Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sóknaráætlanir mótaðar fyrir sjö svæði landsins Á næstu mánuðum verða mótaðar sóknaráætlanir í öllum landshlutum samkvæmt nýrri skiptingu landsins í sjö svæði sem samþykkt hefur verið í ríkisstjórn. 26.10.2009 09:08
Nokkuð dregur úr þinglýstum kaupsamningum Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 40. Þetta er nokkuð minni fjöldi samninga en næstu þrjár vikur á undan þegar þeir námu 53 til 54 á viku. 26.10.2009 08:13
Tuttugu gjaldeyrismál til skoðunar hjá FME „Við erum að skoða fjölmörg mál. Umfangið hefur margfaldast í rannsókn okkar," segir Gunnar Andersen, stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins. Hann staðfestir að eftirlitið sé nú með í kringum tuttugu mál til skoðunar vegna brota á gjaldeyrislögum. 26.10.2009 00:01
Leita meðeiganda að West Ham Georg Andersen, forstöðumaður samskiptasviðs Straums, staðfestir í samtali við Vísi að CB Holdings, eignarhaldsfélag West Ham, sé að leita að nýjum aðila inn í rekstur knattspyrnufélagsins. 25.10.2009 13:03
Reyna að bjarga stöðugleikasáttmálanum Reynt verður til þrautar í dag að bjarga stöðugleikasáttmálannum. Ríkisstjórnin ætlar að funda með aðilum vinnumarkaðarins eftir hádegi en framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir nauðsynlegt að lækka stýrivexti og ryðja veginn fyrir stóriðjuframkvæmdum. 25.10.2009 12:02
CB Holdings fær fjárfestingarbanka til að sjá um sölu West Ham Enska knattspyrnufélagið West Ham er komið í söluferli, eftir því sem fullyrt er á vef breska blaðsins Times. Þar segir að CB Holdings, sem er í eigu Straums, hafi ráðið fjárfestingabankana Rothchild og Standard Bank til þess að sjá um söluferlið. Rothschild hefur mörgum sinnum komið að sölu á íþróttafélögum, til dæmis þegar Randy Lerner keypti Aston Villa árið 2006. 25.10.2009 09:33
Frumvarp um skuldavanda heimila samþykkt Frumvarp um almenna greiðsluaðlögun sem á að forða fólki frá hættunni á frekari gengisfellingu eða verðbólgu er orðið að lögum. 24.10.2009 09:56
Landsbankinn um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja Frumvarp um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins var samþykkt frá Alþingi í dag og taka lögin gildi 1. nóvember. Að mati Landsbankans er um að ræða veigamiklar úrbætur fyrir stóran hóp fólks enda er greiðslubyrði verðtryggðra fasteignalána talin lækka um 17% þegar í desember. 23.10.2009 19:29
Rannsaka hvort Kaupþing hafi átt of mikið í sjálfum sér Kaupþing fjármagnaði um helming af bréfum í bankanum með lánveitingum til viðskiptavina og starfsmanna bankans. Sérstakur saksóknari rannsakar nú hvort bankinn hafi með beinni eða óbeinni eignaraðild átt meira í sjálfum sér en lög kveða á um. 23.10.2009 18:30
Nýherji skilar hagnaði á þriðja ársfjórðungi EBIDTA hagnaður Nýherja hf. nam 107 mkr á þriðja ársfjórðungi en þetta kemur fram í uppgjöri fyrirtækisins fyrir þann ársfjórðung. Forstjóri félagsins segir viðsnúning hafa orðið á rekstri félagsins en afkoma af hugbúnaðarverkefnum erlendis var góð á þessu tímabili. Þá segir í tilkynningu frá Nýherja að rekstur Applicon félaga í Danmörku og Svíþjóð sé stöðugur en áform eru um útgáfu á nýju hlutafé. 23.10.2009 18:09
Skuldabréfaveltan tæpir 10 milljarðar Skuldabréfavelta dagsins í kauphöllinni nam tæpum 10 milljörðum kr. Úrvalsvísitalan OMX16 stendur nær í stað eftir daginn í tæpum 803 stigum. 23.10.2009 15:58
Íslensk verðbréf opna starfsstöð í Reykjavík Íslensk verðbréf hafa opnað starfsstöð að Sigtúni 42 í Reykjavík. Starfstöðinni er ætlað að þjóna viðskiptavinum félagsins á höfuðborgarsvæðinu. 23.10.2009 15:53
Fyrrum bankamenn ráða yfir 50 prjónakonur í vinnu Netverslunin Nordic Store hefur nú ráðið yfir 50 prjónakonur í vinnu sökum þess hve viðskiptin með íslenskar lopapeysur ganga vel á netinu. 23.10.2009 15:40
Lífeyrissjóðirnir stofna sjóð sinn í næsta mánuði Stofnfundur að Fjárfestingarsjóði Íslands, sem lífeyrissjóðirnir standa að, mun að öllum líkum verða um miðjan næsta mánuð. Jafnframt er ljóst að stofnfé sjóðsins muni verða í kringum 50 milljarðar kr. 23.10.2009 15:19
Neytendasamtökin krefja Nýja Kaupþing um svör vegna lána Neytendasamtökunum hefur enn ekkert svar borist frá Nýja Kaupþingi við fyrirspurnum sínum um lán bankans í erlendri mynt til viðskiptavina sinna. Samtökin telja að bankinn hafi gerst brotlegur við lög með þessum lánum sínum. 23.10.2009 14:21
Greining: Lítill munur á efnahagsspám fyrir Ísland Lítill munur er á þeirri efnahagsspá sem hagdeild Alþýðusambands Íslands (ASÍ) birti í gær og þeim hagspám sem birtar voru í upphafi þessa mánaðar af fjármálaráðuneytinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS). 23.10.2009 13:09
Tekist á um arðgreiðslur í stjórn Faxaflóahafna Tekist var á um arðgreiðslur til Reykjavíkurborgar á fundi stjórnar Faxaflóahafna í vikunni. Samkvæmt fjárhagsáætlun Faxaflóahafna fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að arðgreiðslurnar nemi 173 milljónum kr. eða um 8% af tekjunum og kæmi 75% af þeirri upphæð í hlut borgarinnar en afgangurinn rennur til annarra eigenda hafnanna. 23.10.2009 12:30
Íbúðalánasjóður lækkar vexti Íbúðalánasjóður hefur, í kjölfar útboðs á íbúðabréfum, ákveðið að lækka útlánavexti sjóðsins sem hér segir: Útlánavextir íbúðalána með uppgreiðsluákvæði verða 4,55% og 5,05% á íbúðalán án uppgreiðsluákvæðis. Hin nýja vaxtaákvörðun tekur gildi í dag, 23. október 2009. 23.10.2009 09:41
Mjög mikil eftirspurn eftir íbúðabréfum ÍLS Mjög mikil eftirspurn reyndist eftir íbúðabréfum Íbúðalánasjóðs (ÍLS) í útboði sem efnt var til í gærdag. 23.10.2009 09:36
Lyfjaútgjöld ríkisins lækka um tæplega 800 milljónir á árinu Lyfjaútgjöld ríkisins lækka um tæplega átta hundruð milljónir króna á árinu vegna reglugerðarbreytingar sem tók gildi 1. mars 2009. 23.10.2009 08:47
Tvö fyrrum fyrirtæki Hannesar í greiðslustöðvun Tvö bresk bresk matvælalfyrirtæki sem voru í meirihlutaeigu Hannesar Smárasonar hefur verið sett í greiðslustöðvun. Straumur Burðarás rær nú öllum árum að því að tryggja að rúmlega 6,4 milljarða króna krafa bankans á félögin gufi ekki upp. 22.10.2009 18:45
Sex milljarða króna sala Guðbjargar í Glitni til rannsóknar Sérstakur saksóknari rannsakar um sex milljarða króna sölu Guðbjargar Matthíasdóttur, aðaleiganda Morgunblaðsins, á hlut í Glitni þremur dögum fyrir þjóðnýtingu bankans. 22.10.2009 18:30
VÍS og Sparisjóðurinn AFL í eina sæng Vátryggingafélag Íslands (VÍS) og Sparisjóðurinn Afl hafa samið um að sparisjóðurinn verði umboðsaðili VÍS í Skagafirði og á Siglufirði. Í kjölfarið munu starfsmenn á þjónustuskrifstofu VÍS á Sauðárkróki flytjast yfir til sparisjóðsins. Þetta kemur fram á Feykir.is. 22.10.2009 16:58
Bakkavör féll um 26,7% í dag Miklar sveiflur eru á gengi hluta í Bakkavör þessa dagana. Í dag féll gengi Bakkavarar um 26,7% en í kauphöllinni eftir að hafa hækkað um rúm 15% í gærdag. 22.10.2009 15:52
Hagdeild ASÍ: Kreppan nær botni á fyrrihluta næsta árs Sú mikla lægð sem gengur yfir íslenskt efnahagslíf nær botni sínum á fyrri hluta næsta árs og fyrir höndum er vinna við að reisa hagkerfið að nýju. Mikill samdráttur í landsframleiðslu leiðir til þess að landsmenn hafa minni verðmæti til skiptanna og tímabundið dregur úr lífskjörum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri spá hagdeildar ASÍ um horfur í efnahagsmálum til ársins 2012. 22.10.2009 15:06
Hugmyndir um að lífeyrissjóðirnir greiði niður Icesave-skuld Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að hugmyndir um aðkomu lífeyrissjóðina að Icesave eiga rétt á sér, þ.e. sjóðirnir borgi niður skuldina en fái fjármagn frá ríkissjóði á móti. Með þessu mætti lækka verulega vaxtauppsöfnun fyrir ríkissjóð og slík fjárfesting gæti verið á álitlegum kjörum fyrir lífeyrissjóðina. 22.10.2009 12:43
OR verður skipt í tvo fyrirtæki Uppskipting Orkuveitu Reykjavíkur í tvö fyrirtæki, þar sem annað sinnir sérleyfisstarfsemi eins og veitum og hitt sér um raforkuframleiðslu- og sölu, er á lokastigi. Stefnt er að því að skipta fyrirtækinu upp um áramót. 22.10.2009 12:32
Frekari kaupmáttarskeriðing framundan næstu misserin Nú hefur kaupmáttur launa ekki verið lægri síðan í árslok 2002 og reikna má með enn frekari kaupmáttarskerðingu næstu misseri. Ljóst er að samningsstaða flestra launþega er nokkuð veik og reikna má með að enn fleiri komi til með að sæta beinum nafnlaunalækkunum. 22.10.2009 12:06
FME sektar Haga, Askar Capital, HS Orku og fleiri Fjármálaeftirlitið (FME) hefur ákveðið að sekta samtals ellefu félög fyrir brot á lögum um verðbréfaviðskipti. Þeirra á meðal eru Hagar, Askar Capital, HS orka og SP-fjármögnun. 22.10.2009 11:37
FME sektar fjögur bæjarfélög fyrir brot á lögum Fjármálaeftirlitið (FME) hefur sektað fjögur bæjarfélög og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum fyrir brot á lögum um verðbréfaviðskipti. Þetta kemur fram á vefsíðu eftirlitsins. 22.10.2009 11:29
Fuzzy kollarnir sýndir og seldir í Magasin du Nord Fuzzy kollarnir íslensku eru nú til sýnis og sölu í dönsku stórversluninni Magasin du Nord. Þar er þeim stillt upp í sérstöku rými þar sem ný og spennandi hönnun er til sýnis. 22.10.2009 10:50
Sala hljóðrita dróst saman um 31% milli ára Sala hljóðrita dróst saman um 31 prósent milli áranna 2008 og 2007 í eintökum talið. Á síðasta ári seldust ríflega 446.000 eintök af innlendum og erlendum hljóðritum á heildsölustigi sem er 200.000 eintökum færra en árið á undan. 22.10.2009 09:27
Aflaverðmæti eykst um tæp 20% milli ára Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 65 milljörðum króna á fyrstu sjö mánuðum ársins 2009, samanborið við rúmlega 54 milljarða yfir sama tímabil 2008. Aflaverðmæti hefur því aukist um tæplega 11 milljarða eða 19,7 % á milli ára. Aflaverðmæti í júli nam 11,2 milljörðum króna miðað við 8,9 milljarða í júlí 2008. 22.10.2009 09:15
Launavísitala hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði Launavísitala í september 2009 er 359,0 stig og hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 1,9%. 22.10.2009 09:12
Íslenskar konur afar virkar á vinnumarkaði Íslenskar konur voru afar virkar á vinnumarkaði árið 2008. Hlutfall þeirra á vinnumarkaði var 84% og starfshlutfall þeirra að jafnaði um 80 af hundraði. 22.10.2009 08:25
Seðlabankinn: Óbreyttir dráttarvextir Seðlabanki Íslands hefur birt mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Hefur bankinn ákveðið að halda þeim óbreyttum. 22.10.2009 08:18
Íbúðalánasjóður með útboð á íbúðabréfum Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að efna til útboðs á íbúðabréfum í flokkunum HFF150224, HFF150434 og HFF150644. Íbúðalánasjóður stefnir að því að taka tilboðum allt að fjárhæð 3 milljarðar króna að nafnverði. 22.10.2009 07:57
Töluverð þörf á endurnýjun Næstu tuttugu ár spáir Airbus því að Norðurlönd þurfi yfir 400 nýjar flugvélar og ætlar sér helmingshlut í aukningunni. Hún er vegna endurnýjunar. 22.10.2009 06:00
Þrefalt dýrara að leigja ýsu- og ufsakvóta Stóraukin eftirspurn er eftir leigukvóta, einkum ufsa- og ýsukvóta en útgefnar aflaheimildir beggja tegundanna voru skertar mikið við upphaf þessa fiskveiðiárs. 22.10.2009 00:01
Segir lausafjárskort ekki hafa fellt bankakerfið Vilhjálmur Bjarnason, lektor við háskóla Íslands, segir að bankalán, sem menn fengu til að til að kaupa hlutabréf í bönkum, með veð í þeim sjálfum, felldu bankakerfið, en ekki lausafjárskortur. Sautján hundruð milljarðar króna hafi farið úr bönkunum í svona lán. 21.10.2009 18:41
Vita ekki hvort bankinn stöðvaði millifærslu Kaupþings Seðlabanki Íslands vísar til væntanlegrar skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, um hvort bankinn hafi komið í veg fyrir að Kaupþing á Íslandi sendi 150 milljónir punda til dótturfélags síns, Singer&Friedlander, daginn fyrir fall Kaupþings. Engar upplýsingar séu til um þetta í bankanum. 21.10.2009 18:30
Atorka vill leita nauðasamninga Stjórn Atorku hefur ákveðið að leggja fram beiðni til Héraðsdóms Reykjaness um heimild til að leita nauðasamnings við lánardrottna sína. Fjárhagsstaða Atorku breyttist til hins verra við fall íslenska bankakerfisins á haustmánuðum 2008. Fyrir fall bankanna var útlit fyrir að Atorka myndi standa af sér alþjóðlegu efnahagskreppuna. Eftir fall bankanna og mikla gengislækkun íslensku krónunnar varð stjórn Atorku hins vegar ljóst að nauðsynlegt væri að endurskipuleggja fjárhag félagsins. 21.10.2009 17:26
Bakkavör hækkaði um 15,4% Bakkavör hækkaði um 15,4% í kauphöllinni í dag en viðskiptin á bakvið þá hækkun námu tæpum 660 þúsund kr. 21.10.2009 16:02
Gengi krónunnar styrkist Gengi krónunnar hefur styrkst um rúmlega 0,5% í dag og stendur gengisvísitalan í tæpum 234 stigum. Gætir þar væntanlega áhrifa þess að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur sett endurskoðun á áætlun sinni og stjórnvalda á dagskrá í næstu viku. 21.10.2009 15:20
Flanagan: Öll skilyrði uppfyllt fyrir endurskoðun AGS Mark Flanagan formaður sendiefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á Íslandi segir að öll megin skilyrðum séu uppfyllt fyrir endurskoðun sjóðsins á áætlun sinni og íslenskra stjórnvalda. Þetta kemur fram í viðtali við Flanagan á heimsíðu AGS. 21.10.2009 14:52