Einkunnir Íslands: Brynjar Ingi stóð upp úr Íslenska karlalandsliðið gerði 2-2 jafntefli við Norður-Makedóníu í J-riðli undankeppni HM 2022 í kvöld. Brynjar Ingi Bjarnason stóð upp úr í íslenska liðinu að mati Vísis. Fótbolti 5. september 2021 18:22
Nafnarnir spiluðu sinn hundraðasta landsleik Nafnarnir Birkir Bjarnason og Birkir Már Sævarsson spiluðu báðir sinn 100. landsleik fyrir hönd íslenska karlalandsliðsins í fótbolta í 2-2 jafnteflinu við Norður-Makedóníu undankeppni HM 2022 á Laugardalsvelli í dag. Fótbolti 5. september 2021 18:20
Það helsta af Twitter eftir jafntefli Íslands: „Thank god for Guðjohnsens!“ Eftir að lenda 0-2 undir gegn Norður-Makedóníu sýndi íslenska liðið karakter og náði að jafna leikinn í 2-2. Segja má að Twitter-færslur þeirra sem fylgdust með leiknum endurspegli ágætlega þær sveiflur sem áttu sér stað innan vallar í kvöld. Fótbolti 5. september 2021 18:11
Lingard með tvö í sigri Englands á Andorra England vann 4-0 sigur á Andorra er liðin mættust á Wembley í Lundúnum í I-riðli undankeppni HM karla í fótbolta á næsta ári. Hálfgert B-lið Englendinga mætti til leiks sem átti í vandræðum framan af leik. Fótbolti 5. september 2021 17:55
Sjáðu þegar að Þór/KA felldi Fylki og öll mörk gærdagsins í Pepsi Max deild kvenna Fjórir leikir fóru fram í Pepsi Max deild kvenna í gær. Tindastóll heldur enn lífi í sinni fallbaráttu eftir 3-1 sigur á Selfossi, en sömu sögu er ekki að segja um Fylki sem er fallið úr deildinni eftir 2-1 tap gegn Þór/KA. Íslenski boltinn 5. september 2021 17:00
Barbára skoraði í sigri Brøndby Barbára Sól Gísladóttir skoraði jöfnunarmark Brøndby í 2-1 sigri liðsins á heimavelli gegn Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 5. september 2021 15:53
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Breiðablik 3-3 | Sex mörk og eitt rautt spjald í fjörugum leik Breiðablik kom í heimsókn á Samsung völlinn í hádeginu í dag til þess að spila við Stjörnuna í Pepsi-Max deild kvenna. Lítið var undir í þessum leik þar sem Breiðablik er öruggt í 2.sæti og Stjarnan siglir lygnan sjó um miðja deild. Bæði liðin því að mörgu leyti sátt við lokatölur leiksins, 3-3 jafntefli. Íslenski boltinn 5. september 2021 15:12
Þróttur heldur í vonina um að halda sæti sínu í Lengjudeildinni Þróttur R. vann í dag 5-2 stórsigur á föllnum Víkingum frá Ólafsvík í Lengjudeild karla. Sigurinn þýðir að liðið á enn möguleika á að halda sæti sínu í deildinni þegar að tvær umferðir eru eftir. Íslenski boltinn 5. september 2021 15:05
Kristján Guðmundsson: Það er ekkert gefið að lið sem er einum fleiri vinni leiki Stjörnustúlkur fengu Breiðablik í heimsókn á Samsungvöllinn í hádegisleik í Pepsi-Max deild kvenna í dag. Leiknum lauk með 3-3 jafntefli en Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, hefði viljað vinna leikinn í dag og þar með báða leiki tímabilsins gegn Breiðablik. Fótbolti 5. september 2021 14:40
Byrjunarlið Íslands: Birkir og Birkir í 100 landsleiki en Jóhann ekki með Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari hefur tilkynnt hvaða leikmenn byrja leikinn við Norður-Makedóníu klukkan 16 á Laugardalsvelli, í undankeppni HM karla í fótbolta. Fótbolti 5. september 2021 14:35
Sveindís Jane lagði upp í tapi í Íslendingaslag Íslendingaliðin Kristianstad og Hammarby mættust í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Sveindís Jane Jónsdóttir lagði upp mark Kristianstad, en liðið þurfti að sætta sig við 2-1 tap. Fótbolti 5. september 2021 13:53
Meistararnir byrjuðu titilvörnina á tapi Englandsmeistarar Chelsea þurftu að sætta sig við 3-2 tap þegar að liðið heimsótti Arsenal í Lundúnaslag í fyrstu umferð ensku Ofurdeildarinnar. Enski boltinn 5. september 2021 13:26
Ásmundur hættir með Fjölni eftir tímabilið Knattspyrnudeild Fjölnis og Ásmundur Arnarsson, þjálfari liðsins, hafa tekið þá ákvörðun að framlengja ekki samstarfinu að tímabili loknu. Ásmundur hefur þjálfað liðið í samtals tíu ár af þrjátíu ára sögu félagsins. Íslenski boltinn 5. september 2021 12:51
„Ef þeir vinna ekki á móti Norwich, þá er þetta líklega búið fyrir Arteta“ Joe Cole, fyrrum leikmaður Chelsea og Liverpool, og nú sérfræðingur hjá BT Sport, segir að Mikel Arteta verði að öllum líkindum látinn taka poka sinn ef Arsenal mistekst að vinna Norwich í ensku úrvalsdeildinni næstu helgi. Enski boltinn 5. september 2021 12:00
Salah vill verða launahæsti leikmaður Liverpool frá upphafi Egypski knattspyrnumaðurinn Mohamed Salah vill fá 500 þúsund pund í vikulaun ef hann skrifar undir nýjan samning við Liverpool, en það myndi gera hann að launahæsta leikmanni félagsins frá upphafi. Enski boltinn 5. september 2021 10:16
Sonur David Beckham skrifar undir sinn fyrsta atvinnumannasamning Romeo Beckham, sonur fyrrum knattspyrnumannsins David Beckham, skrifaði í vikunni undir sinn fyrsta atvinnumannasamning. Þessi 19 ára gamli strákur skrifaði undir hjá Fort Lauderdale. Fótbolti 5. september 2021 09:30
Walesverjar án 13 leikmanna þegar liðið mætir Hvíta-Rússlandi á morgun Walesverjar heimsækja Hvíta-Rússland í E-riðli undankeppni HM 2022 á morgun, en liðið verður án 13 leikmanna. Sjö þeirra eru frá vegna meiðsla eða veikinda. Fótbolti 4. september 2021 23:00
Þróttur Vogum tryggði sér sæti í Lengjudeildinni án þess að spila Þróttur Vogum mun leika í Lengjudeild karla á næsta tímabili, en þetta varð ljóst þegar að Magni hafði betur gegn Völsungi í dag, 2-1. Fótbolti 4. september 2021 22:00
Holland, Tyrkland og Ísrael með stórsigra Undankeppni HM 2022 hélt áfram í dag og það voru 13 leikir á dagskrá. Hollendingar og Tyrkir unnu sína leiki í G-riðli og lyfta sér upp fyrir Norðmenn í efstu tvö sætin. Þá unnu Ísraelar sterkan 5-2 sigur á Austurríkismönnum. Fótbolti 4. september 2021 21:18
Danir með fullt hús stiga eftir nauman sigur gegn Færeyingum Danir unnu í kvöld nauman 1-0 útisigur gegn Færyingum í undankeppni HM 2022. Jonas Wind skoraði eina mark leiksins. Fótbolti 4. september 2021 20:54
Fimmta jafntefli Úkraínumanna í röð Frakkland mætti Úkraínu í D-riðli undankeppni HM 2022 í kvöld. Liðin skildu jöfn 1-1, en þetta var annað jafntefli Frakka í röð, en það fimmta hjá Úkraínumönnum. Fótbolti 4. september 2021 20:40
Grótta færist nær fallsvæðinu eftir tap í fallbaráttuslag Augnablik vann gríðarlega mikilvægan 2-1 sigur þegar að Grótta kíkti í heimsókn í fallbaráttuslag Lengjudeildar kvenna. Íslenski boltinn 4. september 2021 19:21
KR tryggði sér sæti í Pepsi Max deild kvenna | FH og Afturelding mætast í úrslitaleik Þrem leikjum í Lengjudeild kvenna er nú lokið í dag. KR tryggði sér sæti í Pepsi Max deildinni með 2-0 sigri gegn Haukum, Afturelding vann ÍA 2-0, en FH var eina liðið í toppbaráttunni sem tapaði stigum þegar að liðið tapaði 4-2 gegn Víking R. Íslenski boltinn 4. september 2021 18:15
„Ég ákvað að skjóta og boltinn flaug í samskeytin“ Hin 19 ára Ída Marín Hermannsdóttir átti flottan leik hjá Íslandsmeisturum Vals í 1-1 jafnteflinu gegn Keflavík suður með sjó í dag. Valskonur stjórnuðu leiknum nánast allan tímann og voru mikið meira með boltann. Ída var þó ekkert of svekkt með niðurstöðuna þar sem að Valur var nú þegar búið að ná markmiðum sínum fyrir tímabilið. Sport 4. september 2021 18:05
Norðmenn á toppi G-riðils eftir sigur gegn Lettum Noregur vann í dag 2-0 sigur gegn Lettum í undankeppni HM 2022. Norðmenn eru nú efstir í G-riðli með tíu stig, en hafa leikið einum leik meira en liðin fyrir neðan þá. Fótbolti 4. september 2021 18:05
Bleiki fíllinn og Öfgar þakka ÍR og Haukum sýndan stuðning við þolendur Bleiki fíllinn forvarnarhópur og Öfgar þakka knattspyrnuliðum ÍR og Hauka fyrir að sýna þolendum kynferðisofbeldi stuðning þegar liðin gengu inn á völlinn fyrir leik þeirra sem er nú í gangi. Fréttir 4. september 2021 17:23
Umfjöllun og viðtöl: Þróttur R. - ÍBV 3-2 | Andrea Rut tryggði Þrótturum nauman sigur Þróttur hafði betur gegn ÍBV í Pepsi Max deild kvenna í dag en lokatölur voru 3-2 eftir hörkuleik. Þrátt fyrir tapið er ÍBV þó búið að tryggja sér sæti í Pepsi Max deildinni á næsta tímabili. Íslenski boltinn 4. september 2021 17:18
Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - Þór/KA 1-2| Fylkiskonur fallnar úr Pepsi Max deildinni Fylkiskonur eru fallnar úr Pepsi Max deild kvenna eftir 2-1 tap á móti Þór/KA. Fylkiskonur hefðu þurft á sigri að halda og stóla á úrslit úr hinum leikjum dagsins til að halda sér í baráttunni. Það gekk hinsvegar ekki eftir og munu þær því spila í Lengjudeildinni að ári. Íslenski boltinn 4. september 2021 17:11
Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Tindastóll 1-3 | Tindastóll heldur í veika von um að bjarga sér frá falli Tindastóll vann gríðarlega mikilvægan 2-1 sigur gegn Selfyssingum í Pepsi Max deild kvenna í dag. Liðið heldur nú í veika von um að halda sæti sínu í deild þeirra bestu þegar aðeins ein umferð er eftir. Íslenski boltinn 4. september 2021 17:10
Ian Jeffs: Þetta var markmiðið þegar við tókum við Ian Jeffs, þjálfari ÍBV, var bæði ósáttur og sáttur í leikslok eftir naumt 3-2 tap gegn Þrótti í Pepsi Max deild kvenna í dag. Íslenski boltinn 4. september 2021 16:46