Neytendasamtökin krefja Nýja Kaupþing um svör vegna lána 23. október 2009 14:21
Neytendasamtökunum hefur enn ekkert svar borist frá Nýja Kaupþingi við fyrirspurnum sínum um lán bankans í erlendri mynt til viðskiptavina sinna. Samtökin telja að bankinn hafi gerst brotlegur við lög með þessum lánum sínum. Fjallað er um málið á vefsíðu samtakanna. Þar segir að Neytendasamtökin sendu Kaupþingi erindi þann 1. október og óskuðu eftir svörum frá bankanum varðandi það hvernig bankinn myndi koma á móts við viðskiptavini sína sem tekið hefðu lán í erlendri mynt. Bæði Neytendastofa og áfrýjunarnefnd neytendamála höfðu komist að þeirri niðurstöðu að bankinn hefði brotið gegn lögum um neytendalán en bankinn upplýsti viðskiptavini sína ekki um það með skýrum hætti hvernig vextir væru samansettir og við hvaða aðstæður þeir gætu breyst. Neytendasamtökin ítrekuðu öðru sinni erindið til bankans 16. október þegar ekkert svar hafði borist og óskuðu eftir svari í síðasta lagi 20. október. Ekkert svar hefur hins vegar borist frá bankanum. Neytendasamtökin gagnrýna þessi vinnubrögð enda liðið heilt ár síðan erindi vegna málsins var fyrst sent Neytendastofu. Kaupþing hefur því haft nægan tíma til að ákveða með hvaða hætti lántakendum verður bætt tjónið. Neytendasamtökin hvetja lántakendur, sem telja að bankinn hafi brotið á sér, til að senda bankanum kröfu vegna þess tjóns sem bankinn hefur valdið. Félagsmaður samtakanna hefur sent erindi til bankans og krafist leiðréttingar á ofgreiddum vöxtum auk dráttarvaxta.
Mest lesið Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Sjá meira