Íslensk verðbréf opna starfsstöð í Reykjavík 23. október 2009 15:53
Íslensk verðbréf hafa opnað starfsstöð að Sigtúni 42 í Reykjavík. Starfstöðinni er ætlað að þjóna viðskiptavinum félagsins á höfuðborgarsvæðinu. Í tilkynningu segir að opnun starfsstöðvarinnar er svar við aukinni spurn eftir þjónustu Íslenskra verðbréfa, en allt frá falli bankanna síðasta haust hefur viðskiptavinum fjölgað til muna. Í sumar tóku Íslensk verðbréf jafnframt við þjónustu viðskiptavina SPRON á eignastýringarsviði auk þess sem sjóðir Rekstrarfélags SPRON fluttust til Rekstrarfélags verðbréfasjóða ÍV hf. Sævar Helgason, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa, segir að opnun starfsstöðvar í Reykjavík marki tímamót í sögu félagsins. "Við höfum fundið fyrir aukinni eftirspurn eftir þjónustu félagsins undanfarið, ekki síst vegna þess að félagið er og hefur verið óháð bankakerfinu, sem varð fyrir miklum áföllum á síðasta ári. Einnig hefur það sitt að segja að félagið stendur fjárhagslega vel og er jafnframt eitt af elstu fjármálafyrirtækjum landsins í dag, " segir Sævar. Það sem af er þessu ári hefur afkoma Íslenskra verðbréfa verið jákvæð og í takt við áætlanir að sögn Sævars. Íslensk verðbréf voru stofnuð árið 1987 og eru sérhæft eignastýringarfyrirtæki sem sinnir viðskiptavinum um land allt. Starfsmenn eru 21 talsins og kjarni þeirra hefur starfað hjá félaginu í 10 ár eða lengur. Höfuðstöðvar félagsins er að Strandgötu 3, Akureyri.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira