Endurtekning frá úrslitaleik síðasta tímabils Liðin sem mættust í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á síðasta tímabili, Real Madrid og Liverpool, eigast við í sextán liða úrslitum keppninnar að þessu sinni. Dregið var í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar í fótbolta karla í dag. Fótbolti 7. nóvember 2022 11:20
Guðbjörg fær loksins styttuna í jólagjöf Enn bætist í hóp landsliðskvenna sem gagnrýna Knattspyrnusamband Íslands fyrir skort á viðurkenningu í þeirra garð, eftir að Aron Einar Gunnarsson var heiðraður með sérstakri treyju eftir hundraðasta landsleik sinn í gær. Fótbolti 7. nóvember 2022 10:03
Mamma Alexander-Arnolds bannaði honum að fá sér tattú Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, segir að mamma Trents Alexander-Arnold hafi bannað honum að fá sér húðflúr eftir að liðið vann Meistaradeild Evrópu fyrir þremur árum. Enski boltinn 7. nóvember 2022 09:30
Hitaði upp fyrir HM með því að reka tíu leikmenn af velli Dómari leiks Boca Juniors og Racing í meistarakeppninni í argentínska fótboltanum um helgina hafði í nógu að snúast og rak hvorki fleiri né færri en tíu leikmenn af velli. Fótbolti 7. nóvember 2022 08:01
Neville segir að Alexander-Arnold eigi ekki að fara á HM Gary Neville segir að slakur varnarleikur Trents Alexander-Arnold gæti kostað hann sæti í HM-hópi Englands. Enski boltinn 7. nóvember 2022 07:31
Conte skaut á Klopp: Var hann ánægður með hvernig við spiluðum? Antonio Conte, þjálfari Tottenham, skaut létt á Jurgen Klopp kollega sinn hjá Liverpool eftir tap 2-1 tap Tottenham gegn liðinu frá Bítlaborginni í dag. Hann sagði að úrslitin hefðu ekki verið sanngjörn. Fótbolti 7. nóvember 2022 07:00
Margrét Lára segist aldrei hafa verið kvödd eða fengið að þakka fyrir sig Margrét Lára Viðarsdóttir, fyrrverandi landsliðskona í knattspyrnu, tekur við boltanum af Dagnýju Brynjarsdóttur í umræðu um Knattspyrnusamband Íslands. Hún segist aldrei hafa verið kvödd eða fengið tækifæri til að þakka stuðningsmönnum landsliðsins. Fótbolti 6. nóvember 2022 23:30
Stærðfræðikunnáttan klikkaði hjá Guardiola í viðtali eftir sigurinn gegn Fulham Erling Braut Haaland tryggði Manchester City sigur gegn Fulham í gær með marki úr vítaspyrnu undir lok leiksins. Pep Guardiola klikkaði aðeins á stærðfræðinni í viðtali eftir leik. Fótbolti 6. nóvember 2022 22:30
Gamla konan með fjórða sigurleikinn í röð Juventus vann sinn fjórða sigur í röð í ítölsku Serie A deildinni þegar liðið lagði erkifjendur sína í Inter á heimavelli í kvöld. Lokatölur 2-0 og Gamla konan fer því upp fyrir Inter í töflunni. Fótbolti 6. nóvember 2022 21:45
Fyrsta tap Manchester United kom gegn Chelsea Chelsea vann góðan útisigur á Manchester United í úrvalsdeild kvenna á Englandi í dag. Með sigrinum lyfti Chelsea sér upp í annað sæti deildarinnar en tapið var það fyrsta hjá United á tímabilinu. Fótbolti 6. nóvember 2022 21:36
Dagný skýtur föstum skotum á KSÍ Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, gagnrýnir Knattspyrnusamband Ísland í færslu á Instagram í dag og segir að hún og Glódís Perla Viggósdóttir bíði enn eftir viðurkenningu fyrir að hafa spilað 100 landsleiki á meðan leikmenn karlalandsliðsins hafi fengið sínar. Fótbolti 6. nóvember 2022 21:00
Erik Ten Hag pirraður vegna heimskulegra fyrirgjafa á Ronaldo Erik Ten Hag þjálfari Manchester United var pirraður eftir tap liðsins gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hann sagði að fyrirgjafir sem leikmenn reyndu á Cristiano Ronaldo hefðu verið heimskulegar. Fótbolti 6. nóvember 2022 20:18
Panathinaikos tapaði stigum eftir tíu sigurleiki í röð Hörður Björgvin Magnússon spilaði allan leikinn fyrir Panathinaikos sem gerði jafntefli gegn Olympiacos í grísku deildinni í dag. Panathinaikos jafnaði metin úr vítaspyrnu á þrettándu mínútu uppbótartíma leiksins. Fótbolti 6. nóvember 2022 19:53
Lazio hafði betur í Rómarslagnum Lazio hafði betur í slag Rómarliðanna í ítalska boltanum í dag. Felipe Anderson skoraði eina mark leiksins og sigurinn þýðir að Lazio fer upp fyrir nágranna sína í töflunni. Fótbolti 6. nóvember 2022 19:05
Salah tryggði Liverpool stigin þrjú gegn Tottenham Mohamed Salah var maðurinn á bakvið sigur Liverpool á útivelli gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hann skoraði bæði mörk liðsins í 2-1 sigri. Enski boltinn 6. nóvember 2022 18:25
Brynjólfur og félagar enn í fallsæti Brynjólfur Andersen og félagar í norska liðinu Kristiansund eru enn í fallsæti norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu en næstsíðasta umferðin fór fram í dag. Sport 6. nóvember 2022 18:08
Nökkvi Þeyr skoraði og lagði upp Nökkvi Þeyr Þórisson átti flottan leik fyrir Beerschot í næstefstu deild í Belgíu í dag. Hann skoraði og lagði upp í 3-1 sigri liðsins gegn Lommel. Þá var Dagný Brynjarsdóttir í liði West Ham sem vann sigur í miklum markaleik á Englandi. Fótbolti 6. nóvember 2022 17:30
Willum Þór og Hákon Arnar á skotskónum Willum Þór Willumsson reyndist hetja Go Ahead Eagles í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag þegar hann tryggði liðinu stig með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Í Danmörku heldur slæmt gengi Lyngby áfram en liðið tapaði 3-0 fyrir Danmerkurmeisturum FCK á útivelli í dag. Hákon Arnar Haraldsson skoraði annað mark FCK í dag. Fótbolti 6. nóvember 2022 17:01
Newcastle fór létt með Southampton Newcastle United vann öruggan 4-1 útisigur á Southampton og heldur áfram að láta sig dreyma um sæti í Meistaradeild Evrópu. Þá kom Crystal Palace til baka gegn West Ham United. Enski boltinn 6. nóvember 2022 16:45
Valgeir Lunddal og Andri Lucas lögðu upp á meðan Arnór Sig skoraði í Íslendingaslagnum Valgeir Lunddal Friðriksson lagði upp eitt marka Häcken í 3-3 jafntefli sænsku meistaranna við Íslendingalið Norrköping í lokaumferð sænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Andri Lucas Guðjohnsen lagði einnig upp mark í leiknum en alls komu fimm Íslendingar við sögu. Fótbolti 6. nóvember 2022 16:16
Man United tapaði loks á Villa Park Unai Emery byrjar þjálfaratíð sína hjá Aston Villa frábærlega en hans menn unnu einstaklega sannfærandi 3-1 sigur á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag. Enski boltinn 6. nóvember 2022 16:00
Stefán Teitur hóf endurkomu Silkeborg Landsliðsmaðurinn Stefán Teitur Þórðarson skoraði fyrra mark Silkeborg í 2-1 sigri á Álaborg í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Mikael Anderson var í byrjunarliði AGF sem gerði 1-1 jafntefli við Viborg. Fótbolti 6. nóvember 2022 15:31
Aron Einar sá fjórði sem spilar hundrað A-landsleiki eða meira Aron Einar Gunnarsson spilaði sinn 100. A-landsleik þegar íslenska karlalandsliðið tapaði 1-0 fyrir Sádi-Arabíu í vináttuleik í Abú Dabí í dag. Hann er fjórði leikmaðurinn sem nær þessum áfanga. Fótbolti 6. nóvember 2022 15:00
Pereira hetja PSG í fjarveru Messi Lionel Messi er farinn í frí til að vera í sem bestu formi á heimsmeistaramótinu sem hefst í Katar eftir aðeins tvær vikur. Lið hans París Saint-Germian er hins vegar enn að spila og stóð í ströngu gegn Lorient í dag. Unnu meistararnir nauman 2-1 útisigur þökk sé sigurmarki Danilo Pereira þegar skammt var til leiksloka. Fótbolti 6. nóvember 2022 14:31
Umfjöllun: Sádí-Arabía - Ísland 1-0 | Ísland sótti ekki gull í greipar Sádanna inni á vellinum í Abú Dabí Ísland laut í lægra haldi fyrir Sádí-Arabíu með einu marki gegn engu þegar liðin áttust við vináttulandsleik í fótbolta karla á Al-Jazira Mohammed bin Zayed leikvangnum í Abú Dabí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í dag. Fótbolti 6. nóvember 2022 14:00
Skytturnar á toppinn eftir sigur á Brúnni Ótrúlegt gengi Arsenal í ensku úrvalsdeildinni heldur áfram en liðið vann 1-0 útisigur á nágrönnum sínum í Chelsea. Sigurmarkið skoraði varnarmaðurinn Gabriel um miðbik síðari hálfleiks. Enski boltinn 6. nóvember 2022 13:55
Varamaðurinn Bale hetjan þegar Los Angeles FC varð MLS meistari Los Angeles FC er MLS meistari eftir hádramatískan sigur á Philadelphia Union eftir vítaspyrnukeppni. Gareth Bale kom inn af bekknum og jafnaði metin í 3-3 á 128. mínútu leiksins. Markið má sjá hér að neðan. Fótbolti 6. nóvember 2022 13:30
Stympingar í Skírisskógi: „Aldrei séð vallarstarfsmann ganga um völlinn í miðri upphitun“ Thomas Frank, þjálfari enska úrvalsdeildarfélagsins Brentford, hefur staðfest að markmannsþjálfari liðsins sé með áverka eftir að lenda upp á kant við vallarstarfsmann Nottingham Forest fyrir leik liðanna í gær, laugardag. Enski boltinn 6. nóvember 2022 12:45
„Ég fæddist hér og ég mun deyja hér“ Gerard Piqué lék í gær sinn síðasta leik á ferli sínum sem knattspyrnumaður. Hann bar fyrirliðabandið í 2-0 sigri Barcelona á Almería í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Eftir sigurinn, sem lyfti liðinu upp á topp deildarinnar, hélt Piqué tilfinningaþrungna ræðu. Fótbolti 6. nóvember 2022 12:01
„Alltaf gaman að spila á móti einhverjum sem maður þekkir“ Þó Guðrún Arnardóttir og stöllur hennar í Rosengård séu sænskir meistarar og tímabilinu í Svíþjóð sé lokið þá getur hún ekki leyft sér að slaka á þar sem Meistaradeild Evrópu er í fullum gangi. Þar er Rosengård í riðli með Íslendingaliði Bayern München, stórliði Barcelona og Benfica. Fótbolti 6. nóvember 2022 09:46