Frekari kaupmáttarskeriðing framundan næstu misserin 22. október 2009 12:06
Nú hefur kaupmáttur launa ekki verið lægri síðan í árslok 2002 og reikna má með enn frekari kaupmáttarskerðingu næstu misseri. Ljóst er að samningsstaða flestra launþega er nokkuð veik og reikna má með að enn fleiri komi til með að sæta beinum nafnlaunalækkunum. Má hér nefna áform ríkisstjórnarinnar að lækka laun þeirra ríkisstarfsmanna sem eru með laun umfram 400 þúsund krónur á mánuði. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að á sama tíma mun verðbólgan verða áfram talsverð þó að hún hjaðni nokkuð hratt á næstunni, en við gerum ráð fyrir að verðbólga verði ríflega 6% í lok þessa árs. Jafnframt má reikna með að aðhaldsaðgerðir í ríkisfjármálum og þær skatthækkanir sem framundan eru komi svo til með að skerða enn frekar ráðstöfunartekjur heimilanna. Reikna má með að kaupmáttur taki ekki að aukast á ný fyrr en í fyrsta lagi á seinni hluta næsta árs. Í september hækkuðu laun um 0,3% frá fyrri mánuði samkvæmt launavísitölu Hagstofunnar sem birt var nú í morgun. Í takt við það árferði sem hér hefur ríkt hafa launahækkanir síðustu mánaða verið afar litlar og sér í lagi ef tekið er mið af því sem áður var þegar atvinnumarkaðurinn einkenndist af mikilli þenslu og launaskriði. Síðastliðna tólf mánuði hafa laun einungis hækkað um 1,9%, en svo lítil hefur hækkun launa milli ára ekki verið síðan í ársbyrjun 1997. Frá því að kaupmáttur var hér mestur í upphafi árs 2008 hefur hann rýrnað um 12,4%, en hann hefur nú rýrnað samfellt síðastliðna 20 mánuði sé tekið mið af 12 mánaða breytingu hans.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira