Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íslendingar vinna gegn svínaflensunni „Við erum á fullu að vinna í því að setja gáttina upp og fara að vinna gegn svínaflensunni í Mexíkó,“ segir Magnús Ingi Stefánsson, verkefnastjóri hjá TM Software, dótturfélagi Nýherja. 29.4.2009 04:15
Stjórnmálalegri óvissu verði eytt Á fundi nýrrar stjórnar Samtaka atvinnulífsins sem haldinn var í dag var áhersla lögð á að stjórnmálalegri óvissu verði eytt sem fyrst og að stefna landsins verði mótuð til framtíðar. Verulegur árangur í niðurskurði ríkisútgjalda sé forsenda þess að landið komist hratt upp úr öldudalnum, að mati stjórnarinnar. 28.4.2009 21:00
Aðeins hreyfing hjá Össur og Marel Aðeins urðu viðskipti með hlutabréf í Össur og Marel í kauphöllinni í dag og námu þau samtals rúmlega 100 milljónum kr. Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,7% og stendur í tæpum 218 stigum. 28.4.2009 15:35
Ársreikningur Stoða frestast fram á sumar Uppgjör Stoða (FL Group hf.) fyrir árið 2008 mun ekki verða birt 30. apríl eins og áður hefur verið tilkynnt um. 28.4.2009 14:50
Brúnin heldur að léttast á íslenskum neytendum Enn dregur úr svartsýni íslenskra neytenda samkvæmt væntingavísitölu Capacent Gallup sem birt var í morgun. Vísitalan hækkaði, annan mánuðinn í röð, sem er til vísbendingar um að brúnin er heldur farin að léttast á íslenskum neytendum eftir erfiðan vetur. 28.4.2009 12:52
Laus störf ekki verið fleiri síðan vorið 2006 Samkvæmt upplýsingum Vinnumálastofnunar voru 620 laus störf hjá vinnumiðlunum í lok síðasta mánaðar og var það talsverð fjölgun frá febrúarlokum þegar 423 störf voru auglýst laus hjá vinnumiðlunum. Ekki hafa verið fleiri laus störf í boði síðan á maí 2006 fyrir tæpum 3 árum. 28.4.2009 12:34
Gengi krónunnar styrkist á erlendum mörkuðum Gengi krónu hefur styrkst töluvert gagnvart evru á erlendum markaði undanfarna daga og hljóða tilboð í Reuters-tilboðakerfinu nú upp á u.þ.b. 220 kr. fyrir evruna. Er gengið erlendis nú svipað og var fyrir sex vikum síðan. 28.4.2009 12:18
Mál erlendra kröfuhafa SPRON gegn ríkinu þingfest Mál erlendra kröfuhafa SPRON á hendur Íslenska ríkinu var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Kröfuhafarnir telja að tjón þeirra vegna yfirtöku ríkisins á SPRON hlaupum á tugum milljarða króna. 28.4.2009 12:07
HB Grandi á sjávarútvegssýningu í Brussel Í morgun voru sjávarútvegssýningarnar European Seafood Exposition (ESE) og Seafood Processing Europe (SPE) í Brussel í Belgíu opnaðar formlega. HB Grandi hefur tekið þátt í ESE-sýningunni frá árinu 2005 og hefur þátttakan þar verið stór liður í starfi félagsins við að taka markaðssetningu sinna afurða i eigin hendur. 28.4.2009 11:46
Svínaflensan gæti kostað Ísland um 50 milljarða Svínaflensan gæti kostað Íslendinga allt að rúmum 50 milljörðum kr. ef hún breytist í skæðan faraldur. Ef um vægan faraldur verður að ræða er kostnaðurinn í kringum 13 milljarðar kr. 28.4.2009 11:08
Marel Food Systems lækkar mest í byrjun dags Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems féll um 3,45 prósent í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgir Össur, en gengi hlutabréfa fyrirtækisins lækkaði um 1,34 prósent. 28.4.2009 10:27
Langtímalán LS jukust um 11,5 milljarða í fyrra Útborguð langtímalán 2008 hjá Lánasjóði sveitarfélaga (LS) námu 15.5 milljörðum kr. miðað við 4 milljarða kr. árið áður. Jukust lánin því um 11,5 milljarða kr. á árinu. 28.4.2009 09:51
