KR

KR

Fréttir af Knattspyrnufélagi Reykjavíkur, KR, frá Reykjavík.

Fréttamynd

„Ég ýtti bara að­eins við honum“

Oliver Ekroth, fyrirliði Víkings, segir atvik líkt og það sem varð milli hans og Arons Sigurðarsonar, fyrirliða KR, í síðasta leik liðanna vera hluti af leiknum. Liðin mætast aftur í dag og Víkingur verður meistari með sigri.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

KR-ingar harma sundátökin: „Mikil­vægt að við hlúum hvert að öðru“

Alvarlegt atvik sem kom upp í gær, þar sem sundþjálfari hjá KR var handtekinn vopnaður hnífi grunaður um að hafa ráðist á kollega sinn, er á afar viðkvæmu stigi. Það er einnig í vinnslu hjá samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og hjá lögreglu. Í tölvupósti frá félaginu segir að nú sé mikilvægt að sýna samhug og hlúa hvert að öðru.

Innlent
Fréttamynd

Sund­þjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sund­fólks

Sundþjálfari hjá KR var handtekinn vopnaður hnífi grunaður um að hafa ráðist á kollega sinn hjá Gróttu fyrir stefnumótunarfund Sundsambands Íslands í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í gær. Forseti ÍSÍ lítur málið alvarlegum augum og hlúði að sundþjálfaranum sem slasaðist á vettvangi.

Innlent
Fréttamynd

„Mótið í rauninni búið“

„Eru ekki öll töp þung? Við erum búnir að vera á siglingu síðan í lok júlí þetta voru komnir sjö leikir án taps. Það er ekkert gott að fá áminningu um það hvernig er að tapa. Þetta var ekki gott,“ sagði Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, eftir 5-1 tap fyrir KR í Bestu deild karla í fótbolta í dag.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Upp­gjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni

KR vann í dag öruggan sigur á ÍA þegar að liðin mættust á Meistaravöllum í annað sinn á nokkrum dögum í Bestu deildinni. Lokatölur 5-1 sigur KR sem lyftir liðinu upp í 2. sæti Bestu deildarinnar. Lærisveinar Óskars Hrafns hefndu sín eftir tap gegn ÍA á Skaganum. 

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Vals­hjartað slær enn hjá hetju KR

Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir var hetja KR í dag þegar að liðið tryggði sér sæti í Bestu deildinni á næsta tímabili með 1-0 sigri gegn Keflavík. Valgerður, sem skoraði eina mark leiksins, er Valsari í grunninn en segir KR-hjartað sterkara.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Það er hrika­legt að sjá þetta“

„Ég finn virkilega mikið til með honum,“ sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, eftir að enn einn leikmanna hans meiddist í kvöld þegar Sveinn Gísli Þorkelsson handleggsbrotnaði í stórleiknum gegn KR.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“

„Við sýndum mikinn styrk með því að koma til baka og ná okkur í stigið. Halda okkur fyrir ofan Fram. Við megum ekki gleyma að Fram er þarna líka og akkúrat núna er Fram keppinautur okkar,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, eftir 1-1 jafnteflið í toppslagnum við Víkinga í kvöld.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu

KR og ríkjandi Íslandsmeistarar Víkings Reykjavíkur gerðu 1-1 jafntefli í mögnuðum leik þar sem að dramatíkin var allsráðandi undir lokin. Ármann Ingi Finnbogason virtist hafa tryggt Víkingum dýrmætan sigur með marki úr efstu hillu í uppbótartíma en mark frá Arnóri Ingva Traustasyni á lokasekúndu leiksins tryggði KR eitt stig. Enn munar átta stigum á milli liðanna. Nánari umfjöllun um leikinn sem og viðtöl frá Meistaravöllum birtast hér á Vísi seinna í kvöld.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“

„KR-ingar verða að vinna þennan leik og maður er skíthræddur um það líka að við gætum séð það sama gerðist á þessu tímabili og gerðist í fyrra eftir að Víkingar duttu út úr leik í Evrópu. Að ef þeir klári þennan leik þá bara vinni þeir bara einfaldlega rest, þannig að þetta er síðasti séns fyrir KR-inga og fyrir þessa hlutlausu, að fá einhverja spennu í deildina fyrir skiptinguna góðu,“ segir Albert Brynjar Ingason sérfræðingur Sýnar Sports í hádegisfréttum Bylgjunnar fyrir stórleikinn í kvöld.

Íslenski boltinn