Ari og félagar steinlágu í Lilleström Íslendingalið Strömsgodset átti ekki góða heimsókn til Lilleström í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Fótbolti 27. nóvember 2021 19:18
Juventus fataðist flugið gegn Atalanta Juventus virtist vera að komast á beinu brautina í ítölsku úrvalsdeildinni eftir erfiða byrjun á mótinu en í kvöld voru þeir stöðvaðir af Atalanta. Fótbolti 27. nóvember 2021 19:03
Gerrard: „Hér var unnið frábært starf áður en ég tók við“ Steven Gerrard, stjóri Aston Villa, er með báða fætur á jörðinni þrátt fyrir draumabyrjun sína í starfi en liðið hefur unnið báða leiki sína síðan Gerrard tók við stjórnartaumunum. Enski boltinn 27. nóvember 2021 18:31
Nýju mennirnir á skotskónum hjá Víking og KR Birnir Snær Ingason og Stefán Alexander Ljubicic, fyrrum samherjar hjá HK, voru báðir á skotskónum með nýju liðunum sínum í Bose bikarnum í fótbolta í dag. Íslenski boltinn 27. nóvember 2021 17:32
Villa á sigurbraut undir stjórn Gerrard Aston Villa hefur unnið báða leiki sína síðan Steven Gerrard tók við stjórnartaumunum á Villa Park. Í dag lágu lærisveinar Patrick Vieira í Crystal Palace í valnum. Enski boltinn 27. nóvember 2021 17:02
Liverpool valtaði yfir dýrlingana á heimavelli Liverpool vann auðveldan 4-0 sigur á heimavelli gegn Southampton í dag í leik sem varð aldrei spennandi. Southampton börðust hetjulega en máttu sín lítils gegn gæðunum sem búa í framlínu Liverpool. Enski boltinn 27. nóvember 2021 17:00
Haaland skoraði og Dortmund skellti sér á toppinn Fimm leikir fóru fram í þýsku Bundesligunni í fótbolta í dag. Borussia Dortmund vann góðan sigur og komst á topp deildarinnar. Bayern Munchen á samt leik til góða á morgun og geta komist aftur upp fyrir þá gulu. Fótbolti 27. nóvember 2021 16:30
Berglind: Öskraði á Sveindísi Berglind Björg Þorvaldsdóttir, leikmaður Hammarby og íslenska landsliðsins sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag. Landsliðið er í Kýpur svo fundurinn fór fram í gegnum fjarfundaforrit. Fótbolti 27. nóvember 2021 15:30
Auðvelt hjá Arsenal í seinni hálfleik Það var talsverð spenna fyrir leikinn enda vildu Arsenal og þeirra stuðningsmenn svara fyrir stórt tap gegn Liverpool í síðustu umferð. Andstæðingurinn líka vel til þess fallinn, Newcastle. Eftir markalausan fyrri hálfleik brutu leikmenn Arsenal ísinn í þeim síðari og unnu fínan sigur, 2-0. Enski boltinn 27. nóvember 2021 14:46
Agla María: Sýnir hvað Breiðablik hefur upp á að bjóða Agla María Albertsdóttir, leikmaður Breiðabliks og landsliðskona í knattspyrnu, sat fyrir svörum á blaðamannafundi með íslenskum fjölmiðlum í dag. Fundurinn fór fram í gegnum fjarfundaforrit því íslenska landsliðið er statt á Kýpur. Fótbolti 27. nóvember 2021 13:43
Þið eruð ekki Bayern, við erum Bayern! Það var talsverður hiti á árlegum aðalfundi þýska stórliðsins Bayern Munchen sem fram fór í Bæjaralandi seint á fimmtudagskvöld. Fundurinn leystist upp í hróp og köll og var fundinum slitið við litla hrifningu þeirra sem mættu. Ástæða ósættisins er styrkarsamningur við Qatar Airways. Fótbolti 27. nóvember 2021 12:45
Newcastle frumsýnir nýja stjórann gegn Arsenal í dag Eddie Howe, nýráðinn knattspyrnustjóri Newcastle, verður á hliðarlínunni í fyrsta skipti er liðið heimsækir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í hádegisleik dagsins. Howe gat ekki verið með liðinu gegn Brentford í seinustu umferð eftir að hafa greinst með veiruna skæðu. Enski boltinn 27. nóvember 2021 08:00
Klopp segir það slæmar fréttir fyrir önnur lið að Rangnick sé á leið til United Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segir það slæmar fréttir fyrir önnur lið í ensku úrvalsdeildinni að Ralf Rangnick sé að taka tímabundið við Manchester United. Enski boltinn 27. nóvember 2021 07:00
Van der Vaart um Messi: „Skammastu þín ekkert?“ Raphael van der Vaart, fyrrverandi miðjumaður hollenska landsliðsins, var ekki hrifinn af frammistöðu Lionel Messi í leik Paris Saint-Germain og Manchester City í Meistaradeild Evrópu í vikunni. Fótbolti 26. nóvember 2021 23:30
Rúnar stóð vaktina er Leuven batt enda á sigurgöngu toppliðsins Rúnar Alex Rúnarsson stóð vaktina í marki OH Leuven í belgísku úrvalsdeildinni er liðið vann 3-1 útisigur gegn toppliði Royale Union. Fyrir leikinn hafði Union unnið sex leiki í röð. Fótbolti 26. nóvember 2021 21:37
Segir þá sem eru á móti HM á tveggja ára fresti vera hrædda við breytingar Gianni Infantino, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA, segir þá sem eru á móti því að Heimsmeistaramótið í fótbolta verði haldið á tveggja ára fresti í stað fjögurra, vera hrædda við breytingar. Fótbolti 26. nóvember 2021 20:31
Íslendingaliðin skiptu stigunum á milli sín Mikael Anderson var í byrjunarliði AGF og Stefán Teitur Þórðarson byrjaði fyrir Silkeborg er liðin gerðu 1-1 jafntefli í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Fótbolti 26. nóvember 2021 19:55
Davíð Örn: „Ég var bara lítill og vildi fara heim“ Davíð Örn Atlason gekk í dag í raðir Íslandsmeistara Víkings á ný eftir árs dvöl hjá Breiðablik. Davíð hefur leikið tæplega tvö hundruð leiki fyrir félagið og segir það góða tilfinningu að vera kominn heim. Fótbolti 26. nóvember 2021 19:31
Annað mark Kýpur tryggði liðinu fyrsta stigið Kýpverska kvennalandsliðið í fótbolta náði sér í sitt fyrsta stig í C-riðli okkar Íslendinga í undankeppni HM 2023 er liðið tók á móti Hvíta-Rússlandi. Lokatölur urðu 1-1, en þetta var aðeins annað markið sem Kýpur skorar í undankeppninni. Fótbolti 26. nóvember 2021 18:53
Sindri til reynslu hjá litla bróður Markvörðurinn Sindri Kristinn Ólafsson úr Keflavík verður næstu daga til reynslu hjá danska 1. deildarliðinu Esbjerg. Íslenski boltinn 26. nóvember 2021 17:00
Annaðhvort Ítalía eða Portúgal verða ekki með á HM í Katar Eftir dráttinn í evrópska umspilið fyrir heimsmeistaramótið í knattspyrnu er ljóst að Ítalía og Portúgal munu ekki bæði geta komist á HM í Katar á næsta ári. Fótbolti 26. nóvember 2021 16:39
Flughrædda mamman flaug til að sjá kveðjuleikinn eftir 26 ára feril Ef hægt er að tala um goðsagnir í fótbolta þá hlýtur hin brasilíska Formiga að vera ein sú mesta. Hún hefur nú lagt landsliðsskóna á hilluna en flughrædd móðir hennar, sem aldrei hafði séð dóttur sína í landsleik, náði að telja í sig kjark til að sjá kveðjuleikinn. Fótbolti 26. nóvember 2021 16:00
United og Lokomotiv Moskva búin að ná samkomulagi vegna Rangnicks Manchester United og Lokomotiv Moskva hafa náð samkomulagi vegna Ralfs Rangnick. Enski boltinn 26. nóvember 2021 15:31
Conte vill fá Bailly Antonio Conte, knattspyrnustjóri Tottenham, vill fá Eric Bailly, varnarmann Manchester United. Enski boltinn 26. nóvember 2021 14:31
Ætluðu að gefa Carrick allt að sex leiki áður en Rangnick glansaði í viðtalinu Forráðamenn Manchester United ætluðu að láta Michael Carrick stýra liðinu í allt að sex fleiri leikjum áður en Ralf Rangnick glansaði í atvinnuviðtalinu sínu. Enski boltinn 26. nóvember 2021 13:01
Hefur haldið markinu hreinu í fjórum af fyrstu fimm landsleikjunum sínum Hin átján ára gamla Cecilía Rán Rúnarsdóttir lék sinn fimmta A-landsleik í gær og enn á ný tókst þessum efnilega markverði að halda marki sínu hreinu í íslenska landsliðsbúningnum. Fótbolti 26. nóvember 2021 12:30
Meistararnir fá góðan liðsstyrk úr Kópavoginum Íslands- og bikarmeistarar Víkings kynntu tvo nýja leikmenn í dag, þá Karl Friðleif Gunnarsson og Davíð Örn Atlason. Þeir koma báðir frá Breiðabliki. Íslenski boltinn 26. nóvember 2021 11:40
KSÍ með í yfirlýsingu um stöðu mannréttindamála í Katar Knattspyrnusambönd Norðurlandanna lýsa yfir áhyggjum af stöðu mannréttindamála í Katar í sameiginlegu bréfi sem sent hefur verið til Alþjóða Knattspyrnusambandsins. Fótbolti 26. nóvember 2021 11:00
Sjáðu mörk Sveindísar og Berglindar gegn einu af betri liðum heims Ísland vann frábæran 2-0 sigur gegn Japan í vináttulandsleik í Hollandi í gær, í leik sem þjálfarinn Þorsteinn Halldórsson taldi þann besta frá því að hann tók við kvennalandsliðinu í fótbolta fyrir tæpu ári síðan. Fótbolti 26. nóvember 2021 09:32
Nýr stjóri Man. United er maður sem hafði mikil áhrif á bæði Klopp og Tuchel Manchester United virðist hafa fundið sinn næsta knattspyrnustjóra í 63 ára gömlum Þjóðverja en hver er þessi Ralf Rangnick? Enski boltinn 26. nóvember 2021 09:01