Tvö fyrrum fyrirtæki Hannesar í greiðslustöðvun 22. október 2009 18:45
Tvö bresk bresk matvælalfyrirtæki sem voru í meirihlutaeigu Hannesar Smárasonar hefur verið sett í greiðslustöðvun. Straumur Burðarás rær nú öllum árum að því að tryggja að rúmlega 6,4 milljarða króna krafa bankans á félögin gufi ekki upp. Árið 2006 keypti einkahlutafélagið Hörgá 75% hlut í bresku matvælafyrirtækjunum Novel Olive og Novel Cheese. Hannes Smárason átti meirihluta Hörgár og föðurbróðir hans 12,5%. Straumur Burðarás var ráðgjafi í þessum kaupum og lánaði fé til kaupanna. Fyrir láninu fengu þeir skilyrt veð í bresku fyrirtækjunum, þ.e. yrðu ekki heimtur á lánunum tæki bankinn fyrirtækin yfir. Í apríl var móðurfélag bresku matvælafyrirtækjanna, Novel Group Limited, sett í greiðslustöðvun og félaginu skipaðir skiptastjórar. Í skýrslu þeirra segir að eftir yfirtökuna árið 2006 hafi áformin verið æði metnaðarfull og fyrirtækið hafi m.a. verið flutt í stærra húsnæði. Eftir að kreppan skall á hafi stór yfirbygging valdið vandræðum og orðið til þess að dótturfélögin gátu ekki greitt af lánum sínum. Straumur hafi því krafist að félögin sem voru í meirihlutaeigu Hannesar yrðu sett í greiðslustöðvun en bankinn átti um 6,4 milljarða krónu kröfu á þau. Sama dag og greiðslustöðvunin gekk í gegn var Novel Olive selt og Straumur fékk greiðslur upp í kröfuna. Þá tóku Straumur og stjórnendur Novel Cheese það félag yfir og reka það í dag. Samkvæmt heimildum hefur Straumur nú fengið töluvert upp í kröfuna en vinnur hörðum höndum að því að hámarka virði eignar sinnar og koma þannig í veg fyrir að matvælafyrirtækja-ævintýri Hannesar verði þeim dýrkeypt.
Mest lesið Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira