Atli Sveinn í landsliðið í stað Hermanns Varnarmaðurinn Atli Sveinn Þórarinsson úr Val hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Wales í næstu viku í stað Hermanns Hreiðarssonar. Íslenski boltinn 22. maí 2008 14:08
Veldu besta mark 3. umferðar Nú geta lesendur Vísis kosið fallegasta mark 3. umferðar Landsbankadeildarinnar. Fimm lagleg mörk koma til greina eins og venjulega, en það var Grindvikingurinn Scott Ramsay sem átti fallegasta mark 2. umferðar að mati lesenda. Íslenski boltinn 21. maí 2008 14:40
Þóra inn í landsliðið á ný Þóra B Helgadóttir var í dag valin í íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu á ný, en þá tilkynnti Sigurður Ragnar Eyjólfsson hópinn sem mætir Serbum í undankeppni EM í næstu viku. Fótbolti 21. maí 2008 11:53
Eiður Smári ekki með gegn Wales Eiður Smári Guðjohnsen verður ekki með íslenska landsliðinu í vináttuleiknum gegn Wales á Laugardalsvelli í næstu viku. Þetta staðfesti Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari á blaðamannafundi í hádeginu. Fótbolti 21. maí 2008 11:47
Tölfræðin er eins og mínipils Ólafur Helgi Kristjánsson, þjálfari Blika fagnaði fyrsta sigri Breiðabliks í Landsbankadeildinni í sumar og 40 ára afmæli sínu þegar liðið hans vann 2-1 sigur á KR í Vesturbænum í kvöld. Íslenski boltinn 20. maí 2008 23:45
Grétar: Vorum að klúðra þessu sjálfir KR-ingar töpuðu sínum öðrum leik í röð þegar þeir lágu 1-2 á heimavelli á móti Breiðabliki í kvöld. Miðvörðurinn Grétar Sigfinnur Sigurðarson var líka ósáttur í leikslok. Íslenski boltinn 20. maí 2008 22:48
Arnar: Frábær afmælisgjöf Breiðablik vann sinn fyrsta sigur í Landsbankadeildinni í kvöld þegar þeir lögðu KR-inga 2-1 í Vesturbænum. Blikar höfðu gert tvö jafntefli í fyrstu tveimur umferðunum. Íslenski boltinn 20. maí 2008 22:46
Ólafur: Vildi stál og standpínu „Þetta var besta afmælisgjöf sem ég gat hugsað mér," sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, í viðtali við Stöð 2 Sport eftir sigur liðsins á KR í kvöld. Ólafur varð fertugur í dag. Íslenski boltinn 20. maí 2008 21:59
Heimasigur á Akranesi ÍA vann Fram 1-0 í Landsbankadeild karla í kvöld. Eina mark leiksins kom á 44. mínútu en þá skoraði Auðun Helgason, varnarmaður Fram, sjálfsmark eftir fyrirgjöf frá Þórði Guðjónssyni. Íslenski boltinn 20. maí 2008 21:02
Marel byrjar hjá Blikum Klukkan 20 hefst leikur KR og Breiðabliks í Landsbankadeild karla. Ólafur H. Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks hefur gert fjórar breytingar á byrjunarliðið Breiðabliks frá því í markalausa jafnteflinu á móti Þrótti í síðustu umferð. Íslenski boltinn 20. maí 2008 19:45
David Hannah hættur hjá Fylki Meistaraflokksráð Fylkis og skoski varnarmaðurinn David Hannah hafa komist að þeirri sameiginlegu niðurstöðu að best sé að slíta samstarfinu. Íslenski boltinn 20. maí 2008 19:31
Blikar sóttu þrjú stig í Vesturbæ Breiðablik gerði góða ferð á KR-völlinn í kvöld og vann 2-1 sigur á heimamönnum. Nenad Zivanovic skoraði tvö mörk með tveggja mínútna millibili snemma leiks og það gerði gæfumuninn. Íslenski boltinn 20. maí 2008 19:15
Boltavaktin á Akranesi og KR-velli Tveir leikir eru á dagskrá Landsbankadeildar karla í kvöld og verða þeir báðir í beinni lýsingu á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins. Íslenski boltinn 20. maí 2008 16:00
Þorvaldur: Hart barist á Skaganum Þriðju umferð Landsbankadeildar karla lýkur í kvöld með tveimur leikjum. ÍA og Fram mætast klukkan 19:15 á Skaganum og KR mætir Breiðabliki í leik sem verður í beinni á Stöð 2 Sport klukkan 20. Íslenski boltinn 20. maí 2008 12:45
Ólíklegt að Barcelona sleppi Eiði í Wales-leikinn Samkvæmt heimildum Vísis er ólíklegt að Eiður Smári Guðjohnsen verði í landsliðshópi Íslands sem mætir Wales í vináttulandsleik þann 28. maí. Ekki er um opinberan landsleikjadag að ræða og vill Barcelona ekki sleppa honum í leikinn. Íslenski boltinn 20. maí 2008 11:55
Kristján: Sýndum þolinmæði Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, sagði í viðtali við Stöð 2 Sport að þolinmæði hafi verið lykillinn að sigri sinna manna í kvöld. Keflavík vann HK 2-1 á útivelli eftir að hafa lent undir. Íslenski boltinn 19. maí 2008 22:51
Orri: Datt ekki okkar megin „Þetta datt ekki okkar megin í dag. Við vorum svo sannarlega lausir við alla heppni," sagði Orri Freyr Hjaltalín, fyrirliði Grindavíkur, eftir að liðið tapaði 0-1 fyrir Fjölni í kvöld. Íslenski boltinn 19. maí 2008 22:40
Ásmundur: Draumabyrjun Nýliðar Fjölnis eru á toppi Landsbankadeildarinnar eftir 1-0 sigur á Grindavík í kvöld. Þeir hafa betri markatölu en Keflavík sem einnig hefur fullt hús að loknum þremur leikjum. Íslenski boltinn 19. maí 2008 22:07
Pálmi Rafn: Óafsakanlegt Fylkir vann óvæntan 2-0 sigur á Val í Landsbankadeildinni í kvöld. Fyrir umferðina voru Fylkismenn án stiga en Íslandsmeistarar Vals hafa tapað tveimur af þremur leikjum sínum. Íslenski boltinn 19. maí 2008 21:59
KR-stúlkur unnu fyrir norðan KR vann Þór/KA á útivelli í Landsbankadeild kvenna í kvöld 3-2. Heimastúlkur höfðu hinsvegar forystu í hálfleik. Íslenski boltinn 19. maí 2008 21:23
Valur tapaði í Árbænum og FH gerði jafntefli 4-4 Öllum fjórum leikjum kvöldsins í Landsbankadeildinni er lokið. Íslandsmeistarar Vals töpuðu sínum öðrum leik þegar Fylkismenn tóku sín fyrstu stig og þá gerðu Þróttur og FH 4-4 jafntefli í svakalegum leik. Íslenski boltinn 19. maí 2008 19:15
Gunnleifur ekki í marki HK Þriðja umferð Landsbankadeildar karla hefst í kvöld. Í Kópavogi eigast við HK og Keflavík. Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður HK-inga, leikur ekki í kvöld vegna ökklameiðsla. Íslenski boltinn 19. maí 2008 18:43
Ætti Páll ekki að vera heiðursgestur hjá Þrótturum? Þróttarar ættu kannski að bjóða Páli Ólafssyni að vera heiðursgestur á leik sínum á móti bikarmeisturum FH á Valbjarnarvellinum í kvöld. Þróttur hefur nefnilega ekki unnið heimaleik á móti FH í efstu deild síðan að Páll tryggði þeim 1-0 sigur fyrir rétt tæpum 23 árum síðan. Íslenski boltinn 19. maí 2008 18:33
Boltavaktin á öllum leikjum kvöldsins Fjórir leikir eru á dagskrá Landsbankadeildar karla í kvöld og verða þeir allir í beinni lýsingu á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins. Íslenski boltinn 19. maí 2008 15:57
Willum: Við tæklum þetta Willum Þór Þórsson þjálfari Vals segir það vissulega blóðugt hve marga leikmenn hann hefur misst í meiðsli í byrjun móts. Valsmenn fara í Árbæinn í kvöld og mæta Fylki í þriðju umferð Landsbankadeildarinnar þar sem heimamenn freista þess að ná í sín fyrstu stig. Íslenski boltinn 19. maí 2008 15:08
Guðmundur ekki með Val í kvöld Íslandsmeistarar Vals verða án nokkurra lykilmanna í kvöld þegar þeir sækja Fylki heim í Landsbankadeildinni. Nýjasta nafnið á sjúkralista Valsmanna er framherjinn Guðmundur Benediktsson. Íslenski boltinn 19. maí 2008 12:18
Víkingur hafði betur gegn KA Leikjunum þremur sem hófust klukkan 16:00 í 1. deild karla í knattspyrnu er lokið. Víkingur R sigraði KA 3-1 á heimavelli þar sem Jón Guðbrandsson skoraði tvívegis fyrir heimamenn og Sinisa Kekic þriðja markið. Íslenski boltinn 18. maí 2008 18:08
ÍBV lagði Þór Tveimur leikjum er þegar lokið í 1. deild karla í knattspyrnu í dag. ÍBV er með fullt hús stiga eftir tvær umferðir og í dag vann liðið 2-0 sigur á Þór fyrir norðan. Þá gerðu Fjarðabyggð og Haukar 2-2 jafntefli fyrir austan. Íslenski boltinn 18. maí 2008 17:01
Hver skoraði besta markið í annarri umferð? Mark Scott Ramsay var kosið besta markið í fyrstu umferð Landsbankadeildar karla af lesendum Vísis en nú er ný kosning hafin. Íslenski boltinn 16. maí 2008 10:54
Guðjón: Áttum ekkert skilið hér í kvöld Guðjón Þórðarson reyndi ekki að fegra niðurstöðuna í kvöld þegar hans menn í ÍA töpuðu 2-0 fyrir FH í Kaplakrika. Íslenski boltinn 15. maí 2008 22:46