„Leiðtoginn okkar og hjartað og sálin í liðinu“ Siggeir F. Ævarsson skrifar 6. maí 2026 22:54 Andri Már Þeir Jeremy Pargo og DeAndre Kane mættu saman í ansi skrautlegt viðtal hjá Andra Má Eggertssyni í kvöld eftir að Grindavík tryggði sér sæti í úrslitum Bónus-deildar karla með 109-82 sigri á Val.
Pargo snéri aftur til Grindavíkur í lok janúar og Andri byrjaði á að spyrja hann hvaða þýðingu það hefði fyrir hann að vera kominn í úrslit. „Það var alltaf markmiðið. Jói var með ákveðna sýn í huga þegar hann hafði samband við mig og til allrar hamingju þá gekk hún upp.“ Kane fór fyrir stigaskori Grindavíkur í kvöld og í upphafi leiks var hann eiginlega sá eini í liði Grindavíkur með einhverja rænu sóknarlega. „Ég vildi bara vinna. Ég vaknaði í morgun og sendi skilaboð á hópspjallið hjá liðinu um að við þyrftum að mæta einbeittir til leiks. Sýna okkar bestu hliðar og koma með mikla orku í leikinn. Ég ætlaði mér að setja tóninn og gerði það nokkurn veginn og strákarnir fylgdu svo í kjölfarið.“ Andri spurði Pargo í kjölfarið út í hugarfarið hjá Kane en hann vildi meina að Kane væri að draga úr sínum áhrifum á liðið frekar en hitt. „Kane er að ljúga þegar hann segir að hann hafi eiginlega sett tóninn. Hann gerði það hundrað prósent. Hann mætti til leiks og skoraði tíu stig í fyrsta leikhluta og tók bæði sóknar- og varnarfráköst. Hann er leiðtoginn okkar og við fylgjum honum að hjara veraldar.“ Valsmenn komust tíu stigum yfir í upphafi annars leikhluta. Þá tók Jóhann Þór leikhlé og leikurinn snérist við nánast á punktinum. „Við vorum í fínu lagi. Við þurftum bara að hreinsa upp suma hluti sem við vorum að klúðra í fyrsta leikhluta og við vissum að ef við myndum gera það myndum við sigla fram úr þeim. Það er það sem gerðist.“ Andri spurði Kane hvaða merkingu það hefði fyrir hann að vera kominn í úrslit með Grindavík í annað sinn. „Þetta er mér allt. Þessir stuðningsmenn eru bestu stuðningsmenn á landinu í mínum huga. Þetta er þriðja tímabilið mitt hérna. Fyrsta árið töpuðum við fyrir Val, í fyrra í oddaleik gegn Stjörnunni. Þetta árið náðum við sigrunum og erum á leið í úrslit. Við viljum virkilega klára þetta og fara alla leið. Við skuldum stuðningsmönnunum það og okkur sjálfum. Við höfum lagt hart að okkur allt tímabilið og titillinn er markmiðið.“ Það virðast allir og amma þeirra hafa skoðun á því hvernig leikmaður og karakter Kane er en Pargo sagði að leikmenn Grindavíkur pældu ekkert í því hvað fólk segir. „Okkur er sama hvað fólki finnst, við vitum hver hann er. Ef þú veist ekki hver hann er þá er okkur sama hvað þér finnst. Við vitum að hann er leiðtoginn okkar og hjartað og sálin í liðinu.“ Á þessum tímapunkti í viðtalinu kom Ólafur Ólafsson aftan að Andra og lyfti honum upp svo hann væri jafn hár viðmælendum sínum. Hann spurði Kane sömuleiðis út í þessar sterku skoðanir þjóðarinnar á honum. „Ég heyri allskonar gróusögur um sjálfan mig en ég er hress gaur! Ég vil bara hafa gaman en þegar ég er á vellinum legg ég mig allan fram og er mikill keppnismaður. Spila af fullum krafti fyrir liðið mitt og stuðningsmenn. Utan vallar er ég mjög skemmtilegur, það er ekkert nema ást og vil hafa gaman en á vellinum er ég 100 prósent innstilltur.“ Andri spurði Pargo að lokum út í verkefnið framundan, lokaúrslit gegn Tindastóli. „Við ætlum að mæta og spila okkar leik. Svo lengi sem við gerum það erum við í góðum málum. Svo fær mamma að horfa á leikina í sjónvarpinu svo að ég er í toppmálum.“ Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að neðan. Klippa: Nablinn ræddi við Pargo og Kane eftir oddaleikinn
Bónus-deild karla UMF Grindavík Mest lesið Sagði frá því hvernig hann kom upp um hneyksli Infantino Fótbolti Uppgjörið: KR – Breiðablik 3-3 | Stig sem skilur lítið eftir sig Íslenski boltinn Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum Enski boltinn Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Enski boltinn Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - Víkingur R. 2-4 | Fyrsta tap FH í áttatíu daga Íslenski boltinn The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Enski boltinn „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Enski boltinn Uppgjörið: ÍBV - ÍA 1-3 | Með þrjú stig upp á fasta landið Íslenski boltinn Enn engin skýring á dauðaslysi hjólreiðakappans Sport Fleiri fréttir Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sjá meira