Fótbolti

Fótbolti

Allt það helsta sem gerist í fótbolta um víða veröld.

Fréttamynd

Balogun fær Ronaldo-meðferð hjá FIFA og spilar gegn Belgum

Bandaríski framherjinn Folarin Balogun má spila með gegn Belgíu í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta en eins leiks banni hans vegna rauða spjaldsins sem hann fékk gegn Bosníu og Hersegóvínu hefur verið frestað að því er heimildarmenn sem þekkja til málsins hafa tjáð The Athletic.

Fótbolti
Fréttamynd

Ari á skotskónum þrátt fyrir tap

Ari Sigurpálsson var á skotskónum fyrir Elfsborg í sænsku úrvalsdeildinni í 2-1 tapi gegn Hammarby. Með sigrinum komst Hammarby fyrir ofan Elfsborg í sænsku úrvalsdeildinni.

Sport
Fréttamynd

Segir Klopp taka við þýska lands­liðinu

Jurgen Klopp hefur verið ráðinn sem þjálfari þýska landsliðsins samkvæmt félagsskiptafréttamanninum Fabrizio Romano. Julian Nagelsmann var gert að hætta sem þjálfari þýska landsliðsins eftir slæmt gengi á heimsmeistaramótinu.

Fótbolti
Fréttamynd

„Gleður mitt Blikahjarta“

Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks var að vonum hæstánægður með 2-1 endurkomusigur á ÍA í 13. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á ELKEM vellinum á Akranesi í gær.

Fótbolti
Fréttamynd

Skítabrögð Paragvæja stöðvuðu ekki Frakka

Paragvæjar reyndu öll brögðin í bókinni til að stöðva stórskotalið Frakka í sextán liða úrslitum heimsmeistarakeppninnar í kvöld en urðu á endanum að sætta sig við 1-0 tap. Kylian Mbappé skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu.

Fótbolti
Fréttamynd

Endurkoman dugði ekki í síðasta leiknum á EM

Ísland tapaði 4-3 gegn Sviss í síðasta leik sínum á Evrópumóti U19 landsliða. Ingibjörg Magnúsdóttir skoraði tvennu og Líf Joostdóttir van Bemmel bætti við. Mörk Íslands hefðu hæglega getað orðið fleiri en færanýtingin var slök og brot var dæmt þegar stelpurnar okkar héldu að þær hefðu skorað jöfnunarmark.

Fótbolti