Pabbi Maguires rifbeinsbrotnaði í látunum á Wembley Pabbi enska landsliðsmannsins Harrys Maguire rifbeinsbrotnaði í látunum á úrslitaleik EM á Wembley á sunnudaginn. Fótbolti 14. júlí 2021 08:00
Pálmi skýtur alltaf í sama hornið og Sindri las hann Síðastliðinn mánudag vann KR 1-0 sigur gegn Keflavík þar sem Arnþór Ingi Kristinsson skoraði eina mark leiksins. Pálmi Rafn Pálmason misnotaði víti fyrir KR-inga og Atli Viðar Björnsson, sérfræðingur í Pepsi Max Stúkunni, er búinn að taka eftir ákveðnu mynstri í spyrnum Pálma. Íslenski boltinn 14. júlí 2021 07:00
Rashford gæti misst af fyrstu tveim mánuðum úrvalsdeildarinnar Marcus Rashford, framherji Manchester United, gæti verið frá fram í lok október vegna meiðsla og þar af leiðandi myndi hann missa af fyrstu tveim mánuðum næsta tímabils í ensku úrvalsdeildinni. Rashford er á leiðinni í aðgerð á öxl. Enski boltinn 13. júlí 2021 23:30
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Dinamo Zagreb 0-2 | Valsmenn úr leik í Meistaradeildinni Valur tók á móti Króatíumeisturum Dinamo Zagreb á Hlíðarenda í Meistaradeildinni í kvöld. Dinamo Zagreb vann fyrri viðureign liðanna 3-2 í Króatíu, en Valsmenn skoruðu bæði mörk sín á lokamínútunum. Króatarnir mættu með mun sterkara lið en í fyrri viðureign liðanna og unnu að lokum 2-0 sigur, og samanlagt 5-3. Fótbolti 13. júlí 2021 23:10
Umfjöllun og viðtöl: HK - Víkingur 0-0 | Markalaust í Kórnum HK-ingar fengu Víking Reykjavík í heimsókn í Kórinn í kvöld þegar liðin spiluðu bæði sinn tólfta leik í Pepsi-Max deild karla. Bæði lið þurftu á þrem stigum að halda, en markalaust jafntefli þýðir að liðin skipta stigunum bróðurlega á milli sín. Íslenski boltinn 13. júlí 2021 22:36
Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - KA 2-1 | Mikilvægur heimasigur í Árbænum Fylkir tók á móti KA í Pepsi Max deild karla í kvöld. Fylkismenn stukku úr tíunda sæti upp í það sjötta með mikilvægum 2-1 sigri. Íslenski boltinn 13. júlí 2021 22:29
Arnar Gunnlaugsson: Fórum of mikið að spila þeirra leik Víkingur Reykjavík gerði 0-0 jafntefli við HK í Kórnum í Pepsi-Max deild karla í kvöld. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, var ósáttur í leikslok með að ná ekki að vinna en vildi þó virða stigið. Íslenski boltinn 13. júlí 2021 21:55
Alfreð Elías: Mikilvægt að Brenna Lovera sé mætt aftur í liðið Selfoss komst aftur á sigurbrautina eftir að hafa ekki náð í sigur í síðustu fimm leikjum sínum. Leikurinn endaði með 1-0 sigri þar sem Brenna Lovera gerði sigurmark leiksins.Alfreð Elías Jóhannsson þjálfari Selfoss var afar kátur í leiks lok. Sport 13. júlí 2021 21:40
Dramatískt jafntefli í Hafnarfjarðarslagnum FH tók á móti Haukum í nágrannaslag Lengjudeildar kvenna í kvöld. Lokatölur 1-1 þar sem að jöfnunarmarkið kom á annari mínútu uppbótartíma. Íslenski boltinn 13. júlí 2021 21:18
Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Keflavík 1-0 | Selfoss aftur á sigurbraut Selfoss eru komnar aftur á sigurbraut eftir að hafa ekki unnið í fimm síðustu leikjum sínum. Brenna Lovera var mætt aftur í liðið eftir meiðsli og launaði félaginu það með sigurmarki leiksins. 1-0 Íslenski boltinn 13. júlí 2021 21:08
Rúnar Már og félagar áfram í Meistaradeildinni eftir framlengingu Rúnar Már Sigurjónsson og félagar hans í CFR Cluj eru komnir áfram í forkeppni Meistaradeildar Evrópu þrátt fyrir 2-1 tap gegn Borac Banja. Rúnar Már og félagar unnu fyrri leikinn 3-1 og eru því komnir áfram. Fótbolti 13. júlí 2021 20:49
Ólafur Stígsson: Mjög sáttur við strákana Ólafur Stígsson, þjálfari Fylkis, var að vonum ánægður með sigurinn í kvöld gegn KA eftir erfitt gengi undanfarið. Lokatölur 2-1 og Fylkismenn færast fjær fallbaráttunni. Íslenski boltinn 13. júlí 2021 20:30
Einn af bestu markvörðum EM í samkeppni við Ögmund Grikklandsmeistarar Olympiacos hafa samið við tékkneska markvörðinn Tomáš Vaclík. Hann á að fylla skarð José Sá sem er á leið til enska félagsins Wolves. Vaclík stóð vaktina í liði Tékklands á Evrópumótinu í knattspyrnu sem lauk fyrir skömmu. Fótbolti 13. júlí 2021 17:31
Betur fór en á horfðist hjá Stefáni Teiti sem missir þó af upphafi tímabilsins Stefán Teitur Þórðarson þarf að bíða aðeins með að spila sína fyrstu leiki í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir að hann meiddist í hné í æfingaleik gegn þýska liðinu Hamburg í gær. Fótbolti 13. júlí 2021 16:31
Skoraði frábært mark í 100. leiknum sínum fyrir Breiðablik Hildur Antonsdóttir skoraði fjórða mark Breiðabliks í þægilegum 4-0 sigri á Fylki í gær. Þetta var leikur númer 100 í treyju Breiðablisk hjá þessum öfluga miðjumanni sem er að koma til baka eftir að hafa slitið krossbönd á síðustu leiktíð. Íslenski boltinn 13. júlí 2021 16:00
Grealish gaf ungum stuðningsmanni skóna sína eftir úrslitaleikinn Þrátt fyrir að Jack Grealish vilji eflaust gleyma tapinu fyrir Ítalíu í úrslitaleik EM sem fyrst gerði hann leikdaginn ógleymanlegan fyrir ungan stuðningsmann Englands. Fótbolti 13. júlí 2021 15:30
Vonast til að vera klár fyrir næsta leik eftir „hné í læri af dýrari gerðinni“ Sindri Kristinn Ólafsson, markvörður Keflavíkur, átti svo sannarlega viðburðaríkan leik er lið hans tapaði 0-1 fyrir KR á Meistaravöllum í Pepsi Max deild karla. Sindri Kristinn fékk þungt högg á þriðju mínútu, kláraði leikinn og varði vítaspyrnu. Íslenski boltinn 13. júlí 2021 15:01
Forseti Real sagði Raúl og Casillas vera mestu brandara í sögu félagsins Florentino Pérez, forseti Real Madrid, hefur tekið til varna eftir að gömul, niðurlægjandi ummæli hans um tvo af dáðustu sonum félagsins voru birt í spænska miðlinum El Confidencial. Fótbolti 13. júlí 2021 14:30
Bjarki Már áfram í Katar Bjarki Már Ólafsson verður áfram hjá knattspyrnufélaginu Al Arabi í Katar þó svo að Heimir Hallgrímsson og Freyr Alexandersson séu horfnir á braut. Fótbolti 13. júlí 2021 14:01
