Selfoss með óvæntan sigur á Stjörnunni, létt hjá Val ásamt öðrum úrslitum Þremur leikjum til viðbótar í Lengjubikar karla er nú lokið. Selfoss vann Stjörnuna 2-1, Valur vann HK 3-0, ÍBV vann Fjölni í Grafarvoginum. Í kvennaflokki gerðu Þróttur Reykjavík og ÍBV 2-2 jafntefli. Íslenski boltinn 13. mars 2021 18:15
Fyrirliði Fylkis sá rautt fyrir að klípa í pung Olivers Ragnar Bragi Sveinsson, fyrirliði Fylkis, fékk rautt spjald í 2-1 tapi liðsins gegn Breiðabliki i Lengjubikar karla fyrr í dag. Spjaldið fékk hann fyrir að klípa í pung Olivers Sigurjónssonar, leikmanns Breiðabliks. Íslenski boltinn 13. mars 2021 17:50
Benzema steig upp á ögurstundu og hélt titilvonum Real á lífi Real Madrid vann dramatískan 2-1 sigur gegn Elche í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Enn og aftur var það Karim Benzema sem kom heimamönnum í Real til bjargar. Segja má að hann sé að halda titilvonum liðsins á lífi. Fótbolti 13. mars 2021 17:15
Jón Daði kom inn af bekknum í sigri á lærisveinum Waynes Rooney Jón Daði Böðvarsson lék síðustu sex mínúturnar er Millwall lagði Derby County á útivelli 1-0 í ensku B-deildinni í knattspyrnunni. Enski boltinn 13. mars 2021 17:05
Enn syrtir í álinn hjá WBA West Bromwich Albion er í ansi vondum malum í ensku úrvalsdeildinni eftir enn eitt tapið. Þeir töpuðu 1-0 fyrir Crystal Palace í dag. Enski boltinn 13. mars 2021 16:52
Bayern óð í færum en skoraði „bara“ þrjú mörk og ófarir Schalke halda áfram Bayern München er með fimm stiga forskot á RB Leipzig eftir 3-1 sigur þýsku meistaranna á Werder Bremen í dag. Fótbolti 13. mars 2021 16:23
Mark Berglindar dugði skammt en mikilvægur sigur Brescia Berglind Björg Þorvaldsdóttir var á skotskónum fyrir lið sitt Le Havre í frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 13. mars 2021 15:23
Breiðablik með fullt hús stiga og stórsigrar hjá Keflavík og HK Breiðablik er komið áfram í átta liða úrslit Lengjubikarsins eftir 2-1 sigur á Fylki í fjórða riðli A-deildar karla. Íslenski boltinn 13. mars 2021 15:08
Markalaust í Jórvíkurskíri Leeds United og Chelsea gerðu markalaust jafntefli í fyrsta leik dagsins í enska boltanum. Chelsea hefur því enn ekki tapað leik síðan að þýski stjórinn Thomas Tuchel tók við stjórnartaumunum. Enski boltinn 13. mars 2021 14:23
Axel Óskar skoraði í fyrsta leiknum en Esbjerg tapaði toppslagnum Axel Óskar Andrésson er kominn á blað í Lettlandi en hann skoraði eitt marka Riga FC í 3-0 sigri í dag. Fótbolti 13. mars 2021 13:57
Ronaldo fáanlegur fyrir 25 milljónir punda Juventus eru sagðir tilbúnir að láta Cristiano Ronaldo fara frá félaginu fyrir litlar 25 milljónir punda, þremur árum eftir að hann kom til félagsins frá Real Madrid fyrir hundrað milljónir evra. Fótbolti 13. mars 2021 13:30
Staðfestir að Everton bjóði Gylfa nýjan samning Gylfa Þór Sigurðssyni verður boðinn nýr samningur hjá Everton. Þetta staðfesti Carlo Ancelotti, stjóri liðsins, í gær. Enski boltinn 13. mars 2021 12:30
Hreinskilinn Zidane veit ekki hvort Ramos verði áfram Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, veit ekki hvort að Sergio Ramos, fyrirliði Madrídarliðsins, verði í herbúðum félagsins á næstu leiktíð. Fótbolti 13. mars 2021 11:00
Ancelotti var spurður út í umtalaða Instagram mynd Alex Iwobi Carlo Ancelotti, stjóri Everton, hafði séð Instagram mynd Alex Iwobi en þeir höfðu ekki talað saman um myndina sem hafði vakið athygli í fjölmiðlum ytra. Enski boltinn 13. mars 2021 10:31
Ståle sendir sænska og danska knattspyrnusambandinu tóninn Ståle Solbakken, þjálfari norska landsliðsins í knattspyrnu, er ekki sáttur við þær meldingar sem hafa komið frá sænska og danska knattspyrnusambandinu í aðdraganda HM í Katar á næsta ári. Fótbolti 13. mars 2021 10:01
Duglegasti leikmaður Everton, enginn betri í að klára færi og enn notaður sem fyrirmynd hjá Reading Íþróttavefurinn The Athletic fór nýverið yfir mikilvægi Gylfa Þórs Sigurðssonar í Everton-liði sem hefur komið verulega á óvart það sem af er leiktíð. Er talið að reynsla og yfirvegun íslenska miðjumannsins sé eitthvað sem Carlo Ancelotti – stjóri Everton – hrífst af. Enski boltinn 13. mars 2021 09:01
Man United án fjölda lykilmanna um helgina Ole Gunnar Solskjær hefur ekki úr mörgum mönnum að velja fyrir leik lærisveina sinna gegn West Ham United á sunnudag. Anthony Martial meiddist í jafnteflinu gegn AC Milan í Evrópudeildinni og fyrir voru fjölmargir lykilmenn frá vegna meiðsla. Enski boltinn 13. mars 2021 08:01
Víkingur áfram í 8-liða úrslit, Leiknir vann Þrótt í markasúpu og Fram gerði jafntefli við Kórdrengi Þrír leikir fóru fram í Lengjubikar karla í knattspyrnu í kvöld. Víkingur tryggði sér toppsætið í sínum riðli með 5-0 sigri á Þór Akureyri. Leiknir Reykjavík vann 5-2 sigur á Þrótt Reykjavík, þá gerðu Fram og Kórdrengir 1-1 jafntefli. Fótbolti 12. mars 2021 23:31
Stórleik Lyon og PSG frestað Stórleik helgarinnar í frönsku úrvalsdeildinni hefur verið frestað þar sem þrír leikmenn Paris Saint-Germain greindust með kórónuveiruna. Fótbolti 12. mars 2021 23:00
Myndi velja Gylfa Þór sem vítaskyttu ef líf hans væri undir Íþróttavefurinn The Athletic fór nýverið yfir mikilvægi Gylfa Þórs Sigurðssonar í Everton-liði sem hefur komið verulega á óvart það sem af er leiktíð. Rætt var við Brian McDermott sem þjálfaði Gylfa um tíma hjá Reading. Enski boltinn 12. mars 2021 22:46
Berglind Björg endaði á bráðamóttökunni í janúar Landsliðsframherjinn Berglind Björg Þorvaldsdóttir þurfti að fara á bráðamóttökuna eftir að hafa farið full geyst af stað með liði sínu Le Havre í Frakklandi eftir að hún greindist með kórónuveiruna fyrir áramót. Fótbolti 12. mars 2021 21:36
Alexandra byrjaði sinn fyrsta leik er Frankfurt bjargaði stigi undir lokin Alexandra Jóhannsdóttir byrjaði sinn fyrsta leik í þýsku úrvalsdeildinni er Eintracht Frankfurt gerði 1-1 jafntefli við Meppen í kvöld. Fótbolti 12. mars 2021 20:16
Telur að PSG hafi bolmagn til að landa Messi Forráðamenn Frakklandsmeistara Paris Saint-Germain eru bjartsýnir á að félagið geti samið við argentíska snillinginn Lionel Messi í sumar eftir að samningur hans við Barcelona rennur út. Fótbolti 12. mars 2021 19:00
Agla María áfram í herbúðum Íslandsmeistara Breiðabliks Agla María Albertsdóttir, lykilkona í Íslandsmeistaraliði Breiðabliks síðasta sumar, hefur framlengt samning í Kópavoginum til tveggja ára. Það eru gleðitíðindi fyrir græna hluta Kópavogs en Agla María fór á kostum síðasta sumar. Íslenski boltinn 12. mars 2021 18:15
Vonin um Meistaradeildarsæti nánast úr sögunni eftir tap Lærisveinar Heimis Hallgrímssonar hafa verið á góðu skriði og voru að blanda sér í baráttuna um sæti í Meistaradeild Asíu en 2-0 tap gegn Al Rayyan í dag setti strik í reikninginn. Fótbolti 12. mars 2021 17:16
Davíð tilkynnir EM-hópinn degi eftir að Arnar birtir sinn fyrsta landsliðshóp Nú er orðið ljóst hvenær EM-hópur U21-landsliðs karla í fótbolta og A-landsliðshópurinn sem hefur undankeppni HM í Katar, verða tilkynntir. Fótbolti 12. mars 2021 14:51
Fyrrverandi leikmaður Liverpool fékk hjartaáfall Mark González, fyrrverandi leikmaður Liverpool og fleiri liða, dvelur á sjúkrahúsi í heimalandinu, Síle, eftir að hafa fengið hjartaáfallið. Eiginkona hans greindi frá tíðindunum á Instagram. Enski boltinn 12. mars 2021 14:15
Harry Maguire fékk Rikka G til að fara upp á háa C-ið þegar hann „klúðraði einu besta færi allra tíma“ Manchester United átti alltaf að komast í 1-0 í fyrri hálfleiknum á móti AC Milan á Old Trafford í gærkvöldi. Enski boltinn 12. mars 2021 14:01
Ökklinn gæti aftrað Gylfa frá því að mæta Jóhanni Óvíst er hvort Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson mætast í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á morgun, með liðum Everton og Burnley, þar sem Gylfi hefur glímt við smáægileg meiðsli í vikunni. Enski boltinn 12. mars 2021 13:30
Gündogan valinn aftur besti leikmaður mánaðarins: Tvöfalt hjá Man. City Ilkay Gündogan skrifaði söguna hjá Manchester City í dag þegar hann valinn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í febrúar. Knattspyrnustjóri hans Guardiola var kosinn bestur í níunda skiptið. Enski boltinn 12. mars 2021 12:31