Vodafone sektað um 200 þúsund fyrir „fríkeypis“ auglýsingar Neytendastofa hefur dæmt Vodafone til þess að greiða 200 þúsund krónur í stjórnvaldssekt fyrir að nota orðið „fríkeypis“ í auglýsingum til fyrirtækja og á auglýsingaskilti. Áður hafði fyrirtækinu verið gert að hætta að tala um „fríkeypis“ í auglýsingum sínum þar sem notkun orðsins sé brot á lögum þar sem um var að ræða þjónustu sem viðskiptavinir þurfa að greiða fyrir með annari þjónustu. 28.4.2009 09:43
Kyrrsetningu eigna Glitnis í Noregi aflétt Í síðustu viku var aflétt kyrrsetningu á eignum Glitnis í Noregi sem staðið hefur frá falli bankans í byrjun október í fyrra. Með þessari niðurstöðu fær skilanefnd bankans óskorað forræði yfir eignum hans í Noregi, sem eru að andvirði um eitt hundrað milljarðar íslenskra króna. 28.4.2009 09:32
Gjaldeyrishöftum aflétt að hluta til í sumar Seðlabankinn áformar að aflétta gjaldeyrishöftunum að hluta til í sumar. Fjallað er um málið í daglegu fréttabréfi hagfræðideildar Landsbankans og þar er vitnað til viðtals sem Reuters átti við Svein Harald Öygard seðlabankastjóra um málið í gærdag. 28.4.2009 09:28
Össur hf. eykur hagnað sinn milli ára Hagnaður Össurar hf. á fyrsta ársfjórðungi ársins nam 7,6 milljónum dollara eða tæpum 10 milljörðum kr. , samanborið við 6,7 milljónir á sama tímabili árið 2008. 28.4.2009 08:39
Fjórðungi sagt upp hjá Teris Upplýsingatæknifyrirtækið Teris hefur sagt upp 34 starfsmönnum, eða um fjórðungi starfsmanna sinna. Uppsagnirnar koma niður á öllum þáttum starfseminnar og hafa sumir starfsmannanna unnið lengi hjá fyrirtækinu. Allir starfsmennirnir hafa þegar hætt störfum. 28.4.2009 04:30
Alls 259 í gjaldþrot á árinu Alls urðu 259 fyrirtæki gjaldþrota á fyrstu þremur mánuðum ársins. Það eru 48 prósentum fleiri gjaldþrot en á sama tímabili í fyrra, þegar þau voru alls 175 talsins, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands. 28.4.2009 04:15
Bakkabræður og Björgólfur fallnir af lista yfir ríkustu menn Bretlands Björgólfur Thor Björgólfsson og Bakkabræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir eru ekki lengur á lista yfir 1000 ríkustu menn Bretlands sem Sunday Times birti í gær. 27.4.2009 17:43
SPM fær greiðslustöðvun Umsókn um greiðslustöðvun Sparisjóðs Mýrarsýslu (SPM) var lögð fram hjá Héraðsdómi Vesturlands og var samþykkt í dag. Greiðslustöðvunin gildir í þrjár vikur. 27.4.2009 17:05
Breytt fyrirkomulag á útgáfu ríkisvíxla Til að svara eftirspurn markaðsaðila sem eru að byggja upp sjóði með skammtímaverðbréfum verður fyrirkomulagi ríkisvíxlaútgáfu breytt lítillega frá því sem nú er. 27.4.2009 17:00
Egla fær heimild til nauðasamninga Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í dag á beiðni Eglu hf. um heimild til þess að leita nauðasamnings við lánardrottna sína. 27.4.2009 16:58
Marel lækkaði mest í dag Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems endaði daginn 3,43 prósentum neðar en á föstudag og bréf Össurar 1,32 prósentum. Á móti hækkaði gengi bréfa Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls, um 2,08 prósent og Bakkavarar um 0,88 prósent. 27.4.2009 16:49
Seðlabankinn veitti heimild til skortstöðu gegn krónunni Seðlabankinn veitti bönkunum heimild til skortstöðu gegn krónunni á síðasta ári. Megnið af gengishruni krónunnar á þessum tíma má skrifa á reikning Seðlabankans, og þá einkum Davíðs Oddssonar þáverandi bankastjóra bankans. 27.4.2009 16:36
Kaupþing var þriðja stærsta gjaldþrot heimsins Þegar Kaupþing rúllaði yfir s.l. haust var þar um að ræða þriðja stærsta gjaldþrot heimsins frá árinu 1920. Jón Gunnar Jónsson bankamaður kom inn á þetta í Silfri Egils á sunnudag. Raunar fylgdi það sögunni að gjaldþrot Glitnis var hið fimmta stærsta í sögunni. 27.4.2009 13:51
Viðskiptavinir Nýja Kaupþings spara með rafrænum skjölum Viðskiptavinir Nýja Kaupþings sem eru með netbanka fá nú öll yfirlit hjá bankanum send rafrænt til sín. Þetta sparar hverjum og einum þúsundir króna árlega í sendingar- og pappírskostnað. Öll yfirlit eru geymd í netbankanum í 7 ár. 27.4.2009 12:46
Fjárþörf sveitarfélaga eykur framboð skuldabréfa Verulegur hluti nýs framboðs á verðtryggðum skuldabréfum á þessu ári mun væntanlega stafa af lánsfjárþörf sveitarfélaga. Mun þetta vega gegn minna framboði íbúðabréfa en vænst var. 27.4.2009 12:30
Gengi bréfa Marel Food Systems falla í byrjun dags Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems hefur fallið um 4,27 prósent frá því viðskipti hófust í Kauphöllinni í dag. Þá hefur gengi bréfa Össurar lækkað um 0,33 prósent. 27.4.2009 10:22
Samningar um skuldir/kröfur eru forsenda efnahagsvaxtar Það er forsenda efnahagsvaxtar á Íslandi að ný stjórn semji um skuldir og kröfur erlendra aðila. Þetta kemur fram í umfjöllun á Bloomberg fréttaveitunni. Þar segir að óþolinmóðir kröfuhafar og fjárfestar krefjist þess nú að skilmálum fyrir hinni alþjóðlegu aðstoð við Ísland verði fylgt eftir. 27.4.2009 10:06
Rúmlega 19 milljarða viðsnúningur hjá Íslandssjóðum Tap fært á hlutdeildarskírteini eigenda Verðbréfa- og Fjárfestingarsjóða Íslandssjóða var 68 milljónir kr. árið 2008 samanborið við hagnað upp á 19.3 milljarða kr. árið 2007. Þarna er því um rúmlega 19 milljarða kr. viðsnúning til hins verra hjá sjóðunum. 27.4.2009 09:38
Hagnaður botnfiskveiða og -vinnslu lækkaði í 13% árið 2007 Hagnaður botnfiskveiða og -vinnslu reiknaður samkvæmt árgreiðsluaðferð lækkaði úr 18½% árið 2006 í 13% árið 2007. 27.4.2009 09:26
Gjaldþrotum fyrirtækja fjölgar um 48% milli ára Fyrstu þrjá mánuði ársins 2009 er fjöldi gjaldþrota 259 en fyrstu þrjá mánuði ársins 2008 voru gjaldþrotin 175 sem jafngildir 48% aukningu milli ára. 27.4.2009 09:09
Spáir 11,7% verðbólgu í apríl Greining Íslandsbanka telur að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,3% í apríl. Ef spáin gengur eftir mun 12 mánaða verðbólga lækka úr 15,2% í 11,7% og verður hún þá svipuð og fyrir ári síðan. 25.4.2009 20:51
Nýherji skilar hagnaði á fyrsta ársfjórðungi Þórður Sverrisson forstjóri Nýherja segir að afkoma samstæðunnar á fyrsta ársfjórðungi 2009 hafi batnað umtalsvert frá fjórða ársfjórðungi 2008. Hann segir að þær fjölþættu aðgerðir sem gripið hafi verið til í því markmiði að lækka rekstrarkostnað samstæðunnar. vegna sviptinga og óvissu í íslensku efnahagsumhverfi séu komnar fram að hluta. Í febrúarmánuði hafi til dæmis komið til framkvæmdar 10% launalækkun hjá öllum starfsmönnum Nýherja og dótturfélaga á Íslandi. 25.4.2009 13:33
Decode selur Celera Decode hefur selt bandaríska líftæknifyrirtækinu Celera rétt á notkun á þremur erfðaprófum sem meta líkurnar á áhættuþáttum á borð við hjartasjúkdóma og sykursýki. 25.4.2009 10:06
Byr vill taka yfir greiðslumiðlun sparisjóðanna Byr hefur falast eftir því að taka yfir innlenda og erlenda greiðslumiðlun sparisjóðanna. Greiðslumiðlunin var áður í höndum Sparisjóðabankans en við þrot hans var gert ráð fyrir að sú þjónusta færðist yfir til Seðlabankans. 25.4.2009 10:03
Bréfin ruku upp um 390 prósent „Þetta er afskaplega góður samningur og jafngildir því að erfðaprófin eru komin í hillu í mjög stórri búð," segir Kári Stefánsson, forstjóri deCode en fyrirtækið hefur selt bandaríska líftæknifyrirtækinu Celera rétt á notkun á þremur erfðaprófum sem meta líkurnar á áhættuþáttum á borð við hjartasjúkdóma og sykursýki. 25.4.2009 07:30
Rekstur Icelandair Group jákvæður Rekstur Icelandair Group samstæðunnar gekk betur á fyrsta ársfjórðungi 2009 en áætlanir félagsins sögðu til um. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Munar þar mestu um að afkoma stærstu félaganna í samstæðunni, Icelandair og Travel Service, var talsvert umframvæntingar og hefur Icelandair ekki skilað jafn góðri rekstrarniðurstöðu á fyrsta ársfjórðungi fyrir skatta, fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) frá stofnun félagsins í núverandi mynd eða frá árinu 2002. 24.4.2009 21:01
Erlendir kröfuhafar í mál vegna yfirtöku ríkisins á SPRON Erlendir kröfuhafar SPRON hafa ákveðið að stefna íslenska ríkinu, Seðlabanka Íslands, Fjármálaeftirlitinu og SPRON vegna yfirtöku ríkisins á rekstri bankans. 24.4.2009 18:45
Gengi bréfa Marel Food Systems féll um fimm prósent Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems féll um fimm prósent í Kauphöllinni í dag en það er mesta lækkun dagsins. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Össurar um 0,77 prósent. Hins vegar skaust gengi bréfa Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls, upp um 11,33 prósent. 24.4.2009 16:35
Lífleg skuldabréfaviðskipti á miðvikudaginn Skuldabréfamarkaður kvaddi viðburðaríkan vetur með líflegum viðskiptum. Alls nam veltan á miðvikudag, síðasta dag vetrar, 13,6 milljörðum króna í ríkisbréfum og íbúðabréfum. Í greiningu Íslandsbanka kemur fram að kaupáhugi hafi verið töluverður fram eftir degi og krafa flestra markflokka lækkað, en kröfulækkun ríkisbréfa gengið að hluta til baka fyrir dagslok. 24.4.2009 16:14
Ekki tryggt að fiskveiðiréttindi haldist hjá aðildarríkjum ESB Ekki er tryggt að fiskveiðiréttindi haldist hjá aðildarríkjum innan ESB samkvæmt reglunni um hlutfallslegan stöðugleika. Þetta eru niðurstöður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem reifaðar eru í svokallaðri Grænbók um sjávarútvegsstefnu sambandsins. Skýrslan var kynnt á miðvikudag. 24.4.2009 15:54
Bankastjóri í 21 dag Sveinn Andri Sveinsson, sem ráðinn var bankastjóri Sparisjóðabankans þegar skilanefnd tók hann yfir um síðustu mánaðarmót, hefur látið af störfum, eftir 21 dag á forstjórastóli. Hann segir að skilanefnd bankans hafi ákveðið að spila stærri rullu í starfssemi bankans áður hafi verið ráð fyrir gert og því hafi reynst þarflaust að vera með bankastjóra. 24.4.2009 15:03
Álver gæti brætt 50% jöklabréfanna Hugmyndir um að leysa töluverðan hluta jöklabréfavandans með því að skipta þeim yfir í skuldabréf í dollurum sem Norðurál (Century Aluminium) myndi gefa út eru komnar lengra á skrið en áður var talið. Hægt væri að losa um 50% útistandandi jöklabréfa ef þessar hugmyndir verða að veruleika. 24.4.2009 10:41
Marel eitt á hreyfingu í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems lækkaði um 2,96 prósent í upphafi viðskiptadagsins í Kauphöllinni í dag. Fjögur viðskipti upp á 24,7 milljónir króna standa á bak við lækkunina. 24.4.2009 10:33