Vissi ekki að hann hafði tryggt Ítölum titilinn þegar hann varði frá Saka Athygli vakti að Gianluigi Donnarumma fagnaði ekki strax eftir að hann tryggði Ítalíu Evrópumeistaratitilinn með því að verja vítaspyrnu Bukayos Saka í leiknum gegn Englandi. Ástæðan er nokkuð skondin. Fótbolti 13. júlí 2021 13:30
Vandræði Man Utd meiri en við fyrstu sýn: Leikmenn íhuguðu að fara í verkfall Það gengur allt á afturfótunum hjá kvennaliði Manchester United. Félagið er enn án þjálfara og leikmenn liðsins voru í fúlustu alvöru að íhuga verkfall nú þegar undirbúningur fyrir næstu leiktíð er að fara á fullt. Enski boltinn 13. júlí 2021 13:01
Tók tvo markaskorara af EM með til Íslands eftir vonbrigðin gegn Val Tveir markaskorarar af EM, og alls sex leikmenn sem spiluðu á mótinu, eru tilbúnir að mæta Valsmönnum á Hlíðarenda í kvöld, með liði Dinamo Zagreb, enda afar mikið í húfi fyrir bæði lið. Fótbolti 13. júlí 2021 12:30
„Sindri, fokking skammastu þín“ „Mér finnst allt tal um rautt spjald argasta vitleysa,“ sagði Atli Viðar Björnsson um brot Sindra Snæs Magnússonar, leikmanns ÍA, gegn Leikni í Pepsi Max-deildinni í fótbolta í gærkvöld. Rauða spjaldið fór reyndar á loft, vegna mótmæla. Íslenski boltinn 13. júlí 2021 12:01
„Það sem við köllum gott svindl“ Þorkell Máni Pétursson segir að Einar Ingi Jóhannsson hafi fallið í gildru Kennies Chopart þegar hann dæmdi vítaspyrnu í leik KR og Keflavíkur í Pepsi Max-deild karla í gær. Íslenski boltinn 13. júlí 2021 11:03
Úrvalslið EM: Donnarumma, Bonucci, Ronaldo og fleiri góðir EM í knattspyrnu lauk í gærkvöld þegar Ítalía lagði England eftir vítaspyrnukeppni þar sem staðan var 1-1 að loknum venjulegum leiktíma og framlengingu. Fótbolti 13. júlí 2021 10:00
FIFA 22 státar nýrri tækni sem virkar eingöngu í nýjustu kynslóðinni EA opinberaði á sunnudagskvöldið stiklu fyrir nýjasta leikinn í FIFA-seríunni vinsælu. FIFA 22 kemur út þann 1. október og mun Kylian Mbappé prýða hulstur leiksins. Leikurinn á að vera raunverulegri og betri en nokkru sinni áður. Leikjavísir 13. júlí 2021 09:40
Sjáðu mörkin úr enn einum heimasigri Leiknis og kærkomnum KR-sigri á Meistaravöllum Leiknir vann fjórða heimasigur sinn á tímabilinu í gær á meðan KR vann langþráðan sigur á Meistaravöllum. Íslenski boltinn 13. júlí 2021 09:27
Segir að Southgate hafi frosið í úrslitaleiknum Rio Ferdinand, fyrrverandi landsliðsmaður Englands, segir að Gareth Southgate hafi farið illa að ráði sínu í úrslitaleik EM og hreinlega frosið. Fótbolti 13. júlí 2021 09:01
Landsliðsmaður Englands tekur innanríkisráðherrann til bæna Enski landsliðsmaðurinn Tyrone Mings segir holan hljóm í gagnrýni Priti Patel, innanríkisráðherra Bretlands, á kynþáttaníð sem samherjar hans, Jadon Sancho, Marcus Rashford og Bukayo Saka, urðu fyrir eftir úrslitaleik EM. Fótbolti 13. júlí 2021 08:02
Formúlu 1 ökuþór rændur eftir úrslitaleik EM og rándýru úri hans stolið Formúlu 1 ökuþórinn Lando Norris var rændur eftir úrslitaleik EM á Wembley í fyrradag. Formúla 1 13. júlí 2021 07:30