Sala hljóðrita dróst saman um 31% milli ára 22. október 2009 09:27
Sala hljóðrita dróst saman um 31 prósent milli áranna 2008 og 2007 í eintökum talið. Á síðasta ári seldust ríflega 446.000 eintök af innlendum og erlendum hljóðritum á heildsölustigi sem er 200.000 eintökum færra en árið á undan. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að heildarverðmæti seldra hljóðrita á heildsölustigi á síðasta ári nam um 592 milljónum króna, sem jafngildir um 950 milljónum króna á smásölustigi, að virðisaukaskatti meðtöldum. Inni í tölum um sölu hljóðrita eru geisladiskar, hljómplötur og snældur. Frá árinu 2005 hefur sala hljóðrita dregist saman um 46 af hundraði, eða um 377.000 eintök. Hæstum hæðum náði salan árið 1999 en þá seldust á heildsölustigi 868.000 eintök, eða 422.000 fleiri eintök en á síðasta ári. Á síðasta ári nam sala hljóðrita um 1,4 eintökum á íbúa samanborðið við ríflega þrjú eintök er best lét árið 1999. Vafalaust má að nokkru rekja skýringu á þeim samdrætti sem orðið hefur í sölu hljóðrita til niðurhals tónlistar af Netinu, bæði löglegs og ólöglegs. Inni í tölum um sölu hljóðrita er ekki meðtalin sala hljóðrita með niðurhali yfir Netið. Markaðshlutdeild innlendra hljóðrita hefur aukist nær jafnt og frá aldamótum. Fram að þeim tíma nam hlutur innlendra útgáfu að jafnaði um 40 af hundraði, en á síðasta ári var hlutdeild innlendrar útgáfu 71 prósent talið í seldum eintökum. Söluverðmæti innlendrar útgáfu var 72 af hundraði af heildarsölunni á síðasta ári.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira