Atorka vill leita nauðasamninga 21. október 2009 17:26 Magnús Jónsson fyrrum forstjóri Atorku.
Stjórn Atorku hefur ákveðið að leggja fram beiðni til Héraðsdóms Reykjaness um heimild til að leita nauðasamnings við lánardrottna sína. Fjárhagsstaða Atorku breyttist til hins verra við fall íslenska bankakerfisins á haustmánuðum 2008. Fyrir fall bankanna var útlit fyrir að Atorka myndi standa af sér alþjóðlegu efnahagskreppuna. Eftir fall bankanna og mikla gengislækkun íslensku krónunnar varð stjórn Atorku hins vegar ljóst að nauðsynlegt væri að endurskipuleggja fjárhag félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Atorku. Þá segir að viðræður félagsins við lánardrottna hafi hafist í október 2008 sem síðar leiddu til þess að aðilar undirrituðu kyrrstöðusamning í febrúar 2009. Stjórn og stjórnendur Atorku hafa lagt höfuðáherslu á að vernda verðmæti eigna félagsins og jafnframt hafa þeir lagt mikla vinnu í að draga úr áhrifum efnahagslægðarinnar á dóttur- og hlutdeildarfélög. „Nauðasamningurinn tryggir að hægt verði að endurskipuleggja fjárhag Atorku sem orðið hefur fyrir skakkaföllum vegna almennrar efnahagslægðar í heiminum og vegna hruns íslenska bankakerfisins. Stjórn Atorku telur að nauðasamningurinn tryggi fjárhagslega getu félagsins til að styðja áfram vel við eignir þess. Nú ríður á að nýta allan þann tíma sem nauðsynlegur er til að hámarka endursöluverðmæti eignanna," segir Þorsteinn Vilhelmsson, stjórnarformaður Atorku Group hf.: Stjórn Atorku leggur áherslu á að með samþykkt nauðasamnings muni félagið geta stutt við dóttur- og hlutdeildarfélög sín og hámarkað þannig virði eigna. Forsendur nauðasamningsins gera ráð fyrir að endurheimtuhlutfall kröfuhafa verði a.m.k. 40% en samkvæmt efnhagsreikningi félagsins frá 30. september 2009 verður endurheimtuhlutfallið 60%. Við undirbúning nauðasamningsins hefur stjórn Atorku lagt áherslu á samstarf við alla hagsmunaaðila um úrlausn mála, að skapa traustan ramma um stjórnun, eignarhald og að standa vörð um verðmæti eigna Atorku til framtíðar. „Verðmæti eigna félagsins náði lágmarki í mars 2009 en hefur hækkað umtalsvert síðan. Skráðar eignir Atorku hafa hækkað um ríflega 100% á þessu tímabili. Þetta mun vonandi leiða til þess að endurheimtur kröfuhafa verði talsvert hærri en nauðasamningurinn gerir ráð fyrir. Það eru stjórn félagsins hins vegar mikil vonbrigði að þessu ferli ljúki án þess að hluthafar félagsins fái nokkurn hlut í þeim viðsnúningi sem vonandi verður á rekstri Atorku á næstum misserum," segir Þorsteinn í tilkynningunni.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira