Boltavaktin á öllum leikjum kvöldsins Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. maí 2008 15:57
Fjórir leikir eru á dagskrá Landsbankadeildar karla í kvöld og verða þeir allir í beinni lýsingu á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins. Hægt er að fylgjast með því helsta sem gerist í öllum leikjunum samtímis á Miðstöð Boltavaktarinnar, www.visir.is/boltavakt. En að sjálfsögðu verður bein lýsing frá öllum leikjunum og hægt að fylgjast náið með öllu því helsta sem gerist í leikjunum um leið og það á sér stað. Topplið FH mætir í heimsókn til Þróttar sem eiga enn eftir að vinna sinn fyrsta leik í efstu deild. FH-ingar hafa hins vegar ekki fengið mark á sig til þessa og gæti því róðurinn orðið þungur fyrir heimamenn. Íslandsmeistarar Vals leika á útivelli í kvöld, rétt eins og FH-ingar, og fara í heimsókn til særðra Fylkismanna. Bæði lið hlutu slæma útreið í fyrstu umferðinni en Valsmenn náðu sér aftur á strik gegn Grindavík í síðustu umferð á meðan að Fylkismen töpuðu sínum öðrum leik. Árbæingar eru því enn án stiga en vilja sjálfsagt ná sér í sín fyrstu stig gegn meiðslahrjáðu liði Valsmanna. HK-ingar eru sömuleiðis enn án stiga í deildinni og taka á móti Keflavíkur sem eru með fullt hús stiga. Liðunum var spáð svipuðu gengi í deildinni og hafa HK-ingar átt góðu gengi að fagna á heimavelli lengst af í veru sinni í efstu deild. Að síðustu verður leikur Grindavíkur og Fjölnis í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport en hann hefst klukkan 20.00. Hinir leikirnir hefjast klukkan 19.15. Bæði lið eru nýliðar en hafa átt ólíku gengi að fagna í vor. Fjölnismenn hafa unnið tvo góða sigra til þessa og unnu til að mynda sigur á KR í síðustu umferð en KR-ingar unnu Grindjána í fyrstu umferð mótsins. Grindavík er enn án stiga en leikur sinn fyrsta heimaleik í kvöld og ætla sér án nokkurs vafa að láta til sín taka þar. Þriðju umferðinni lýkur svo annað kvöld með leikjum ÍA og Fram annars vegar og KR og Breiðabliks hins vegar.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira