Marka­laust í Jór­víkur­skíri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hart var barist í dag.
Hart var barist í dag. Lindsey Parnaby/PA Images

Chelsea stýrði ferðinni og átti nokkur góð skotfæri í fyrri hálfleiknum. Markvörðurinn Illian Meisler var þó vel á verði og varði vel.

Tyler Roberts komst þó næst því að koma Leeds yfir er Mendy blakaði skoti hans í slá og yfir markið en skotið var ansi skemmtilegt.

Leeds átti einungis þetta skot á mark Chelsea í fyrri hálfleik en það er það minnsta í háa herrans tíð hjá lærisveinum Marcelo Bielsa.

Það voru ekki einu slæmu fréttirnar hjá Leeds því aðal markaskorari þeirra, Patrick Bamford, fór einnig meiddur af velli á 40. mínútu en staðan markalaus í hálfleik.

Bæði lið fengu sín tækifæri til þess að trygja sér sigurinn í síðari hálfleik og það voru heimamenn í Leeds sem fengu hættulegustu færin. Allt kom fyrir ekki og lokatölur 0-0.

Chelsea er því enn taplaust undir stjórn Tuchels en liðið er í fjórða sætinu með 51 stig. Leeds er í ellefta sætinu með 36 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira