Tekist á um arðgreiðslur í stjórn Faxaflóahafna 23. október 2009 12:30
Tekist var á um arðgreiðslur til Reykjavíkurborgar á fundi stjórnar Faxaflóahafna í vikunni. Samkvæmt fjárhagsáætlun Faxaflóahafna fyrir næsta ár er gert ráð fyrir að arðgreiðslurnar nemi 173 milljónum kr. eða um 8% af tekjunum og kæmi 75% af þeirri upphæð í hlut borgarinnar en afgangurinn rennur til annarra eigenda hafnanna. Dagur B. Eggertsson lagði fram eftirfarandi bókun á fundinum: "Starfsfólki Faxaflóahafna er þakkaður undirbúningur fjárhagsáætlunar sem unnin er við erfiðar aðstæður. Gera verður skýran fyrirvara við kröfur borgarstjóra um auknar arðgreiðslur fyrirtækisins þar sem lækkandi tekjur, algjört stopp í lóðasölu og önnur rekstrarskilyrði gefa ekkert tilefni til hækkandi arðgreiðslna. Afleiðingar þeirra eru þvert á móti gjaldskrárhækkanir sem leggst á allan innflutning til landsins, enn frekari launalækkun starfsfólks, auk þess sem framkvæmdir verða innan við þriðjungur af eðlilegu framkvæmdastigi undanfarinna ára. Fulltrúi Samfylkingar situr hjá við afgreiðslu fjárhagsáætlunar." Júlíus Vífill Ingvarsson, Guðmundur Gíslason og Jórunn Frímannsdóttir lögðu þá fram eftirfarandi bókun: "Faxaflóahafnir búa að sterkri eiginfjárstöðu og miklum möguleikum til tekjuöflunar í framtíðinni. Lóðarsala hefur dregist saman en Faxaflóahafnir eiga verðmætar atvinnu- og íbúðalóðir sem tilbúnar eru til úthlutunar þegar eftirspurn fer að aukast. Gerð fjárhagsáætlunar við þessar aðstæður er vandasamt verk og rík ástæða til að þakka hafnarstjóra og öðru starfsfólki fyrir undrbúning áætlunarinnar sem byggir á hagræðingu án þess að gengið sé á rekstur eða þjónustustustig. Eðlilegt er að Faxaflóhafnir greiði arð til eigenda sinna. Að því hefur verið stefnt um nokkurt skeið. Minnt skal á að Orkuveita Reykjavíkur hefur greitt arð til eigenda frá upphafi. " Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxaflóahafna segir að arðgreiðslan nemi svipuðu hlutfalli og Orkuveitunni er gert að greiða. Hún muni ekki hafa áhrif á sjálfan rekstur hafnarinnar. „Við munum eftir sem áður halda uppi þeim rekstri og þjónustu sem verið hefur í boði hjá okkur," segir Gísli. Samkvæmt fjárhagsáætluninni er gert ráð fyrir að tekjur Faxaflóahafna nemi rúmlega 2,1 milljarði kr. á næsta ári sem er svipað og þær verða í ár. Gjöldin á móti nema um 1,9 milljarði kr. Fram kemur í máli Gísla Gíslasonar að tekjuskerðingu vegna kreppunnar hafi verið mætt með 4,5% hækkun á gjaldskrá hafnanna sem hann telur vera hóflega.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira