Sveitarstjórnarkosningar 2026

Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttir og greinar tengdar kosningum til sveitarstjórna sem fram fara 16. maí 2026.

Fréttamynd

Nýr meiri­hluti kynnir forgangslistann

Nýr meirihluti tók við á bæjarstjórnarfundi í Hafnarfirði fyrr í dag. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar kynntu á fundinum nýjan meirihlutasáttmála fyrir kjörtímabilið 2026–2030.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Sam­tímis bæjar­stjóri og þing­maður

Vilhjálmur Árnason tók formlega til starfa sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar í gær, 2. júní, á fyrsta bæjarstjórnarfundi nýs meirihluta. Hann er því samtímis þingmaður Suðurkjördæmis og bæjarstjóri Reykjanesbæjar í fáeina daga.

Innlent
Fréttamynd

Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björns­dóttur

Hildur Björnsdóttir tók formlega við sem borgarstjóri Reykjavíkur í gær en hún hefur verið oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík síðustu fjögur ár og borgarfulltrúi flokksins síðan 2018. Það er þó ýmislegt sem ekki allir vita um nýja borgarstjórann sem á fjögur börn, er með þrjár háskólagráður og ber sérkennilegt gælunafn.

Lífið
Fréttamynd

„Heiður lífs míns að vera borgar­stjóri“

Þakklæti er efst í huga hjá Heiðu Björgu Hilmisdóttur sem lét af embætti borgarstjóra í dag. Hún stefnir á að gegna embætti borgarfulltrúa næstu fjögur árin enda sé enn margt sem hægt er að bæta.

Innlent
Fréttamynd

Yfir 70 þúsund horfðu á kappræðurnar á Sýn

Mikill áhugi var á umfjöllun fréttastofu Sýnar um nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar samkvæmt rafrænum ljósvakamælingum Gallup. Kappræðurnar á miðvikudagskvöldi fyrir kosningar náði til tæplega 73 þúsund manna hér á landi.

Innlent
Fréttamynd

Bein út­sending: Lyklaskipti í borginni

Hildur Björnsdóttir var kjörin borgarstjóri Reykjavíkur á fyrsta fundi nýs kjörtímabils í dag. Hún tekur við lyklunum af Heiðu Björgu Hilmisdóttur á skrifstofu borgarstjóra klukkan 13:30. Beina útsendingu frá athöfninni má sjá á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Af­sögn enn ódag­sett

Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, oddviti flokksins í bæjarstjórn Reykjanesbæjar og verðandi bæjarstjóri, segir ekki komna fasta dagsetningu á hvenær hann muni segja sig frá þingmennsku.

Innlent
Fréttamynd

Ætli sér ekki að banna hin­segin fánann

Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík og tilvonandi forseti borgarstjórnar, segir nýjan meirihluta ekki ætla að banna hinsegin fánann. Honum, og erlendum fánum, verði flaggað þegar tilefni sé til. Hún segir að utanríkismálum eigi að sinna í utanríkisráðuneytinu. Borgarfulltrúar eigi að vera með fókus á Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Engir Framsóknarfingur í köku­krúsinni í Kópa­vogi

Framsóknar­maðurinn Stefán Atli Rúnars­son segist alls ekki vera með puttana í köku­krús veisluþjónustunnar Girnó í Kópa­vogi og hafi því ekkert haft með það að gera að bæjar­stjóranum Ás­dísi Kristjáns­dóttur voru sendar kökur sem hún smakkaði og mærði á mynd­bandi sem hefur vakið at­hygli á TikTok og Insta­gram.

Innlent
Fréttamynd

Sigur­jón frá Horna­firði í Skaftárhrepp

Sigurjón Andrésson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Skaftárhrepps af meirihluta D-lista og óháðra í Skaftárhreppi. Sigurjón lauk störfum sem sveitarstjóri í næsta sveitarfélagi, Hornafirði, fyrir aðeins nokkrum dögum. Í tilkynningu kemur fram að ráðningin verði formlega staðfest á fyrsta fundi nýrrar sveitarstjórnar þann 9. júní.

Innlent
Fréttamynd

Ari Edwald enn undir feldi

Ari Edwald oddviti Miðflokksins í borginni hefur ekki enn gert upp hug sinn varðandi tillögu Hildar Björnsdóttur, verðandi borgarstjóra og oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, um að hann taki að sér stjórnarformennsku í Orkuveitunni.

Innlent
Fréttamynd

Hjalti Þór verður bæjar­stjóri í Horna­firði

Hjalti Þór Vignisson oddviti Framsóknar í Hornafirði verður bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Hornafirði. Fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa undirritað málefnasamning um samstarf á komandi kjörtímabili 2026–2030. 

Innlent
Fréttamynd

Enginn meiri­hluti í Grinda­vík

Enginn meirihluti verður myndaður í bæjarstjórn Grindavíkur. Allir bæjarfulltrúar vilja vinna saman að áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins í bænum.

Innlent
Fréttamynd

Ingi­mar verður bæjar­stjóri í Hvera­gerði

Nýr meirihluti hefur verið myndaður í Hveragerði þar sem D-listinn og S-listinn hafa náð samkomulagi um meirihlutasamstarf á komandi kjörtímabili. Ingimar Guðmundsson, oddviti og bæjarstjóraefni D-listans, verður næsti bæjarstjóri Hveragerðisbæjar. Þá mun Birgitta Ragnarsdóttir, oddviti S-listans, verða formaður bæjarráðs og María Rún Þorsteinsdóttir, 2. sæti D-listans, verða forseti bæjarstjórnar.

Innlent