Enski boltinn

„Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bradley Lowery með Jermain Defoe, stjörnuleikmanni Sunderland fyrir leik í desember 2016.
Bradley Lowery með Jermain Defoe, stjörnuleikmanni Sunderland fyrir leik í desember 2016. Getty/Ian Horrocks

Stuðningsmaður Coventry City notaði ömurlega aðferð til að stríða stuðningsmönnum Sunderland í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Móðir Bradleys Lowery heitins sendi frá sér átakanlega yfirlýsingu á samfélagsmiðlum eftir að stuðningsmaður Coventry City náðist á myndband þar sem hann notaði mynd af látnum syni hennar til að hæðast að stuðningsmönnum Sunderland.

Lowery var fimm ára gamall þegar hann snerti hjörtu knattspyrnuheimsins eftir að hafa greinst með sjaldgæfa tegund krabbameins í börnum. Hann lést sex ára gamall árið 2017.

Coventry City hefur birt yfirlýsingu þar sem fram kemur að félaginu sé kunnugt um myndbandið og að það líði ekki móðgandi hegðun, og að félagið muni hafa samráð við viðeigandi yfirvöld til að ákveða hvernig brugðist verði við.

„Fallegi drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri,“ skrifaði móðir hans á miðla Bradley Lowery styrktarsamtakanna.

„Í gær notaði stuðningsmaður Coventry ljósmynd af Bradley til að hæðast að stuðningsmönnum Sunderland. Sem mamma Bradleys er þetta hjartaskerandi, sérstaklega þar sem þetta er ein af uppáhaldsmyndunum mínum af honum. Sjáið bara þetta bros,“ skrifaði móðir.

„Ég man eftir þessum degi eins og hann hefði verið í gær. Hann var svo glaður og skemmti sér svo vel. Þessar stundir voru dýrmætar því þær voru fáar og strjálar. Svo stór hluti af stuttu lífi Bradleys fór í baráttu við krabbamein og meðferðir sem ekkert barn ætti nokkurn tíma að þurfa að ganga í gegnum,“ skrifaði móðir Bradleys.

„Að sjá svo fallega minningu notaða á svo grimmilegan hátt nístir mig sannarlega í hjartað,“ skrifaði móðirin eins og sjá má hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×