:01
Þórir hlaut tólftu verðlaunin sem þjálfari Noregs Kvennalandslið Noregs vann öruggan 36-19 sigur á Svíþjóð í leik liðanna um bronsið á Ólympíuleikunum í Tókýó í nótt. Noregur hlýtur því bronsið aðra leikana í röð. Handbolti 8. ágúst 2021 09:30
Ólympíukúlan virðist hafa haldið Svo virðist sem að sóttvarnarkúlan sem sett var upp í kringum ólympíuleikana í Tókýó í Japan hafi haldið. Fyrir leikana voru uppi miklar áhyggjur um Covid-19 myndi leika ólympíuleikana grátt. Erlent 7. ágúst 2021 23:08
Fyrsti Indverjinn til að vinna til verðlauna í frjálsum í 121 ár Indverjinn Neeraj Chopra varð í dag fyrsti Indverjinn í sögunni til að vinna til gullverðlauna í frjálsum íþróttum á Ólympíuleikum. Hann fagnaði sigri í spjótkasti karla eftir kast upp á 87,58 metra. Sport 7. ágúst 2021 17:01
Ótrúlegur endasprettur skilaði Hassan öðru gulli hennar á leikunum Hollenska hlaupakonan Sifan Hassan fagnaði sigri í 10 þúsund metra hlaupi á Ólympíuleikunum í Tókýó í hádeginu. Hún vann þar með til sinna þriðju verðlauna á leikunum. Sport 7. ágúst 2021 14:31
Átti ekki að vera í Tókýó en tryggði Brössum gullið Brasilía er Ólympíumeistari karla í fótbolta eftir 2-1 sigur á Spáni í úrslitum eftir framlengdan leik. Malcom, sem kom inn á sem varamaður fyrir framlenginguna, var hetja þeirra brasilísku sem verja titil sinn frá því í Ríó fyrir fimm árum. Fótbolti 7. ágúst 2021 14:05
Frakkar hefndu fyrir tapið 2016 og eru Ólympíumeistarar í þriðja sinn Frakkland vann 25-23 sigur á Danmörku í úrslitum í handbolta karla á Ólympíuleikunum í Tókýó. Frakkar hefna þar með fyrir tap fyrir Dönum í úrslitum á leikunum í Ríó fyrir fimm árum síðan. Handbolti 7. ágúst 2021 13:37
42 stig Mills tryggðu Áströlum fyrstu verðlaunin á ÓL Ástralir hlutu verðlaun í körfubolta karla á Ólympíuleikum í fyrsta sinn eftir 107-93 sigur á Slóveníu í bronsleiknum í dag. Frakkar hlutu brons kvennamegin eftir sigur á Serbíu. Körfubolti 7. ágúst 2021 13:01
Norðmaðurinn ungi setti Evrópu- og Ólympíumet er hann hlaut gull Hinn tvítugi Jakob Ingebrigtsen hlaut í dag gull í 1500 metra hlaupi karla á Ólympíuleikunum í Tókýó. Hann var aðeins tveimur sekúndum frá heimsmeti en bætti bæði Evrópu- og Ólympíumet með frábæru hlaupi. Sport 7. ágúst 2021 12:30
Norðmenn með gull í strandblaki - fjölskyldan keyrði bílhlöss af sandi frá Danmörku Norðmennirnir Anders Mol og Christian Sandlie Sörum urðu í nótt Ólympíumeistarar karla í strandblaki eftir sigur á Viacheslav Krasilnikov og Oleg Stoyanovskiy frá Rússlandi í úrslitum. Mol er af miklum strandblaksættum og bætti árangur móður sinnar frá leikunum í Atlanta 1996. Sport 7. ágúst 2021 11:00
Rekin af Ólympíuleikunum fyrir að slá hest Þýskur fimmtarþrautarþjálfari hefur verið rekinn af Ólympíuleikunum í Tókýó fyrir að slá hest. Kim Raisner, þjálfarinn sem um ræðir, var að reyna að aðstoða íþróttakonuna Anniku Schleu við að ná stjórn á hestinum Soint Boy í miðri keppni í gær. Erlent 7. ágúst 2021 10:51
Hafði betur gegn heimsmethafanum eftir æsispennandi lokasprett í maraþoninu Hin keníska Peres Jepchirchir kom fyrst í mark í maraþoni kvenna í miklum hita á Ólympíuleikunum í Japan. Hlaupið fór fram norðurhluta landsins í borginni Sapporo. Sport 7. ágúst 2021 10:31
Spánverjar náðu bronsinu eftir háspennuleik Spánn hlaut bronsverðlaun í handbolta karla á Ólympíuleikunum í Tókýó í morgun. Þeir spænsku lögðu Egypta naumlega, 33-31, í leiknum um þriðja sæti mótsins. Handbolti 7. ágúst 2021 10:00
Durant lykillinn að sextánda gulli Bandaríkjanna Bandaríkin urðu í nótt Ólympíumeistarar í körfubolta karla í sextánda sinn. Lið þeirra náði fram hefndum gegn liði Frakka, sem þeir töpuðu fyrir í fyrsta leik sínum á mótinu. Körfubolti 7. ágúst 2021 09:31
Hækkuðu sig um þyngdarflokk milli Ólympíuleika en unnu aftur Ólympíugull Kúbverjar eru konungar hnefaleikakeppni Ólympíuleikanna í Tókýó en þeir hafa unnið þrenn gullverðlaun í keppninni til þessa. Sport 6. ágúst 2021 16:00
Unnu Ólympíugullið í 832 kílómetra fjarlægð frá Tókýó Pólverjinn Dawid Tomala er líklega síðasti gullverðlaunahafi sögunnar í 50 kílómetra göngu á Ólympíuleikum en hann vann hana á leikunum í Tókýó í nótt. Antonella Palmisano frá Ítalíu vann 20 kílómetra göngu kvenna. Sport 6. ágúst 2021 15:31
Kanadísku stelpurnar Ólympíumeistarar eftir vítakeppni Kanada tryggði sér sitt fyrsta Ólympíugull í knattspyrnu kvenna eftir sigur á Svíþjóð í vítaspyrnukeppni í úrslitaleik á Ólympíuleikunum í Tókýó í dag. Fótbolti 6. ágúst 2021 14:55
Áhlaup norska liðsins kom aðeins of seint Norska kvennalandsliðið í handbolta, sem Þórir Hergeirsson stýrir, leikur um bronsið á Ólympíuleikunum í Ríó eftir tap fyrir Rússlandi, 26-27. Handbolti 6. ágúst 2021 13:38
Nýtt nafn en aftur Ólympíugull hjá Miller-Uibo og Allyson Felix setti met Shaunae Miller-Uibo frá Bahamaeyjum og Faith Kipyegon frá Kenía unnu báðar gullverðlaun á öðrum Ólympíuleikunum í röð á Ólympíuleikunum í Tókýó í dag. Allyson Felix vann líka sín tíundu verðlaun á Ólympíuleikum sem er met. Sport 6. ágúst 2021 13:07
Trump: Konan með fjólubláa hárið spilaði hræðilega Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, segir að Megan Rapinoe og vinstri sinnuðu brjálæðingarnir í bandaríska kvennalandsliðinu í fótbolta hafi kostað það gullið á Ólympíuleikunum í Tókýó. Fótbolti 6. ágúst 2021 12:01
Gríðarlega stoltur af systur sinni sem er komin í úrslit á Ólympíuleikunum Þjálfari kvennaliðs Fram í fótbolta, Christopher Harrington, kveðst afar stoltur af systur sinni, Kellie, sem er komin í úrslit í léttvigt í hnefaleikum á Ólympíuleikunum í Tókýó. Sport 6. ágúst 2021 10:01