Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Ástæða er fyrir fólk að fara varlega á ferð um brattlendi í Eyjafirði þar sem snjóflóð hafa fallið síðustu daga. Innlent 19.12.2025 14:31
Eldur í þúsund fermetra fjósi með skepnum inni Slökkvilið Akureyrar er á leiðinni á vettvang á Fellshlíð í Eyjafirði vegna elds sem upp er kominn í þúsund fermetra fjósi með skepnum inni. Búið er að slökkva eldinn. Innlent 8.11.2025 10:52
Tjaldsvæði á Norðurlandi óðum að fyllast Tjaldsvæði víða á Norðurlandi, þar sem besta veðrinu er spáð um helgina, eru óðum að fyllast. Tjaldsvæðavörður í Vaglaskógi segir að brjálað hafi verið að gera í bókunum síðustu tvo daga og ljóst sé að margir ætli sé að elta góða veðrið um helgina. Innlent 31.7.2025 16:53
Var á yfir 200 kílómetra hraða þegar slysið varð Ökumaður missti stjórn á bíl sínum á ofsahraða, lenti á afleggjara, kastaðist yfir hann og stöðvaðist utan vegar eftir rúma fimmtíu metra. Ökumaður og farþegi létust af völdum fjöláverka en samkvæmt gögnum úr árekstrareftirlitskerfi var bíllinn á 201 kílómetra hraða þegar slysið varð. Innlent 12. júní 2025 08:48
Gyltur gjóta þrettán til sextán grísum í hverju goti Gyltur á nýju svínabúi í Eyjafirði fá að ganga lausar með grísina sína en þær eru að gjóta þrettán til sextán grísum og hver gylta verður að vera með 16 spena eigi hún að fá að gjóta. Innlent 28. apríl 2025 20:05
Töldu Akureyringa ekki reka alvöruflugfélag Með stofnun Norðurflugs á Akureyri varð Tryggvi Helgason brautryðjandi í rekstri landshlutaflugfélaga á Íslandi. Flugfélagið Norlandair og áður Flugfélag Norðurlands eru bæði sprottin af Norðurflugi. Innlent 27. apríl 2025 07:00
Nýtt og glæsilegt svínabú í Eyjafirði fyrir 400 gyltur Eitt glæsilegasta svínabú landsins hefur hafið starfsemi í Eyjafirði þar sem um fjögur hundruð gyltur verða í búinu þegar það verður komið í fullan rekstur. Innlent 26. apríl 2025 20:03
Vagga Akureyrarflugs er á Melgerðismelum Melgerðismelar í Eyjafirði skipa merkan sess í flugsögu Íslands. Þar var fyrsti flugvöllur Akureyrar og sá mikilvægasti utan Suðvesturlands þegar innanlandsflugið var að færast yfir í landflugvélar á upphafsárunum. Innlent 24. apríl 2025 23:46
Beint flug milli Akureyrar og útlanda aldrei verið meira Beint flug milli Akureyrar og útlanda hefur aldrei verið meira og voru sjö áætlunarflug á viku út í heim að jafnaði frá Akureyrarflugvelli í síðasta mánuði auk leiguflugs. Akureyri nálgast núna Reykjavíkurflugvöll í heildarfjölda flugfarþega. Innlent 22. apríl 2025 22:11
Veður gæti haft áhrif á brennuhald Jólin verða kvödd með þrettándabrennum víða um land í kvöld, það er að segja ef veður leyfir. Útlit er fyrir norðanátt í dag og nokkuð vindasamt veður. Innlent 6. janúar 2025 12:02
Upplýst um leyndarmálið á bak við pönnukökurnar Nýi vertinn í Flugkaffinu á Akureyrarflugvelli segir algert lykilatriði að gera almennilegar pönnukökur. Hann þurfti þó kennslu frá systur sinni og leiðbeiningar frá forvera sínum sem upplýsti hann um leyndarmálið á bak við uppskriftina. Innlent 12. desember 2024 09:32
Flugstöð og flughlað vígð á afmæli Akureyrarflugvallar Ný flugstöð og nýtt flughlað voru vígð við hátíðlega athöfn á Akureyrarflugvelli síðdegis. Samtímis var fagnað sjötíu ára afmæli flugvallarins. Innlent 5. desember 2024 22:53
Út um allar koppagrundir Alþingis: „Froðan flæðir endalaust, það er bara froða froða“ Ingu Sæland er tíðrætt á Alþingi um froðu sem flæðir „um allar koppagrundir“ en hún er þó ekki ein um koppagrundirnar og nota nokkrir aðrir þingmenn orðið óspart. Þeir tveir sem nota orðið langmest hafa báðir alist upp eða búið í áratugi á Ólafsfirði. En hvað eru koppagrundir? Menning 1. október 2024 07:03
Bjóða bændum þyrluflug í smalamennsku fyrir slikk Þyrluflugfélagið HeliAir Iceland hefur boðist til að létta bændum við Eyjafjörð smalamennskuna þetta haustið. Bændum býðst þyrluflug upp á fjöll og lengst inn í dali Tröllaskaga fyrir tvöþúsund krónur túrinn á mann. Innlent 4. september 2024 12:02
Allir í jólaskapi í Jólagarðinum Það styttist og styttist til jóla en það er þó sennilega engin komin í jólaskap nema þá kannski starfsfólk Jólagarðsins i Eyjafirði, sem eru að vinna í kringum jólin allt árið við móttöku á gestum og þarf því að vera í jólaskapi. Lífið 3. september 2024 20:07
Samstarfi um milljarðauppbyggingu slitið Íslandshótel og Skógarböðin hafa slitið samstarfi um uppbyggingu og rekstur hótels við Skógarböðin í Eyjafirði sem áætlað var að opna á vormánuðum 2026. Viljayfirlýsing um samstarf var undirrituð í ársbyrjun en reiknað var með fjárfestingu upp á um fimm milljarða króna. Viðskipti innlent 27. ágúst 2024 18:27
Reykspúandi flugsveit veltir sér yfir Akureyri Flugsýning á Akureyrarflugvelli milli klukkan 14 og 16 á morgun, laugardag, verður hápunktur flughátíðar sem haldin er í Eyjafirði um helgina. Þar verður meðal annars sýnt listflug af ýmsu tagi, þyrluflug, rafmagnsflug, svifflug og gírókoptaflug. Innlent 28. júní 2024 19:19
Fólk hvatt til að sýna aðgát vegna skriðufallahættu á Norðurlandi Ofanflóðssérfræðingar Veðurstofu Íslands brýna til fólks að sýna aðgát og fylgjast vel með aðstæðum í fjallshlíðum þar sem fólk er að störfum. Í dag slapp bóndi í Eyjafjarðardal naumlega undan aurskriðu sem féll við Halldórsstaði þar sem hann var að þvæla fé upp á fjöll. Innlent 20. júní 2024 22:41
Komst naumlega undan aurskriðu í Eyjafjarðardal Ragnar Jónsson bóndi á Halldórsstöðum innst í Eyjafirði var að klára að sleppa fé sínu upp á fjall þegar hann þurfti að bruna undan aurskriðu sem féll þar sem hann stóð. Innlent 20. júní 2024 19:34
Maðurinn sem féll í Fnjóská fannst látinn Tvítugur karlmaður sem féll í Fnjóská á sjöunda tímanum í gærkvöldi fannst látinn. Leit hefur staðið yfir að honum síðan klukkan 18:30 í gærkvöldi og lauk nú á tólfta tímanum. Innlent 31. maí 2024 11:34
Leitin ekki borið árangur í nótt Leit að karlmanni um tvítugt sem féll í Fnjóská hefur enn ekki borið árangur. Leitað hefur verið að manninum síðan um klukkan 18.30 í gær. Fram kemur í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra að viðbragðsaðilar hafi verið við leit að manninum í nótt og að leitin hafi ekki borið árangur. Þegar maðurinn hvarf ofan í ánna var hann með þremur félögum sínum. Innlent 31. maí 2024 07:08
Leitin hefur enn ekki borið árangur Maðurinn sem féll í Fnjóská er enn ekki fundinn eftir umfangsmikla leit viðbragðsaðila í kvöld. Leitin mun þó halda áfram inn í nóttina og þá er verið að skipuleggja frekari leit í fyrramálið. Innlent 30. maí 2024 23:56
Leita enn mannsins sem er um tvítugt Viðbragðsaðilar leita enn mannsins sem féll í Fnjóská í kvöld. Maðurinn, sem er karl um tvítugt, var þar með þremur félögum sínum. Innlent 30. maí 2024 21:49
Leita einstaklings sem féll í Fnjóská Leit stendur yfir af einstaklingi sem féll í Fnjóská í Fnjóskárdal á Norðurlandi. Innlent 30. maí 2024 20:13